Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 30
'30
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987.
Nýjar bækur
Litla vampíran
Bókaútgáfan Nálin hefur sent frá
sér bama- og unglingabókina Litla
vampiran. Bókin er efdr v-þýska rit-
_Jiöfundinn Angelu Sommer-Boden-
burg og kemur nú út. í íslenskri
þýöingu Ingibjargar Pétursdóttur.
Bókin flallar um býsna Sérkenni-
lega vináttu þeirra Antons Túliníus
og Rimólfs Hrollberg, en hann er lít-
il vampíra. Fleiri koma þó við sögu,
tii dæmis foreldrar Antons, sem trúa
alls ekki á vampírur, og Anna hin
tannlausa, systir Runólfs. Hún var
svo óheppin að verða vampíra sem
barn og því eina vampíran sem verð-
ur að nærast á mjólk!
Runólfur á líkt og Anton í hálf-
gerðu brasi með fuilorðna ættingja
sína því allur samgangur við mann-
anna böm er stranglega bannaður.
Það verður því að gæta fyllstu varúð-
ar þegar Anton fer með Runólfi í
grafhvelfingu Hrollbergsættarinnar.
Litla vampíran er fyrsta bókin í sjö
bóka flokki um ævintýri þeirra fé-
laga, Antons og Runólfs. Hver bók
er sjálfstæð saga en aðalpersónur
þær sömu.
Bókin er prýdd fjölda teikninga,
innbundin, 156 síður og ætluð börn-
um á aldrinum 8-13 ára. Verð kr. 995.
S I /
SVALUR OQ FÉLAGAR O/
í t /
CWST*0 00 ÖTHULCO FBASOGN. UEIRA EDA
MINNA SONN. UM ÆSKUAR SVALS
\ FURÐULEGAR
\ UPPLJ STRANiR
I • v fc \ T<iii:i: fu Jarnv
Spor í rétta átt
Isafold hefur gefið út unglingabók-
ina Spor í rétta átt eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur.
Bókin fjallar um Marí sem upplifir
spennu sambandsins við Ragga og
sinnir í engu ráðleggingum ættingja
eða vina. Hún ætlar að lifa lífinu eins
og henni sjálfri sýnist, hvað sem aðr-
ir segja, en þá...
Áhyggjuleysi æskunnar er skyndi-
lega að baki og veruleikinn blasir við.
Hvemig bregst Marí við? Stígur
hún spor í rétta átt?
Verð kr. 1.290.
Svalur og félagar:
Furðulegar uppljóstranir
Iðunn hefur gefið úf nýja bók í hin-
um vinsæla flokki teiknimynda-
sagna um Sval og félaga.
Islenskir lesendur hafa fylgst með
þeim félögum í gegnum súrt og sætt
og ótal ævintýri en hér er komin
Einstæð og ótrúleg frásögn, meira
eða minna sönn, um æskuár Svals:
Furðulegar uppljóstranir. Hér kemur
ýmislegt fróðlegt í ljós um skrautlega
bernsku þessa víðkunna kappa, hlut-
ir sem ekki hafa áður birst á prenti.
Höfundar eru Tome & Janry. Verð
kr. 798.
Eg þoli ekki mánudaga
eftir Martin Elmer
Komin er út hjá Iðunni ný ungl-
ingabók sem heitir: Ég þoli ekki
mánudaga og er eftir danskan höf-
und, Martin Elmer að nafni. Bók
þessi hlaut alþjóðleg verðlaun sem
besta unglingabókin 1987.
Hér er á ferðinni bráðskemmtileg
og óvenjuleg saga af grunnskólanem-
andanum Daníel, sem býr einn með
pabba sínum. Hann segir raunar
sjálfur frá lífi sínu og upplifunum,
sem á köflum nálgast hið ótrúiega.
Skrýtnir hlutir gerast í kringum
hann, hlutir hverfa af heimilinu,
hver skyldi búa í kjallaranum?
En þótt mánudagarnir séu dæmdir
til óhappa verður ýmislegt til þess
að Daníel endurskoðar þá afstöðu
sína... og hver veit nema ástin fari
jafnvel að blómstra líka! Þórgunnur
Skúladóttir þýddi. Verð kr. 988.
Jólagetraun DV - 1. hluti
heitir borgin?
Jólagetraun DV verður í tíu hlutum nú eins og áður og hér birtist
fyrsti hlutinn. Eins og fram kom í blaðinu í gær felst getraunin í því
að þátttakendur eiga að aðstoða jólasveininn við að þekkja þá borg
sem hann er staddur í hverju sinni.
Að þessu sinni ber margt óvænt fyrir augu Sveinka karlsins í fram-
andi borg. Hann sér ótrúlega marga á reiöhjólum og þau farartæki
líst honum hreint ekkert á. Og ekki minnkar undrunin þegar hann
sér öll síkin í borginni, þar sem bátar sigla fram og til baka, oftast
troðfullir af fólki. Víst ættu margir af lesendum DV að kannast við
borgina því þangað leggja margir leið sína m.a. í verslunarerindum.
Svo sem getiö var um í blaðinu í gær eru sextán glæsilegir vinningar
í boði. Fyrst skal nefna geislaspiiara sem er fyrsti vinningur. Vinning-
ur nr. 2 er ferðageislaspilari. Vinningur nr. 3 er ferðaútvarpstæki af
fullkominni gerð. Síðast en ekki síst eru svo vinningar nr. 4-16 sem
eru hin vinsælu leikfóng frá World of Wonders í Bandaríkjunum.
Þetta eru talandi bangsar og dansandi brúöur sem hafa notið mikilla
vinsælda hjá yngstu kynslóðinni.
Og þá er bara að merkja við rétt svar á meðfylgjandi seðli, klippa
hann út og geyma þar til allir tíu hlutar getraunarinnar hafa birst.
Þá eru þeir sendir í einu umslagi til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík,
merkt „Jólagetraun.“
En við spyijum: í hvaða borg var jólasveinninn staddur?
Amsterdam Peking Teheran
NAFN:
HEIMIUSFANG:
SÍMI: