Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Blaðsíða 36
62 F R ► • m E T ' . r A S K O T 1 Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Síit»i 27022
Birgir ísleifur Gunnarsson:
KemuráóvaitaðSÍS
komi á eftir ríkinu
„Þessi niðurstaða kemur mér ekki
svo á óvart. Að vísu er langstærsti
hópurinn óákveðinn í könnuninni
og það skekkir myndina verulega.
En hvers vegna flestir af þeim sem
taka afstöðu vilja að ríkið eigi ban-
kann tel ég hugsanlega skýringu
vera þá að þetta fólk aðhyllist stjóm-
málaskoðanir sem vilja að ríkið sé
að skipta sér af viðskiptum og at-
vinnulífmu,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráðheira
um skoðanakönnun DV vegna Út-
vegsbankans.
„Það kemur mér hins vegar á óvart
að SÍS skuli koma næst á eftir rík-
inu. Ég sé ekki ástæðuna fyrir því.“
-JGH
Skoðanakönnun DV iim Utvegsbankamálið:
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987
ríkið eigi
Flestir vilja aö ríkið eigi Útvegs-
bankann samkvæmt skoðanakönn-
unDV.
Menn skiptast þó ipjög í afstöðu.
Af þeim sem taka afstöðu vilja 28,5
prósent að ríkið eigi bankann. 22,7
prósent vilja að hann verði seldur
Sambandinu. 16,1 prósent vilja að 33
menningamir svone&du megi
kaupa hann. 14,8 prósent vilja að
bankinn verði geröur að almenn-
ingshlutafélagl 83 prósent vffia að
útvegurinn fái hann. 5,4 prósentvilja
aö starfsfólkið eignist bankann. Loks
vilja 3,6 prósent leggja hann niður.
Þetta er skipting þeirra sem taka
afstöðu. En um 40 prÓ9ent af úrtak-
inu voru óákveðin enda málið flókið.
-HH
-sjábis.2
Guðjón B. Oiafsson:
** Sýnirréttiætiskennd
„Mér líst nú held ég ekkert illa á
þetta. Þetta segir talsvert mikla sögu,
fólk er vant þvi að ríkið reki stærstu
bankana og þess vegna eðlilegt að
margir hallist aö þvi kerfi sem það
þekkir. En Sambandið hefur þama
umtalsverðan hlut og ég lit svo á að
það sýni réttlætiskennd fólks sem á
annað borð vill að bankinn verði
seldur," sagði Guðjón B. Ólafsson,
forstjóri SÍS, um afstöðu fólks til
eignarhalds á Útvegsbankanum í
skoðanakönnun DV. -HERB
Kristján Ragnarsson:
Óskýrir valkostir
„I spumingunni er velt fram fleiri
valkostum en raunverulega em til
staöar. Það hefúr ekki staöið til að
starfsfólkið kaupi bankann, útvegur-
inn hefur tekiö saman höndum við
aðra um að kaupa bankann en hann
er samt aðgreindur frá öðrum í þess-
ari könnun. Fólk hefúr staðið frammi
fyrir óskýrum valkosti og því er línan
jafnóskýr og raun ber vitni. Ef við aft-
ur á móti leggjum saman þijátíu og
þremenningana og útveginn þá sýnist
fólki það vera skynsamleg úrlausn og
með það er ég ánægður," sagði Kristj-
án Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, um skoðanakönnun DV.
-S.dór
Polanski við Bláa lónið:
leik-
sljórinn“
„Bíddu viö, ég er leikstjórinn,1
sagði Roman Polanski, kvikmynda-
leikstjórinn góðkunni, við ljósmynd-
ara DV þar sem hann var aö mynda
Polanski við Bláa lóniö. Polanski var
boðið að skoða lóniö á leiö sinni frá
Keflavíkurflugvelli í gær en hann er
hér gestur á kvikmyndahátíð.
Nokkrir íslenskir kvikmyndagerðar-
menn voru í för með honum.
Polanski hreifst mjög af umhverf-
inu við lónið og kallaði það dulúðugt
og stórbrotið. Hann sagði að viö kvik-
myndagerð tæki „her manns með
reykvélar óskaplegan tíma að búa til
alla þessa gufu.“ Því væri kjörið að
nota þennan stað við upptöku
mynda.
„Ég lít ekki svo á að kvikmyndahá-
tíðir skipti yfirhöfuð miklu máli. Það
á bæði við um þessa sem ég er nú
gestur á og aðrar hátíðir. Þær eru
ágætar fyrir þá sem hafa gaman af
að fara í kvikmyndahús en fyrir
kvikmyndagerðarmenn skipta þær
engu máli,“ sagði kvikmyndaleik-
sljórinn Roman Polanski í viðtali við
DV.
-GK
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Allar
gerðir
sendibíla
2S050
SCnDlBiLRSTÖDin
Borgartúni 21
LOKI
Og svo eru þeir sem halda
aö SÍS sé ríkið!
Roman Polanski tók að sér að „leikstýra“ töku mynda af sjálfum sér við Bláa lónið skömmu eftir að hann kom til landsins . „ . ,
i gær. Hér er hann að skoða aðstæður ásamt Sigurði Sverri Pálssyni. DV-mynd Kristján Ari/-GK — SI3 Ylðtðl 3 OlSa 4
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Sunnanátt og rigning
Á sunnudag verður suðvestanátt og skúrir á stöku staö um sunnan- og vestanvert landið. Austantil verður öllu bjartara. Hiti verður á bilinu 2 til 12 stig.
Heldur versnar í því á mánudag en þá skellur á sunnanátt og byijar að rigna duglega um allt Suður- og Vesturland og austur um land líka. Jafiivel er búist
við snjókomu á hálendinu. Hiti veröur á bilinu 0 til 12 stig.