Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. 15 Bjálkinn í auga Markúsar Arnar Nýja Útvarpshúsið við Efstaleiti. „Um 60 Stjörnur kæmust fyrir i þvi húsi,“ segir í greininni. „Ríkisútvarpið gerir mest gagn með því að draga sig hægt og hljótt í hlé, eftir því sem einkastöðvunum vex ásmeg- in.“ Tap ríkisútvarpsins verður á milli 80 og 90 milljónir á þessu ári. Þess- ar upplýsingar koma fram aðeins örfáum dögum eftir að Markús Örn Antonsson ríkisútvarpsstjóri full- yrðir í blaðaviðtali að Bylgjan, Stjarnan og Stöð 2 séu reknar með tapi. Mér vitanlegá hefur Markús Örn ekki aðgang að bókhaldi Bylgjunn- ar eða Stöðvar 2 og svo sannarlega hefur. hann ekki verið með nefið niðri í möppum Stjörnunnar. Hann veit því ekkert hvernig íjárhag þessara stöðva líður, hvort þær eru reknar með tapi eða ekki. Hvað Stjörnuna varðar er meira að segja fáránlegt að ætla sér að geta til um afkomuna fyrr en stöðin hefur verið rekin lengur en þetta hálfa ár sem liðið er frá opnun hennar. Það þarf minnst níu mán- uði og helst eitt ár til að fá raun- sanna mynd af rekstrinum, sérstaklega þegar samkeppnin get- ur valdið snöggum breytingum fyrirvaralítið. Stjarnan hefur á sínu hálfa ári náð sömu hlustun og Bylgjan á suðvesturhomi landsins og saman- lagt hafa þessar stöövar talsvert meiri hlustun en Bylgjan hafði ein. Skringileg tímasetning Fullyrðingar Markúsar Arnar um tap stöðvanna eru engum rök- um studdar. Val hans á tíma til að slá þessu fram er hins vegar jafn- furðulegt og sjálfar fullyrðingarn- ar. Þetta segir hann nefnilega á sama tíma og fram kemur að hans eigin stofnun er rekin með 80 til 90 milljón króna halla á þessu ári. Þessi halli á ríkisútvarpinu er Kjallaxinn Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjörnunnar skuggalegur þegar tekið er tillit til þess að stofnunin fékk 67 prósent hækkun afnotagjalda snemma á árinu. Án hennar hefði hallinn orð- ið talsvert meiri. Það sannast hér á Markús Erni máltækið um flísina í auga náung- ans og bjálkann í eigin auga. Hann breiðir út órökstuddar fullyröingar um ætlað tap keppinauta sinna, á meðan hann burðast sjálfur með heilt tonn af tapi á bakinu. Skiljanlegar áhyggjur Reyndar eru áhyggjur Markúsar af keppinautunum skiljanl.egar. Stjarnan og Bylgjan hirða útvarps- hlustun þar sem þær nást. Fáir hlusta orðið á rás 1 ríkisútvarpsins nema í fréttatímum. Rás 2 hefur litla hlustun á stöðum þar sem Stjarnan og Bylgjan heyrast einnig. Stöð 2 hrifsar til sín áhorfendur af sjónvarpinu. Stöð 2 fjölgar út- sendingartímum frá mánuði til mánaðar og eykur á sama tíma inn- lenda dagskrárgerð. Sjónvarpið reynir af veikum mætti að fylgja á eftir, þreytt og lasburða. Einkastöðvarnar halda úti kröft- ugri dagskrá og njóta hylli hlust- enda og áhorfenda fyrir langtum minni kostnað en ríkisútvarpið. Stjarnan er til aö mynda í húsnæði sem er á stærð við anddyrið í nýja útvarpshúsinu við Efstaleiti. Um 60 Stjörnur kæmust fyrir í því húsi. Skyldukvakið Forráðamenn ríkisútvarpsins kvaka gjarnan um skyldur þær sem á það eru lagðar með útvarps- lögunum. Þeir búa síðan sjálfir til lista yfir skyldur