Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
/
17
Iþróttir
Iþróttir
• Pierre Littbarski.
Uttbarski
farinn til
föðurhúsanna
Kölnarliðið keypti í gærkvöldi
v-þýsku landsliðskempuna Pierre
Littbarski fró Racing Club de Par-
is. Kaupverðið var 40 milljónir
íslenskar krónur. Var Littbarski
svo heimfús að hann lánaði Köln
stóran hluta af verðinu svo að sam-
an gengi milli félaganna.
Þess má geta að Littbarski lék
áður með Köln og er hann þvi
kominn til föðurhúsanna. Udo lat-
tek, framkvæmdastjóri félagsins,
er nú vart við jörðina. Hann sótti
nefnilega fast að fó Littbarski til
liðs við félagið. Var hann staðráð-
inn í að gefa hvergi eftir fyrr en
saman væri gengið milli sín og
Frakkanna í Racing Club.
-JÖG
Brassi til
Leverkusen
Jön Kiisíán aguiÖBBan, DV, Strasbouig;
Leverkusen heiúr styrkt liðsafla
sinn með knattspymumanni ársins
í Brasilíu. Sá heitir Quarozba
Taxao og er hann 29 ára gamall.
Leikur 1 axao í fremstu víglínu og
þykir hann með afbrigðum mark-
heppinn og skæður. Eru miklar
vonir bundnar við kappann -
kaupverðið var 14 milljónir íslen-
skar krónur. -JÖG
Sex í Hamborg
SigmOir BjöircBai, DV, V-íýakalandi;
Hamborgarar gerðu jaíhtefli við
Hannover í gærkvöldi. Var leikur-
inn hður í landskeppninni v-þýsku
og gerði hvort lið þrjú mörk.
Segja mó að Hamborgarar hafi
sloppið með skrekkinn því þeir
gáfti eftir miðjuna og áttu undir
högg að sækja.
Mörk Hannover gerðu Drews,
tvö og Kohn eitt.
Mörk Hamborgara skoruðu hins
vegar þeir Labadia, Kalz og Bein.
-JÖG
Indverji
á Skagann
Akumesingar og Borgnesingar
hyggjastl lyfta íþróttalífi sínu
næsta vetur. Er indverskur bad-
mintonþjólfari væntanlegur á
Skagann og mun hann leiðbeina
iðkendum íþróttarinnar í báðum
bæjarfélögum. Kappinn ber nafnið
Dipu Ghosh og telst hann virtur í
badmintonveröldinni. -JÖG
Þjálfari FH
í leikbann
- níu leikmenn dæmdir í bann í gærkvöldi
Ian Fleming, þjálfari 1. deildar liðs
FH í knattspymu, var í gærkvöldi
dæmdur í eins leiks keppnisbann
af aganefnd KSÍ. Fleming var
dæmdur i bann þar sem hann hefur
fengið að sjá sex gul spjöld í leikj-
um FH í sumar. Hann mun taka
* út bann sitt í leik FH gegn Völs-
ungi. Þetta er í annað sinn sem
Fleming hefur verið dæmdur í leik-
bann.
Alls vom níu leikmenn dæmdir
I
I
í leikbann. Allir fengu þeir eins
leiks bann. Þeir vom: Guðlaugur
Jónsson, Grindavík, Grétar Hilm-
arsson, Haukum, Hjörtur Davíðs-
son, Reyni, Sandgerði, Sigurfinnur
Sigurjónsson, ÍR, Ömólfur Odds-
son, ísaijörður, Þorsteinn Vil-
hjálmsson, Fylki, Guðbrandur
Guðbrandsson, Tindastóli og
Garðar Níelsson, Reyni, Árskógs-
strönd.
-SOS
„Albatrossinn"
missti flugið
Jón Kiistján Siguióssan, DV, Sbasbouig;
Mikjáll Gross, albatrossinn, varð
öllum á óvart þriðji í 200 metra skrið-
sundi. Réð kappinn ekki við „flugtök"
Svíans Anders Holmertz sem sigraði á
glæsilegan hátt.
Fyrir sundið í gær var Gross ákaf-
lega óstyrkur og þjófstartaði einn
manna. Hann hafði þó forystuna þegar
sundið hófet og stefndi í heimsmet af
hans hálfu um hríð. Sá sænski átti
hins vegar ótrúlegan endasprett. Sló
hann öllum við og kom fyrstur í mark,
sekúndu frá heimsmeti. Sigurtíminn
var 1:48,44 mínútur.
