Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1987, Síða 10
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987.
Fjölhæfa sjónvarpið
Sjónvarpstæki
Þessi Kitchen Aid hrærivél, sem fæst hjá Rafbúð
Sambandsins, Ármúla 3, sími 687910, kostar
16.530, staðgreidd. Henni fylgja þeytari, hrærari og
hnoðari en einnig er hægt að fá grænmetiskvörn,
berjapressu og fleira sem fylgihluti. Þessi hrærivél
getur því gert kraftaverk í eldhúsinu.
Það vantar ekki sjónvarpstækin í Rafbúð Sambands-
ins, Ármúla 3, sími 687910. Þetta 20 tommu litsjón-
varpstæki frá Mark er með þráðlausri fjarstýringu og
kostar 31.825 kr. Þar fást einnig 14 tommu tæki frá
Mark en þau kosta 23.465 kr.
Nú á dögum eru þau raftæki vinsælust sem ekki eru
við eina fjölina felld. Fjögurra og hálfs tommu sjón-
varpstækin, sem fást í Rafbúð Sambandsins, sími
687910, falla í þennan flokk. Þau kosta með vekjara
og útvarpi 12.730 kr. og eru bæði 12 og 220 volta.
12 volta tækin geta m.a. fengið straum úr bifreiðum,
þótt ekki sé mælt með mikilli notkun þeirra við akstur.
Netta útvarpstækið
Þetta útvarpstæki, sem er lítið og handhægt, getur
maður hægléga haft í vasanum. Það vegur aðeins
900 grömm, er með þriggja stöðva minni og kostar
2.800 kr. Tækið gengur bæði fyrir rafhlöðu og 220
volta straumi og fæst í Rafbúð Sambandsins, Árm-
úla 3, sími 687910.
Rakvélar
Þessar Payer rakvélar fást í Rafbúð Sambandsins,
Ármúla 3, sími 687910. Þær eru til í mörgum útgáf-
um og ganga fyrir rafhlöðum, hleðslu og straumi.
Sjálfvirkur straumbreytir sér til þess að þær ganga
hvort sem þeim er stungið í samband við 220 eða
110 volta straum. Ekkert er því sem sagt til fyrirstöðu
að taka vélina með sér í Ameríkuferðina.
Jólaseríur
Það er visst öryggi í því
að kaupa útiljósaseríur og
skylda hluti hjá mönnum
sem hafa vit á raftækjum,
eins og þeir í Rafbúð Sam-
bandsins, Ármúla 3, sími
687910, hafa. í Rafbúð-
inni eru til útiljósaseríur í
miklu úrvali. 40 pera sería
með spennubreyti kostar
1.920 kr., aðventuljós eru
á verði frá 1.680 kr. og
kirkjan, sem prýðir mynd-
ina, kostar 1.550 kr.
Islensku pönnurnar
Baðmottur
Baðvogir
Pottréttapönnur eru til 24 cm, 26 cm, og 28 cm í
þvermál. Botninn í þeim er þykkur, hitaleiðni mjög
góð og ekki festist við pönnuna vegna slitsterkrar
hálkuhúðar. Þessar pönnur fást í um 80 búsáhalda-
verslunum og -deildum um allt land. Þær eru
framleiddar af Alpan hf., Eyrarbakka. Heildsöludreif-
ingu annast Amaro, heildverslun, Akureyri, sími
96-22831.
Hjá BB byggingarvörum, Suðurlandsbraut 4, sími
33331, er mikið úrval af baðmottum sem seldar eru
jafnt stakar sem og í fallegum settum. Þær eru til
hvítar, bláar, rauðar og gráar og er verð þeirra í sett-
um frá 1.800 kr.
Hjá BB byggingarvörum, Suðurlandsbraut 4, sími
33331, fást baðvogir fyrir létta og þunga, gamla sem
unga. Þær fást í fjórum gerðum og kosta 1.290-3.
600 kr. Þessi verðmunur felst í tölvuskjá sem er á
þeim dýrustu.
Jakkaföt
í versluninni London,
Austurstræti 14, sími
14260, fást teinótt bó-
mullarjakkaföt í stærðum
S - XL. Stúlkan á mynd-
inni er í jakkanum, sem
kostar 4.200 kr„ en í stað
buxnanna, sem eiga við
jakkafötin, klæðist hún
pilsi sem kostar 1.380 kr.
Peysan, sem er úr 100%
bómull og fæst grá, brún
og blá, kostar 2.990 kr.
Peysa, belti og
pils
Peysan, sem stúlkan er í,
er úr ull og akrýl og kostar
3.300 kr. Hún er til hvít,
rauð, svört og grá og fæst
í einni stærð. Blöðrupilsið
er úr bómull og polyester
og fæst í stærðum eitt og
tvö. Það er-til svart og grátt
og kostar 1.780 kr. Loks
er það teygjuþeltið sem
kostar 900 kr. og fæst
bæði hvítt og svart.
Bómullarúlpa
Bómullarúlpan er með
hettu og kostar 5.500 kr.
Hún fæst brún, blágrá,
svört og drapplit og er hin
vandaðasta flík. Buxurnar
eru teinóttar, úr bómull og
kosta 2.300 kr. Þær eru
fyrirliggjandi gráar, brúnar
og dökkbláar og eru virki-
lega smart. Þetta fæst allt
saman í London, Austur-
stræti 14, sími 14260.