og ráðast af hörku í að uppfylla þær. Ekkert tillit virð- ist tekið til þess aö tvær öflugar útvarpsstöövar og ein sjónvarps- stöð í einkaeign eru komnar fram á sjónarsviðiö og axla þegar tals- vert af þessari ábyrgð - án þess að lög þurfi til. Ríkisútvarpið lætur eins og það sé ennþá eitt á bylgjum ljósvakans. Mál er að þessi gamla fyrrverandi einokunarstofnun vakni af Þyrni- rósarsvefni sínum. Til að byrja með þarf ríkisútvarp- ið að endurskoða, í ljósi breyting- anna, hvernig'það geti best uppfyllt skyldurnar. Það mætti til dæmis byrja á að spyija neytendur ljós- vakamiðlanna, í stað þess að reiöa sig um of á ráð og raddir innan- hússmanna sem sífellt tala með fyrirlitningartón um einkastöðv- arnar. Með reigingslegu tali sínu lýsa þeir nefnilega frati á þann smekk sem nýtur almennrar hylli. Hægt og hljótt Forráðamenn ríkisútvarpsins eiga að hætta að reyna að eyöi- leggja fyrir einkastöðvunum eins og Markús Örn hefur reynt síðustu daga. Menn verða að átta sig á því að ríkið hefur ekkert með útvarps- eða sjónvarpsrekstur aö gera. Rík- isútvarpið gerir mest gagn með því að draga sig hægt og hljótt í hlé eftir því sem einkastöðvunum vex' ásmegin. Á endanum tryggir það neytendum bestu og ódýrustu þjónustuna, í stað þess að þeir þurfi auk hárra afnotagjalda að bera gríðarlegt tap af ríkisrekstrinum. Ólafur Hauksson Gróusögur og Sigvaldaverk Flestir íslendingar kannast við sögu Jóns Thoroddsens um séra Sigvalda og hana Gróu, fjölmiðil- inn hans. Gróa þótti og þykir enn hin óþokkalegasta rógtunga, enda oft til hennar vitnað þegar óþverra- söguburði er komið á kreik, oftast af óskiljanlegum ástæðum. í sögu Jóns bendir ekkert til þess að höfundur ætli Gróu endilega það innræti að valda öðrum tjóni; miklu fremur hitt að henni þótti ævinlega betra að segja þau tíð- indi, sem tilheyrandi hennar vildi fremur heyra, og af því hafði hún talsverða búbót, t.d. góðgjörðir í mat og drykk. Oft fór hún með troð- inn mal af bæjum sveitunga sinna að sögulaunum. Fjölmiðlum nú- tímans þætti nú afrakstur Gróu gamla tímans að öllum líkindum fremur rýr, enda öll efnahagsvið- miðun orðin breytt frá því sem þá var. En fjölmiðlar nútímans og gamla Gróan eiga þó sama bak- grunninn, hann séra Sigvalda, þennan sem hvergi kemur nærri en skaffar gögiún í trúnaði svo „sannleikurinn" megi koma í ljós. „Beröu mig ekki fyrir því, bless- uð,“ sagöi gamla Gróa í sögulok. Fjölmiðill nútímans segir. „Ég hefi staðfastar heimildir en ég er bund- inn trúnaði og segi ekki hvaðan þær eru.“ Ég hefi nú fremur til- hneigingu til að hafa samúð með Gróu, bæði þá og nú, en ég er hrædd við séra Sigvalda; þennan sem er friðhelgur á bak við tjöldin, sem gerir skilamanninn að þjófi; þennan sem í krafti nafnleyndar brýtur trúnað í starfi til að koma fyrir kattarnef þeim sem vinna störf af hugsjón, sannfæringu og velvilja. Við, fólkið á bæjunum, höfum heldur ekki breyst svo neinu munar, við viljum upplýs- ingar um þaö sem gerist utan við okkar nánasta umhverfi og þó við viljum aö umhverfi okkar sé gott þá viljum við samt fréttir af því að þar sé nú eitthvað að gerast. Breytingar til hins betra eru því miður ekki það sem við teljum til mestra tíðinda, hvað þá að stöðug- leiki góðs mannlífs og mikillar menningar sé það sem viö viljum að oftast sé rætt í fjölmiðlunum, þó að við óskum öll eftir að búa við þetta hvort tveggja. Vel vinnandi Gróa í nútímanum getur gert hinar bestu breytingar að óþurftarverk- um þegar Sigvaldi sendir hana af bæ í traustri vissu þess að trúnað- argögnin, sem enginn hefur aðgang að nema hann sjálfur, séu óbrigðul mannorðsmorðtól og að nú sé ekk- ert annað betra fyrir hana að gera en að drífa sig bara af stað. Gróa bregðursér til Þingvalla Málabúnaður í Helgarpóstinum 26. nóvember síðastliðinn hlýtur að standa fyrir þeim sem les hann, einmitt þannig að þar hafi þau lagt saman krafta sína, séra Sigvaldi og Gróa. Afrakstur þeirra í HP ber fyrirsögnina „Þjóðgarðspresturinn fór ítrekað framúr fjárlögum.“ Það leynir sér ekki í frásögninni að Gróa hefur brugðið sér heim í Hlíð til að réttlæta upprunann að efniviðnum og svo byrjar hún sög- una án þess að skrökva nokkrum sköpuðum hlut. Þetta er ekkert venjulegt kotbýli, flestum óvið- komandi, sem hún hefur tekið sér fyrir hendur að leggja í rúst. Það er Þingvallaheimilið og þjóðgarðs- varslan þar, okkar sameiginlegi sæmdarstaður. Bústjórinn okkar á Þingvöllum býður gesti greinilega til stofu, hann veit bæði af menntun og inn- ræti að gestrisni er það sem prýðir höfuðból þjóða mest. Hann leiöir gestinn um allar völundargötur búsins, utan húss sem innan, rekur fyrir honum umfang staðarins í smáu sem stóru. Hann er stöltur af því áö hafa með traustri aðstoð góöra samverkamanna lagt nótt viö dag til að reisa, bæta, fegra og vernda þessa þjóðarperlu okkar allra. Verndari fjárlaga En það var ekki til að leita frétta af þessu sem Gróa hjúið reisti til Þingvalla að hafa viðtal við bústjór- ann þar. Eftir greininni að dæma Kjallarinn Hólmfríður Jónsdóttir húsmóðir virðist blaðamaður hafa tekið sér þessa ferö á hendur sem sérstakur verndari ijárlaganna, í bráð og lengd. Honum virðist verá mikið í mun að koma í veg fyrir aö nokkr- ir fjármunir séu veittir til staðarins og gildir þá einu hvort þeir eru miklir eða litlir. Þessum sérstaka verndara er tíðrætt í greininni um prósentur umfram áætluð fjárlög en upphæðir nefnir hanp hvergi. Hver var t.d. upphæðin í krónum talin í fjárhagsáætlun fyrir árið 1982, þegar greinarhöfundur segir að framkvæmdir í þjóðgarðinum á Þingvöllum hafi farið 247,9% fram úr áætlun? Hver var upphæðin í krónum öll árin hin sem greinar- höfundur rekur með prósentu- tölum? Bara þessi framreiðsla í frásögn um fjárveitingu umfram íjárlög og aðdróttanirnar, sem hún felur í sér, eru með þeim hætti að hverjum lesanda er það augljóst að tilgangurinn er sá einn að búa til sakir. - En til hvers? Af sömu rót runninn Þar sem prósentuupptalningum lýkur, án þess að þeim séu gefnar nokkrar grunntölur til að miða út frá, taka mannaráöningar og launagreiðslur við. Greinarhöf- undur á sér von í því að aðra bústjóra hjá því opinbera geti hann þó að minnsta kosti gert að öfund- armönnum bústjórans á Þingvöll- um með því