Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987. Viðskipti Nú er mikið fjör í Rotterdam - verð allra olíutegunda að lækka Ekki þarf aö kvarta yfir lífleysi á ol- íumarkaðnum í Rotterdam. Eftir fund OPEC-ríkjanna hefur verð allra olíutegunda lækkað. Tunnan af hrá- olíunni Brent úr Norðursjónum var í fyrradag á bilinu 16,10 upp í 16,90 dollarar. Og verðið klauf reyndar 16 dollara múrinn þar sem ein sala var skráð 15,95 dollarar tunnan. Sumir sérfræðingar spá því að á næstu vik- um fari verðið niður í 15 dollara fyrir tunnuna, aörir spá að verðið haldist á bihnu 16 til 17 dollarar. Forsendur þessara spáa eru þær að mikið fram- boð er á olíumarkaðnum og OPEC- ríkin tóku á fundi sínum engar ákvarðanir um að skera olíufram- leiðsluna kröftuglega niður til að halda verðinu uppi eða jafnvel hækka það. Bensínverð þegar lækkað Verð á unnum olíuvörum hefur einnig lækkaö verulega í Rotterdam. Bensín, venjulegt, var í fyrradag á 149 dollara tonnið en var á um 154 dollara í síðustu viku. Lækkun um 5 Frá OPEC-fundinum i Vin í Austurríki strax í kjölfar fundarins. dollara. Verð á bensíni, súper, var í fyrradag um 167 dollarar tonnið en var um 176 dollarar tonnið í síðustu viku, lækkun 9 doharar. Verð á ga- solíu var í fyrradag um 154 dollarar í fyrradag. Verðlækkun á olíu kom Mynd Reuter tonnið en var í síðustu viku um 161 dollari, lækkun 7 dollarar. Verð á svartolíu var í fyrradag um 85 dollar- ar tonnið en var í síðustu viku um 93 dollarar, lækkun 8 dollarar. Vegna svartolíunnar skal þess get- ið að í öllum viðskiptum með hana bætast við ákveðnar premíur, auka- greiðslur, vegna mismunandi gæða olíunnar. Þessi premía er 12 dollarar fyrir íslendinga og hefur verið tekið tilht til hennar hér í verði svartol- íunnar. Verðið fyrir tveimur mánuð- um DV hefur í tvo mánuði birt vikulega verð á erlendum mörkuðum. Þegar þessi skráning hófst var bensín, venjulegt, á um 166 dollara, bensín, súper, á um 185 dollara tonnið og gasolían á um 164 dollara tonnið. Af þessu sést að verð á bensíni hefur lækkað í Rotterdam um 18 dohara tonnið á síðustu tveimur mánuðum. Að vísu tekur bensínverðið alltaf við sér yfir háveturinn en þá er minna um akstur bíla en í sumarfríunum. Verðið fer yflrleitt á toppinn á sumr- in. -JGH Peningamarkaður Verð á eriendum mörkuðum Bensín og olía Verð í Rotterdam, fob., 15. des. Bensín, venjul.,..149$ tonnið, eða um......4,12 ísl. kr. htrinn. Bensín, súper,..167,50$ tonnið, eða um.....4,60 ísl. kr. lítrinn. Gasoha.....„......154$ tonnið, eða um.....4,74 ísl. kr. htrinn. Svartoha..........85,5$ tonnið, eða um.....2,87 ísl. kr. htrinn. Hráolía Verð í Rotterdam, fob., 15. des. Um ..16,10-16,90 doharar tunnan, eöa um...584-614 ísl. kr. tunnan. Innlán með sérkjörum Alþyóubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þríggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn- legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextireru 23% og ársávöxtun 23%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlaö sérs- taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja mánaða verótryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 33% nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verótryggðs reiknings með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Vextir færast hálfsárslega. Metbók er með hvert innlegg bundiö í 18 mán- uði á 34,5% nafnvöxtum og 37,5% ársávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liönum. Vextir eru færðir hálfs- árslega. Iðnaöarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og 32,2% ársávöxtun. Verðtryggö bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð- tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega á höfuðstól. 18 mánaða bundinn reikningur er með 34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 33% nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun. Af óhreyfö- um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast 34,4% nafn- vextir (ársávöxtun 37,4%) eftir 16 mánuöi og 35% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 38,1%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggöra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiöróttingu. Vextir fær- ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuöina 20%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6 mánuði 31 %, eftir 24 mánuði 33% eða ársávöxt- un 35,72%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verðtryggóum reikningum gildir hún um há- vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 32% nafn- vexti og 34,56% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verótryggós reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síöustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggöra reikninga í bankanum, nú 32,83% (ársávöxtun 34,51%), eða ávöxtun 3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er geróur mánaöarlega og vaxtaábótinni bætt við höfuöstól, en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess aö ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekió út af reikningnum í 18-36 mánuði tek- ur hann á sig kjör sórstaks lotusparnaðar meö hærri ábót. Óverðtryggö ársávöxtun kemst þá í 35,12-36,95%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin- reglan er að innistæóa, sem er óhreyfð í heilan ársfjóróung, ber 29,0% nafnvexti, kaskóvexti, sem gefa 32,31% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mánaða verðtryggös reiknings, nú með 4% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færöar hafa verið á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram þaö breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í ársfjóröungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóösbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjóröungs, fær innistæðan kaskókjör ef hún stendur óhreyfð út fjóróunginn. Reikning- ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil- yrðum. Sparisjóóir: Trompreikningur er verðtryggóur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtuní. Sé reikningur oróinn 3ja mánaða er geróur samanburður á ávöxtun með svoköll- uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa 32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð- tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu bundna 118 mánuöi óverðtryggöa á 32% nafn- vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 5,0% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma- bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirói, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað, Patreksfirói og Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verö- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð meö veöi undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggö eða óverðtryggð og meó mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverótryggóum skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20% eða meöalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verö- tryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins getur numiö 2.755.000 krónum á 4. ársfjórö- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000 krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.350.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérgtakra aðstæðna. Lánin eru til 40 ára og verötryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóöir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum, algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er aö færa lánsrétt við flutning milli sjóða eóa safna lánsrétti frá fyrri sjóöum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaöir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö- ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn- ir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæöan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í veröbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðiö neikvæö. Liggi 1000 krónurnar inni (6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán- uði. Þá verður upphæöin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð- ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 4,1 % á mánuöi eða 49,2% á ári. Vísitölur Lánsfcjaravisitala i desember 1987 er 1886 stig en var 1841 stig í nóvember. Miöaö er viö grunninn 100 i júnl 1979. Byggingarvisltala fyrir desember 1987 er 344 stig á grunninum 100 frá 1983. en 107,5 á grunni 100 frá júli 1987. Húsaleiguvisltala hækkaöi um 5% 1. okt. Þessi vísitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miöaö sérstaklega I samningum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsitölunnar miðast við meöaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán overðtryggð Sparisjóösbækurób. 20-22 Lb.lb, Úb,Vb, Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 20-24 Úb,Vb 6 mán. uppsögn 22-26 Úb 12mán.uppsögn 24-30,5 Úb 18mán.uppsögn 34 Ib Tékkareikningartalm. 6-12 Sp.lb, Vb Sértékkareikningar 12-24 Ib Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán.uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb Innlán með sérkjörum 18-34 Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 6-7,25 Ab.Sb, Sterlingspund 7,75-9 Ab.Sb Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Ab,Sp Danskarkrónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvlxlar(forv.) 33-34 Sp.Lb, Úb.Bb, lb,Ab Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36 eöa kaupgengi Almennskuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Ab, Sp Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb,Bb, Ib.Ab, Sp Utlán verðtryggð Skuldabréf . 9,5-9,75 Allir nema Úb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 31-35 Úb SDR 8-9 Vb Bandaríkjadalir 9-10,5 Vb Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán. MEÐALVEXTIR Överötr. des. 87 35 Verðtr. des. 87 9,5 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala des. 1886 stig Byggingavísitalades. 344 stig Byggingavísitalades. 107,5stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% . okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóöa Ávöxtunarbréf 1,3536 Einingabréf 1 2,507 Einingabréf 2 1,466 Eiriingabréf 3 1,553 Fjölþjóöabréf 1,140 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,518 Lifeyrisbréf 1.260 Markbréf 1,277 Sjóösbréf 1 1,226 Sjóösbréf 2 1,226 Tekjubréf 1,317 HLUTABRÉF Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 365 kr. Flugleiðir 252 kr. Hampiðjan 136kr. Hlutabr.sjóöurinn 141 kr. lönaöarbankinn 154 kr. Skagstrendingurhf. 186 kr. Verslunarbankinn 133 kr. Otgerðarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Gull Verð í London 16. des. Um........487 dollarar únsan, eða um....17.629 ísl. kr. únsan. Ál Verð á áli í London 15. des. Um....982 sterlingspund tonnið, eöa um....65.008 ísl. kr. tonnið. Ull Verð í Sydney, Ástralíu Um..................910 cent kflóið, eða um...........330 ísl. kr. kflóið. Bómull Verð á bómull í New York Um................65 cent pundið, eða um..........52 ísl. kr. kílóið. Hrásykur Verö í London Um..........208 dollarar tonnið, eða um......7.550 ísl. kr. tonnið. Sojamjöl Verð í Chicago Um..........208 dollarar tonnið, eða um......7.550 ísl. kr. tonnið. *■■■-■ 'íWx-.-K--';' , ^ SS#s Kaffíbaunir Um............115 cent pundið, eða um..........92 ísl. kr. kílóið. ÖKUM EINS OG MENN! Drögum úr hraða - ökum af skynsemi! iJUMFERÐAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.