Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Qupperneq 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
„Dassaeversá
besti í heimi”
- Alex Ferguson vill fá rússneska landsliðsmarkvörðinn til Man. Utd
# Ragnar Margeirsson sleppur úr strangri gæslu, varnarmaður Víðis bregður honu
Glæsimark K
eina sem gl
-Fram sigraði Víði, 3-1, á ísland:
Iþróttir______________
MUGGURÁ
ÞRIÐJUDEGI:
Einar Þor\»arðarson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, er
Kenginn til liðs við sitt gamla fé-
lag, Val, eins og fram hefur komið
í DV.
Eins og iðulega þegar íþrótta-
menn í fremstu röð skipta um félag
fylgja í kjölfarið vangaveltur um
hvað það félag, sem hnossið
hreppti. hafi þurft að leggja af
mörkum.
Ég hef fyrir því 100% heimildir
að Fram og Stjaman buðu Einari
mjög góða vinnu auk pcninga en
upphæðin, sem þessi tvö félög voru
tilbúin til að greiða, var hálf millj-
ón. Miklir peningamenn voru í
viðræðum við Einar fyrir hönd
Vals, Jón H. Karlsson, ÞórðurSig-
urðsson og ólafur H. Jónsson.
Þeir þurftu á endanum að snara
800 þúsundum á borðið fyrir Einar
og þar með var björninn unninn.
Menn þögðu
sem gröfin
Það vakti athygli margra, sem
lögðu leið sína í Laugardalinn um
síðustu helgi, að Einar Vilhjálms-
son spjótkastari var hvergi sjáan-
legur. Fjölmiðlar höfðu auglýst
mikið einvígi á milli Einars, Sig-
urðar Einarssonar og besta spjót-
kastara Svía. Mótshaldarar vissu
fyrir löngu að Einar myndi ekki
geta mætt og hefðu þeir því átt að
íáta fjölnúðla vita en það var ekki
gert og er vonandi að slíkur
klaufagangur endurtaki sig ekki.
Formaðurinn
missti af
mörkunum
Það er hætt við því að Gunnar
Guðmundsson, formaðui- knatt-
spymudeildar KR, verði tiður
gestur í sjoppunum á leikjum KR-
íiðsins í 1. deildinni það sem eftir
er tímabilsins. Á leik KRog Fram
á dögunum stefndi í ósigur KR-
inga eins og menn muna en staðan
þá var 0-2 Fram í hag. Gurrnar fór
þá og fékk sér pylsu, kom til baka
og þá var staðan orðin 1-2. Aflur
fór formaðurinn í pylsuleíðangur
og þegar hann leit aftur á leikinn
var staðan orðin 2-2. Þá kom ekki
annað til greina en að fá sér þriðju
pylsuna og það var ekki að sökum
að spyrja, þegar hann kom til baka
höfðu KR-ingar náð forystunni og
nægði hún þeim til sigurs í leikn-
um. Gunnar missti þvi af öllum
mörkunum en fékk jafnmargar
pylsur í staðinn.
Ingólfur
flytursig
til Eimskips
Ingólfur Hannesson, annar af
íþróttafréttamönnum Ríkisút-
varpsins, mun láta af störfúm hjá
stofauninni á næstu dögum. In-
gólfar hefúr verið ráðinn starfs-
mannastjóri hjá Eimskipafélagi
íslands. Menn eru þegar famir að
leiða að því getum hver verði eftir-
maður Ingólfs á útvarpinu og starfi
við hlið Samúels Amar Erlings-
sonar. Skúli Unnar Sveinsson,
formaður samtaka íþróttafrétta-
manna, er sterklega orðaður sem
eftirmaður Ingólfs en honum og
Samúel mun vera vel til vina.
Reikna má þó með að starfið verði
auglýst og ef að líkum lætur mun
fjöldinn allur af hæfúm mönnum
sækja um.
