Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblaö 75 kr. Komið að skuldadögum íslendingar nútímans geta ekki áfellzt forfeður sína á fyrri öldum fyrir að hafa kollvarpað gróðurjafnvægi landsins, fyrir að hafa nálega eytt skóginum og minnk- að gróðurflötinn um helming. Þetta var samfelld sorgarsaga, en þjóðin átti öldum saman engra kosta völ. Nú er öldin önnur og hefur raunar lengi staðið. Þjóð- in á vel til hnífs og skeiðar. Miklu meira af matvælum er framleitt hér en við þurfum sjálf að nota. Munar þar mest um fiskinn, sem við seljum útlendingum og fáum fyrir flestar þekktar heimsins lystisemdir. Þar á ofan höfum við áratugum saman búið við öf- undsvert hungur í starfskrafta. Við þekkjum ekki lengur atvinnuleysisvofu erlendra þjóða. Þúsundir fólks vantar til að sinna arðbærum störfum, sem auglýst eru í fjöl- miðlum. Ný verkefni blasa við á framtíðarvegi. Við þessar aðstæður er komið að skuldadögum í við- skiptum þjóðar við landið sitt. Þjóðin er gengin svo langt götuna fram eftir vegi, að tímabært er orðið að snúa vörn í sókn, fara að skila landinu aftur því, sem forfeður okkar tóku af því í volæði fyrri alda. Tilraunir okkar til landverndar og landgræðslu eru enn feimnislegar og fátæklegar. Viðskiptareikningur okkar gagnvart landinu er enn neikvæður um 1000 hekt- ara á hverju ári. Á móti 2000 hektörum, sem við vinnum, töpum við 3000 hektörum út í veður og vind. Allt of lítið gagn er í friðuðum reitum, sem víða hef- ur verið komið upp. Fjárbændur rífa bara niður girðing- ar og reka fé sitt hvert sem þeim þóknast, í krafti þess, að svoleiðis hafi það alltaf verið. Girðingamenn þora varla að æmta, af því að kindur virðast heilagar. Kominn er tími til að taka til hendinni. Allar mó- bergsafréttir landsins þarf að alfriða fyrir ágangi húsdýra. Það á einkum við um miðhálendið og afréttir Sunnlendinga og Þingeyinga, sem sauðféð hefur leikið verst. Þetta svæði þarf að girða rammlega og rækta. Langan tíma tekur að láta skóginn vaxa saman yfir Kjöl á nýjan leik. Víða þarf að nota lúpínu til að búa til jarðveg, svo að hefðbundinn gróður geti síðan num- ið land. Og ekki er skuldin fullgreidd, fyrr en kominn er skógur, sem bindur jarðveginn til langframa. Alfriðun verulegs hluta hálendisins kallar að sjálf- sögðu á mikla fækkun sauðfjár, að minnsta kosti helmings fækkun, enda þurfum við hvorki á að halda öskuhaugakjöti né framleiðsluhvetjandi og söluhvetj- andi styrkjum á borð við uppbætur og niðurgreiðslur. Mál hafa æxlast þannig, að sauðféð er á ofsakaupi við að eyðileggja landið. Með fækkun sauðíjár sparast stórfé í styrkjum og annarri fyrirgreiðslu. Þessa pen- inga má sumpart nota til að kosta hina nýju land- græðslu, nota þá til uppbyggingar í stað niðurrifs. Um leið fást starfskraftar til að sinna margfaldaðri landgræðslu, að svo miklu leyti sem önnur arðbær störf í þjóðfélaginu kalla ekki á þá, sem nú sóa tíma sínum í sauðfjárhald á kostnað neytenda og skattgreiðenda. Allir liðir uppgjörsdæmisins við landið eru jákvæðir. Við erum að svíkjast undan merkjum, þegar við látum líða hvert velmegunarárið á fætur öðru, hvert ofbeitar- árið á fætur öðru, hvert offramleiðsluár kindakjöts á fætur öðru, hvert eftirspurnarár atvinnu á fætur öðru, - án þess að byrja að endurgreiða skuldina við landið. Öll rök málsins falla á einn veg. Þjóðin verður að hrista af sér ok þjóðaróvinarins og gera upp skuld sína við landið, sem hefur fóstrað hana í ellefu aldir. Jónas Kristjánsson í blíðu og stríðu Verður kona kosin næsti forseti Bandaríkjanna? Varla, segir þú. En hver hefði trúað því í Bretlandi á árunum upp úr 1970 að í hönd færu tæpir tveir áratugir þar sem kona stjómaði breska heimsveldinu með harðri hendi? Fyrir nokkrum árum var kvenna næsta lítið getið í heimspólitíkinni nema sem undantekninga, eins og Goldu Meir og Indiru Gandhi. Nú er öldin önnur. Nú líður varla dagur án þess að kvenna sé getið í tengsl- um við stórpólitíkina, annaðhvort vegna hörku þeirra eða blíðu. Laus- leg athugun sýnir að konur hafa leikið aðalhlutverkin í stærstu fréttasprengjum sumarsins. Harkan sex Á Filippseyjum stendur Corazon Aquino í ströngu. Að eiginmanni sínum látnum tókst hún það verk- efni á hendur að stýra leit kúgaðrar þjóðar að lýðræði og réttlæti. I landi ógnarlegra andstæðna og öfga í pól- itík og efnahag reynir þessi kjark- mikla kona að feta einstigi sanngimi og sátta. Eftir uppreisnina um dag- inn er staða hennar ótrygg. Kommúnistamir, sem hún hefur reynt að lempa til samninga, hafa lýst yfir að þeir vilji berjast. Þar með verður erfiðara að hafa hemil á óánægjuöflum í hemum. Nú ætlar hún að láta hart mæta