Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
Jarðarfarir
Magnús Brynjólfsson bókbands-
jneistari lést 4. ágúst sl. Hann fæddist
í Reykjavík 24. september 1916. Son-
ur hjónanna Katrínar Jónsdóttur og
Brynjólfs Magnússonar, sem einnig
var bókbandsmeistari, og ráku þeir
feðgar bókbandsverkstæðið Nýa
bókbandið þar til fyrir nokkrum
árum. Eftirlifandi eiginkona Magn-
úsar er Svanfríður Jóhannsdóttir.
Þau hjón eignuðust einn son. Útför
Magnúsar verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Þórður Steindórsson lést 8. ágúst
sl. Hann fæddist á Lónseyri á Snæ-
fjallaströnd, sonur þeirra Steindórs
Stefáns Guðmundssonar og Valgerð-
ar Guðbjargar Friðriksdóttur.
Þórður lærði til feldskurðar og
stundaði þá iðn um skeið. Lengstan
feril átti hann þó hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur og síðar hjá Gjald-
heimtunni. Eftirlifandi eiginkona
Þórðar er Ester Sæmundsdóttir.
Saman áttu þau fjögur böm en Þórð-
ur átti son áður sem er látinn. Utför
Þórðar verður gerð frá Fríkirkjunni
í dag kl. 15.
Aðalbjörg Þórðardóttir, Norður-
brún 1, Reykjavík, er lést 17. ágúst
sl., verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 21. ágúst nk. kl.
10.30.
Hilmar S. Karlsson andaðist
þriðjudaginn 11. ágúst. Útförin
hefur farið fram.
Matthildur Björg Matthíasdóttir,
Vesturbergi 142, verður jarðsunginn
fimmtudaginn 20. ágúst frá Bústaða-
kirkju kl. 15.
Katrín Kjartansdóttir, Njarðar-
götu 47, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju í dag 19. ágúst kl.
13.30.
Tilkyiunngar
Seltjarnarnessöfnuöur fer í
safnaðarferð
Nú, þegar sumri fer að halla, stendur Sel-
tjarnarnessöfnuður fyrir hinni árlegu
safnaðarferð sinni. Farið verður nk.
sunnudag, 23. ágúst, austur í Skálholt.
Lagt verður af stað frá nýju kirkjunni á
Seltjamamesi kl. 10 f.h. og ekið sem leið
liggur austur í Skálholt, þar sem nesti
ferðalanganna verður snætt. Þá verður
farið í messu í Skálholtsdómkirkju kl. 14
þar sem Guðmundur Óli Ólafsson þjónari
fyrir altari og predikar. Að messu lokinni
verður ekið að Laugarvatni þar sem
dmkkið verður kaffi í boði safnaðarins.
Það sem eftir er ferðar verður leikið eftir
veðri og vindum og ef til vill stansað á
Þingvöllum. Seltirningar em hvattir til
að taka þátt í þessari ferð og tilkynna
þátttöku sína á skrifstofu sóknarprests
milli kl. 11 og 12 f.h. i síma 611550.
Sýning í Eden, Hveragerði
Þessa viku, 18.-25. ágúst, sýna félagar úr
Myndlistarklúbbi Hvassáleitis í Eden,
Hveragerði. Þeir sem sýna em Aðalbjörg
Zophaníasdóttir, Ellen Bjarnadóttir,
Franz Pálsson, Gestur Magnússon, Gísli
Benjamínsson, Hulda Höjdahl, Jóhanna
Daníelsdóttir, Rebekka Gunnarsdóttir og
Þórey Jónsdóttir.
Flóamarkaður FEF
verður haldinn í Skeljanesi 6, kjallara,
þijá næstu laugardaga, 22. og 29. ágúst
og 5. september, milli kl. 14 og 18. Leið 5
að húsinu. Verið velkomin. „Flæmar".
Jóhann árelíuz
Söngleikur
^ fyrir fiska ^
Söngleikur fyrir fiska
Nýútkomin er önnur ljóðabók Jóhanns
árelíuzar og heitir hún Söngleikur fyrir
fiska. I bókinni er að fmna tuttugu og eitt
ljóð, velflest frá þessum ártug. Þeirra á
meðal ljóðaflokkinn Samhljóm tíðarand-
ans í sex erindum. Söngleikur fyrir fiska
var sett í Ljóshniti og offsetfjölrituð hjá
Stensli. Uppsetningu bókar og útlit ann-
aðist Hallgrímur Tryggvason f samráði við
höfund. Fiska teiknaði Albín Venables.
