Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. Nú kemur ritverkiö í nýrri og glæsilegri útgáfu, 3 bindum, alls 1250 blaðsíður. Verð kr. 4.888. List og lífsskoðun Út er kominn II. flokkur í heildar- útgáfu AB á ritverkum Sigurðar Nordals. Nefnist hann List og hfs- skoðun. Þessi flokkur er í þremur bindum eins og fyrsti flokkurinn, Mannlýsingar, sem kom út 1986. List og lífsskoðun er í raun mjög fjölbreytt safn en í aöalatriðum má segja að flokkurinn hafi aö geyma skáldskap hans, ennfremur margvís- legar ritgerðir frá ýmsum tímum sem tengjast þessum efnum og bera kaflaheitin Skiptar skoðanir (ritdeila viö Einar H. Kvaran), Hugleiðingar, Háskóli og fræði, Listir, Heilbrigði og útivist, Endurminningar. í skáldskeparkaflanum er að finna kvæði Sigurðar Nordals frá ýmsum tímum, leikrit hans, svo sem Upp- . stigningu, hina frábæru þýðingu á kvæði Frödings um Atlantis, afburöa smásögur eins og Lognöldur og Síð- asta fullið. En hæst ber vafalaust ljóðaflokkinn Hel, sem er bæöi tíma- mótaverk í íslenskum bókmenntum og sígildur skáldskapur. Bækurnar eru samtals rúmlega 1200 bls. að stærð. Prentun: Prent- smiðja Árna Valdemarssonar. Verð kr. 5.600. Og hvað með það? eftir Helgu Ágústsdóttur ^ Komin er út hjá Iðunni ný unglinga- bók eftir Helgu Ágústsdóttur og nefnist hún Og hvað með það? Þetta er þriðja bók höfundar en hinar fyrri, Ekki kjafta frá og Ef þú bara vissir, nutu mikilla vinsælda meðal lesenda sinna. Um efni þessarar nýju bókar segir: „Unglingarnir lenda í ýmsu og það er ekki víst að þeir fullorðnu viti allt- af málavöxtu. Þeir halda að þetta sé allt vitleysa eða barnaskapur. Þeir ættu bara að vita í hverju maður getiu- lent! Og pælingamar, þeir vita nú minnst um þær... Og svo á mað- ur bara að vera stilltur og góður og læra vel heima! Verð kr. 1298. Kristín Lafranzdóttir Kristín Lafranzdóttir er einhver stórbrotnasta ástar- og ættarsaga sem rituö hefur veriö á norræna tungu og bókin varð til þess að Sigrid Undset hlaut nóbelsverðlaunin. í engri sögu Sigrid Undset rís hst hennar hærra. Hvergi sýnir hún bet- ur fjölþætta hæfileika sína, merki- lega samofið raunsæi og ímyndunar- afl, heitt, ástríðuþrungið skap og efablandna skynsemishyggju. Skáld- verkið er þýtt af Helga Hjörvar og Arnheiði Sigurðardóttur. Frábær- lega vel unnið verk sem unun er að njóta. Nýjar bækur Auga fýrír auga Sonur Sigurðar. Höfundur: Guðlaug Richter. Teikningar: Þorvaldur Þorsteinsson. Útgefandi: Mál og menning. Fyrir tveimur ámm kom út fyrsta bók Guðlaugar Richter, Þetta er nú einum of ..., sem er saga frá kreppuárunum. Sú bók lofaði góðu um nýjan höfund. Nú kemur út önnur bók hennar. Þar leitar hún enn lengra aftur í tímann og dregur nú upp trúverðuga mynd ' af unglingum á þjóðveldisöld. Synir Sigurðar Þeir alast upp saman Þorsteinn, lögmætur sonur Sigurðar mjögsigl- andi og húsbónda á Grand, og Áslaugar húsfreyju og Gijótgarður ambáttarsonur sem dregur nafn sitt af því að vera í heiminn borinn undir grjótvegg. Fljótt er gefiö í skyn að þeir tveir muni samfeðra og þráir Grjótgarður ekkert heitar en Þorsteinn fái að vita sannleik- artn og þeir gerist félagar. Þor- steinn er sannur höfðingi í lund, vopnfimur, vígreifur og stórhuga. Takmark hans er að sigla á fund erlendra konunga. Grjótgarður set- ur markið ekki hátt, enda er ambáttarsyninum ætlað annað hlutverk en syni húsfreyjunnar. Grjótgarður hefur samt ýmislegt sér til ágætis. Hann er viljugur, góðlyndur og afar frár á fæti. Sagan fjallar öðrum þræði um þaö hvor dugar betur í lífsbaráttunni, hvor er meiri hetja. Þorsteinn og Grjótgarður em að- eins unglingar en aldir upp til að viðhalda hefð karlveldisins og 15 ára gamlir verða þeir að standa sig sem fullorðnir karlmenn. Munur- inn á uppruna þeirra fer ekki milh mála eins og kemur fram í orðum ambáttarinnar þegar spnur hennar vill fylgja Þorsteini: „Ég mun ekki Bókmermtir Hildur Hermóðsdóttir reyna að breyta ákvöröun þinni, Grjótgarður. En gleymdu því ekki að þinn staður er meðal okkar, þú getur aldrei orðiö einn af þeim. Aldrei.