Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1987, Síða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1987.
LUKKUDAGAR
19. ágúst
74879
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
NORRÆNA
AFRÍKUSTOFNUNIN
auglýsir hér með:
- FERÐASTYRKI
til rannsókna í Afríku.
Umsóknir þurfa að berast
stofnunni í síðasta lagi
30/9 1987.
- NÁMSSTYRKI
til náms við bókasafn
stofnunarinnar tímabilið
janúar - júní 1 988.
Síðasti umsóknardagur
1/11 1987.
Upplýsingar í síma
(0) 18-155480, Uppsala
eða í pósthólfi 1703,
751 47 Uppsala.
Kvikmyndahús
Bíóborg
Bíóborgin
Sérsveitin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Angel Heart
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05
Krókódila Dundee
Sýnd kl. 5 og 7.
Bláa Betty
Sýnd kl. 9 og 11.10.
Bíóhúsið
Um miðnætti
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hættulegur vinur
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Morgan kemur heim
Sýnd kl. 7 og 11.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5 og 9.
Blátt flauel
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Háskólabíó
Villtir dagar
Sýnd kl. 7, 9 og 11.10.
Laugarásbíó
Foli
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Andaboð
Sýndkl. 5, 7, 9og11
Bönnuð innan 16 ára.
Meiriháttar mál
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
Kvennabúrio
Sýnd ki. 3, 5.20, 9 og 11.15.
Hættuförin
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15
Herdeildin
Sýnd kl. 3, 5.20 9 og 11.15.
Þrír vinir
Sýnd kl. 3.10 og 5.10.
Draugaleg brúðkaupsferð
Sýnd kl. 7.10, 9.10 og 11.10.
Otto
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.05 og 11.15.
r> Herbergi með útsýni
' Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Óvænt stefnumót
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Neðanjarðarstöðin
Sýnd kl. 7 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5 og 9.
Kvikmyndir_________________
Bíóhúsið/Um miðnætti:
Sveiflan í hámarki
Round Midnight
Framteiðandi Irwin Winkler
Leikstjóri: Bertrand Tavemier
Handrit David Rayfel
Tónllst Herbie Hancock
Aðalhlutvertc Dexter Gordon, Francois
CluzeL Gabrielle Haker, Sandra R. Phlllips,
Lonette Mckee, Cristine Pascal og Herbie
Hancock
Það er erfitt að lýsa tónlist og erfitt
að skilgreina ást, þess vegna er er-
fitt að lýsa tónlistarást sem Francis
Borier, leikinn af Francois Cluzet,
hafði á Dale Tumer (Dexter Gordon)
í myndinni Um miðnætti. Þeirra
samband er um margt sérstakt. Tvær
persónur sem lífið er andsnúið finna
samleið í gegn um listina.
Francis er langt niðri er kona hans
fer frá honum og dóttur þeirra. Hon-
um gengur illa að sinna list sinni
og er niðurbrotinn maður. Að sama
skapi unir Dale Tumer, vel þekktur
tenórsaxófón- eða saxófónleikari, sér
ekki vel. Hann flytur yfir hafið til
Parísar sem er listamiðstöð heimsins
á flestum sviðum. Þar gengur honum
vel að hafa sig í frammi nema hvað
hann á við drykkjuvandamál að
stríða og þarf að líta eftir honum sem
bami. Leiðir þeirra hggja saman á
djassklúbbnum og tekst með þeim
innilegur vinskapur og virðing fyrir
hvor öðrum. Francis segir Dale hafa
breytt lífi sínu með tónlist sinni og
Dale leiðist af drykkjubrautinni með
hjálp Francis. Leiksvið myndarinnar
er ekta, djassbúlla í skuggalegu
umhverfi, þröngar götur og barir á
hverju götuhomi. Sveiflan er í há-
marki.
Þetta er í megindráttum söguþráð-
ur myndarinnar, ekki ýkja merkileg-
ur en nær samt tilgangi sínum og
snertir mann djúpt. Hins vegar er
það tónlistin sem skiptir meginmáli
í myndinni eða samspil hennar og
vináttu þeirra félaga. Leikstjórinn,
Bertrand Taveiner, heldur vel utan
um efnið og nær að koma boðskapn-
um á framfæri með góðri samvinnu
við Herbie Hancock sem sá um tón-
listarhlið myndarinnar. Djassinn er
hreint út sagt stórgóður og unun að
hlusta á enda ekki við öðm að bú-
ast. Leikur Dexter Gordon er stór-
góður hvort sem hann er að leika
sjálfan sig eða ekki. Francois Cluzet
er einnig mjög góður ásamt öðrum
sem að myndinni standa.
