Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Gísla Baldurs Garðarssonar hrl., Skarphéðins Þórissonar hrl., Ásgeirs Thoroddsen hdl., Valgarðs Briem hrl., Jóns Ingólfssonar hdl., Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Brynjólfs Kjartansson- ar hrl. fer fram opinbert uppboð á neðangreindu lausafé: rennibekkur, Torrent fræsivél, Atlas, plötuvals af Fredvardson gerð, Turner borvél, Migatronic kolsýrusuðuvél, Walter borvél og Beaven snittvél, Rid- ged 535 snittvél, Tokeres rennibekkur, Westinghouse rafsuðuvél. Uppboðið verður haldið að Tranavogi 1 þriðjudaginn 15. desember 1987 og hefst það kl. 14.00. Vélar þessar og tæki eru taldar eign Stáltækni sf. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík GAMLAR BÆKUR TIL SÖLU Bókavarðan er verzlun i Reykjavík sem kaupir og selur eldri bækur frá 15du öld til vorra daga. í verzlun okkar að Vatnsstíg 4, í hjarta borgarinnar, höfum við innréttað nútimaverzlun með gamlar og nýjar bækur, deilda- skipta, þannig að hver flokkur bóka er aðgengilegur fyrir sig. í hverri viku tökum við fram hundruð „nýrra“ bóka. Nokkur dæmi: Hæstaréttardómar fyrir árin 1920-1983, allt inn- bundið, alls yfir 60 bindi, Alþingisbækur íslands 1 -9. bindi, prýðisgóð eintök, Nú brosir nóttin eftir Theó- dór Gunnlaugsson, Látra-Björg eftir Helga Jónsson, Árbækur Reykjavíkur 1786-1936 eftir dr. Jón Helga- son, íslenzk lestrarbók 1400-1800, handb. skb., með hinum fræga formála um Samhengið í ísl., bókmennt- um eftir próf. Sigurður Nordal, Saga Hraunshverfis á Eyrarbakka eftir Guðna Jónsson, Listin að lifa eft- ir Fr. Maurois, Þegar Reykjavík var 14 vetra eftir Jón biskup Helgason, Barðstrendingabók, ób.m.k. Bútar úr Ættasögu íslendinga á fyrri öldum eftir Stein Dofra, Brandsstaðaannáll, Faxi dr. Brodda, í nátt- trölla höndum eftir Eirík Kjerulf, norrænufræðingarnir sallaðir í spað, Um íslenzkar þjóðsögur eftir dr. Einar Ölaf og Um Njálu, doktorsrit sama, íslenzkir hestar og ferðamenn eftir Guðmund Hávarðarson, 100 rétt- ir matar eftir frk. Guðmundu Nielsen, (Frökenina I „Húsinu" á Eyrarbakka), Sjósókn eftir Erlend Björns- son, Símaskráin 1930, Bíldudalsminning um hjónin Pétur Thorsteinsson og frú Ásthildi, Forntida Gaard- ar i Island, fornleifarannsóknir, örnefni í Vestmanna- eyjum eftir dr. Þorkel Jóhannesson, 12 norsk æfintýri, þýðing Theódóru Thoroddsen, Valdimar munkur, Dagleið á fjöilum, frumútg. Laxness, Atómstöðin eft- ir sama, frumútg., Snæfellingaljóð, myndir Kjarvals, Úr landsuðri, frumútg. kvæða Jóns prófessors Helga- sonar, Guðnýjarkver, hin mögnuðu kvæði, Glaum- bæjargrallarinn eftir ýmis skáld, þýð. Magnúsar Ásgeirssonar, Aldrei gleymist Austurland, Ijóð 70 austfirzkra skálda, Nei eftir Ara Jósefsson, Það blæð- ir úr morgunsárinu, atómljóð Jónasar Svafárs. Tímaritið Leikhúsmál 1940-1950, allt, sem útg. var í skinnbandi, Landnám Ingólfs 1.-3. bindi, Hið nýa Testament, þýðing Odds Gottskálkssonar, Monu- menta Typhographica, Vísnabók Guðbrands biskups, sama ritröð, Tímaritið Mjölnir, rit ísl. þjóðernissinn- aðra stúdenta, komplet, Sögukaflar af sjálfum mér eftir séra Matthías Joch., í verum eftir Theódór Frið- riksson, Vesalingarnir 1-5 eftir Victor Hugo, frímúr- arabækur Úlfars Þormóðssonar, Ættir Austfirðinga, allt safnið og ótal, ótal margt fleira forvitnilegt ný- komið. í deildaskiptri verzlun okkar er aö finna andatrú og guöfæröi, erlendar vasabækur í þúsundatali, gömlu „krimmana" o.fl., ætt- fræöi og héraðasögu, blandaðar fagbókmenntir, þar meö tölvubækur, matreiöslubækur, frístundir, bókhald, smíðar og tækni, sögu lands og menningar, íslenzk træöi og norræn, málvis- indi, latínu og grtsku, betri erlendar bækur, íslenzk kvæði og Ijóö, leikrit, skáldsögur, erlendar úrvalsbókmenntir, þýddar afþreying- arbækur, ævisögur erlendra höfðingja og allt millt himins og jarðar. Við kaupum og verömetum bókasöfn og stakar bækur fyrir ein- staklinga og tryggingafélög og opinbera aðilja. Gefum auk þess út bóksöluskrár nokkrum sinnum á ári og sendum þær ókeypis til allra sem óska utan Stór-Reykjavikursvæðis. Bókauppboð