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, ætlar ekki að gef-
ast upp við að reyna að fá rússneska
• Sovéski landslidsmarkvörðurinn
Dassaev.
Sjö á EM í
Strasbourg
Sjö bestu sundmenn Islands taka
þátt í Evrópumeistaramótinu í sundi
sem fer fram í Strasbourg 18.-23.
ágúst. Það em Eðvarð Þór Eðvarðs-
son, Njarðvík, Amþór Ragnarsson,
SH, Ragnar Guðmundsson, Ægi,
Magnús Ólafsson, HSK, Ragnheiður
Runóllsdóttir, Akranesi, Hugrún Ól-
afsdóttir og Bryndís Ólafsdóttir, HSK.
„Þetta er öflugasta sundlið sem við
höfum sent á EM. Ef vel gengur á ég
von á að allir íslendingamir komist í
úrslit,” sagði Guðmundur Ámason,
blaðafulltrúi SSÍ. Guðmundur sagði
að sundmennimir hefðu æft mjög vel
að undanfömu, tvisvar á dag. „Þeir
hafa lagt mjög hart að sér og em
komnir í toppæfingu.”
Guðmundur Harðarson landsliðs-
þjálfari og Friðrik Ólafsson, aðstoðar-
þjálfari hans, hafa stjómað æfingum.
Þeir fara til Frakklands með hópnum
og einnig Guðfinnur ólafsson, formað-
ur sundsambandsins. -SOS
landsliðsmarkvörðinn Rinat Dassaev
til Old Trafford. Ferguson var búinn
að bjóða Moskvu Spartak 250 þús.
pund fyrir þennan snjalla markvörð
og uni tíma leit allt út fyrir að Dassa-
ev færi til United.
„Forráðamenn Moskvuliðsins vom
búnir að gefa grænt Ijós varðandi það
að Dassaev færi til United en þá kom
rautt ljós frá íþróttamálaráðuneyti
Rússlands,” sagði Ferguson.
Dassaev lék með heimsliðinu gegn
úrvalsliði Bretlandseyja á Wembley á
laugardaginn. „Dassaev er besti mark-
vörður heims. Peter Shilton er 37 ára
en Dassaev 30 þannig að hann á að
geta unnið gott starf hjá okkur. Ég
mun gera allt til að fá þennan snjalla
markvörð til Old Trafford,” sagði
Ferguson.
Þess má geta að tveggja ára dvöl
danska landsliðsbakvarðarins Johns
Sivebaek hjá United er á enda. Hann
verður að víkja fyrir Viv Anderson
sem Ferguson keypti frá Arsenal. Það
bendir allt til að Siveback fari aftur
til Vejle í Danmörku. -SOS
Staðan
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu er nú þannig eftir leik
Fram og Víðis á Laugardalsvelli í
gærkvöldi:
Fram-Víðir...............3-1
Valur ..13 8 4 1 25-9 28
KR ..13 7 4 2 25-11 25
Akranes ..13 7 2 4 25-20 23
Þór ..13 7 1 5 23-21 22
Fram ..13 5 3 4 26-19 21
KA ..13 4 3 6 14-12 15
Keflavík ..13 3 3 7 20-30 12
Völsungur. ..13 3 3 7 12-22 12
FH ..13 3 2 8 13-26 11
Víðir „13 1 7 4 11-24 10
• Markahæstir í deildinni eru nú
eftirtaldir leikmenn:
Pétur Ormslev, Fram..............9
Pétur Pétursson, KR..............8
Óli Þór Magnússon, ÍBK...........7
HalldórÁskelsson, Þór............6
Sigurjón Kristjánsson, Val.......6
Sveinbjörn Hákonarson, ÍA........6
Björn Rafasson, KR...............6
„I heild var þetta frekar slakur leikur
af okkar hálfu en sigurinn var okkar og
þrjú stig er alltaf kærkomin. Það er yfir-
leitt erfitt að leika gegn Víðismönnum,
þeir gefast aldrei upp. Næsti leikur er
gegn Þór í bikamum og vonandi mætum
við í góðu formi þá,“ sagði Pétur Ormslev
sem skoraði tvö mörk fyrir Fram í sigri
liðsins, 3-1, gegn Víði á Laugardalsvelli
í gærkvöldi. Pétur er þar með orðinn aft-
ur markahæsti leikmaður 1. deildar.
