Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
5
Fréttir
Samkeppnin um besta sjávarréttinn 1987:
„Innbakaðar fiskkökur sjávarkon-
ungsins“ fengu fyrstu verðlaun
Sigurvegarinn í uppskriftasamkeppni
Marska hf. á Skagaströnd og DV var
Margrét Þóröardóttír, Grundarási 1,
Reykjavík, en hún fékk einnig tvenn
4. verðlaun. Önnur verðlaun fékk
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Goðatúni
24, Garöabæ, og þriðju verðlaun fékk
Michael Jón Clarke, tóniistarkennari
á Akureyri.
Verðlaunin voru afhent viö hátíö-
lega athöfn í Leifsbúð á Hótel Loftleið-
um þar sem boðið var upp á þá þrjá
réttí sem fengu verðlaunin. Höfundar
sjö næstbestu réttanna fengu allir
fagra áletraða nýsilfurplatta sem við-
urkenningu fyrir framlag sitt tíl
keppninnar. Auk þess fengu þessir tíu
keppendur allir valdar rækjur, sams-
konar rækjur og kröfuharðastí við-
skiptavinur Marska fær, en það er
Marks og Spencer í Englandi.
Verðlaunin fyrir þrjá bestu réttina
voru mjög vegleg, viku sælkeraferð tíl
útlanda með Flugleiöum, Philips ör-
bylgjuofn og grænmetiskvöm, hvort
tveggja frá Heimilistækjum hf.
Alþýðusambandið beitti atkvæði oddamanns
Akvað 7,23% launa-
hækkun 1. október
- opinberir starfsmenn fóru eins að
Á fundi launanefndar Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasambands-
ins í gær náðist ekki samkomulag um
verðbætur á laun 1. október næstkom-
andi. Alþýðusambandið átti odda-
mann nefndarinnar að þessu sinm og
ákvað með úrskurði hans að fullar
verðbætur, 5,65%, skuli koma til um
næstu mánaðamót, auk 1,5% umsam-
innar launahækkunar. Samtals
hækka því launin um 7,23%.
Þegar þessi úrskurður lá fyrir á-
kváðu launanefnd Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og fjármálaráð-
herra að gera hið sama og hækka því
laun opinberra starfsmanna líka um
7,23% um mánaðamótin.
í greinargerð fulltrúa Alþýðusam-
bands íslands með verðbótaákvöröun-
inni segir að fulltrúamir telji það
skyldu sína að verja kaupmátt þeirra
sem ekki hafa notið launaskriðs og
bæta þá umframhækkun verðlags sem
oröið hefur. Lýsa þeir allri ábyrgð á
hendur vinnuveitendum hvaö varðar
launaskrið í landinu.
FuIItrúar Vinnuveitendasambands-
ins segja í sinni greinargerð að þeir
telji ekki forsendur fyrir almennri
launahækkun í landinu og að þessi
launahækkun muni grafa undan fast-
gengisstefnunni og hættan á víxl-
hækkunum kaupgjalds og verðlags sé
mikil. Þetta muni einnig torvelda gerð
nýrra kjarasamninga á næstunni.
-S.dór
Þórarinn V. Þórarinsson:
Gengið féll ekki á
Grensásveginum í dag
- mikill hættuboði
„Ég óttast það mjög mikiö að hafið
sé víxlgengi kaupgjalds og verðlags
með þessari ákvörðun fulltrúa Al-
þýðusambandsins í dag. Ég geri mér
grein fyrir því að gengið féll ekki á
Grensásveginum í dag en launahækk-
unin setur mikinn þrýsting á gengið,
ekki síst þar sem stefnir í vaxandi
halla á viðskiptum við útlönd. Ég ótt-
ast líka að það sem á eftir kemur
muni hafa alvarlegar afleiðingar. Ég
fæ ekki séð að nokkur leið verði að
ná kjarasamningum fyrir næsta ár
sem miða áfram við stöðugt gengi,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, í samtali við DV í gær.
Hann bentí einnig á að ástandið inn-
an verkalýðshreyfingarinnar væri
þannig nú að kjörorðið væri að sá
sterkasti skyldi hafa sigur og allir
keppast við að yfirbjóða aöra í kröfum
og ekki samstaða um nokkum hlut.
„Þetta allt er að mínum dómi mikill
hættuboði," sagði Þórarinn V. Þórar-
insson. -S.dór
- sjá einnig bls. 30
62 • 25 t 25
F R ETTAS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist
eða er notað í DV, greiðast
1.500
krónur. Fyrir besta frétta-
skotið í hverri viku greiðasf
4.500 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum
við fréttaskotum allan sólar-
hringinn.
Margfaldur uppskriftameistari
Rétturinn, sem fékk fyrstu verðlaun,
er Innbakaðar fiskkökur sækonungs-
ins. Rétturinn er búinn til úr ýsu með
mjög bragðgóðri sósu, allt innbakað í
deig og sesamfræjum stráð ofan á.
Höfundur hans, Margrét Þóröardóttir,
hefur fimm sinnum tekiö þátt í upp-
skriftasamkeppni og í fjögur skipti
unnið tíl verðlauna. Margrét sagðist
ekki hafa lært matreiðslu nema í
bamaskóla á sínum tíma. En áhuginn
á matargerð er mikill og ósvikinn.
Margréti finnst skemmtilegast að búa
til eftirrétti, pottrétti og sjávarrétti.
Margrét átti tvo rétti sem valdir vom
í þá tíu bestu þannig að hún fór út
með þrenn verðlaun í samkeppninni.
Framlag Hrafnhildar Sigurðardóttur,
sem fékk önnur verðlaun, var köld
rækjusúpa, einkar bragðgóð og
skemmtileg sem forréttur. Uppskriftin
hljóðar upp á marðar rækjur sem
kryddaðar em með ýmsu góðgæti,
m.a. dillfræi sem gefur súpunni alveg
sérstakt bragð.
Hrafnhildur sagði okkur að hún
hefði sérstaka ánægju af þvi að mat-
reiða ýmislegt úr fiski og helst kýs hún
aö fiskurinn sé sem óvenjulegastur.
Hrafnhildur sagðist oft leggja leið sína
út á Granda og reyna að nálgast þann-
ig eitthvað einkennilegt úr djúpi
hafsins. Einu sinni fékk hún háf og
hannaði úr honum mjög gómsætan
rétt. Hún gaf vinum sínum í Hafrúnu
í Skipholtinu uppskriftina sem hékk
þar uppi á vegg fyrir aðra viðskipta-
vini í lengri tíma. Gaman að svona
áhugasömum matreiðslumeisturum.
Þriðju verðlaun vom veitt íyrir Sjáv-
arperlur en það em bollur, búnar til
úr fiskfarsi með rækjum og osti, velt
upp úr söxuðum möndlum. Höfundur
þeirra var akureyrski tónlistarkenn-
arinn Michael Jón Clarke. Svo
skemmtilega vildi til að eiginkona
Jóns, Sigurlína Jónsdóttir, átti eina af
uppskriftunum tíu þannig að þau
hjónin komu saman til Reykjavíkur
til að sækja verölaun og viðurkenn-
ingu.
Aðrir sem fengu viðurkenningu fyr-
ir uppskriftir sínar em Margrét
Þórhallsdóttir, Akranesi, Jóhanna A.
H. Jóhannsdóttir, Reykjavík, Rann-
veig Þórðardóttir, Garðabæ, og Þórir
S. Helgason, Reykjavik.
-A.BJ.