Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Qupperneq 19
18
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
19
Derrick lögregluforingi með tak á fórnarlambinu.
RUV - Derrick lögregluforingi:
Kaldur og ákveðinn
Af öllum lögregluþáttunum,
sem nú eru á skjánum, er meist-
ari Derrick skyldastur þeim
gamla Sherlock Holmes. Hug-
vitið reynist honum best í að
afhjúpa glæpahyskið. Þá sakar
ekld að hafa snaran aðstoðar-
mann, Harry Klein, sem aug-
ljóslega á sér fyrirmynd í
Watson lækni. Klein er þó öllu
skarpari í hugsun en það er fá-
títt að hann taki frumkvæðið í
rannsókn mála.
Það er eitt einkenni á við-
fangsefnum Derricks að hann á
sjaldan í höggi við forherta
glæpamenn. Oftar er þetta fólk
sem leiðst hefur af réttum vegi
dyggðarinnar. Þannig er hinum
mannlég þætti jafnan ætlað gott
rúm og áhorfendur fá samúð
með þeim sem lögregluforing-
inn kemur bak við lás og slá.
Sögurnar af Derrick og Klein
fylgja hefðbundnum frásagnar-
máta reyfaranna. Gátan virðist
óleysanleg í fyrstu en þó er það
margreynt að ekkert þýðir að
glettast við þá félaga. Fómar-
lambið hrekst út í vonlausa
stöðu og á sér ekki undankomu-
leið eftir það.
Það er Horst Tappert sem fer
kaldur og ákveðinn með hlut-
verk Derricks og hefur gert það
lengi. Harry Klein, aðstoðar-
maðurinn lágvaxni, er leikinn
af Fritz Weppert.
Stöð 2 - 54 af stöðinni:
Hrakfallabálkar
Þeim kann að virðast illa í ætt skotið, köppunum sem aka lögreglubíl núm-
er 54 í gömlum þáttum sem nefnast 54 af stöðinni á Stöð 2. Þessir höfðings-
menn eiga meira skylt við Gög og Gokke en lögreglumenn. Það er líka hætt
við að þeir hefðu lítið að segja gegn þeim föntum sem nú eru algengastir á
skjánum.
Þessir þættir em svart/hvítir, enda frá upphafsárum sjónvarpsins í Banda-
ríkjunum. Ofbeldi fyrirfmnst ekki í þessum þáttum og enginn er þar bardag-
inn. Lögreglumennimir Toody og Muidoon em hrakfallabálkar sem hafa
einstakt lag á að gera allt öðruvísi en ætlast er til.
Toody og Muldoon í ógöngum.
Stöð 2 - Morðgáta:
Lansbury í
essinu sínu
Algela Lansbury var lengi þekktust
fyrir að leika aukahlutverk. Hún er
nú komin á sjötugsaldur og hætt að
leika aukahlutverkin. Undanfarið
hefur hún slegið í gegn í léttum saka-
málaþáttum sem í dagskrá Stöðvar 2
nefnast Morðgáta en Murder She
Wrote á frammáhnu.
í þáttunum leikur hún rithöfund
sem reynist öðram klókari þegar
kemur að því að leysa morðgátur.
Þessi snjalla kona heitir í þáttunum
Jessica Fletcher og er að sögn þeirra
sem til þekkja ósköp hk Angelu
Lansbury; góðhjörtuð, fyndin og svo-
htið hörð í hom að taka þegar með
þarf.
Angela Lansbury á að baki langan
feril sem leikkona í sjónvarpi, kvik-
myndum og á sviði þótt stjama
hennar hafi aldrei staðið hærra en
nú.
Angela Lansbury í hlutverki Jessicu
Fletcher.
Stöð 2 - Hunt:
Harðhentar löggur
Hann er skólaður í bófahasar á götum Los Angeles.
Yfirmaðurinn þolir hann ekki og yfirmaðurinn fer í
taugamar á honum. Bæði í vinnunni og utan hennar á
hann í vandræðum með samstarfsmann sinn vegna þess
að hann er kona.