Mynd af skáldi: HT. Söngleikur fyrir fiska
fæst í bókabúðum Máls og menningar og
Sigfúsar Eymundssonar og hjá höfundi,
s. 91-31519.
Gildran með tónleika
í Duushúsi
Hljómsveitin Gildran heldur tónleika í
Duushúsi fimmtudaginn 20. ágúst og hefj-
ast þeir kl. 21. Miðaverð er kr. 300.
Spakmælið
Kannski það sé rétt sem presturinn segir að maður eigi að
læra að lifa á meðan maður er á lífi.
Gustav af Gejerstam
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlímánuð 1987, hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4 % af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20 %, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. september.
18. ágúst 1987
fjármálráðuneytið
I gærkvöldi
Guðnnna E. Sigurðardóttir ritari
Bíömyndírnar ekki nógu góðar
f gærkvöldi sá ég fréttimar á báð-
um stöðvunum. Mér finnast fréttim-
ar á ríkissjónvarpinu ítarlegri, en
samt em fréttir Stöðvar 2 að vinna
á. Ég sá með öðm auganu þýska
þáttinn þar sem verið var að fjalla
um hringorminn. Svo var það nú
ekki fleira sem ég sá í sjónvarpi í
gær. Ég var að ditta að íbúðinni
minni og hafði Stjömuna í bak-
grunni.
Annars horfi ég helst á fræðslu-
þætti. Eins og til dæmis þættina sem
vora í síðustu viku um trúarvakn-
inguna, þeir vom mjög athyglisverð-
ir. Ég horfi stundum á þáttinn um
Bjargvættinn, jiað em ansi spenn-
andi þættir. Eg er ekki með af-
ruglara og sakna ég mest áð geta
ekki séð þættina National Geograp-
hic. Ég hef séð einstaka þátt úr
þeirri þáttaröð annars staðar og em
þeir mjög góðir. Annars horfi ég nú
ekki mikið á sjónvarp. Helst einstak-
ar bíómyndir en þó em þær nú
ekkert til að hrópa húrra fyrir svona
yftrleitt. Ég fer frekar í kvikmynda-
hús ef ég vil sjá góða mynd. Það
mætti vera meira af góðum banda-
rískum myndum sem og frá fleiri
löndum.
Á útvarpið hlusta ég nú ekki mik-
ið í vinnunni en þó aðeins og hlusta
ég þá helst á Stjömuna. Annars em
þessar nýju stöðvar mjög líkar og
maður velur bara það sem manni
finnst gott í hvert skipti. Það mætti
vera meira af léttklassískri tónlist á
þessum stöðvum.
Það em frekar blöð og tímarit, ís-
lensk og erlend, sem eiga mestan
tíma minn af fjölmiðlunum.
Holræsin í Kópavogi:
Verða framkvæmdimar
teknar af veifctakanum?
Holræsaframkvæmdir í vesturbæ
Kópavogs hafa dregist úr hömlu.
Fyrr í vikunni sagði Kristján Guð-
mundsson bæjarstjóri að verktak-
inn, Miðfell h/f, ætti þar á alla sök
og allt stefiidi í að verkið yrði af
honum tekið. Kristján sagði við DV
í gær að nú væri búið að senda verk-
takanum bréf sem væri undanfari
þess að hann yrði sviptur verkinu. I
bréfinu segir efnislega að verði ekki
umtalsverð bót gerð þar á verði
verkið tekið aftur.
íbúar við Sunnubraut hafa látið í
ljós megna óánægju vegna þess
hversu illa framkvæmdimar hafa
gengið. Uppgröftur hefur verið í gö-
tunni í mestallt sumar. I fyrra var
íbúunum lofað af bæjaryfirvöldum
að holræsin yrðu komin í endanlegt
horf fyrsta júní í ár. Kristján sagði
það vera rétt að stefrit hefði verið
að því að ljúka þessum framkvæmd-
um fyrir síðastliðið vor en ýmissa
hluta vegna var dagsetningu frestað
til fyrsta september.
