Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
Viðskipti
Nú er mikið fjör í Rotterdam
- verð allra olíutegunda að lækka
Ekki þarf aö kvarta yfir lífleysi á ol-
íumarkaðnum í Rotterdam. Eftir
fund OPEC-ríkjanna hefur verð allra
olíutegunda lækkað. Tunnan af hrá-
olíunni Brent úr Norðursjónum var
í fyrradag á bilinu 16,10 upp í 16,90
dollarar. Og verðið klauf reyndar 16
dollara múrinn þar sem ein sala var
skráð 15,95 dollarar tunnan. Sumir
sérfræðingar spá því að á næstu vik-
um fari verðið niður í 15 dollara fyrir
tunnuna, aörir spá að verðið haldist
á bihnu 16 til 17 dollarar. Forsendur
þessara spáa eru þær að mikið fram-
boð er á olíumarkaðnum og OPEC-
ríkin tóku á fundi sínum engar
ákvarðanir um að skera olíufram-
leiðsluna kröftuglega niður til að
halda verðinu uppi eða jafnvel
hækka það.
Bensínverð þegar lækkað
Verð á unnum olíuvörum hefur
einnig lækkaö verulega í Rotterdam.
Bensín, venjulegt, var í fyrradag á
149 dollara tonnið en var á um 154
dollara í síðustu viku. Lækkun um 5
Frá OPEC-fundinum i Vin í Austurríki
strax í kjölfar fundarins.
dollara. Verð á bensíni, súper, var í
fyrradag um 167 dollarar tonnið en
var um 176 dollarar tonnið í síðustu
viku, lækkun 9 doharar. Verð á ga-
solíu var í fyrradag um 154 dollarar
í fyrradag. Verðlækkun á olíu kom
Mynd Reuter
tonnið en var í síðustu viku um 161
dollari, lækkun 7 dollarar. Verð á
svartolíu var í fyrradag um 85 dollar-
ar tonnið en var í síðustu viku um
93 dollarar, lækkun 8 dollarar.
Vegna svartolíunnar skal þess get-
ið að í öllum viðskiptum með hana
bætast við ákveðnar premíur, auka-
greiðslur, vegna mismunandi gæða
olíunnar. Þessi premía er 12 dollarar
fyrir íslendinga og hefur verið tekið
tilht til hennar hér í verði svartol-
íunnar.
Verðið fyrir tveimur mánuð-
um
DV hefur í tvo mánuði birt vikulega
verð á erlendum mörkuðum. Þegar
þessi skráning hófst var bensín,
venjulegt, á um 166 dollara, bensín,
súper, á um 185 dollara tonnið og
gasolían á um 164 dollara tonnið. Af
þessu sést að verð á bensíni hefur
lækkað í Rotterdam um 18 dohara
tonnið á síðustu tveimur mánuðum.
Að vísu tekur bensínverðið alltaf við
sér yfir háveturinn en þá er minna
um akstur bíla en í sumarfríunum.
Verðið fer yflrleitt á toppinn á sumr-
in.
-JGH
Peningamarkaður
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Verð í Rotterdam, fob., 15. des.
Bensín, venjul.,..149$ tonnið,
eða um......4,12 ísl. kr. htrinn.
Bensín, súper,..167,50$ tonnið,
eða um.....4,60 ísl. kr. lítrinn.
Gasoha.....„......154$ tonnið,
eða um.....4,74 ísl. kr. htrinn.
Svartoha..........85,5$ tonnið,
eða um.....2,87 ísl. kr. htrinn.
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob., 15. des.
Um ..16,10-16,90 doharar tunnan,
eöa um...584-614 ísl. kr. tunnan.
Innlán með sérkjörum
Alþyóubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæður
sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir
eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þríggja stjörnu reikningar eru meö hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextireru 23%
og ársávöxtun 23%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3%
bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar
upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlaö sérs-
taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður viö ávöxtun þriggja
mánaða verótryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun verótryggðs reiknings
með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er með hvert innlegg bundiö í 18 mán-
uði á 34,5% nafnvöxtum og 37,5% ársávöxtun,
eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liönum. Vextir eru færðir hálfs-
árslega.
Iðnaöarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verðtryggö bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuðstól.
18 mánaða bundinn reikningur er með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun. Af óhreyfö-
um hluta innstæðu frá síðustu áramótum eða
stofndegi reiknings síðar greiðast 34,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 37,4%) eftir 16 mánuöi og
35% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 38,1%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verðtryggöra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,85% í svonefnda vaxtaleiöróttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuðstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuöina 20%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6
mánuði 31 %, eftir 24 mánuði 33% eða ársávöxt-
un 35,72%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða
verðtryggóum reikningum gildir hún um há-
vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6.