hörðu. Kosningasigur Margrétar Thatc- her innsiglaði einstaka sigurgöngu hennar. Kvenfólk hefur þótt eiga erfitt uppdráttar í stéttskiptu sam- félagi Breta og síst hefði Ihaldsflokk- urinn þótt líklegur til að una yfirráðum konu. En hún ræður svo um munar. Næstum því með eigin hendi hefur hún barið í gegn breyt- ingar í breskum stjómmálum sem mun gæta um aldur og ævi. Nýsköp- un efnahagslífc í anda frelsis, segir hún. Aukin kúgun, fátækt og mis- rétti, segja fjendur hennar. Innan flokksins hefur hún ýtt andstæðing- um sínum til hliðar og á þingi keyrir hún yfir þá. Kinnock, formaður Verkamannaflokksins, hefur aldrei riðið feitum hesti frá orrustum þeirra í neðri málstofunni. Jámfrúin er hún kölluð í gamni og alvöru. Mjúkar línur En fleira kemur til en harkan. í Bandaríkjunum hafa tvær konur leikið stór hlutverk í pólitísku frétt- unum í sumar vegna mýkri gilda. Vinsælasta sjónvarpsefnið vom út- sendingar frá Irangate-yfirheyrslun- um og að fráteknum höfuðpaumum, Olla North, var einkaritarinn hans, Fawn Hall, sá þátttakandinn sem átti mesta athygli fréttamanna og áhorfenda. I fyrsta lagi var hún glæsileg og Af erlendum vettvangi Guðmundur Einarsson fögur einmitt á þann hátt sem kven- hetjumar í sápuóperunum Dallas og Dynasty em glæsilegar og fagrar. Augun í amerískum körlum urðu eins og undirskálar þegar þeir horfðu á þessa íturvöxnu stúlku lýsa því hvemig hún stal leyniskjölum með því að troða þeim í nærhaldið sitt. I öðm lagi þótti hún bera sig afar vel og komast bærilega frá yfir- heyrslum illfyglanna í þingnefhd- inni. f þriðja lagi sló hún á rómantísku strengina þegar hún lýsti því með tindrandi augum hve trú hún væri Olla og hversu fullkominn hann væri sem yfirmaður. Þegar áhorfendur sáu síðan hve sjarmerandi Olli var þótti þetta full- komnað. Þótt bæði neituðu því að eiga ástarsamband og enginn gæti borið það á þau með nokkrum sanni var yndislegt að gæla við tilhugsun- ina... Önnur kona var á skjánum hjá Bandaríkjamönnum snemma í sum- ar. Hún var meint fylgikona Gary Harts og hét Rice. Hún virðist hafa orðið leiksoppur kaldrifjaðs kvenna- bósa, eins og sagt er í sögubókunum. Ekki var hún eins tíður gestur og Fawn Hall í sjónvarpstækjum lands- manna því hún varðist fréttamönn- um sem urðu að mestu að láta sér nægja að grafa upp gamlar myndir og auglýsingar sem hún hafði leikið í. Nú er hún farin að auglýsa nýjar, níðþröngar gallabuxur og fær hærra kaup en áður. En sambandið við stúlkuna var reiðarslag fyrir Gary Hart. Hann, sem var langfremstur vonbiðlanna til forsetaframboðs demókrata, varð að yfirgefa stóra sviðið í pólitíkinni og setjast inn á lítinn lögfræðikontór í Denver í Kólóradó. Með mýkt og öryggi Fall hans varð einmitt til að ýta undir síðustu konuna á kvennalist- anum í þessum pistli. Hún heitir Pat Schroeder og er demókrati í fulltrúa- deildinni. Áður en Gary Hart lét fallerast var hún ein af tæpum tug demókrata sem vildu gjaman bjóða sig fram en voru hins vegar næstum óþekktir. Að Gary Hart föllnum eru þau hins vegar jöfh og jafrióþekkt og þá kemur í ljós að Pat Schroeder er kerling fyrir sinn hatt. Það orð fer af karlmönnunum í keppninni að þeir séu hver öðrum líkir og hver öðrum leiðinlegri. Pat Schroeder sker sig úr - ekki aðeins fyrir að vera kona heldur fyrir að vera skelegg og skemmtileg. Hún hefur lag á því að segja hlutina þannig að eftir sé tekið. Hún er einn af bestu orða- og hugtakasmiðum í bandarískri pólitík. Gimsteinninn hennar á því sviði er „teflon-forset- inn“ en það orð gaf hún Reagan á velmektartímum hans. Þá gat hann tekið hvers kyns áföllum og skítk- asti því ekkert loddi við hann. Vinsældir hans voru slíkar. Pat Schroeder er mjög duglegur þingmaður og hefur mikið látið að sér kveða í vamarmálum sem ekki teljast til hinna dæmigerðu mjúku mála. í félagsmálum er hún góður demókrati og ber hag þeirra sem minna mega sín fyrir brjósti. Enginn veit hvort Pat Schroeder verður forseti. En hún er köld og klár, með hjartað og heilann á rétt- um stað. í sögum breska rithöfundarins Jef- frey Archers af þeim Kane og Abel verður Florentyna Kane fyrsta kon- an til að verða forseti Bandaríkj- anna. En jafhvel í skáldsögunni, þar sem allt getur gerst, treysti rithöf- undurinn sér ekki til að stíga stærra skref en að láta kjósa hana varafor- seta. 1 Hvíta húsið komst hún síðan að forsetanum látnum. Fyrst það var ekki hægt í sögunni verður það trú- lega í raunvemleikanum of stórt skref að kjósa konu beint í þetta embætti, a.m.k. enn um sinn. Guðmundur Einarsson Fawn hali er eins fögur og glæsileg og kvenhetjumar í sápuóperunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.