Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
Fréttir
Skoðanakönnun DV
Flestir vilja að ríkið
eigi Útvegsbankann
Hart er deilt um Útvegsbankann.
Flestir landsmenn vilja aö ríkið eigi
IRvegsbankann samkvæmt skoðana-
könnnun DV um síðustu helgi. Þetta
er þó aðeins rúmlega fjórðungur
þeirra sem afstöðu taka. Næst á eftir
koma þeir sem telja að SÍS eigi að eiga
bankann og síðan þeir sem telja 33-
menningana svonefndu eiga að fá
hann.
Lítum fyrst á stöðuna. Ríkið á nú
langmestan hlut Útvegsbankans, sem
er hlutafélag. Bankinn er til sölu. SÍS
lagði fram tilboð í bankann. Eftir það
brugðust einkaaðilar við og svonefhd-
ir 33-menningar eða KR í höfuðið á
Kristjáni Ragnarssyni gerðu tilboð. í
þeirri sveit eru margs konar fyrir-
tæki, einkum Eimskip, sem ekki eru
í útgerð, en sum eru í útgerð. Þeir sem
í könnuninni sögðu að útvegurinn,
útgerðarmenn og sjómenn, ættu að
eignast bankann eru þvi sérhópur.
Loks hefur hevrst að starfsfólk og við-
skiptavinir bankans kynnu að gera
tilboð en það er allt á huldu. í könnun-
inni nefhdu sumir starfsfólkið en
enginn viðskiptavini sem slíka.
Niðurstöður könnunarinnar urðu
þær að 3 prósent sögðu að starfsfólkið
ætti að eignast bankann. 8,8 prósent
úrtaksins nefndu 33-menningana. 12,5
prósent nefndu SÍS. 8,2 prósent vildu
að bankinn yrði almenningshlutafé-
lag, sem hefur verið nokkuð í
umræðunni. 15,7 prósent úrtaksins
sögðu að ríkið ætti að eiga bankann.
4.8 prósent sögðu að bankinn ætti að
vera í eigu útvegsins. 2 prósent töldu
að bankann ætti að leggja niður. 39,7
prósent voru óákveðnir enda máið
flókið. 5,3 prósent vildu ekki svara.
Þetta þýðir að þeir sem afstöðu taka
skiptast þannig: 5,4 prósent segja
staxfsfólkið. 16,1 prósent vilja að 33-
menningamir eignist bankann. 22,7
prósent segja að SÍS skuli fá bankann.
14.8 prósent vilja gera hann að al-
menningshlutafélagi. 28,5 prósent vilja
að ríkið eigi bankann. 8,8 prósent vilja
að útvegurinn eigi bankann. Loks vilja
3,6 prósent leggja bankann niður.
Úrtakið í könnuninni voru 600
manns. Jafnt var skipt milli kynja og
jafnt milli Stór-Reykjavíkursvæðisins
og landsbyggðarinnar. Spurt var: Hver
eða hveijir telur þú að eigi að eiga
Útvegsbankann?
-HH
fólks i
inni
Kona á Austurlandi kvaðst vilja
leggja Útvegsbankann niður og
raunar hafa aðeins emn banka í
landinu. Karl á Reykjavíkursvæð-
inu sagði að SÍS mætti alls ekki fa
bankann en hann gæti ekki gert
upp við sig hver ætti að fá hann.
Karl á Reykjavíkursvæðinu sagði
að SÍS hefði átt að fá bankann
miðað við hvemig tilboðið hefði
verið sett upp. Annar sagði aö
hlutafélag. Margir lýstu sérstak-
lega þeirrí skoðun að SÍS ætti ekki
að eignast Útvegsbankann. Kona á
Norðurlandi sagöi aö það væru svo
margar flóknar hliöar á Útvegs-
bankamálinu að hún hefði ekki vit
á því. Karl á Norðurlandi sagði
best að þetta væri rfkisbanki. Karl
á Norðurlandi sagði aö SÍs hefði
gert fyrst tilboö og skyldi því fá
bankann. Karl á Norðurlandi taldi
SÍS hafa staðið óheiðarlega aö
málinu. Kona á Reykjavíkursvæð-
inu sagði aö Sambandið væri aö
•HH
Súluritið sýnir hlutföllin milli þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnuninni.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Hver á að eiga Útvegsbankann?
