Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Side 6
54
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Barnaföt
Það er hverju orði
sannara aó versl-
unin Fólk, Nýjabæ
við Eiðistorg, sími
611811, er með
fatnað á alveg
sérstaklega góðu
verði. Vesti og
buxur úr fínasta
flaueli kosta sam-
an 2.990 kr. og
kjóllinn vinstra
megin á myndinni
er á 2.398 kr.
Jakkapeysan
kostar 1.980 kr. og
hvít skyrta 780 kr.
Jakkapeysan og
skyrtan eru alveg
tilvaldar á litla
töffarann. Stelpu-
skórnir á myndinni
eru á 998 kr. og
mokkasíurnar
kosta kr. 1.985.
Gjafavörur
Það er erfitt að leyna brosinu (aegar maður heyrir
hvað vörurnar kosta í versluninni Fólki, Nýjabæ við
Eiðistorg, sími 612013. Þrjú lítil handklæði í gjafa-
kassa kosta 890 kr. og eru þau alveg tilvalin í litla
jólapakkann. Stóru Cannon handklæðin kosta 498
kr. Jólakerti með mynd eru á verði frá 99 kr„ jóla-
borðmottur eru á 99 kr. og loks eru fjórir jóladúkar
á 398 kr. saman. Það er óhætt að fullyrða að hér er
á ferðinni aldeilis fallegt jóladót.
Snyrtivörur
í snyrtivörubúðinni Blik, Nýjabæ, Eiðistorgi, sími
612013, fást snyrtitöskur eins og þessi á myndinni
og kosta þær frá 800 kr. Treflasett eru á verði frá
550 kr. og sérstaklega fallegir gjafakassar á 1.965
kr. Einnig fást þar flestar vinsælustu tegundirnar af
rakspírum og ilmvötnum. Verslunin Blik býður enn-
fremur upp á mikið úrval af tískuskartgripum og
öðrum gjafavörum.
Heimilisvörur
l versluninni Heimilisvörur hf„ Nýjabæ við Eiðistorg,
sími 612080, er að finna falleg búsáhöld í eldhúsið.
Má þar nefna hitakönnur, potta og pönnur, bolla-
sett, matarsett og margt fleira. Pottarnir kosta frá
1.700 kr. til 4.000 kr. Ennfremur er þarna að finna
mikið úrval af fötum og diskum fyrir örbylgjuofna.
Ódýrt
Verslunin Fólk, Nýjabæ við Eiðistorg, sími 611811,
er ekki aldeilis við eina fjölina felld. Auk gjafavara
og barnafatnaðar býður verslunin upp á úrval af tísk-
uskóm og tískufötum fyrir fólk á öllum aldri. Hvíta
skyrtan á myndinni kostar aðeins 990 kr. enrhún er
úr 100% bómull, með hnepptum brjóstvösum. Rönd-
ótta peysan er á 1.980 kr„ pilsið kostar 1.790 kr.
og vestur-þýska ullarpeysan er á 1.280 kr. Loks er
á myndinni smásýnishorn af skóúrvali verslunarinn-
ar. Reimuðu skórnir kosta 1.490 kr. en þeir með
rennilásnum kosta 1.690 kr.
Jólatísku-
fatnaður
I Heru, Eiðistorgi, sími
611016, ættu konur á öll-
um aldri að geta fundið á
sig jólafötin í ár. í verslun-
inni er mikið úrval af
tískufatnaði, kjólum, káp-
um, pilsum og blússum á
viðráðanlegu verði. Einnig
fást þar fallegir tískuskart-
gripir af mörgum gerðum.
Tískuverslunin
HECA
U N D I R Þ A K I H U
Eiðistorgi 15 — Sími 61 10 16
Jólamarkaður
Á neóstu hæð Nýjabæjar við Eiðistorg eru þeir í
Stjörnubæ, sími 611120, með jólamarkað. Þeir eru
þar með útsaumað og mjög sérstakt amerískt jóla-
skraut sem varla finnst annars staðar, jólaseríur,
jólabjöllur og gervigreni.
Bangsamarkaður
Eins og sjá má á myndinni er alveg ótrúlegt úrval
af böngsum í Stjörnubæ, Nýjabæ við Eiðistorg, sími
611120. Þetta er eiginlega bangsafjölskyldan eins
og hún leggur sig. Þeir eru á ágætu verði, frá 400
kr„ og eru vinsælir í litla jólapakkann.
Ljósmyndatöskur
Þær eru á hlægilega lágu verði, Ijósmyndatöskurnar
í Stjörnubæ, Nýjabæ við Eiðistorg, sími 611120.
Töskurnar eru til í mörgum gerðum og kosta frá 990
kr. Einnig fást í Stjörnubæ myndavélar frá 3.550 kr.
og margt fleira sem viðkemur Ijósmyndun.
Sælkeraofninn
í Stjörnubæ, Nýjabæ við Eiðistorg, sími 611120, er
að finna margt sem freistar snilldarkokksins. Fremst-
ur þar í flokki er sælkeraofninn frá Rowenta sem
kostar 5.300 kr. Expresso kaffivél, afar ólík þeirri í
þáttunum um heilsubælið, kostar 4.990 kr. og Classy
skerinn, sem er fyrir fagurkerann í matargerðarlist-
inni, kostar aðeins 490 kr. Ennfremur er mikið úrval
af örbylgjuofnum í Stjörnubæ, eitt það mesta á
landinu að sögn fróðra manna og á mjög góðu verði.
Raftæki
Ferðakassettutækin á myndinni kosta 3.990 kr. það
neðra en það stærra, fyrir ofan, er á 6.990 kr. enda
er það tvöfalt. Það eru tvö hólf fyrir kassettur í því
stærra og er hægt að taka upp af einni spólu yfir á
aðra. Vekjaraklukkan er elektrónísk og kostar 990
kr„ litla útvarpið er á 1.090 kr. og vasadiskóið kost-
ar 1.690 kr. Því fylgir ein Denon spóla. í Stjörnubæ,
Nýjabæ við Eiðistorg, sími 611120, fást ennfremur
áteknar videospólur með fjölbreyttu barnaefni og
kosta þær 790 kr.
Húsgögn
Verslunin Stjörnubær, Nýjabæ við Eiðistorg, sími
611120, er á hæðinni fyrir ofan matvöruverslunina.
Á neðstu hæð hússins eru þeir hins vegar með jóla-
markað sem getið er um annars staðar á síðunni.
Þar hafa þeir í Stjörnubæ vfir að ráða miklu gólfrými
og nýta þeir það einnig f^'ir húsgagnaverslun. Boð-
ið er upp á mikið úrval af töff húsgögnum og reynt
að höfða frekar til unga fólksins.