Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1987, Page 35
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1987.
35
Merming
Ljoðrænn heimur samræmis
Matthias Johannessen
Sól á heimsenda
Almenna bókafélagið, 1987.
Eftir aö hafa lesið bókina Sól á
heimsenda kann lesandinn aö hug-
leiða hvort hún teljist vera skáld-
saga eða ferðaminningar. Raunar
eru mörkin þar á milli nokkuð
óljós. Sem dæmigerð skáldsaga
skortir hana líklegast fastofnari
atburðarás og þá í leiðinni meiri
átök og spennu. En samt eru þar
t
Samnefnari barna
Drengurinn er tvítugur að aldri
en er orðinn sama barnið og hafði
oft áður kætt sögumann með við-
brögðum sínum og athugasemdum
um það sem fyrir bar og gleymdist
ekki. „Þau voru orðin svo vön þess-
um athugasemdum drengsins að
hann var hættur að muna hvenær
þær voru gerðar enda var enginn
tími til þegar þau voru á ferðalög-
um saman, hann var löngu þurrk
Matthías Johannessen.
atriði sem gera hana að óvenjulegri
ferðasögu, fyrst og fremst vegna
þess hve ljóðræn hún er og einnig
það að ferðinni er heitið út úr fast-
njörvuðum tíma og inn í heim
óljósara tímatals svo margra ferða-
laga að tíminn hefur þurrkast út í
minningu þess sem skrásetur:
„... hann naut þess að losna við
tímann og upphfa alla reynslu sem
eina reynslu, hvert atvik sem eitt
atvik og hveija athugasemd sem
eina ljósrák á svörtum myrkum
himni... “
Þetta tvennt einkennir frásöguna
og lyftir henni frá því að vera rétt
og slétt ferðasaga.
Ferðalangamir eru þrír, hann,
miðaldra ritstjóri á dagblaði og
sögumaður, hún, eiginkona hans,
og drengurinn . Þau eru saman á
ferð um Portúgal, og í framandi
umhverfi þessa suðræna lands fer
einnig fram saga um þau þrjú, sam-
eiginlega upplifun þeirra og
innbyrðis tengsl sem einkennast
af hlýleik þótt ólík séu.
aður út og það sem var verður og
það sem verður var án þess hann
leiddi hugann að því eða velti því
fyrir sér með nokkrum hætti... “
Drengurinn verður að samnefn-
ara allra barna og hin barnslega
sýn er í raun þungamiðja sögunnar
í frásagnarmáta hennar og andblæ.
Sögumaðurinn hrífst af henni og
hún mótar umþenkingar hans og
vangaveltur sem blandast lýsing-
um á landi og fólki sem fyrir ber.
Sagan ,er hæg og látlaus, engir
sérstakir erfiðleikar eða ógnir
steðja að þessu fólki sem lifir
áhyggjulaust í sælu sólar og sum-
ars þar syðra - nema helst þegar
válegar vespur gera vart við sig.
Engin undur og stórmerki nema
það sem skáld nemur og barnssáhn
greinir: hvort drepur nautabaninn
nautið eða fær það að lifa? Og
reyndar drepur hann ekki nautið í
leiknum þarna í Portúgal, en samt
fær það ekki að lifa.
Athygli
er aðalsmerki
Ojarönesk veröld
Spurningar vakna um tilgang lífs
og guð sem leyfir hörmungar og
dauða - en kannski er tilgangur
með öhu, engin fórn til einskis,
hugsarsögumaður með sér, án þess
að glata sálarró sinni þótt dapur
BókmermtLr
Berglind Gunnarsdóttir
legt sé að vita. Og sögumaður kem-
ur víðar við og orðar stuhdum
hugrenningar sínar í ljóðum og
ljóðabrotum. Þrátt fyrir látleysið
býr meira undir í þessum texta en
uppi er látið.
„Það voru víðar ævintýri þar sem
eldur lék sér við lyng og skuggi við
skugga. Þegar hann opnaði augun
á morgnana og hún hafði dregið
upp gluggatjöldin blasti við hvítur
skuggalaus gafhnn á næsta húsi,
rauð sólhlífin bundin saman yfir
hvítu borðinu, orkídea að springa
út í beðinu. „Hún er að kíkja á
mig,“ sagði drengurinn. „Sjáðu
hvað hún er falleg. Hún var svo
þyrst.“ Eða stóra fiðrildið með
hvítu vængjunum sem var eins og
þota eða rauðleita flugan sem
breyttist í þyrlu í hugarheimi
drengsins. Eða þegar hann sat í
sóhnni og fylgdist með skugga
vespu á svölunum, lét augun fylgja
honum eftir uns hann hvarf en
kom svo aftur og nú voru tveir
skuggar á palhnum og stórárás í
aðsigi, en þá stóð hann upp og tók
gulu slönguna og skuggamir hurfu
í bih og pallurinn varð skuggalaus
og hvítur eins og hugsun hans sem
hvarf inn í sólhvítt umhverfið og
samlagaðist því og þessum biáa
himni og það voru engir skuggar
og engin hugsun og þau ein í þess-
ari hlutlausu ójarönesku veröld."
Kaos í kosmos
Einkunnarorð sögunnar gætu
verið það sem sögumaður segir um
að hlutverk hstarinnar, ekki síst
bókmenntanna, sé að breyta
ringlureið í reglu eða kaos í kosm-
os. Búa til heim samræmis, reglu
og barnslegrar eftirvæntingar.
Sögumaöur, sem og höfundur,
ritstjóri dagblaðs, leggur um stund
frá sér gervið og skilur eftir amstr-
ið, en einnig pólitíska þrætubók og
átök, sem eru jafnan hatrömm og
grimm og fjandsamleg bamslegmn
sálum. Og á undarlegan og mót-
sagnakenndan hátt heldur hann á
vit hljóðlátra ævintýra annars
heims sem í honum býr, þar sem
ræður ríkjum hin djúpstæða þörf
fyrir sakleysi og skáldskap.
B.G.
aðeins 750 kr. á mann
27 heitir og kaldir réttir
Opið virka daga frá kl. 12-14.30
föstudag-laugardag 12-20
Þorláksmessu 12-22
Veitingahúsið
UXINN
Glæsibæ Sími 685660
T'
ERT PÚ Á HRAÐFERÐ?
Kanadískir radan arar á hraðferð um heiminn.
6 gerðir radarvara, verð frá 7.950,-
Sendum í póstkröfu
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
ÁSBÚÐ 15 210 GARÐABA
SÍMI: 91-656298