Starfsfólk bankans 18 eða 3,0%
33-menningarnir 53 eða 8,8%
SÍS 75 eða 12,5%
Almenningshlutafélag 49 eða 8,2%
Ríkið 94 eða 15,7%
Útvegurinn 29 eöa 4,8%
Bankann á að leggja niður 12 eða 2,0%
Óákveðnir 238 eða 39,7%
Svara ekki 32 eða 5,3%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöð- urnar þessar:
Starfsfólkið 5,4%
33-menningarnir 16,1%
SÍS 22,7%
Almenningshlutafélag 14,8%
Ríkið 28,5%
Útvegurinn 8,8%
Leggja bankann niður 3,6%
Vigdís sæmd heiðursdoktorsnafnbót í Bordeaux:
Fyrsti þjodhofðinginn
sem hlýtur þann heiður
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, kveöur hér forseta háskólaráösins í
háskólanum i Bordeaux í Frakklandi þar sem hún var sæmd heiðurs-
doktorsnafnbót í gær. DV-símamynd Bjami Hinriksson
Bjami Ifiniikssan, DV, Bordeanx:
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, tók við heiðursdoktorsnafn-
bót við háskólann í Bordeaux í
gærmorgun. Hefur forsetinn verið í
borginni frá því á þriðjudag í opin-
berri heimsókn í tengslum við eins
konar íslandsdaga þar sem mark-
miðið hefúr verið að styrkja menn-
ingar- og viðskiptatengsl Bordeaux-
búa og Islendinga.
Sýning var haldin á verkum tíu
íslenskra málara. Pétur Gunnars-
son, Sigurður Pálsson og fleiri
rithöfúndar sátu samræður um ís-
lenskar bókmenntir og franskur
ljósmyndari hélt sýningu á myndum
frá íslandi. Ýmislegt annað var einn-
ig á döfinni.
Athöftún í gærmorgun fór fram í
bókmenntadeild háskólans. Við at-
höfnina voru íslensku sendiherra-
hjónin í Frakklandi, ræðismenn
íslands, Noregs, Sviss, Marokkó og
Portúgals, auk fúlltrúa skólans, fyr-
irmanna úr sljómmála- og menning-
arlífi Bordeaux og fjölmargra
annarra.
Vigdís Finnbogadóttir er fyrsti
þjóðhöfðinginn sem hlýtur þennan
heiðurstitil og það voru forseti há-
skólaráðs og lektor bókmenntadeild-
arinnar sem tóku á móti henni.
Forseti háskólaráðs hélt stutta ræðu
þar sem hann bauð Vigdísi hiartan-
lega velkomna og rifjaði upp gömul
og ný tengsl íslands og Frakklands.
Að því búnu afhenti hann forsetan-
um heiðursskjal.
Vigdís svaraði með stuttri tölu,
þakkaði persónulega fyrir sig og
sagðist taka við þessari nafiibót í
nafni allra íslendinga. Hún minntist
á Sæmund fróða og nám hans í
Frakklandi og hvemig það hefði
haft áhrif á sagnaritun. Að lokum
talaði hún um mikilvægi tungunnar,
íslenskunnar, fyrir litla þjóð eins og
ísland.
Athöinin var látlaus, tiltölulega
stutt og að henni lokinni hélt Vigdis
til hádegisveröarboðs borgarstjóra
Bordeaux og forseta franska þjóð-
þingsins.
Greinilegt er að heimsókn Vigdísar
hefur tekist vel og að viðtökur
Frakka hafa verið með ágætum.
Mosfellsbær:
Fjöldaganga
á sunnudag
- vegna umferðaröryggis
Það getur orðið truflun á sunnudags-
bíltúr þeirra sem hyggjast aka um
Vesturlandsveg þar sem hann liggur
um Mosfellsbæ á sunnudaginn.
Klukkan fjögur munu íbúar bæjarins
safnast saman á tveimur stöðum og
ganga fylktu liöi til félagsheimilisins
Hlégarðs.
íbúar Mosfellsbæjar geta komið á
bílum sínum á milli klukkan þrjú og
fjögur að skólasvæðinu að Varmá en
þaðan munu skólabílar flytja göngu-
fólkið til upphafsstaða göngunnar við
vegamót Þingvallavegar og Vestur-
landsvegar og einnig að gatnamótum
við Hlíðartún. Hópamir leggja af stað
klukkan fjögur og gengið verður að
Hlégarði. Reiknað er með að gangan
taki um 25 mínútur. Við Hlégarð verð-
ur stuttur fundur þar sem lesin verður
upp ályktun um umferðaröryggismál
og hún síðan afhent samgönguráð-
herra eða öðrum þingmanni Reykja-
neskjördæmis.
Vegna lokunar Vesturlandsvegar í
gegnrnn Mosfellsbæ á meðan á
göngunni stendur beinir lögreglan
þeim tiimælum til ökumanna að þeir
aki á bak við Úlfarsfell, framhjá
Skyggni og síðan um Álafoss út á Vest-
urlandsveg aftur. Reiknað er með að
vegurinn verði lokaður í 40 mínútur
frá klukkan 16.00. .jr