Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. 37 Margrét Danadrottning hefur örugglega ekki verið svona brosmild eftir veisluhöldin í París. Hér sést hún með Henrik prins, eiginmanni sinum. Pínleg veislu- höld Margrét, drottning Danaveldis, lenti aldeilis í vandræðum fyrir stuttu. Hún fór í opinbera heimsókn til Frakklands og hitti þar marga háttvirta gesti. í París var meiningin að Margrét héldi veislu fyrir 700 manns af heldri gerðinni og tók hún konunglegan matreiðslumann sinn með sér. Hann lét matbúa í Danmörku. Graflax, kræklingur, rækjur, paté, kjúklingaréttir og fleiri kræsingar voru á boðstólum hjá honum. Átti nú aldeilis að sýna Frökkum hvernig ætti að meðhöndla mat. En málið er að þess konar matvæli þola ekki allt of vel geymslu, alla vega þoldu kræs- ingarnar ekki flutninginn frá Danmörku til Frakklands. Allir gestimir, 700 með tölu, fengu illvíga magakveisu og ekki bætti úr skák að hver gestur borgaði um 12 þúsund krónur fyrir herlegheitin. stúlkur Þessar ungu, knáu stúlkur söfnuöu 740 krónum á tombólu tll styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Edda Rúnarsdóttir, Linda Margrét Ja- fetsdóttir og Eva Dögg Jafetsdóttir og þær búa allar í Kópavoginum. DV-mynd GVA Cher mætti með nýjasta kærastann á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, „Moonstruck". Hann heitir Rob Camiletti. Símamynd Reuter Myndir á færibandi Cher, sem áöur var vel þekkt söngkona, er orðin ein afkasta- mesta leikkonan í Hollywood. Myndirnar koma frá henni i röð- um, með nokkurra mánaða milli- bih og hún virðist fá góða dóma fyrir þær allar. Cher, sem er með mjög sérstakt en fallegt andlitsfall, er orðin rúm- lega fertug. Það gæti verið ástæðan fyrir því hversu mikið hún leikur. Hún veit sem er að hlutverkatil- boðum fækkar þegar komið er fram á þennan viðkvæma aldur í kvikmyndabransanum. Enn er þó úthtið bjart hjá henni því að hún fær ekki hlutverk út á útlitið held- ur hæfdeikana. Hún annar ekki eftirspum eins og er og er hæstán- ægö með það. Nýjasta kvikmynd hennar var frumsýnd fyrir skömmu í Hollywood og heitir „Moonstruck“. Mótleikari hennar í þeirri mynd er Nicholas Cage. Um daginn gaf hún sér tíma til þess að koma fram meö Sonny sem hún söng með á sjötta áratugnum. Þau Sonny og Cher komu fram á aðeins einum tónleikum og rifjuðu upp gamla takta, tóku meðal ann- ars frægasta lag sitt, „I Got You Babe“. Sonny féh í gleymsku eftir að þau hættu ferhnum saman en Cher tókst að ná vinsældum með sólóferil í söngnum áður en kvik- myndabransinn tók við. Fyrirmyndarkvemnaður Leikarinn Michael Caine var hér á árum áður einn vihtasti piparsveinn sem þekktist í leikarabransanum. Hann drakk ósleitilega og skipti um kvenfólk eins og nærfót. Þegar hann var spurður hvemig draumadísin hans ætti að vera sagði hann að hún ætti að vera falleg, gáf- uð, trygglynd, heimakær og tilbúin að gefa upp allan sinn frama til þess að sinna honum. Ætla mætti að Mic- hael Caine veittist erfitt aö finna manneskju sem passaði við þessa lýsingu. En honum tókst það samt sem áður og það sem meira er, henni hefur tekist að fá Caine til þess að hætta vihtu líferni sínu. Fyrir 13 árum kvæntist Caine Shakiru, sem er suðuramerísk meö índíánablóð í æðum. Hún hefur lýst því yfir að hún geti ekki hugsað sér neitt betra en að sinna húsmóður- hlutverkinu fyrir Caine. Öllum á óvart gengur samband þetta framar vonum og hefur ekki hlaupið snurða á þráðinn hjá þeim þau þrettán ár sem þau hafa veriö gift. Hún hafði áður en hún kynntist Caine náð nokkrum frama sem fyrirsæta en gaf hann upp á bátinn þegar hún giftist. - Jag als/iar rnllun som rnmxtlárnefru, Oet »r vitldons bSsta }ot>h, mad bara ekonomisira tóróeiar, aágor Shakien Þetta er besta hlutverk sem ég get hugsað mér, segir Shakira um húsmóð- urhlutverkið, en hún og leikarinn Michael Caine hafa verið gift í 13 ár samfleytt. Sviðsljós Ólyginn sagði... Elísabet Taylor er gamall kunningi Imeldu Marcos, eiginkonu Ferdinands Marcosar sem hrökklaðist frá völdum á Filippseyjum. Um daginn voru þær staddar á Honolulu og skruppu í búðir. Elísabet hefur alltaf haft húmor- inn í lagi því að hún kallaði hátt yfir salinn þegar þær gengu inn í eina búðina: „Ég heiti Liz Taylor og þetta er vin- kona min, Imelda Marcos. Við ætlum að fá að kíkja hér á nokkur pör af skóm!" Dudley Moore litli leikarinn sjarmerandi, sem leikið hefur í mörgum óborgan legum gamanmyndum, ætlar nú að fara að gifta sig, 52 ára gamall. Sú heppna heitir Brog an Lane og er, eins og aðrar kærustur hans, næstum höfð inu hærri. Hann lætur slíka smámuni ekki hindra sig. Hann hefur nýlokið við leik í mynd sem þykir vel heppnuð og sú heitir „Like father, like son". John Travolta var eitt allravinsælasta goðið í leikarabransanum eftir mynd- irnar Saturday Night Fever og Grease. Hann reyndi talsvert við leik í öðrum kvikmyndum en lukkan hefur heldur farið síg- andi hjá honum og nú er hann flestum gleymdur. Hann virðist vera búinn að gera sér grein fyrir því að hann nýtur sín ein- göngu í dansmyndum á borð við Saturday Night Fever. Þess vegna hefur honum tekist að telja menn á að færa verkið upp sem leiksýningu á Broadway og heitir verkið þar einfaldlega „Fever".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.