“ (bls. 30-31) í vígaferlum Svo sem tími sögunnar býður upp á þá verða nokkur vígaferli í sög- unni sem lýtur lögmálunum auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Á þjóðveldisöld er sæmdin dýrmæt- ari lífinu sjálfu, betra er að falla sem hetja en lifa sem blauður mað- ur. Atburðir sögunnar, eða örlögin sjálf, leiða þá Grjótgarð og Þorstein saman í útlegö. Reynir nú mjög á hetjulund þeirra beggja, útsjónar- semi og sjálfsbjargarviðleitni í baráttu viö myrkur, kulda, hungur og launsátursmenn. Lesandinn tekur virkan þátt í baráttu þeirra vegna þess að þeir em trúveröugar persónur og atburðimir sannfær- andi. Ferskt og sjálfstætt listaverk Söguefni Guðlaugar er mjög áhugavert og reyndar skrýtið að höfundar skuh ekki hafa leitað meira aftur til þessa tima. En ekki nægir að velja sér söguefni, aö- stæður og tíma, það sem ræður úrshtum um verkiö er að sjálf- sögðu úrvinnslan. Höfundur þekkir þennan tíma greinilega eins vel og heimildir leyfa. Hún heldur í heiðri þau gUdi sem þá voru ríkj- andi og nýtir sér minni sagnaarfs- ins sem gerir söguna trúverðuga í tímanum. Hetjan, hefndin, útlegð- in, fóstbræöralagiö, seiðskrattinn, forspárnar, örlögin sem ekki verða flúin; allt er þetta magnað fram í þessari sögu sem lýtur þó sjálf sín- um eigin lögmálum sem ferskt og sjálfstætt listaverk. Guðlaug gefur mannlegum til- fmningum rúm í sögunni en á hófsaman hátt. Augnaráð og knappar samræöur segja meira en hefðbundnar nútímalýsingar. Breyttir tímar eru í augsýn eins og Minningar barnalæknis Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Minningar barnalækn- is, lífssaga Björns Guðbrandssonar. Matthías Viðar Sæmundsson skráði. Björn Guðbrandsson kemur víða við í minningum sínum enda séö tímana tvenna. Hann riíjar upp æskuárin 1 Skagafirði þegar ör- þreyttir sveitalæknar riðu um héruð og börn hrundu niður úr barnasjúk- dómum. Síðan víkur hann að dvöl sinni í Þýskalandi eftir stúdentspróf og lýsir kynnum sínum af forsprökk- um nasista áriö 1939. Á stríðsárunum stundar Bjöm nám við læknadeild Háskóla íslands og er um leið aðstoðarlæknir á Vífils- staðahæli. Hann lýsir af hreinskilni baráttuþreki og dauðastríði sjúkling- anna, daglegu lífi þeirra, gleði og raunum. Björn Guðbrandsson hefur frá eft- irminnilegum atburðum að segja sem maður og læknir í stríði og friöi. Á síðustu dögum Víetnamstríðsins er hann við læknisstörf í Saigon og tveimur áratugum áður er hann staddur í Tokyo á vegum bandaríska hersins. í sögu sinni bregður hann upp minnisstæðum myndum úr læknis- starfl sínu og spítalalífi, stefnumót- um við dauöann, sorgum og sigrum. Minningar bamalæknis er 180 bls. Verö kr. 2.388. Ein af myndum Þorvalds Þorsteinssonar úr bókinni. fram kemur í orðum Þorsteins: „Önundur fóstri minn segir að í framtíðinni verði höfðingjar þessa lands stórbændur en ekki víking- ar.“ (96) Orðafar er mjög viö hæfi efnisins og unghnganna sem sagan fjallar um. Kjarngott og fallegt sagnamál en þó auðskilið. Teikningar Þorvalds em léttar og skemmtilegar, dálítið dulúöugar og hófsamar eins og sagan. Letur er mjög læsilegt þannig að þetta er bók sem allir aldurshópar geta notið og bók sem er líkleg til að auka áhuga unghnga á íslend- ingasögunum. HH Einn úr klíkunni? eftir Ulf Stark Iðunn hefur gefiö út nýja unghnga- bók eftir verðlaunahöfundinn Ulf Stark, en bók hans Ein af strákunum vakti athygli meðal íslenskra ungl- inga á síðasta ári. Þessi nýja bók nefnist Einn úr klíkunni? Hér segir frá Lassa, en mamma hans tekur aht í einu upp á því að fara að búa með forríkum tann- lækni, sem ákveður aö breyta Lassa í fyrirmyndarunghng. Klíkan rekur upp stór augu þegar hann birtist klipptur og strokinn í ítölskum tísku- fótum og kann allar ámar á Spáni utanbókar. Áöur var Lassi bara venjulegur töffari í gahabuxum. Njörður P. Njarðvík þýddi. Verð kr. 994.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.