Leikur liðanna í gærkvöldi fór mjög
róglega af stað og fátt markvert gerðist.
Fram var að visu meira með knöttinn en
tókst ekki að skapa sér tækifæri. Víðis-
vömin barðist af krafti enda leikurinn
þeim mjög mikilvægur en staða liðsins í
deildinni er mjög slæm.
Víðir nær óvænt forystu
Þegar þrjátíu mínútur vom liðnar af
leiknum fór leikurinn að verða opnari.
Guðmundur Steinsson komst í mjög gott
færi eftir góða sendingu frá Pétri Ormslev
og rétt á eftir átti Ragnar Margeirsson
gott skot rétt framhjá. Það vom hins veg-
ar Víðismenn sem skomðu fyrsta mark
leiksins á 35. mínútu. Vilberg Þorvaldsson
fékk knöttinn á miðju vallarins og lék á
hvem Framarann á fætur öðrum og þegar
inn í vítateiginn kom skaut hann föstu
skoti og knötturinn hafaaði glæsilega í
netinu.
Framarar vakna til lífsins
Við markið virtist barátta koma í Fram-
liðið og sóknarþungi liðsins fór vemlega
að aukast. Á 40. mínútu barst knötturinn
inn í vítateig Víðis, Ragnar Margeirsson
tók við honum og hugðist leika á einn
vamarmann en var felldur. Dómari leiks-
ins dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu og úr
henni skoraði Pétur Ormslev af öryggi
og jafnaði leikinn. Skömmu seinna komst
Pétur í gott færi en brást.
Glæsimark Kristjáns
Á lokamínútu fyrri hálfleiks skoraði
Kristján Jónsson glæsilegt mark fyrir
Fram. Kristján fékk knöttinn úti við víta-
teigshom og lét þrumuskot ríða af og
knötturinn hafaaði efst í markhorninu
§ær, óveijandi fyrir markvörð Víðis.
Þetta má segja að hafi verið eini ljósi
punktur þessa leiks.
Fram réð gangi leiksins
í seinni hálfleik
í seinni hálfleik réðu Framarar að
mestu gangi leiksins en Víðir átti þó inni
á milli hættulegar skyndisóknir. Viðar
Þorkelsson átti hörkuskot að marki Víðis
en knötturinn fór hárfint yfir markið. Á
70. mínútu munaði minnstu að Víðir tæ-
kist að skora þegar Daníel Einarsson
skaut bogaskoti að markinu en Friðrik
Friðriksson varði vel með því að slá knött-
inn yfir markið.
Sjö mínútum fyrir leikslok skoraði síðan
Pétur Ormslev sitt annað mark í leiknum.
Þorsteinn átti góða sendingu inn fyrir
vöm Víðis og Pétur Ormslev hljóp af sér
vömina og lék á markmann Víðis og skor-
aði.
Fram þurfti ekki að sýna neinn stórleik
til að vinna sigur í þessari viðureign, lið-
Leikmenrienska knattspyrnuliðsins Liverpool hafa verið á þeysireið
í Evrópu undanfarna daga. Á dögunum tapaði liðið illa fyrir Bayern Múnchen
í Vestur-Þýskalandi en leikmenn Liverpoolliðsins náðu að sýna sitt rétta
andlit gegn norska liðinu Válerengen um síðustu helgi er Liverpool sigraði,
4-1. Á myndinni kljást þeir Steve Nichol, Liverpool, til vinstri og Norðmaður-
I inn Oyvind Husby í leik liðanna. Símamynd/Reuter