Kristján sagði að áætlun væri að
ljúka endanlegri gerð holræsa fyrir
Kópavog á árinu 1990, nú hefðu
umtalsverðum fjármunum verið var-
ið til þessara framkvæmda. Varð-
andi framkvæmdimar við
Sunnubraut sagði Kristján að því
miður virtist sér stefha í það að verk-
takinn kæmi ekki til með að ljúka
verkinu og yrði því að taka verkið
af honum. Aðspurður sagði Kristján
að í verksamningnum væm ákvæði
um dagsektir og þeim yrði beitt.
Þrátt fyrir ítarlegar tilraunir tókst
ekki að ná i framkvæmdastjóra Mið-
fells. -sme
Byggingamefnd flugstóðvarinnar:
Byggingarkostnaður í sam-
ræmi við kostnaðaráæUun
„1 raun er byggingarkostnaður
þeirrar byggingar sem hönnun lá
fyrir á 1983 nákvæmlega í samræmi
við kostnaðaráætlun þegar hún
hefur verið framreiknuð með verð-
bótum eins og gera verður þegar
hún er borin saman við byggingar-
kostnað," segir i fréttatilkynningu
frá byggingarnefnd flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli sem dreift var
á blaðamannafundi í gær.
Fundurinn var haldinn vegna
umfjöllunar að undanförnu um
byggingarkostnað flugstöðvarinn-
ar. Á fundinum kom það fram að
sá mismunur sem skapast hefur
milli kostnaðaráætlunar og raun-
vemlegs kostnaðar er skýrður með
verðbólgu hér á landi annars vegar
og gengislækkunar Bandaríkja-
dalsins hins vegar.
Árið 1983 var gengið frá kostnað-
aráætlun sem hljóðaði upp á 42
milljónir dollara og áttu Banda-
ríkjamenn að greiða þar af 20
milljónir dollara. Heildarkostnað-
ur í íslenskum krónum nam á gengi
þess tíma um 970 milljónum króna.
Hækkun kostnaðaráætlunarinnar
vegna innlendrar verðbólgu á
tímabilinu 1983 til 1987 nemur rúm-
lega 1.600 milljónum króna og því
var upphafleg kostnaðaráætlun á
verðlagi í júlí 1987 um 2.600 millj-
ónir króna. Hins vegar er búist við
því að heildarkostnaður muni
nema 2.850 milljónum, eða um 250
milljónum meira en upphafleg
áætlun gerði ráð fyrir. Segir bygg-
ingarnefndin ástæðu þess vera
breytingar sem óhjákvæmilegt
hefði verið að ráðast í á byggingar-
tímanum en þær eru fjölgun
landgöngubrúa úr þremur í sex,
sem hefur reynst nauðsynlegt að
mati nefndarmanna, snjóbræðsla í
flughlöðum af öryggisástæðum,
stækkun kjallara af hagkvæmnisá-
stæðum og bygging tveggja
útilistaverka við flugstöðina.
Varðandi þá gagnrýni sem fram
hefur komið um hækkun bygging-
arkostnaðar um 28 milljónir dala
segir nefndin að þar gæti misskiln-
ings þar sem borin sé saman
óverðbætt kostnaðaráætlun frá
maí 1983 og verðbættur byggingar-
kostnaður i júlí 1987.
Telur nefndin að vegna hækkun-
ar innanlands umfram hækkun á
andvirði dollarans hafi myndast
gengistap upp á fjórar milljónir
Bandaríkjadala. Segir í frétt frá
nefndinni að frá maí 1983 og þar
til í júlí 1987 hafi byggingarvísitala
hækkað um 167% en gengi Banda-
ríkjadalsins um 70% á sama tíma.
Því hafi framlag Bandaríkjamanna
nýst verr en áætlað var. Varðandi
endurskoðun á fjármálum bygging-
arnefndarinnar kvaðst nefndin
fagna því að ríkisendurskoðun
héldi áfram að endurskoða fjármál-
in en það hafi ríkisendurskoðun
gert frá því hafist var handa um
byggingu flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar. -ój
Þorsteinn Ingólfsson, formaður byggingarnefndar, gerir grein fyrir sjón-
armiðum nefndarinnar. Honum á hægri hönd situr Jón E. Böðvarsson,
framkvæmdastjóri byggingarnefndar, og vinstra megin er Steindór Guð-
mundsson, verkfræðingur flugstöðvarinnar. DV-mynd JAK