Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
3
Fréttir
Flugstöö Leifs Eirikssonar:
Kostnaðurinn um 28 milljónir
fram úr kostnaðaráætlun
Þegar kostnqðaráætlun bygging-
ar flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli var lögð fram í
maí 1983 var gert ráð fyrir að kostn-
aðurinn við bygginguna yrði 42
milljónir Bandaríkjadollara. Af
þeirri upphæð greiða Bandaríkja-
menn 20 milljónir en íslendingar 22
milljónir dollara.
Nú begar byggingu stöðvarinnar
er að ljúka er ljóst að kostnaðurinn
verður um 70 milljónir dollara og
mismuninn, 28 milljónir dollara,
verða íslendingar einir að greiða.
Þessar upplýsingar fékk DV hjá
- þá upphæð verða íslendingar einir að greiða
Steingrími Hermannssyni utanríkis-
ráðherra.
Margt veldur þvi að kostnaðurinn
fer svona langt fram úr áætlun.
Steingrímur benti á lækkun dollar-
ans og hækkun byggingarvísitölu
um 200% síðan 1983.
Þá sagði Þorsteinn Ingólfsson hjá
vamarmáladeild að landgöngum
hefði verið fjölgað úr þremur í sex
frá því sem gert var ráð fyrir í kostn-
aðaráætlun. Sömuleiðis hefði meira
rými verið innréttað í kjallara húss-
ins en áður var áætlað og síðan hafi
verið ákveðið að setja snjóbræðslu-
Fánar við hún á vígsludegi flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Upphaflega reikn-
uðu íslendingar meö að greiða 22 milljónir bandarískra dala, en fengu á
sinn reikning 50 milljónir dala.
kerfi á hlaðið. Allt hefði þetta kostað
sitt.
Ástæðan fyrir því íslendingar einir
taka á sig þær 28 milljónir dollara
sem kostnaðurinn hefúr farið fram
úr áætlun er sú að i samningum við
Bandaríkjamenn var gengið út frá
því að þeir tækju einungis á sig tæp-
an helming kostnaðar við bygging-
una samkvæmt kostnaðaráætlun en
ekki var gert ráð fyrir að þeir tækju
þátt í að greiða hugsanlega hækkun
byggingarkostnaðarins.
-S.dór
Sögur um stórfellt seladráp Hrafns Gunnlaugssonar:
Aðeins þrem
selum
- kjaftasógumar með
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri
„Þetta eru hreinar ýkjur og tóm
lygi. Það var þremur selum fargað að
viðstöddum dýralækni. Þeir voru
deyfðir á undan og til verksins var
fenginn vanur selveiðimaður. Senni-
lega hafa engir, af þeim þúsundum
sela sem eru drepnar hér við land,
verið drepnir á eins mannúðlegan
hátt,“ sagði Hrafh Gunnlaugsson við
DV á Akureyri í gærkvöldi um það
hvort hann hefði látið drepa þrjátíu
seli vegna kvikmyndunar myndarinn-
ar I skugga hrafnsins.
- Sagan segir líka, Hrafn, að hausun-
um hafi verið raðað upp á borð og
þeir kvikmyndaðir?
„Þetta er einnig ósatt.“
- En hvað um þann söguburð að þú
hafir neytt Helga Skúlason leikara til
að drepa selina?
„Eins og ég sagði var fenginn vanur
fargað
ólíkindum segir Hrafn
selveiðimaður til að drepa þessa þrjá
seli. I myndinni kemur þetta út eins
og Helgi drepi þá. Auk þess hef ég
ekki né myndi neyða Helga til eins
eða neins sem hann vildi ekki gera,
frekar en aðra leikara. Það hefur ekki
verið farið út fyrir handritið.“
Um selaatriðið sagði Hrafn að það
væri algert aukaatriði í myndinni.
Verið væri að sýna mann á selveiðum
niðri í fjöru þar sem hann fyndi hafrek-
in stórhveli.
„Til að fiiða „hysteríska" dýra-
vemdunarmenn get ég upplýst að
stórhvelin voru úr plasti.“
Hrafn sagði ennfremur að tökur
myndarinnar gengju vel og stæðust
tímaáætlanir. „En ég er orðinn ansi
leiður á öllum þeim gróusögum sem
ganga um tökur myndarinnar. Þær
eru með ólíkindum, kjaftasögumar
sem búið er að spinna upp,“ sagði
Hrafn.
Sfldarsalan til Sovétríkjanna:
Ekkert heyrist
fra Sovétmónnum
„Við lítum svo á að ekki hafi slitn-
að upp úr viðræðum við Sovétmenn
um saltsíldarsölu til Sovétríkjanna.
Aftur á móti teljum við að Sovét-
menn eigi að stíga næsta skrefið í
málinu en við höfum ekkert frá þeim
heyrt síðan viðræðum var frestað í
síðasta mánuði. Ég á varla von á að
neitt gerist í málinu fyrr en í lok
þessa mánaðar,“ sagði Einar Bene-
diktsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
síldarútvegsnefndar, í samtali við
DV.
Einar sagði að mjög mikið hefði
borið í milli í viðræðunum í júlí.
Eins og menn eflaust muna voru
samningaviðræðurnar í fyrra erfiðar.
Einar var spurður hvort hann teldi
þyngra fyrir fæti nú en í fyrra?
„Það má segja að í fyrra hafi
ágreiningsefnin verið fleiri og að því
leytinu til er léttara fyrir nú. Aftur
á móti ber ekki minna á milli að
þessu sinni hvað magni og verði við-
kemur,“ sagði Einar.
I fyrra keyptu Sovétmenn 200.000
tunnur af heilsaltaðri síld eftir mikið
þóf. Nú segjast Sovétmenn ekki geta
gefið upp hve mikið magn þeir séu
tilbúnir til að kaupa fyrr en verðið
liggur fyrir. í viðskiptasamningi Is-
lands og Sovétríkjanna er gert ráð
fyrir að þeir kaupi 200 til 250.000
tunnur af okkur.
Lokatilboð Sovétmanna í samn-
ingaviðræðunum í júli jafngildir eftir
stærðarflokkum 20% til 23% lækkun
í Bandaríkjadölum frá því í fyrra en
33% til 36% miðað við verðtilboð
íslendinga vegna komandi vertíðar.
-S.dór