Italinn Giorgio Lamberti sigldi með
svipuðu lagi og nefndur Holmertz fram
úr Gross á síðustu metrunum. Með því
afreki hreppti hann annað sætið. Tími
Lambertis var 1:48,68 mínútur.
Tími Albatrossans var slakari í úr-
slitum en í undanriðlum. Þar náði
hann 1:48,47 mínútum en þegar mest
réð á að hann stæði sig fékk hann tím-
ann 1:49,02.
I spjalli við DV sagðist Gross hafa
misst flugið á síðustu metnmum.
Jón
Kristján
Sigurðs-
son
skrifar
frá
EM í Strassburg
„Ég var gjörsamlega búinn í lokin
og gat varla hreyft mig á síðustu metr-
unum. Ég veit ekki hvað olli þessu en
líklega hef ég farið of geyst í byrjun."
Þess má geta að fósturfaðir Hol-
mertz hefur verið leiðbeinandi hans frá
upphafi. Grét sá af gleði er hann leit
sinn mann koma fyrstan í mark með
sjálfan Albatrossinn „á hælunum."
Heimsmet í Strasbourg
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Strasbourg:
Eitt heimsmet var sett á Evrópumótinu í Strasbourg í gær. A-þýska
kvennasveitin braut blað í 4x200 metra skriðsundi. Fór hún nefnda vega-
lengd á 7:55,47 mínútum og bætti eldra met um tæpar 4 sekúndur. Það
var raunar eign sömu sveitar. -JÖG
ilil —*
• Þrjár landsliðskempur i tveimur iþróttagreinum sýna með hvaða lagi á að
þeyta nöglum úr tréborðum. Júlíus Jónasson, Jakob Sigurðsson, með reiddan
hamar til höggs og Njáll Eiðsson næstur linsunni. DV-mynd Brynjar Gauti
Evrópumet í aðsigi • Englendingurinn Adrian Moorhouse kemur úr kafi en hann setti Evrópumet í
100 metra bringusundi. Keppnisstaðurinn var Strasbourg í Frakklandi.
Tími kempunnar var 1:02,13 mínútur. Þess má geta að Moorhouse átti sjálfur eldra metið.
Símamynd Reuter/JKS
Islandsmet Bryndís-
ar dugði fullskammt
- hún var hálfrí sek. frá ólympíulámarki í 100 m skriðsundi
Jón Kristján Sigurössan, DV, Strasbouig:
„Ég er ekki sáttur við hlut okkar sund-
manna enda reiknaði ég með betri
frammistöðu, sérlega hjá Amþóri. Þá synti
Magnús einnig of hægt að mínum dómi í
upphafi. Það vantaði einfaldlega neistann.
Líklega hefur taugastrekkingur ráðið
þessum úrslitum. Strákamir eiga allir að
geta gert miklu betur.“
Þetta sagði Guðmundur Harðarson
landsliðsþjálfari er ljóst var að okkar fólk
færi ekki í úrslit á fyrsta keppnisdegi.
Vonbrigðin em að vonum nokkur en
gleðilegt er þó íslandsmet Bryndísar Ólafe-
dóttur í 100 metra skriðsundi.
Bryndís Ólafsdóttir
synti á 58,87 en það afrek hennar dugði
skammt. Hún bætti íslandsmetið um hálfa
sekúndu en sá tími er samt hálfa sekúndu
frá ólympíulágmarki. Bryndís varð 7. af 8
keppendum í sínum riðli. Ef á heildina er
litið varð hún hins vegar 17. af 26 keppend-
um. 16 stúlkur komust í úrslit í 100 metra
skriðsundi.
I spjalli við DV sagðist Bryndís fjarri
því sátt við sinn hlut.
„Ég veit að ég get miklu betur,“ sagði
hún. „Það var ekki nægjanleg stígandi í
þessu, ég synti fyrstu 50 metrana allt of
hægt og það olli mér erfiðleikum í lokin.“
Bryndís á að keppa í 200 metra skrið-
sundi í dag og vonast til að bæta Islands-
metið í þeirri vegalengd.
Arnþór Ragnarsson
varð 4. í sínum riðli í 100 metra bringu-
sundi. Tími kappans var 1:08,10 mínútur
og dugði skammt. Ef á heildina er litið
varð Amþór í 28. sæti af 30 keppendum.
Ragnar Guðmundsson
varð sjötti í mark í undanriðlum í gær.
Hann keppti í 200 metra skriðsundi. Synti
Ragnar vegalengdina á 2:02,06 mínútum.
Sá tími dugði skammt með sama lagi og
hjá áðumefhdum kempum. Hafnaði Ragn-
ar í 29. sæti af 30 keppendum sé mið tekið
af öllum sem syntu þessa vegalengd með
sömu sundtökum.
Magnús Már Ólafsson
keppti í sama sunúi og stóð sig nokkuð
betur. Að vísu varó hann áttundi eða síð-
astur í mark í snium riðli. Hann varð hins
vegar í 32. sæti með hliðsjón af heildinni.
Tími Magrúsar var 1:55,69 mínútur.
-JÖG
Valsgarpar leika
á Hlíðarenda
Valsmenn hyggjast leika heimaleiki
sína í nýju íþróttahúsi á Hlíðarenda.
Verður mannvirkið tekið í notkun og
vígt á komandi hausti. Ljóst er að
þetta er styrkur félaginu því hverju
liði er akkur að því að glíma heima.
Þá má telja að fjárhagslegur ávirming-
ur verði nokkur er fram líða stundir
þar sem leigugreiðslur til Reykjavík-
urborgar falla niður.
Er DV-menn bar að garði í gær fóru
meistaraflokksmenn í knattspymu og
handknattleik hamförum á hlaðinu.
Var nöglum þeytt úr borðum svo að
söng í öllum Hlíðunum.
Þá voru iðnaðarmenn að störfum
undir þaki en þeir leggja um þessar
mundir undirlag fyrir trégólf það sem
verður í keppnissalnum.
-JÖG
Met í morgun
Jón Kristján Siguiössan, DV, Strasbourg;
„Ég tek þetta mjög nærri mér og þetta
verður skoðað þegar heim kemur,“ sagði
Friðrik Guðmundsson, þjálfari íslenska
sundfólksins, í samtali við DV í morgun hér
á EM. Þrír íslendingar stungu sér til sunds
í morgun. Biyndís Olafedóttir setti Islands-
met í undanrásum í 200 m skriðsundi, 2:06,23
min., en varð í 21. sæti og komst ekki í
úrslit. Systir hennar, Hugrún, varð 24. á
2:07,95 niín. • Ragnheiður Runólfsdóttir
keppti í 200 m bringusundi og varð 21. af 22
keppendum á 2:43,02 mín. Eins og sjá má hér
að framan var þjálfarinn ekki ánægður með ár-
angurinn. -SK
Hermann tekur stöðu
Hauks í 21 árs liðinu
- sem mætir Dönum í Evrópukeppninni
Hermann Haraldsson, markvörður í
knattspymu, sem er leikmaður með
danska félaginu KB, tekur stöðu
Hauks Bragasonar, KA, í 21 árs
landsliðinu sem leikur gegn Dönum
í Evrópukeppninni í næstu viku.
Þetta er eina breytingin frá lands-
liðshóp íslands sem lék gegn Finnum
á Akureyri á dögunum.
Hermann hefúr leikið fimm leiki
með 21 árs liði KB og fengið aðeins
á sig tvö mörk í þeim. Eldri leik-
mennimir i liðinu em Sævar Jóns-
son, Val, og Erlingur Kristjánsson,
KA.
Aðrir leikmenn í landsliðshópnum,
em: Páll Ólafeson, Þorsteinn Guð-
jónsson, Andri Marteinsson, Þor-
steinn Halldórsson og Rúnar
Kristinsson úr KR, Þorvaldur Ör-
lygsson og Gauti Laxdal, KA,
Haraldur Ingólfsson og Ólafur Þórð-
arson, Akranesi, Jón Grétar Jóns-
son, Val, og Þórsaramir Hlynur
Birgisson, Siguróli Kristjánsson og
Július Tryggvason.
-SOSj
GústafVifHsson var
hetja Fylkismanna
Fýlkir með 4 stiga forskot í 3. deild
Fylkismenn juku forskot sitt á toppi
3. deildar þegar liðið sigraði Aftureld-
ingu, 2-1, í MosfeUsbæ í gærkvöldi. Á
sama tíma tapaði Stjaman mjög óvænt
á heimavelli fyrir Leikni og Fylkis-
menn hafa því fjögurra stiga forystu
þegar aðeins 3 umferðir em eftir.
• Leikur Fylkis og Aftureldingar
var opinn og fjömgur. Fylkismenn
komust yfir í byrjun síðari hálfleiks
með marki Baldurs Bjamasonar.
