Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1987, Page 11
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1987. 11 Enn á ný hafa deilur blossað upp vegna hvalveiða íslendinga. Nátt- úrufriðunarsamtök erlendis hafa þegar gert kröfu til aðgerða eftir að tilkynnt var um veiðar tuttugu sand- reyða á þessu ári og beðið er eftir viðbrögðum bandarískra stjómvalda sem hugsanlega kunna að þeita okk- ur viðskiptaþvingunum í kjölfar ákvörðunarinnar um veiðamar. Hér heima em menn heldur ekki á eitt sáttir og deila opinberlega um vinnubrögð og réttarstöðu okkar sjálfra, sem auðvitað er til þess eins fallið að skemmta skrattanum og veikja okkar málstað út á við. Á síðari árum hafa augu almenn- ings opnast fyrir þeirri þörf að vemda beri náttúmna og dýrastofn- ana fyrir ágangi og ofveiði. Enginn vafi er á því að í fjöldamörgum til- vikum á þessi náttúmvemd rétt á sér. Fólk er að vakna til vitundar um þá staðreynd að lífkeðjan í ríki náttúrunnar má ekki slitna. Mann- skepnan er háð viðgangi dýranna, dýrin em háð jurtum og gróðri, gróð- urinn regni og lofti og svo koll af kolli. Auðlindir em ekki ótakmark- aðar og gleggsta dæmið um afleið- ingar ágangs og utanaðkomandi áhrifa er ástand skóga á meginlandi Evrópu. Kolsýringur frá milljónum bifreiða og önnur gerviefhi i and- rúmsloftinu hafa stofnað skóglend- inu í hættu en frá skógunum fáum við súrefni sem gerir okkur kleift að viðhalda mannabyggð. Uppi em jafrivel kenningar um að eyðing frumskóga í Suður-Ameríku hafi vemleg og alvarleg áhrif í öðrum heimshlutum. Sama gildir um dýra- ríkið. Eyðing dýrategunda eða ofveiði þeirra spillir lífkeðjunni, fyrir utan hættuna á því að sjaldgæfum tegundum sé beinlínis útrýmt. Nátt- úrufriðunarsamtök um heim allan hafa unnið þarft verk í þeirri við- leitni að stemma stigu við því tillits- leysi sem ógnar tilvem dýra og manna. Ástleitin augu Hitt er annað múl að með sama hætti og veiðimenn gerast offarar í græðgi sinni og veiðibræði er skammt í öfgamar hjú friðunar- mönnum. Með hryllingssögum og ýktum áróðri hefúr öfgasinnum í þeirra hópi tekist að höfða til tilfinn- inga stórs hóps fólks sem alið hefur aldur sinn í neyslusamfélagi stór- borganna og á mikið undir sér í peningum og áhrifum. Þetta fólk þekkir minnst til náttúmnnar en stendur með tárin í augunum í hvert skipti sem það sér blóð renna og heldur að dýradráp sé undir öllum kringumstæðum af hinu illa. Það þekkir skepnumar af afspum eða myndum, umgengst þær sem gælu- dýr og gerir engan greinarmun á atvinnuveiðum og sportveiðum. Ljósasta dæmið er kappið sem lagt var á að vemda selinn. Dýravemd- unarsamtök æstu saklausar hefð- arfrúr og auðuga herramenn til andstöðu gegn selveiðum, sjálfsagt vegna þess að selsaugun horfðu svo bijóstumkennanlega til þeirra í sjón- varpsmyndunum, enda má selurinn eiga það að hann er skýr og ástleit- inn til augnanna og sakleysið uppmálað. Herferð friðunarmanna gegn sel- veiðum bar þann árangur að Grænlendingar hafa að mestu þurft að leggja niður þann atvinnuveg vegna þess að selskinn var sett á bannlista og verðið hrundi. Það þótti ekki fínt lengur fyrir ríka fólkið og bardotdúkkumar að klæðast sel- skinnsfötum. Þjóðveijamir, sem nú em að hræða líftóruna úr löndum sínum með hrollvekjum um ormana i fiskinum, hafa sleppt því að upp- lýsa siónvarpsáhorfendur