Þetta er gamalreynd uppskrift að lögreglumyndum og
hér er hún enn reynd í myndaflokki sem nefnist Hunter
og Stöð 2 sýnir. Söguhetjan heitir Rick Hunter. Hann
er rannsóknarlögreglumaður sem lært hefur að beija
frá sér eftir áralanga umgengni við illþýði. í starfi sínu
hættir hann sér oft út fyrir ramma laganna og fær
skömm í hattinn fyrir.
Hunter er ætlað að starfa með lögreglukonu að nafni
Dee Dee McCah sem einnig hefur sínar aðferðir til að
berja á hyskinu. Saman kljást þau við glæpamennina
og kerfið, sem þau vinna fyrir, og hvort við annað þegar
ekki vill betur til.
Það era þau Fred Dryer og Stefanie Kramer sem fara
með aðalhlutverkin í þessum bandarísku þáttum.
Þegar þessi staða er komin upp er eins gott
að leggja árar I bát.
Lögregluhetjur sjónvarpsins era goðsagnaverur.
Þær hafa fylgt sjónvarpinu frá upphafi og gerast
stöðugt frekari til plássins. Skammt er síðan íslensk-
um sjónvarpsáhorfendum bauðst aö fylgjast með
einum sakamálaþætti á viku en nú er um níu þætti
að velja. Eftir að Stöð 2 hóf útsendingar öölgaði
þáttunum til mikilla muna enda var stöðin uppnefnd
Lögreglustöð 2 í upphafi.
Raunar er þaö nokkur einfóldun að lccnna alla
er það um Sherlock Holmes, þann frægasta af þess-
um mönnum. Hann sá við fóntunum heima í stofu
í Bakerstræti og var hvergi á launaskrá. Enn er
Holmes á ferh og þeir era ----------f ‘ -
Hin eilífa fyrirmynd
Saga Sherlock Holmes er bæöi dæmigerð fyrir
þróun sakamálasagna og um leið eilíf fyrirmynd.
Sakamálaþættir sjónvarpsins -eiga sinn uppruna í
reyfuranum sem fyrst urðu vinsælir á síðustu öld.
Þótt reyfararnir haldi enn vinsældum sínum í bó-
karformi hefur sjónvarpið tekið við því hlutverki
að sjá fólki fyrir spennu og skemmtun. Holmes hef-
ur með dyggri aðstoð félaga síns, Watsons, lifað allar lögreglumennina Utið dagsins ljós. í sumum tilvik-
breytingar af. um hafa gamlar konur á borð við Miss Marple tekið
Reyfarar eru afsprengi borgarmenningar. Þaðan að sér þetta hlutverk. Einkaspæjaramir bandarísku
er efniviðurinn kominn og þar era persónumar, skipa sér einnig í þennan flokk og nú á síðustu tím-
bæði góðar og illar. upprunnar. Fyrir hálfri annarri um menn sem treysta á tæknina við verk sín.
öld var bragðið á það ráð hjá Skotland Yard í Lund- En þrátt fyrir að liðið sé fjölskrúðugt þá eru ýms-
únum að senda nokkra lögregluþjóna óeinkennis- ir þættir sígildir. Sú aðferð Arthurs Conan Doyle,
klædda út á götumar. Þetta var ný aðferð til að höfundar sagnanna um Sherlock Holmes, að láta
hafa hendur í hári glæpamanna. Þeir verða senni- fávtsan aðstoðarmann fylgja honum, er notuð aftur
lega seint upptaldir lögreglumenn þessarar sveitar og aftur í endalausum tilbrigðum.
sem oröiö hafa fyrirmynd aö hetjum leynilögreg- Þá eiga flestar hetjur sakamálamyndanna það
lusagnanna. Bogart í hlutverki Philips Marlowe er sameiginlegt að vera klárar í kolhnum og hafa fá-
sígildur í þessu hlutverki þar sem hann skálmar gætan hæffleika til að draga ályktanir af sundurleit-
um regnvpt stræti í snjáöum jakkafótum. um upplýsingum. Undantekningar frá þessu veröa
Á sínum tíma vora þessir menn úthrópaðir ög helst til þegar sá kostur er tekinn að henda gaman
að hetjunum. Þá er þessu oftast öfugt farið.
