Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
11
Utiönd
Danir kjósa í september
Haukur L. Hauksson, DV, KaupmannahöfrL
Poul Schliiter, forsætisráðherra
Danmerkur, kom ófáum í opna skjöldu
í gær með því að boða til kosninga
8. september næstkomandi. Hafði
þingið verið kallað sérstaklega saman
til að afgreiða lagafrumvörp er eiga
að stöðva vinnudeilu tölvufólks hjá
hinu opinhera annars vegar og lækna-
sérfræðinga hins vegar.
En áður en þingfundir hófust boðaði
forsætisráðherra til kosninga og bað
síðan þingið að hefja störf samkvæmt
áætlun. Þar með braut hann blað í
dönskum þingræðishefðum en ekki
hefur áður þekkst þar að þing hefji
störf eftir að sto&iað hefur verið til
kosninga.
Áframhaldandi seta ríkisstjómar-
innar, þrátt fyrir minnihluta á þingi í
mikilvægum málum eins og efhahags-
og vamarmálum, þykir heldur ekki
vera samkvæmt viðteknum hefðum
svo Schlúter er ekki óvanur að fara
eigin leiðir. Lagalega er ekkert við það
að athuga en þingið er starfhæft þar
til ný kosningaúrslit liggja fyrir.
Svend Jakobsen, forseti þingsins,
hafði uppi efasemdir varðandi siðferð-
islega hlið málsins þar sem boðað var
til kosninga með afar stuttum fyrir-
vara og um leið séð til þess að þingið
væri við störf hluta kosningabarátt-
unnar. Jafhaðarmaðurinn Svend
Auken talaði um suður-amerískar að-
ferðir og vísaði þá meðal annars til
kænsku forsætisráðherrans, að koma
aftan að stjómarandstöðunni og nota
sér óheppilega stöðu jafhaðarmanna.
Anker Jörgensen var í Búlgaríu og
annar forystumanna flokksins var í
Indlandi þegar kosningar vom boðað-
ar. Jafhaðarmenn halda auk þess
ársfund sinn helgina 5. og 6. septemb-
er og vegna reglna um tíma stjóm-
málaflokka í sjónvarpi rétt fyrir
kosningar birtist ekkert frá þeim fundi
á skjánum. Annars var ánægja og um
leið léttir í þinginu vegna komandi
kosninga. Hjá aðilum viðskiptalífsins
og vinnumarkaðarins var einnig um
óblandna ánægju að ræða.
Efhahagsleg óvissa hefur legið yfir
stjómmála- og atvinnulífinu undan-
farið. Þótti séð að stefha ríkisstjómar-
innar hafði beðið nokkum hnekki og
því stórverkefiii framundan. Greiðslu-
hallann við útlönd, aukið atvinnuleysi
og versnandi samkeppnisstöðu Dana
ber hæst á verkefiialistanum. Schluter
gerði sér grein fyrir því að ástandið
myndi versna fram að áramótum og
til að geta tekið á vandamálunum með
ákveðni væri best að hreinsa loftið á
vettvangi stjómmálanna sem fyrst.
Fyrir núverandi ársfjórðung em
efiiahagstölumar þó ekki svo slæmar
og því tilvalinn tími til kosninga en
eins og forsætisráðherra sagði sjálfur:
„Það er ófært að vaða lengur í pólit-
ískri óvissu varðandi efhahagsmálin.
Slá þarf sem fyrst föstu hver stjóma
eigi næstu árin. Kosningar nú koma
í veg fyrir langvarandi skítkast milli
stjómmálamanna og við þingsetningu
í október verður hægt að einbeita sér
að biýnustu verkefhum í stað þess að
hugsa um kosningar í nóvember."
í danska þinginu em 179 sæti. í kom-
andi kosningum bjóða fleiri flokkar
fram en nokkm sinni fyrr eða 16. Þar
af em 9 á þingi. Til að fá mann kjör-
inn þarf minnst 2 prósent atkvæðanna.
Skoðanakannanir spá allar auknu
fylgi Sósíalíska þjóðarílokksins sem
verður líklega þriðji stærsti flokkur-
inn eftir kosningar. Þingflokkar eins
og Vinstri sósíalistar og stjómarflokk-
urinn Kristilegi þjóðarflokkurinn
munu líklegast beijast við 2 prósent
mörkin. Óvissa í spánum orsakast
meðal annars af 300 þúsund nýjum
kjósendum.
Vangaveltur um komandi stjóm em
margvíslegar en ganga þó mikið út á
fjögurra flokka stjóm eins og nú er
væri háð stuðningi Framfaraflokksins
sem er yst til hægri. Þykir það ekki
óhugsandi möguleiki vegna spár um
fylgisaukningu Framfaraflokksins. Ef
núverandi stjóm ásamt stuðnings-
flokki sínum, Róttæka vinstri flokkn-
um, fær þingmeirihluta mun
núverandi stjóm halda sjálfkrafa
áfram. En hver sem samsetningin
verður á borgaravængnum þá mun
forsætisráðherra hans heita Poul
Schlúter.
í kosningabaráttu borgaraflokk-
anna verður varað við rauðri ríkis-
stjóm jafriaðarmanna og Sósíalíska
þjóðarílokksins sem þá yrði undir for-
ystu Anker Jörgensens. Em þetta
örlagakosningar fyrir Anker þar sem
flestir em sammála um að ef hann
tapar á ný eigi hann að draga sig í
hlé og leyfa nýju fólki að komast til
valda í Jafhaðarmannaflokknum.
Danir hafa fengið nýja ríkisstjóm
annað hvert ár að meðaltali frá stríðs-
lokum. Núverandi ríkisstjóm hefur
þvi setið lengi á danskan mælikvarða
eða frá 1982, það er að segja miðað
við borgaralegu flokkana, og Poul
Schlúter lengst allra borgaralegra
stjómmálamanna í Danmörku á þess-
ari öld.
Eftir að orðin atvinnuleysi, fjárlög,
skattaálögur, fátækt, flóttafólk og
fleiri hafa bergmálað á heimilum Dana
og ekki síst í eyrum 300 þúsund nýrra
kjósenda næstu þijár vikur verður séð
hvort Poul Schlúter hefur verið svo
kænn að boða til kosninga nú eða
hvort hann fellur á eigin bragði.
Rotei 1080rafeindastýrðkr. 11.900, staðgrekJd 11.300.
Rotel 1060 rafeindastýrð kr. 10.900, staðgreidd 10.355.
Rotei 1030 stillanlegt sog kr. 8900, staðgreidd 8450.
Svissneskar glæsilegar ryksugur.
Láttu sumartilboðið ekki fara fram hjá þér.
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28, sími 91-622900.
Poul Schliiter, forsaetisráðherra Dana, gerði sér grein fyrir að ástandið í Dan-
mörku myndi versna fram að áramótum. Þvi væri best að hreinsa loftið á
vettvangi stjómmálanna sem fyrst.
sem ekki gengu út síðasta laugardag, leggjast við
fyrsta vinning næst Spáðu í það!
Lottó 5/32 Upplýsingasími: 685111
KYNNINGARÞJONUSTAN MA