að upplýsa þá um það að sá ráði ekki aðeins starfsmenn „eftir því sem þurfa þykir“ - heldur og vegna þess að hann sem fram- kvæmdastjóri fer sjálfur yfir alla reikninga, sem hann sendir frá sér sem þjóðgarðsvörður, og afgreiðir þá. „Margur hyggur nú mann af sér“, segir í gömlu spakmæli. Þá kemur nú Gróa að launa- greiðslunum, þær eru þó alltaf viðkvæmt mál, en launaviðmiðanir skipta sögumann engu máli, frem- ur en grunntölur í prósentureikn- ingi. Málið er að halda dampinum í frásögninni og ganga fram hjá tölum sem afsanna áburðinn. Það kemur líka fram í greininni að tölu- legar upplýsingar vantar ekki vegna þess að sögumaður HP hafi ekki haft úti spjót til að afla sér þeirra, hann segir orðrétt; „Samkvæmt heimildum HP var hráefnisúttekt mötuneytisins hjá Kaupfélagi Árnesinga milli 80 og 90 þúsund krónur í októbermánuði sl.“ - Þar höfum viö það! Eitt af því sem greinarhöfundur gerir tilraun til að draga upp sem sakamál á bústjórann er það að konan hans er starfsmaður á staðn- um og hann þarf, vegna þess að skrifstofubáknið vantar, sjálfur að Víðurkenna með undirskrift sinni unnar vinnustundir jafnt hennar sem annarra. Það mun nú ekki vera óalgengt að framkvæmdastjórar ríkisfyrir- tækja taki konur sínar í vinnu og einnig börn sín. Sem slíkir eru þeir auðvitað ábyrgir fyrir launa- greiðslum til þeirra, eins og annarra starfsmanna sem vinna hjá fyrirtækinu. Framkvæmda- stjórar fyrirtækja hafa líka þau verk að vinna að sjá til þess að fólk sé að störfum í fyrirtækjunum, „eftir því sem þurfa þykir". Svona sjálfsagða hluti veit hvert manns- barn. Bílamálaþáttur í þessari grein er af sömu rót.runninn og hinir sem að framan greinir. Framlög til Þingvalla Ein íjárhagsáætlunartala er nefnd í krónum í greininni, það er áætlunin fyrir komandi ár. Ég er alveg viss um að langflestir íslend- ingar hafa trúað því fram að þessu að þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Þingvallasetrið hefði algeran for- gang um fiárveitingu frá íslenska ríkinu og ég efa ekki að slíkur er vilji flestra. En hver er svo bókfærð fiárveiting til staðarins á næsta ári og hefur aldrei verið önnur eins? Hún er 16 milljónir, réft rúmlega sú upphæð sem Póst- og símamál- stofnuninni er gert að greiða í húsaleigu á ári fyrir aðstöðuna í flugstöðinni í Keflavík. Það er áreiöanlega mýmörg starfsemi og óþarfari en póstafgreiðslan í Leifs- stöð rekin í þjóðfélaginu fyrir hærri fiárhæðir en þetta. Hver er t.d. ársvelta Helgarpóstsins og hvaða hlutverki gegnir hann? Gæslufólk á Þingvöllum fær nú trúlega að finna betur fyrir hlut- verki HP þegar fram hða stundir. Þetta er afskekktur staður, stutt á afrétt bænda, Qallskil oft slök. Var nokkurt kjöt á úttektarreikningn- um frá Kaupfélagi Árnesinga? Hefur nokkur gáð í pott matráðs- konu og gengið úr skugga um hvort sviðin séu eyrnaskorin þar á bæ? Sigvaldi verður ekki í vandræð- um með hvar næst skuli borið niður. Hólmfríður Jónsdóttir „Vel vinnandi Gróa í nútímanum getur gert hinar bestu breytingar að óþurft- arverkum, þegar Sigvaldi sendir hana af bæ.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.