Óskar Óskarsson jafnaði metin
skömmu síðar fyrir heimamenn og á
lokamínútunum áttu bæði lið hættu-
leg færi. Tveimur mínútum fyrir
leikslok prjónaði Gústaf Vífilsson,
Fylkismaður, í gegn um vöm. Aftureld-
ingar og skoraði laglega og þetta
einstaklingsframtak Gústafe tryggði
Fylki sigur. Má segja að meistara-
heppnin hafi verið með Fylki enn eina
ferðina því að em ófáir leikir í sumar
þar sem Fylkismenn hafa náð að merja
sigur á síðustu mínútunum.
•Það var hins vegar engin heppni
með Stjömunm í leik sínum gegn
Leikni. Valur Ámason kom Stjöm-
unni reyndar yfir en Leiknismenn
jöfriuðu skömmu síðar með marki
Sævars Gunnleifesonar. Leiknismenn
komu ákveðnir til leiks í siðari hálf-
leik og náðu að tryggja sér óvæntan
sigur með öðm marki frá Sævari um
miðjan síðari hálfleik. Stjömunni
tókst ekki að jafiia þrátt fyrir mikla
sókn undir lokin.
•Á Kópavogsvelli sigraði ík, lið
Njarðvíkur, 2-1, í jöfimm og spenn-
andi leik. Guðbjöm Jóhannesson
skoraði fyrst fyrir Njarðvíkinga en
Steindór Elísson jaínaði fyrir ÍK-menn
rétt fyrir leikhlé. Jón Hersir Elíasson
skoraði síðan sigurmark IK með síð-
ustu spymu leiksins og mátti því ekki
tæpara standa.
•í Sandgerði léku heimamenn við
Grindvíkinga. Grindvíkingar sigmðu
í nágrannarimmunni, 4-2. Júlíus Pétur
Ingólfeson skoraði fyrir Grindavík eft-
ir aðeins 50 sekúndur og Hjálmar
Hallgrímsson bætti öðm marki við
beint úr homspymu. Kjartan Einars-
son rétti hlut heimamanna með
tveimur góðum mörkum og staðan í
hálfleik var 2-2. Júlíus Pétm- var síðan
aftir á ferðinni í upphafi síðari hálf-
leiks er hann skoraði úr vítaspymu
og Grindvíkingar bættu síðan íjórða
markinu við á lokamínútunum. Leik-
urinn var annars mjög prúðmannlega
leikinn af beggja hálfii.
• í Borgamesi mættust tvö neðstu
deildarinnar Skallagrímur og Haukau
og fóm Haukamenn með sigur, 4-1.
Haukar komust í 4-0 áður en Snæ-
bjöm Óttarsson minnkaði muninn
fyrir heimamenn úr vítaspymu.
-RR
Golfboltar á „flugi“
Kylfingar frá átta flugfélögum verða í sviðsijósinu á Grafarholtsvellin-
um á morgum. Þá fer fram ASCA-golfinótið 1987 sem Golíkúbbur
Flugleiða sér um. ASCA em samtök starfemanna flugfélaga er aðallega
fljúga á Evrópuleiðum.
Flugfélögin, sem senda lið til keppni að þessu sinni auk Flugleiða,
em: Lufthansa, SAS, Finnair, British Airways, TAP AIR Portugal, Air
Lingus og Cargolux. Um 70 kylfingar taka þátt í mótinu.
-sos
Biynja og Ragn-
heiður með þrennu
- Valur og Akranes
Valsstúlkumar, sem hafa orðið bikar-
meistarar þijú ár í röð, tryggðu sér
rétt til að leika til úrslita gegn stúlk-
unum frá Akranesi í bikarkeppninni,
þegar þær unnu stórsigur, 7-0, yfir
Breiðabliki í gærkvöldi. Valsstúlkum-
ar hafa leikið í sex af þeim sjö bikarúr-
slitaleikjum sem leiknir hafa verið.
Brynja Guðjónsdóttir var á skot-
skónum að Hlíðarenda, skoraði þijú
mörk. Ingibjörg Jónsdóttir skoraði tvö
mörk og þær Ragnheiður Víkings-
bikarúrslrt kvenna
dóttir og Guðrún Sæmundsdóttir eitt
hvor.
Skagastúlkumar lögðu Keflavík,
6-2, á Akranesi. Ragnheiður Jónas-
dóttir skoraði þijú mörk fyrir Akranes,
Sigurlín Jónasdóttir, Halldóra Gylfa-
dóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir eitt
hver.