um þá staðreynd að selurinn elur af sér hringorminn meir og betur heldur en nokkm sinni fyrr, eftir að hann fékk löggilta friðun til að éta þorskinn og smita hann. Það er ekki von að íbúar meginlandsins hafi mikla hugmynd um samhengið hér í milli þegar þeir hafa aldrei pissað í saltan sjó og aldrei nálægt honum komið nema þá í mesta lagi á skemmtiferðaskipum um Miðjarðar- hafið. Uppgjöf alþingis Efst á dagskrá að undanförnu hef- ur verið friðun hvalsins. Hugsanlega má halda því fram að miklar hval- veiðiþjóðir, eins og Japanir, Rússar og Norðmenn, hafi stundað hval- veiðar af meira kappi en forsjá. Ugglaust hefúr verið ástæða til að draga úr þeim veiðum til að forðast útrýmingu og eyðingu hvalastofna. Með skynsamlegum og hófsömum raðstöfunum mú áreiðanlega koma í veg fyrir þá útrýmingu, enda er það í þágu veiðiþjóðanna sjálfra að stofninn lifi. Því miður hefur barátt- an fyrir hvalavemdun tekið aðra Ellert B. Schram stefnu en þá sem líklegust er til sátta. Alþjóðahvalveiðiráðið hefur verið notað sem vettvangur til hvat- víslegra samþykkta og inn i ráðið hefúr verið smalað þjóðum og ríkjum sem engra hagsmuna eiga að gæta. Með tilstyrk þeirra atkvæða hafa friðunarmenn keyrt yfir okkur Is- lendinga jafnt sem aðra og farið hamförum. Hvalinn skal friða hvað sem það kostar. Því hefur jafnan verið haldið fram að íslendingar eigi að fara að al- þjóðassamþykktum. Vöm smáþjóða er sögð í því fólgin að virða alþjóða- reglur og samþykktir. Réttur þeirra verður ekki fyrir borð borinn af stór- veldunum meðan hægt er að styðjast við alþjóðleg samtök, segja þeir vísu menn sem kunna diplómatískar leik- reglur. Ekki skal þessum rökum mótmælt og víst er að íslendingar höfðu sigur í landhelgisstríðum sín- um með hjálp hafréttarlaga. Enginn getur heldur haldið því fram að íslendingar hafi virt alþjóða- reglur að vettugi. Við höfum meira að segja gengið lengra. Þegar al- þingi Islendinga samþykkti stöðvun hvalveiða í atvinnuskyni fyrir nokkrum árum höfðum við rétt til að mótmæla ákvörðunum hvalveiði- ráðsins og hafa þær að engu. Okkur var sem sagt í sjálfsvald sett hvort hlýða skyldi tilmælum ráðsins. Eng- in lög né alþjóðareglur bundu hendur okkar. Hins vegar lét alþingi veiðibannið yfir sig ganga af ótta við hefndarráðstafanir ella. Við lét- um undan hótunum sem bárust frá Bandaríkjunum. Uppgjöf alþingis var nokkurs konar hræðslubandalag þeirra sem fá skjálfta í hnésbætumar í hvert skipti sem útlendingar eru annars vegar. Ofbeldisseggir En gott og vel, Islendingar kysstu vöndinn og virtu tilmæli hvalveiði- ráðsins i trausti þess að friður mundi þá skapast um veiðar í vísinda- skyni. Síðan hafa verið lagðar fram rannsóknir, sýni og skýrslur þess efnis að hvalastofninum stafar ekki hætta af takmörkuðum veiðum. Færustu vísindamenn og fiskifræð- ingar hafa lagt fram álit sitt þessu til staðfestingar. En allt hefur komið fyrir ekki. Viðbrögð friðunarmanna, grænfriðunga og þeirra sem þykjast ala önn fyrir umhverfi, friði og lífi skynlausra skepna hafa verið á einn veg. Enn er mönnum í fersku minni þegar grænfriðungar læddust eins og þjófar að nóttu og sökktu tveim hvalveiðibátum á haustnóttum í fyrra. Ennþá muna menn tjónið sem þeir ollu í hvalstöðinni eða þegar þeir tóku lögin í sínar hendur og stöðvuðu skipafarminn í Þýska- landi. Hvað