Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Qupperneq 29
V
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
29
Svidsljós
Islenskir pönkarar eru enn til
Það er ekki hægt að segja að aðdá-
endur pönks og nýbulgjutónlistar
séu hverfandi hér á landi. Að
minnsta kosti ekki ef marka má und-
irtektir og stemmningu sem myndað-
ist á Rikkrokki í Fellahelli síðastlið-
inn laugardag.
Þar voru samankomnar tíu hljóm-
sveitir sem hafa hart rokk og
„ótroðnar slóðir“ að leiðarljósi.
Margar hverjar „bílskúrsbönd" sem
voru að koma fram í fyrsta skipti.
Um tvö til þrjú hundruð manns komu
og kynntu sér það sem hljómsveitim-
ar höfðu fram að færa.
Pönkarar með allt á hreinu á Rikkrokktónleikunum I Fellahelli.
Og fleiri pönkarar....nóg virðist til af íslenskum pönkurum. Hér er leikurinn
eitthvað að æsast. DV-myndir S
Madonna
og líf-
verðirnir
skokka
Það er ekki tekið út með ein-
tómri sæld og skemmtan að vera
frægur. Ekki síst þegar sá frægi
vill til dæmis fara út að trimma.
Eins og söngkonan Madonna hér
á myndinni. Hún er stödd í Lon-
don um þessar mundir því tón-
leikaferðalag hennar hófst í
Bretlandi á þriðjudaginn. Nú,
hvar sem hún er heldur hún upp-
teknum hætti og gerir allt sem
hún getur til að halda sér í formi.
Ein leið í því er að trimma eins
og óð hún væri. En væru allir til
í að þurfa alltaf að vera bundnir
við það að hafa fjóra menn með
sér í skokkið? Þetta eru lífverðir
Madonnu sem verða að fylgja
henni við hvert fótmál, hvenær
sem er og hvert sem er.
Madonna teymir lifverði sina fjóra með sér hvert sem er. Meira að segja út aö skokka
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
,, Víðavarigsgolfmót1 ‘
„Jöggvansmótið" í golfi er keppni
sex furðufugla á Akureyri og var háð
nýlega, en þetta er i sjötta skiptið
sem mótið var haldið. Keppni þessi
er ekki háð á golfvöllum eins og
venjuleg golfmót heldur er leikið
„víðavangsgolf1 en jafnan endað á
velli Golfklúbbs Akureyrar.
Tvö fyrstu sumrin, sem keppnin var
háð, var leikið frá Vaðlaheiði á golf-
völlinn á Akureyri, síðan frá Vind-
heimajökli, þá frá Slippstöðinni á
Akureyri, því næst frá Súlutindi og
jafnan endað á golfvellinum á Akur-
eyri, sem fyrr segir.
í fyrrasumar barst þeim sem taka
þátt í þessu móti áskorun frá nokkr-
um kylfingum á Eskifirði um að
koma austur og spila þar víðavangs-
golf. Var sú keppni háð nýlega og
var leikið frá bæjarmörkunum á
Reyðarfirði á golfvöllinn á Eskifirði,
fimmtán til tuttugu kílómetra leið.
Alls tóku tólf kylfingar þátt í
keppninni að þessu sinni og voru
þeir um átta klukkustundir að arka
þessa leið yfir holt og hæðir með
hvítu kúlurnar á undan sér. Gekk á
ýmsu eins og jafnan í þessari keppni
en svo fór að Eskfirðingarnir, eða
„Eskimóarnir" eins og lið þeirra
kallaðist, höfðu sigur.
Kylfingar frá fleiri stöðum á
landinu hafa lýst yfir áhuga sínum á
að etja kappi við „Jöggvana" og
„Wonderfools" eins og lið Akur-
eyringanna nefnist, en ákvörðun
hefur ekki verið tekin um framhald-
ið. Fyrirtæki á Akureyri hafa styrkt
þessa keppni undanfarin ár og nægir
í því sambandi að nefna Bílaleigu
Akureyrar, Sana, Bautann og Slipp-
stöðina.
Golfararnir sem tóku þátt i þessu sérkennilega golfmótl. Hér eru þeir við bæjarmörk Reyöarfjarðar þar sem keppn
in hófst.
Ólyginn
sagði...
Clint Eastwood
þykir vera fljótur að gleyma.
Þegar hann skildi við eigin-
konu sína fyrir nokkru lét
hann þau orð falla að hann
ætlaði aldrei að binda sig
aftur, hvað þá að gifta sig.
Skilnaðurinn varð honum í
alla staði mjög dýrkeyptur.
Eiginkonan vissi alveg hvað
hún vildi. En nú virðist sem
Clint sé kominn á fast aftur.
Að minnsta kosti hefur hann
fært núverandi fylgikonu
sinni dýrindis demantshring
sem að margra áliti er tákn
um að sambandið sé orðið
nokkuð alvarlegt.
Peter O'Toole
er með hjátrúarfyllri mönn-
um. Þessi ágæti írski leikari
klæðist nefnilega alltaf
grænum sokkum, eða að
minnsta kosti sem oftast.
Þannig er að hann trúir svor i
á græna litinn. Hann segir
að græni liturinn, líkur þeim
í írska fánanum, færi manni
hamingju og heppni í lífinu.
Því sé öruggast að klæðast
sokkum í þeim litnum.
Svona til að vera alveg viss
eins og sagt er.
Stefanía
prinsessa af Mónakó er
hrakafallabálkur í meira lagi.
Sérstaklega í umferðinni.
Hún er í því að lenda í smá-
vægilegum ákeyrslum þegar
hún er á ferð í sportbíl sín-
um. Prinsessan hefurhingað
til þó ekki lent í neinu alvar-
legu en ekki er laust við að
fólk sé orðið hrætt um að
hún fari sér einhvern tíma
að voða taki hún ekki til við
aðgætnari akstur. Stefanía
var stödd í Los Angeles fyrir
skemmstu og keyrði þar aft-
an á stóran flutningabíl.
Áreksturinn var harður og
þykir mikið lán að prinsess-
an skuli ekkert hafa slasast.