Skagastúlkumar hafa leikið þrisvar
til úrslita í bikarkeppninni og alltaf
tapað. Þær hafa tvisvar tapað fyrir
Val, 1984 og 1985. -SOS
„Aðeins 12 réttirgefavinning“
- segir Hákon Gunnarsson, nýskipaður framkvæmdastjórí Getrauna
Starfeár íslenskra getrauna hefet í
vikunni 24. til 29. ágúst. Tveir vinn-
ingsflokkar verða með sama lagi og
áður. Á hinn veginn hefur úthlutun
vinninga verið breytt.
Sá fyrsti, sem nemur 70 hundraðs-
hlutum af „potti,“ getur aldrei fallið
á 11 rétt úrslit. Upphæðin færist í
heild sinni yfir á næstu leikviku -
sé enginn með 12 rétta. Aðeins 12
rétt úrslit veita þannig fyrsta vinn-
ing.
Fyrir 11 rétta em önnur verðlaun,
þar em til skiptanna 30 hundraðs-
hlutar af potti og kemur sú upphæð
til greiðslu í hverri leikviku.
Þess má geta að 50 hundraðshlutar
af heildartekjum Getrauna fara í
vinningspottinn.
Í spjalli við DV sagði Hákon
Gunnarsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, að
margt væri á prjónum til að rétta
hlut Getrauna.
„Við stefnum að stóraukinni kynn-
ingu og ætlum að efla Getraunir,
koma þeim til vegs og virðingar á
nýjan leik,“ sagði hann.
Þess ber að geta að í fyrstu vik-
unni verður úrslitarimma í bikar-
keppninni íslensku á seðlinum og í
næstu tveimur þar á eftir verða síð-
ustu leikumferðir íslandsmótsins.
Að öðm leyti verða leikimir frá
vettvangi enskrar knattspymu með
sama sniði og undanfarin ár. -JÖG
• Graeme Sharp tryggði Ever-
ton jafntefli.
Everton án
átta fasta-
leikmanna
Everton, sem lék án átta fasta-
manna, mátti sætta sig við jafn-
tefli, 1-1, gegn Wimbledon á
útivelli í ensku 1. deildarkeppninni
í gærkvöldi. Alan Cork skoraði
fyrir heimamenn á 28. mín, en Gra-
eme Sharp náði að jafna fyrir
Everton á 83. mín.
Pat Nevin, Kerry Dixson og
Clive Wilson, sem Chelsea keypti
frá Ipswich, skomðu mörk
Chelsea, þegar félagið lagði
Portsmouth að velli, 3-0, á útivelli. >
• Brian Kilcline tryggði Co-
ventiy góðan sigur, 1-0, yfir Luton
í Hattaborginni frægu. Sheffield
Wed. og Oxford gerðu jafntefli,
1-1. Lee Chapman skoraði fyrir
Sheff. Wed., en Martin Fole fyrir
Oxford.
Fjórir leikir vom í 2. deildar-
keppninni. Blackbum tapaði fixir
Bamsley, 0-1. Oldham - Bradfoid,
0-2, Plymouth - Ipswich, 0-0, og
Stoke - Hull, 1-1. -SOS
Jafntefli
í Sviss
Svisslendingar og Austurríkis-
menn gerðu jafntefli, 2-2, í vináttu-
landsleik í knattspymu í
gærkvöldi í St. Gallen í Sviss. 9
þús. áhorfendur sáu leikinn.
McGrath
til Unrted?
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, hefur
nú hug á að tryggja sér hinn unga
miðvallarspilara Coventry, Lloyd
McGrath. Þessi 22 ára leikmaður
er talinn þýðingarmikill hlekkur í
púsluspilið á Old Trafford.
Það er óvíst að Coventry sé til-
búið að selja McGrath sem er afar
vinsæll á meðal áhangenda félags-
ins. -SOS
Kendall til
Englands
Howard Kendall, ^rmrn fram- *
kvæmdastjóri Arsenal, kernur með
lið sitt, Atletico Bilbao, frá Spáni
til Englands um helgina í æfinga-
ferð. Bilbao mun leika gegn Derby
á Baseball Ground í næstu viku.
-sos
Thorstvedt
til Arsenal?
Arsenal hefúr nú mikinn hug á
að kaupa noska landsliðsmark ✓
vörðinn Erik Thorstvedt frá
Bomssia Mönchengladbach í V-
Þýskalandi. Steve Burkinshaw,
fyTrum framkvæmdastjóri QPR og
Sheff. Wed., sem er nú yfimjósnari
hjá Arsenal, heftir haft auga með
norska markverðinum að undan-
fömu. -SOS