Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. 13 dv Neytendur aöan tómat í útliti, var samt varla jafnrautt. Innan í var salak mjög lík- ur tómat, með svipuðu innihaldi. En bragðið var mjög frábrugðið. Skipt- ust menn algerlega í tvo hópa hvað varðaði bragðkönnunina. Tveir sér- fræðingarnir höfðu aldrei smakkað annað eins óæti en aðrir töldu að þarna væri sérstakt lostæti á ferð- inni. Salak kostaði 739 kr. kg, var raunar aldýrasta tegundin sem við keyptum, og stykkið kostaði 57 kr. Satt að segja vitum við ekki í hvað á að nota þennan ávöxt, kannski pass- ar hann í austurlenska matargerð. Ástríðuávöxtur (passion fruit) er afar sérstæður. Hann líkist einna helst skemmdri plómu í útliti, dökk- leitur og „krpmpaður" að sjá og á stæð við plómu. Innihaldið er mjög súrt, mikið er af kjörnum en margir smakkarar voru á þeirri skoðun að bragðið væri sérlega gott. En ekki vildi undirritaður lifa eingöngu á slíkum ávexti. Stykkið af honum kostaði 22 kr. ^ Kaktusfíkjur eru yfirleitt seldar tvær saman í plastöskjum. Þær líta út svipað og litlar handsprengjur. Betra að vara sig á hýðinu því það er alsett litlum kaktusnálum sem hægur vandi er að stinga sig á. Smökkurunum þótti þessar kakt- usfíkjur frekar bragðdaufar en samt góðar á bragðið. Notast í ávaxtasal- at, kgverð er 395 kr„ tvö stykki kostuðu 55 kr. Granatepli eru gul og rauð á lit með hörðum berki. Það er skorið í sundur og innihaldið, lítil rauð safa- rík ber má nota í ávaxtasalöt eða borða eins og þau koma fyrir. Afar sætur og bragðmikill ávöxtur. Kg- verð er ekki nema 135 kr„ stykkið kostaði 52,40 kr. Úr þessum ávexti er búinn til vinsæll blöndunarmjöð- ur, grenadine-saft, sem til er á öllum börum og notað til að blanda ýmsa drykki sem verða þá fallega rauðir á litinn. Margir þekkja mangoávöxtinn. Hann er egglaga, rauður og grænn. Hann þarf að vera svolítið mjúkur viðkomu til að vera hæfilega þrosk- aður. Hann er flysjaður og skorinn í bita sem notaðir eru í ávaxtasalöt. Einnig er búið til karrímauk úr mango, mango-chutney, sem notað er í austurlenskri matargerð. Mango hefur alveg sérstakt bragð en vissara er að borða ekki of mikið af ávextinum því þá verður manni bumult svo um munar. Mangoið kostaði 349 kr. kg eða kr. 124,90 kr. stykkið. Þá er aðeins eftir að nefna minnstu ávextina. Kúmkat, sem er eins og pínulitlar appelsínur, dálitið beiskt á bragðið, en borða má börkinn með kjötinu. Kúmkat er gott í t.d. ananas- frómas, mjög smátt skorið. Einnig smátt skorið í ávaxtasalöt. 3 stk . kostuðu 14 kr. Tamarillo fékk nafnið „stuna úr fornbókaverslun“ hjá smökkurun- um. Það var ekki ósvipað í laginu og fersk fíkja en dökkt á lit. Fúkkalykt og bragð var af kjötinu. Kannski hef- ur ávöxturinn ekki verið nægilega þroskaður. Stykkið kostaði 57 kr„ kgverð var 538 kr. Við vitum ekki hvemig hægt er að nota þennan ávöxt, en endilega ekki í ávaxtasalat- ið. Það myndi ekki bæta það. Litchie er líkt og jarðarher, enda heitir þessi ávöxtur víst kínverskt jarðarber. Innihaldið er glært og hlaupkennt, mjög sérstætt bragð - margir sögðu mjög gott: Stykkið kostaði 16 kr. Og loks smökkuðum við á rambut- an sem lítur sannarlega ekki út fyrir að vera bragðgóður ávöxtur. Hýðið, sem er líkt og skurn, er alsett „hár- um“, en innihaldið er glært, hlaup- kennt og hefur frekar lífíð bragð. Rambutan kostaði 19 kr. stykkið. Ef þessi könnun hefði verið gerð fyrir einu ári eða svo hefði lítill loð- inn hrúnn ávöxtur verið látinn fljóta með. Það er kiwi, en kiwi er orðið alþekkt hér á landi í dag enda verðið farið niður um ein 30%. Annars sak- ar ekki að geta þess að kiwi er mjög góður ávöxtur sem passar vel í ávaxtasalat og til skrauts á hvers konar matarrétti. Kiwi geymist líka mjög vel í kæliskáp og ætti því að vera hentugur ávöxtur fyrir lands- byggðina þar sem samgöngur eru kannski strjálar. Kgverð á kiwi er 135 kr. -A.Bj. • FM steríóútvarp og kasettutæki. 16 Watta magnari. Stunga fyrir heyrnartól. Innbyggður hljóðnemi. Kjörin jólagjöf fyrir unglinginn. • Eldhúsvél. --------------- Hakkar, hnoðar, hrærir, blandár, sker og rífur. Ómissandi tæki í eidhúsið. Fjöldi aukahluta. • Utvarpsklukka AM/FM útvarp. Inn- rs. byggt loftnet. ----------- Vekjarastilling á út varp eða hljóðmerki. • Elnita 140 saumavélin. Einföld, sterkog ótrúlega fjölhæf. Saumar öll nauðsynlegu sporin. Saumavélin fyrir þá sem bæta og laga en eyða ekki öllum frítíma í saumaskap. Verðið er eftir því. • fsvél. Býrtil í Wi l/Jl Ijúffengan ís og ísrétti : úr t.d. rjóma, jógúrt eöaU .....—--------------- ávöxtum. Tvöföld einangrun á skál. Hlióðlát og þægileg í notkun, v. 64ra bls. upp- • Gufustraujárn. Létt og handhægt. Breiður sjálfhreinsandi álsóli með 35 gufuventlum. Nákvæmur hitastillir. Vatnsmælir. 1800 cl vatnsgeymir. • Kraftmikil ryksuga. Mikill sogkrafturen hljóð látur mótor. Fóthnappur. Tveir auka hausar. Þessi er góð í jólahreingerninguna. • Philipshave rafmagnsrakvél 3 fljótandi 90 rifu rakhausar. 12 sjálfbrýnandi skurðarblöð. Bartskeri. Vandaður kassi fylgir. • 12 bolla kaffivél, eilífðar filter. Mæliskeið, vatnsmælir og hitaplata. • Steriósamstæða mei tvöföldu kassettutæki, - hálfsjálfvirkum plötu- • 4; spilara, 3 rása útvarps- magnara FM, LM, MW, 40 Watta steríómagnara og tveir 40 Watta hátalarar. Skápur um alla samstæðuna. • Djúpsteikingarpottur. Djúpsteikir án gufu eða lyktar. Gufu- og' loftsíur máþvo. Tekur2,25laf olíu. Hitastilling með ' Ijósi. Sjálfhreinsandi. • Sjálfvirk brauðrist. Stillir sig sjálf fyrir nýtt, U frosið eða gamalt brauð. • Hárþurka. Tvær k hitastillingar. Lágværog fer vel í hendi Heimilistaek' UFnDERUHiiÐUÐViP g^TÚNIs:691515 HAFNAnSTR.*: SCUttíUKgH*0 1111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.