Undirrituð hvetur alla þá sem
gaman hafa af góðum djassi til að
sjá Um miðnætti.
-GKr
Á feröalagi
Merkisprestssetrið og
kirkjustaðurinn Staðastaður
Á sunnanverðu Snæfellsnesi, eftir
Staðarsveitinni endilangri, liggur
svokallaður Ölduhryggur sem er
gamall fjörukambur frá því að sjáv-
armál stóð allmiklu hærra en nú er
eða fyrir um 10 þúsund árum. Aðal-
leiðin um Staðarsveitina nú og til
foma liggur eftir þessum malar-
kambi. Á Ölduhiygg stendur hinn
fomi kirkjustaður og prestssetur
Staðastaður sem Staðarsveitin heitir
eftir.
Margar prestssetursjarðir á fslandi
bera heitið Staður en vegna þess að
Staður á Ölduhrygg hefur frá önd-
verðu verið hin mesta hlunnindajörð
og því tekjuhæsti og eftirsóttasti
staðurinn, neftidist hann Staðastað-
ur.
Talið er að Ari fróði Þorgilsson,
faðir íslenskrar sagnaritunar, hafi
búið að Staðastað en hann „ritaði
fyrstur manna hér á landi á norrænu
máli, fræði bæði foma og nýja“ að
sögn Snorra Sturlusonar. Þama
bjuggu einnig þeir feðgar Þórður
Sturluson, bróðir Snorra, og Sturla
Þórðarson lögmaður.
Á Staðastað hafa ætíð setið miklir
merkisprestar og hafa íjórir þeirra
orðið biskupar. Hinn fyrsti þeirra
var I.Iarteinn Einarsson (—1576) sem
varð biskup í Skálholti. Marteinn,
sem þjónaði lútherskum sið, er fræg-
astur fyrir deilur sínar um trúmál
við Jón biskup Arason á Hólum sem
var rammkaþólskur. Halldór Bryn-
jólfsson (1692-1752) varð biskup á
Hólum og einnig Gísli Magnússon
(1712-1779). Sá Qórði í röðinni var
Pétur Pétursson (1808-1891) en hann
var biskup yfir öllu íslapdi og í röð
Staðastaður eöa Staður á Ölduhrygg. Minnisvarði um Ara fróða sést lengst
til hægri á myndinni.
mestu kirkjuhöfðingja landsins á 19.
öld. Fimmti biskupinn, Hallgrímur
Sveinson (1841-1909), sleit bams-
skónum á Staðastað.
Af öðrum prestum á Staðastað má
telja Kjartan Kjartansson sem þar
var prestur á árunum 1922-1938.
Kjartan þótti góður kennimaður en
auk þess afbragðs hugvitsmaður.
Hann fann upp berjatínuna og gerði
við saumavélar, úr og klukkur fyrir
sóknarböm sín. Margir telja að
Kjartan sé kveikjan að Jóni prímusi
í bók Halldórs Laxness, Kristnihaldi
undir Jökli. Á Staðastað endar einn-
ig þjóðsagan um Galdra-Loft er grá
og loðin krumla dró hann ofan í
djúpið við ströndina.
Þann 23. ágúst 1981 var afhjúpaður
minnisvarði um Ara fróða Þorgils-
son að Staðastað. Varðann gerði
Ragnar Kjartansson myndhöggvari
en hann er sonur séra Kjartans
Kjartanssonar. Núverandi kirkja á
Staðastað er steinkirkja frá ámnum
1942-1945 og prestur þar er séra
Rögnvaldur Finnbogason.
Útvaip-Sjónvarp
Þrátt fyrir aövaranir lætur ungi læknirinn sér ekki segjast
Stöð 2 kl. 20.45:
Tíma-
mótamynd
Bandarísk sjónvarpsmynd,
Sjúkrasaga, sem gerð var árið 1975
og er sannkölluð tímamótasaga,
verður á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld.
í kjölfar hennar kemur bylgja
sjúkrahúsþátta sem ýmist eru í al-
várlegum eða léttum dúr. Þessi
merka mynd er með alvarlegu yfir-
bragði og greinir fiá ungum lækni á
stóm sjúkrahúsi í Bandaríkjunum
sem gerir uppsteyt gegn ómannúð-
legri meðferð á sjúklingunum. Þeir
deyja á dularfiillan hátt og engin
skýring er gefin á. Þrátt fyrir aðvar-
anir starfsfélaga sinna lætur hann
gamminn geysa.
Aðalhlutverk leika Beau Bridge,
Jose Ferrer, Carl Reiner og Shirley
Knight. Leikstjóri er Gary Nelson.