og 31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 32% nafn-
vexti og 34,56% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verótryggós
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síöustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggöra reikninga í bankanum,
nú 32,83% (ársávöxtun 34,51%), eða ávöxtun
3ja mánaöa verðtryggðs reiknings, sem reiknuð
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er geróur mánaöarlega og vaxtaábótinni
bætt við höfuöstól, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Heimilt er að
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess aö ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekió út af reikningnum í 18-36 mánuði tek-
ur hann á sig kjör sórstaks lotusparnaðar meö
hærri ábót. Óverðtryggö ársávöxtun kemst þá
í 35,12-36,95%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Megin-
reglan er að innistæóa, sem er óhreyfð í heilan
ársfjóróung, ber 29,0% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefa 32,31% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6
mánaða verðtryggös reiknings, nú með 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færöar hafa verið á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram þaö breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt í ársfjóröungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóösbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjóröungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfð út fjóróunginn. Reikning-
ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgða
almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið
sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóóir: Trompreikningur er verðtryggóur
og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5%
nafnvöxtuní. Sé reikningur oróinn 3ja mánaða
er geróur samanburður á ávöxtun með svoköll-
uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð-
tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð-
tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með innstæðu
bundna 118 mánuöi óverðtryggöa á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6
mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 5,0%
vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirói, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstað,
Patreksfirói og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis bjóða þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verö-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð meö veöi
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggö eða óverðtryggð og
meó mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverótryggóum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eða meöalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verö-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins
getur numiö 2.755.000 krónum á 4. ársfjórö-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.350.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérgtakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verötryggð. Vextir eru
3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur
og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóöir eru í landinu. Hver sjóður
ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og með 5-9% vöxtum,
algengastir eru meöalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er aö færa lánsrétt við flutning milli sjóða eóa
safna lánsrétti frá fyrri sjóöum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaöir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö-
ir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum verður innstæöan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé
innstæðan óverðtryggð í veröbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel orðiö neikvæö.
Liggi 1000 krónurnar inni (6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá verður upphæöin 1050 krónur og ofan
á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuð-
ina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 4,1 % á mánuöi eða 49,2% á ári.
Vísitölur
Lánsfcjaravisitala i desember 1987 er 1886
stig en var 1841 stig í nóvember. Miöaö er viö
grunninn 100 i júnl 1979.
Byggingarvisltala fyrir desember 1987 er 344
stig á grunninum 100 frá 1983. en 107,5 á
grunni 100 frá júli 1987.
Húsaleiguvisltala hækkaöi um 5% 1. okt. Þessi
vísitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miöaö sérstaklega I samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vlsitölunnar
miðast við meöaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán overðtryggð
Sparisjóösbækurób. 20-22 Lb.lb, Úb,Vb, Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 20-24 Úb,Vb
6 mán. uppsögn 22-26 Úb
12mán.uppsögn 24-30,5 Úb
18mán.uppsögn 34 Ib
Tékkareikningartalm. 6-12 Sp.lb, Vb
Sértékkareikningar 12-24 Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán.uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán með sérkjörum 18-34 Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6-7,25 Ab.Sb,
Sterlingspund 7,75-9 Ab.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Ab,Sp
Danskarkrónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvlxlar(forv.) 33-34 Sp.Lb, Úb.Bb, lb,Ab
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 36 eöa kaupgengi
Almennskuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Ab,
Sp
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb,Bb, Ib.Ab,
Sp
Utlán verðtryggð
Skuldabréf . 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandaríkjadalir 9-10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán.
MEÐALVEXTIR
Överötr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala des. 1886 stig
Byggingavísitalades. 344 stig
Byggingavísitalades. 107,5stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Ávöxtunarbréf 1,3536
Einingabréf 1 2,507
Einingabréf 2 1,466
Eiriingabréf 3 1,553
Fjölþjóöabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,518
Lifeyrisbréf 1.260
Markbréf 1,277
Sjóösbréf 1 1,226
Sjóösbréf 2 1,226
Tekjubréf 1,317
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 130 kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hampiðjan 136kr.
Hlutabr.sjóöurinn 141 kr.
lönaöarbankinn 154 kr.
Skagstrendingurhf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Otgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Gull
Verð í London 16. des.
Um........487 dollarar únsan,
eða um....17.629 ísl. kr. únsan.
Ál
Verð á áli í London 15. des.
Um....982 sterlingspund tonnið,
eöa um....65.008 ísl. kr. tonnið.
Ull
Verð í Sydney, Ástralíu
Um..................910 cent kflóið,
eða um...........330 ísl. kr. kflóið.
Bómull
Verð á bómull í New York
Um................65 cent pundið,
eða um..........52 ísl. kr. kílóið.
Hrásykur
Verö í London
Um..........208 dollarar tonnið,
eða um......7.550 ísl. kr. tonnið.
Sojamjöl
Verð í Chicago
Um..........208 dollarar tonnið,
eða um......7.550 ísl. kr. tonnið.
*■■■-■ 'íWx-.-K--';' , ^ SS#s
Kaffíbaunir
Um............115 cent pundið,
eða um..........92 ísl. kr. kílóið.
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
- ökum af skynsemi!
iJUMFERÐAR