i Iðnó sunnudaginn 13. des. kl. 14.00. Hundruð fágætra merkisrita sem verða sýnd á Vatnsstíg 4 laugardaginn 12. des. kl. 11-18. Vinsamlega hringið, skrifið - eða lítið inn. Bókavarðan - Gamlar bækur og nýjar - Vatnsstíg 4, Reykjavík. Sími 29720. Útlönd dv Þota sömu gerðar og sú sem fórst í gærkvöld. Símamynd Reuter Fjörutíu og fjórir fórust Talið er fullvíst að íjörutíu og fjór- ir hafi farist með farþegaþotu frá bandaríska flugfélaginu Pacific So- uthwest Airlines sem fórst í Kalifor- niu í gærkvöldi. Þotan, sem var af gerðinni BAel46, íjögurra hreyfla, sem töluvert er not- uð á styttri leiðum, var á leið frá Los Angeles til San Francisco með þrjá- tíu og níu farþega og fimm manna áhöfn innanborðs. Samband rofnaði við þotuna þegar hún var í nágrenni Paso Robles, um miðja vegu milli borganna tveggja. Hrapaði þotan í hæð skammt frá smábænum Temp- leton, um tuttugu kílómetra suður af Paso Robles. Að sögn sjónarvotta steyptist þotan niður og dreifðist brak hennar um stórt svæði. Óstaðfestar fregnir herma að flug- maður þotunnar hafi tilkynnt í talstöð skömmu áður en hún fórst að hann hafi heyrt skothríð í far- þegarými hennar. Embættismenn segja að slysið verði rannsakað sér- staklega með tilliti til þess hvort hugsanlegt sé að þotunni hafi verið grandað. Sem fyrr segir er brak úr þotunni mjög dreift enda brotnaði hún í smátt þegar hún lenti á jörðinni. Le Pen meinuð Bjami Hinriköson, DV, Bordeaux: Á eyjunni Martinique, sem telst hluti franska ríkisins og er í Karíbahafi, gerðist seint á sunnu- daginn sá faheyrði atburður aö Jean Mari Le Pen, leiötoga Þjóö- fylkingarinnar, var meinuð lend- ing af þrjú þúsund mótmælendum sem safnast höfðu saman þar sem vélin átti að lenda. í fiugvélinni, sem var í vepjuiegu áætlunarflugi, voru auk Le Pens um þrjátíu þingmenn samtáka hægri flokka á Evrópuþinginu í Strassbourg og var ætlunin að funda á eyjunni fram á miðviku- dag. Þegar jjóst var að ekki vai' hægt að lenda á Mai-tinique var flogið til eyjunnai' Guadeloupe sem ekki er langt frá og telst einnig tíl Frakk- lands. Þar var lent en mótmæli einnig höfð þar í frammi og fór svo að lokum að Le Pen neitaði að fara út úr flugvélinni og hélt öskureiður aftur til Parísar með sömu vél eftir sautján klukkutima bið meðan stjórnvöld reyndu að miöla máluin. Mótmæleudur voru úr hópum verkalýðsfélaga og vinstrimanna sem töldu heimsókn Le Pens hreina og klára ögrun. Á þessum eyjum í Karíbaliafi er meirilUuti íbúa kynblendiugar og svertingjar. Við komuna til Parísar um há- degi í gær sagöi Le Pen ríkisstjórn- ina bera _ ábyrgö á þessum atburðum. Áður en Frakkar rykju til gæslustarfa í Persaflóa ættu þeir að athuga betur öryggismál heima fyrir. í því sambandi nefndi Þjóð- fylkingarleiötogiim sérstaklega Korsíku og karabísku eyjarnar. Andstæðingar Khomeinis handteknir í París Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Tuttugu iranir í Mujahedinsam- tökunum, sem berjast gegn stjórn Khomeinis, voru í gær handteknir í París. Flestir þeirra hafa verið lengi í Frakklandi og sumir tahst pólitískir flóttamenn. Frönsk yfirvöld saka mennina um ólöglega starfsemi og að þeir yinni gegn almennu öryggi og verður írön- unum vísað úr landi. Aö margra mati er þetta ein afleið- ingin af samningaviðræðum Frakka og írana vegna gíslanna sem sleppt var um daginn. Innanríkisráðherra Frakka, Charles Pasqua, neitaði því harðlega að þama væri nokkurt samband á milli og kvað aðgerðir lögreglunnar i fyUsta samræmi við stefnu ríkisstjómarinnar í öryggis- málum eins og hún hefði verið frá valdatöku stjómarinnar. Kunnugir benda á að lögreglan hafi vitað um íranana og starfsemi þeirra svo mánuðum skiptir og tíma- setningin geti ekki veriö tUvUjun. seldir beint tU Irans enda væri Að vísu séu mennirnir ekki fram- Frökkum varla stætt á því. Talsmaður Mujahedinsamtakanna, Behzad Naziri, á fundi með fréttamönn- um vegna handtöku tuttugu írana i París. Á innfelldu myndinni er leiðtogi samtakanna, Massoud Rajavi, og eiginkona hans. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.