í mörgum sakamálamyndanna er ofbeldið fastur
liður. Þetta er þó ekki undantekningarlaust en samt
er þaö skoðun margra að þessar myndir séu ekki
annað en kennslustundir í ofbeldi. Það fer heldur
ekki á milh mála að margar af frægustu hetjunum
era engin prúðmenni og það telst hka bragödaufur
reyfari ef enginn er drepinn. Hversu lærdómsríkir
tilburðimir eru er annað mál.
-GK
taldir ógnun við friðhelgi einkalífsins. Það var ekki
fyrr en á þessari öld sem starf þeirra var sveipaö
þeim ljóma sem enn stafar af þeim í sjónvarpinu. í
hinum hefðbundnu revfuram era þetta menn með
svo
hinn góða málstað og gjaman svo snarir í hugsun
að forhertir glæpamenn standast þeim ekki snúning.
Óteljandi tilbrigði
í tímans rás hafa ný og ný tilbrigði við rannsóknar-
Stöð 2 - Ævintýri Sherlocks Holmes:
Ættfaðirinn Holmes
Sherlock Holmes er ættfaðir þeirra varða
laganna sem nú leika hstir sínar á skjánum.
Afkvæmin era þó komin langan veg frá gamla
manninum sem sýndi snilh sína í Lundúna-
borg 19. aldar. Hann var að sönnu aldrei
lögreglumaöur heldur starfaði hann á eigin
vegum ásamt lækninum og ævisöguritaran-
um Watson. Þetta hefur og verið háttur
margra sporgöngumanna hans og samskiptin
við hina launuðu verði laganna ekki ahtaf
snurðulaus.
Þættimir, sem Stöð 2 sýxúr um Ævintýri
Sherlocks Holmes, era gerðir af Granada-
sjónvarpsstöðinni ensku. Þar fer Jeremy
Brett með hlutverk Holmes og David Burke
með hlutverk Watsons og hafa báðir fengið
lof fyrir frammistöðu sína. Þættir úr þessari
röð hafa áður verið sýndir í ríkissjónvarpinu
en Stöð 2 sýnir framhaldið. Ævintýram
Sherlocks lýkur með fór hans til fundar við
erkióvininn Moriarty í Sviss en frá þeim við-
skiptum verður ekki greint hér.
Sherlock Holmes
og aðstoðarmaðurinn, Watson.
Stöð 2 - Hasarleikur:
Fegurðardísog hörkutól
Heima
I sófa að
loknum
ævintýrum
dagsins.
í Hasarleik á Stöð 2, eða Moonhght-
ing, eins og þættimir heita á frummál-
inu, er boðið upp á enn eitt tilbrigðið
við samband einkaspæjarans og að-
stoðarmanns hans. I þessum þáttum
er það aðstoðarmaðurinn sem á starf-
semina en hörkutóhð ræður ferðinni.
Það er Maddie Hays, stjama sjampó-
auglýsinganna, sem uppgötvar að hún
á fyrirtæki sem sinnir rannsóknum á
glæpum. Þar ræður húsum David
Addison, svalur náungi sem fer eigin
leiðir í vinnunni. Fyrsta verkefni
þeirra er aö leysa mál fegiu-ðardrottn-
ingarinnar sjálfrar og síðan taka við
ný og æsileg verkefni.
Um leið og gátumar eru leystar fá
áhorfendur að fylgjast með endalaus-
um deilum þeirra skötuhjúa sem þrátt
fyrir aht era óaðskiljanleg. Umhverfið
er stórborgin þar sem misindismenn-
imir þrífast í skuggahverfunum.
Það era þau Cybhl Shepherd og
Brace Wilhs sem fara með aðalhlut-
Verkin í þáttunum sem gerðir era af
ABC-sjónvarpsstöðinni bandarísku.
Bob Peck I hlutverki Ronalds Craven lögreglumanns.