svo sem menn segja annars um náttúrufriðun eða dýravemd, hljóta svona aðferðir að egna alla réttsýna menn gegn ofstopa og yfir- gangi, þegar starfað er eftir þeirri kenningu að tilgangurinn helgi meðalið. Sá málstaður er slæmur sem reynir að hafa sitt fram í skjóli ofbeldis. En látum ofbeldiseggina vera. Lát- um það vera þótt ofstækismenn i friðunarmálum virði ekki visindi eða lífsafkomu hjá siðuðum þjóðum. Hitt er verra þegar bandarísk stjómvöld telja sig þess umkomin að segja Is- lendingum fyrir verkum í atvinnu- málum þeirra. Hvaðan kemur Bandaríkjastjóm vald til að ráðskast með fiskveiðar Islendinga og setja okkur stólinn fyrir dymar? Nú standa menn á öndinni hér heima og annars staðar og bíða þess í of- væni hvort viðskiptaráðuneytið bandaríska og gott ef ekki sjálf öld- ungadeildin taki afstöðu til þess hvort veiða megi tuttugu sandreyðar á þessu ári! Það er með öðrum orðum talið allt eins líklegt að Bandaríkin setji okkur í viðskiptabann vegna þessara tuttugu hvala! Eigi að vikja Einhver kann að segja að íslend- ingar ættu að fóma minni hagsmun- um fyrir meiri og sleppa þessum hvalveiðum í stað þess að egna Bandaríkin til slíkrar ákvörðunar. En þetta mál snýst ekki um tuttugu hvali. Það snýst ekki um diplómat- íska kurteisi. Málið snýst um það hvort íslensk stjómvöld, sjálfstæð þjóð og fullvalda ríki láti Banda- ríkjamenn segja sér fyrir verkum. Bandaríkjamenn hafa tekið sér það hlutverk í heiminum að standa eins og bísperrtir lögregluþjónar í hvert skipti sem árekstrar verða manna í milli. Stundum er það gert í nafni frelsisbaráttu, stundum í krafti hagsmuna og áhrifa, stundum í líki nakinnar íhlutunar samkvæmt kokkabókum kontórista í Washing- ton, sem sjá veröldina með augum heimsveldisins. Oftar en ekki em þeim mislagðar hendur og hengja bakara fyrír smið. Hversu marga einræðisherra og harðstjóra hafa Bandaríkjamenn ekki stutt til valda af misskildri hugsjón um réttláta og rangláta? Þetta varðhundahlutverk er auðvitað komið langt út fyrír lýð- ræðisvitund vestrænna manna og er út í eilífðar blánum þegar afskiptin em orðin að íhlutun í sjálfsbjargar- viðleitni fjarlægra þjóða. íslendingar vilja gjarnan vera í vamarbandalagi með Bandaríkjamönnum meðan það kemur báðum að gagni og víst viljum við halda uppi góðum samskiptum við bandarísku þjóðina á sem flest- um sviðum. En samstarf og vináttu- tengsl taka á sig annarlega og heldur ógeðfellda mynd ef Bandaríkin ætla að túlka frjáls og gagnkvæm sam- skipti sem rétt af sinni hálfu til einhliða íhlutunar í mál sem þeim varðar hreint ekkert um. Danir héldu íslendingum lengi í spennitreyju fátæktarinnar með ein- okun og verslunaránauð. Hörmang- aramir börðu okkur til hlýðni með hótunum og refsingum ef við sátum ekki og stóðum eins og þeim þóknað- ist. Hvalamálið virðist stefiia í sömu átt þó vindamir blási úr annarri átt að þessu sinni. Bandaríkjastjóm hótar viðskiptabanni ef við hlýðum ekki erkibiskups boðskap. Á svar íslendinga að vera það sama og gagnvart Dönum hér á öldum áður? Beygja sig og bugta fyrir herraþjóð- inni? Eða eigum við að standa fast á rétti okkar og sjálfstæði? Fullveld- ið og lýðveldið kostaði fómir. Og þær fómir voru færðar undir kjör- orðinu: eigi skal víkja. Það kjörorð er enn í fúllu gildi. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.