Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
15
Lesendur
Leyfi til
Pirraður ökumaður skrifar:
Hvað þarf eiginlega að koma til svo
að bændur fari að halda sauðfénaði
sínum utan vega? Hvers eigum við
ferðalangar að gjalda?
Ég er búinn að ferðast þó nokkuð
um landið í sumar og ég á ekki til orð
yfir því ófremdarástandi sem ríkir í
þessum blessuðu vegalambamálum
hér á landi. Hvar sem maður er á ferð
liggja þessi kvikindi utan í vegakönt-
unum og oftar en ekki á vegunum
sjálfum svo að liggur við stórslysum.
að keyra
Hvað finnst ykkur íslendingar góðir
um þá hugmynd að sekta hreinlega
þá bændur sem eiga kindur sem verða
fyrir bílum? Er það ekki gáfulegra
heldur en að láta ferðalangana borga
skaðann? Bændur myndu þá kannski
gera eitthvað til að halda þessum jórt-
urdýrum frá þjóðvegunum.
Ein góð hugmynd er líka sú að selja
erlendum ferðamönnum sem og viljug-
um löndum, rolluákeyrsluréttindi. Þá
myndi fólki hlotnast, fyrir ríflegt gjald
að sjálfsögðu, frjálst leyfi til að keyra
á rollur
á rollur hvar á vegum sem þær finnast.
Þetta gæti orðið mjög vinsælt þvi
þama væri hægt að sameina nokkurs
konar rallý- og veiðidelluáráttu auk
þess sem við íslendingar myndum
stórgræða á sölu ákeyrsluleyfa, fækka
þessum kvikindum sem alls staðar
flækjast, öllum til ama og þar að auki
stórminnka fjölda haugalambanna.
Svei mér þá ef þetta gæti ekki bara
orðið mikil búbót í ríkissjóð og góð
lausn fyrir pirraða bíleigendur.
Gangstéttagerð í Garðabæ:
, • V -
Garðbæingui' hringdi:
Nú er verið að steypa gangstéttir
í Garðabænum, t.d. við Ásbúð og
Holtsbúð. Og þvílík hörmung um-
gengnin hjá þessum verktökum.
Fólk kemst ekki leiðar sinnar fyrir
steinum, sandi og rusli. Þetta ástand
er með öllu óforsvaranlegt. Ég er nú
nýbúinn að horfa á unga konu með
bamavagn klöngrast Jietta með
herkjum. Hver ber ábyrgðina ef eitt-
hvað kemur fyrir?
Ég hef talað um þetta og kvartað
við eftirlitsmennina hjá Garðabæ en
þeir gera ekkert, í málinu.
Ástæðan fyrir þessu kvarti mínu
er að áður háfa verið steyptar gang-
stéttir í Garðabænum, nú síðast í
hittifyrra, og þá sást aldrei svona
umgangur, alch-ei nokkum tíma. Allt
var mjög snyrtilegt og þvf eru þetta
mikii viðbrigði. Þegar aðrir verktak-
ar haía sýnt gott fordæmi þá er þetta
svo óþrifalegt. Ég bara skil ekki af
hverju ekki er samið við verktaka-
fyrirtæki sem hægt er að treysta fyrir
betri umgengni.
Bréfritari kvartar yfir óþrifalegri umgengni við gangstéttagerð f Garðabæ.
„Fólk kemst ekki leiðar sinnar fyrir steinum, sandi og rusli.“
burímæ
OLLUM
ALDRI
VANTARí
EFTIRTALIN
HVERFI
AFGREIÐSLA
Þverholti 11, sími 27022
Reykjavík
Eiriksgötu
Mímisveg
**********************
Laugaveg, oddatölur
Bankastræti, oddatölur
***********************
Lindargötu
Klapparstig 1-30
Frakkastig 1-9
***********************
Furugerði
Seljugerði
Viðjugerði
***********************
Háagerði
Langagerði
************************
Sörlaskjól
Nesveg 21-t
****************************
Skeljagranda
Nýlendugötu
Tryggvagötu 1-9
*************************
Grundarstíg
Ingólfsstræti
Amtmannsstig
Bjargarstig
Laufásveg
Miðstræti
*************************
Freyjugötu
Þórsgötu
Lokastíg
**************************
Rauðarárstig 18-út
Háteigsveg 1-40
Meðalholt
***************************
Aðalstræti
Garðastræti
Grjótagötu
Hávallagötu
***************************
Bakkavör, Seltjarnarnesi
Skólabraut, Seltjarnarnesi
Unnarbraut, Seltjarnarnesi
Melabraut, Seltjarnarnesi
Garðyrkjuvörur—Útsala
30%
afsláttur
af garðyrkjuvörum meðan birgðir endast,
svo sem skóflum,
hrífum, hjólbörum,
slöngum, slöngutengjum o.þ.h.
Gríptu tækifærið
VATNSVIRKINN/
Ármúla 21, s. 685966
Lynghálsi 3, s. 673415
rainx
Guðmundur Kristjónsson, skipstjóri á SH Úlfari Kristjónssyni,
mæli eindregið með RAIN-X á skipa- og bátarúður.
RAIN-X hrindir seltunni frá rúðunum og heldur þeim hreinum.
Fæst á næstu bensínstöð.
,iuP
Manitóbaháskóli. Prófessors-
staða í íslensku er laus til
umsóknar.
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum til
starfs við íslenskudeild Manitóbaháskóla og boðið
upp á fastráðningu (tenure) eftir tiltekið reynslutíma-
bil í starfi ef öllum skilyrðum er þá fullnægt. Staðan
verður annaðhvort veitt á stiginu „Associate Profess-
or" eða „Full Professor" og hæfur umsækjandi settur
frá og með 1. júlí 1988. Laun verða í samræmi við
námsferil, vísindastörf og starfsreynslu. Hæfur um-
sækjandi þarf að hafa lokið doktorsprófi eða skilað
sambærilegum árangri á sviði íslenskra bókmennta
bæði fornra og nýrra.
Góð kunnátta í enskri tungu er nauðsynleg sem og
fullkomið vald á íslensku rit- og talmáli. Kennara-
reynsla í bæði málfræði og bókmenntum er mikilvæg
og æskilegt að umsækjandi hafi til að bera nokkra
kunnáttu í nútímamálvísindum. Þarsem íslenskudeild
er að nokkru leyti fjármögnuð af sérstökum sjóði og
fjárframlögum Vestur-islendinga er ráð fyrir því gert
að íslenskudeild eigi jafnan drjúga aðild að menning-
arstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um
þetta embætti. Samkvæmt kanadískum lögum ganga
kanadískir þegnar eða þeir sem hafa atvinnuleyfi í
Kanada fyrir.
Umsóknir eða tilnefningar með ítarlegum greinargerð-
um um námsferil, rannsóknir og starfsreynslu, sem
og nöfnum þriggja er veitt geti nánari upplýsingar,
berist fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba