Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Thorsplansmálið:
Ekki búið
að áfiýja
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar hefur enn
ekki tekið ákvörðun um hvort áfiýja
skuli dómi bæjarþings sem dæmdi
bæjarsjóð Hafnarfjarðar til að greiða
Landsbanka íslands rúmar 37 milljón-
ir króna vegna eignamáms á lóð
Kveldúlfs sem almennt gengur undir
nafiiinu Thorsplanið.
Að sögn Guðmundar Áma Stefáns-
sonar bæjarstjóra verður ákvörðun
um áfrýjun sennilega ekki tekin fyrr
en í næstu viku. Dómur bæjarþings í
máhnu gekk um síðustu mánaðamót.
ATA
Skriðjökull
með
skemmtistað?
lón G. Haulcssan, DV, Akureyit
Ragnar Gunnarsson, söngvari
Skriðjökla, hefur sótt um leyfi hjá
bæjarfógetaembættinu á Akureyri um
að reka veitinga- og skemmtistað að
Glerárgötu 34. Móðir Ragnars, Val-
gerður Sveinsdóttir, var þar áður með
verslunina Skemmuna. Skemmtistað-
urinn verður rekinn sem matsölustað-
ur með vínveitingaleyfi en jafhframt
dansstaður með bæði lifandi tónlist
og diskóteki.
Alþýðubandalagið:
Vaxtahækkun
reiðarslag
„Nú er hins vegar ljóst að niður-
greitt fjármagn hefur í nokkrum mæli
runnið til efriafólks og braskara með-
an lágtekjufjölskyldur búa við alvar-
lega óvissu í húsnæðismálum," segir
meðal annars í ályktun þingflokks
Alþýðubandalagsins um húsnæðismál.
Þingflokkurinn telur að efla þurfi
félagslegar íbúðabyggingar með nýrri
löggjöf og auknu fjármagni. Þá telur
hann að hækkun vaxta af húsnæðisl-
ánum yrði óbærilegt reiðarslag þeim
fjölskyldum sem hafa nýlega fjárfest í
sínu fyrsta húsnæði. Hins vegar telur
þingflokkurinn að hætta eigi niður-
greiðslum vaxta til þeirra sem taka
lánin til annars en kaupa á hóflegu
húsnæði til eigin nota.
I annarri ályktun skorar þingflokk-
urinn á ríkisstjómina að fela nýskip-
aðri nefiid um málefni fjölskyldunnar
að kanna í upphafi starfs síns áhrif
stóraukinna skatta á matvæli á af-
komu fjölskyldna í landinu.
-ES
Karl
heims-
meistari
í umflöllun DV um heimsmeistara-
mótið í Austurríki urðu þau mistök
að telja Norðmanninn Eric Andersen
heimsmeistara í samanlögðum fjór-
gangsgreinunum. Þvi miðiu- fyrir
hann þá mun það vera Þjóðverjinn
Karly Zingsheim, sem keppti á Loft-
fara, sem er heimsmeistari og er afi-ek
hans allnokkurt því að hann náði titl-
inum með samanlögðum stigum úr
þremur greinum. Hann féll úr keppni
í víðavangshlaupinu er hann datt af
baki og fékk engin stig þar. Erfitt var
að fá útreikninga á mótinu og eins
má geta þess að tæplega eitt hundrað
manns urðu að yfirgefa svæðið áður
en úrslit urðu í töltinu og verðlaunaaf-
hendingar samanlagðra heimsmeist-
ara.
E.J.