Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Side 4
4 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987. UTBOÐ Biskupstungnabraut Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 6,7 km, fyllingar og burðarlag 65.000 m3. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 7. september nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 21. september 1987. Vegamálastjóri ''Á'sm v Fréttír ''/'V/M UTBOÐ Austurlandsvegur, Mýri - Hof Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 7,2 km, fyllingar 53.000 m3, skeringar 46.000 m3 og neðra burðarlag 46.000 m3. Verki skal að fullu lokið 1. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 9. september nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 21. september 1987. Vegamálastjóri REYKJMJÍKURBORG Acui&an Stödívi RHM 2- Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27 Okkur vantar gott starfsfólk til starfa í eftirtalin störf: Eldhús - vinnutími 8-14 virka daga og aðra hverja helgi. Ræsting - vinnutími 8-12 eða 13-17. Heimilishjálp - vinnutími 8-16, hlutastarf kemur til greina. Þvottahús - í hlutastarf 75% og í 100% starf. Vaktir - næturvakt 70% starf, morgun-, kvöld- og helgarvaktir, 100%. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377. Tilboð óskast í að reisa og fullgera íbúðar- og aðstöðuhús fyrir veiðmálastofnun ríkisins á Hólum í Hjaltadal. Húsið er tveggja hæða, flatarmál alls 290 m2. Innifalið í verkinu er allt er þarf til að skila byggingunni tilbúinni til notkunar, þar með talin lögun lóðar. Verkinu sé lokið eigi síðar en 1. júlí 1988. Útboðsgögn verða af- hent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, og hjá Fjölhönnun, Sauðárkróki, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama staó þriðjudaginn 22. sept. 1987 kl. 11.30. INNKAURASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26644 POSTMÓLF 1441 TELEX 2006 SAMBYLI A SELF0SSI Tilboð óskast í að fullgera 254 m2 timburhús fyrir sambýli fyrir fatl- aða að Vallholti 9 á Selfossi. Húsið er fullfrágengið að utan en verktaki skal einangra það, reisa milliveggi, leggja vatns-, hita- og raflagnir og ganga að öðru leyti að fullu frá húsinu að innan. Auk þess skal reisa garðskála við húsið og ganga frá lóð. Verkinu skal lokið fyrir 15. apríl 1988, nema túnþökum á lóð, sem skal skila frágengnum 15. maí 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja- vík, og á skrifstofu Svæðisstjórnar Suðurlands, Eyrarvegi 37, Selfossi, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgar- túni 7, þriðjudaginn 22. sept. 1987. INNKAURASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Forsetinn við komuna til Klakksvíkur í gær. Móttökurnar voru frábærar og létu krakkarnir i Klakksvík ekki sitt eft- ir liggja við að fagna Vigdísi. DV-símamynd GVA Fvábærar móttökur í Klakksvík Jón G. Haukssan, DV, Faareyjum: Forseti íslands, irú Vigdís Finn- bogadóttir, fékk frábærar móttökur þegar hún kom til Klakksvíkur um hádegisbilið í gær. Fjölmenni beið hem.ar á hafnarbakkanum og veifaði færeyska fánanum henni til heiðurs. Gefið var frí í skólum í Klakksvík þegar forsetinn kom og létu börnin sig ekki vanta til að fagna Vigdísi. Forsetinn gekk í gegnum mann- þröngina með Jógvan við Keldu, forseta bæjarstjómar Klakksvíkur. Síðan var sest að hádegissnæðingi í boði bæjarstjómar Klakksvíkur. „Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, velkomin til Klakksvíkur," sagði Jógvan við Keldu, forseti bæjar- stjómar, áður en borðhaldið hófst. Hann rakti síðan sögu Klakksvíkur, minntist á duglega sjómenn bæjarins og æskuna. „Við eigum góða æsku sem við trú- um á,“ sagði Jógvun. Hann fór síðan með ljóð sem Hannes Hafstein, fyrrum ráðherra, orti eitt sinn um Klakksvík. Landinn fjölmennti í boð forsetans Jón G. Haukssan, DV, Færeyjum: Islendingar búsettir í Færeyjum létu sig ekki vanta í boð sem Vigdís Finnbogadóttir hélt þeim í Norræna húsinu í Þórshöfn í gær. Á annað hundrað manns komu í boðið. Forset- inn gekk á milli manna og ræddi við þá. í ávarpi til íslendinganna í lok boðs- ins sagði hún: „Mér finnst ekki hægt að fara hjá garði án þess að hitta landa mína.“ Forsetinn sagði ennffemur að marg- ir íslendingar væm í Færeyjum og það sem betra væri, að þeim liði vel þar. „Það er gott að búa í þessu landi.“ Vigdís minntist á að skortur væri nú á vinnuafli á Islandi eins og í Fær- eyjum. „Ég vona að við fáum eins gott vinnuafl og við höfum með stolti lánað Færeyingum." Hún bað viðstadda í lokin að hrópa húrra fyrir Færeyingum. Þrefalt húrrahróp var það og kröftugt. Forsetinn er hér með ungri islensk-færeyskri stúlku, Edith Petersen að i í boðinu sem hún hélt íslendingum i Norræna húsinu í gær. DV-símamynd Fjórréttað í gærkvöldi Jón G. Hauksson, DV, Færeyjum: Fjórréttað var í gærkvöldi í boði sem forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hélt á Hótel Hafnia í Þórshöfn. Gísli Thoroddsen matreiðslumaður sá um matargerðina. I forrétt var krabbap- até, rækjur, svartfugl og graflax. Fiskrétturinn var lúða og lax. Kjöt- rétturinn var heilsteiktur lambavöðvi með íslenskri jurtasósu. I eftirrétt var svo kramarhús með ferskum ávöxtum. Loksins stytti upp! Jón G. Haukssan, DV, Færeyjum: Loksins stytti upp í Færeyjum um miðjan dag í gær eftir rigningu og leið- indaveður frá því á fimmtudagsmorg- un er forsetinn kom til Færeyja. Sólin braust ffam og þegar Vigdís hélt ís- lendingaboðið í Norræna húsinu í Þórshöfh skartaði bærinn sínu feg- ursta. Sagan um þokuna sem prinsessu í álögum stóðst því skemmtilega hjá forsetanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.