RÚV - Á ystu nöf:
Ekta breskir
I bresku sakamálaþáttunum
Á ystu nöf, sem sýndir era í
sjónvarpinu, er sögð saga lög-
reglumannsins Ronalds Craven
þegar hann nauðugur vUjugur
tekst á hendur að rannsaka
morð á dóttur sinni. Lausn
málsins á eftir að reynast tor-
sóttari en í upphafi virtist.
Þetta era þættir í stíl við svo
marga aðra breska sakamála-
þætti sem sýndir hafa veriö í
sjónvarpinu. Þættimir era aUs
sex og lausn gátunnar finnst
ekki fyrr en í lokaþættinum.
Tveir þættir hafa nú verið
sýndir af þessari sögu.
Þættir af þessari gerð era
ólíkir þeim þáttum sem einkum
era framleiddir í Bandaríkjun-
um þar sem ævintýri söguhetj-
anna taka aldrei enda.
Á ystu nöf er leikstýrt af
Martin CampeU sem áður hefur
getið sér gott orð fyrir hlut sinn
að myndaflokknum um njósn-
arann ReiUy sem einnig var
gerður af BBC. Með aöalhlut-
verkið fer Bob Peck. Þetta er
fyrsta stóra hlutverkið hans í
sj ónvarpsmyndum en áður hef-
ur hann leUtið mikið á sviði.
Höfundur sögunnar er Troy
Kennedy Martin sem er gamal-
reyndur á því sviöi og vann
m.a. að áöumefndum þáttum
um ReiUy.
Stöð 2 - Lime Street:
Glæsileikinn í hverju skoti
Culver einkaspæjarl kominn á sporiö.
Það er Robert Wagner, gamalreyndur hasarleikari, sem
er í eldlínunni í sakamálaþáttunum Lime Street sem feng-
iö hafa nafnið IUur fengur á Stöð 2. Wagner leikur þar
hörkutól að nafni James Greyson Culver sem hefur svik-
samlegt framferði í tryggingamálum á sinni könnu.
Svo sem algengt er í sakamálaþáttum á Culver sér fé-
laga og samstarfsmann sem ekki er síður harðsnúinn.
Það er Edward Wingate, gamaU herbergisfélagi frá Ox-
ford, sem leUtinn er af John Standing. Saman reka þeir
spæjarafyrirtæki sem hefur glæpi fína fóUcsins að sér-
grein.
í þessum þáttum blandast saman gátur í stíl við hefð-
bundna reyfara og titríkar lýsingar á lífi yfirstéttarinnar.
Ævintýrin byggjast á hraöa og glæsUeika sem á sér helst
samjöfnuð í sögunum af James Bond. Culver hvítist á
búgarði sínum í Virginíu á milti þess sem hann fæst viö
illþýðið. Wingate stundar á meðan hið ljúfa tif í Lundún-
um þar sem piparsveininum era altir vegir færir.
Stöð 2 - King og Castle:
Ruddinn og ættfræðingurinn
í sakamálaþáttum, sem nefnast King
og Castle, er höfundur Onedin skipafé-
lagsins á ný tekinn að sanna hæfni sína.
Þetta er maður að nafni Ian Kennedy
Martin sem þegar hefur samið handrit
að mörgum framhaldsþáttum.
í King og Castie leiðir hann saman tvo
ótika menn sem saman vinna að rann-
sókn glæpa. Ronald King er gamaU
rannsóknarlögreglumaður sem hættur
er vinnu hjá hinu opinbera. Hann hefur
munninn fyrir neðan nefið en er farinn
að lýjast tU slagsmála. Aðstoðarmaður-
inn, David Castle, er ungur að árum og
futifær um að rétta frá sér hnefa. Hann
hafði atvinnu af því að rekja ættir en
var rekinn og réðst til Kings.
Hér er á ferðinni enn ein útgáfan af
samstarfi sem fyrst varð frægt með
Sherlock Holmes og Watson lækni. í
King og Castle vinna saman menn af
ótikum uppruna og á ólíkum aldri.
Castle lítur á King sem radda en King
sér í Castle siölausa útgáfu af BUly Gra-
ham.
í aðalhlutverkunum era þeir Derek
Martin og Nigel Planner en Stöð 2 sýnir.
Nigel Planner og Derek Martln i hlutverkum
I Castles og Kings.