Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
19
Þingmenn nokkurra fiokka í Austurríki hótuðu að ganga út ef Kurt Waldheim, forseti landsins, flytti ræðu yfir sam-
einuðu þingi í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá hernámi Þjóðverja. Waldheim, sem grunaður er um stríðs-
glæpi, mun þess vegna halda ræðu í fyrrum aðsetri keisarans. Símamynd Reuter
Ovenjulegt
afmælisár
Snorri Valsson, DV, Vín;
Árið 1988 er harla óvenjulegt af-
mælisár fyrir austurrísku þjóðina.
Fyrir fimmtíu árum var landið
þurrkað út af landabréfinu í nokkur
ár.
Þann 12. mars 1938 réðst áttundi
þýski herinn inn yfir landamærin og
hertók landið. Daginn eftir var lýst
yfir sameiningu ríkjanna í hið stór-
þýska ríki. Ekki er samt hægt að tala
um innrás í eiginlegum skilningi því
að meirihluti þjóðarinnar tók Þjóð-
verjum opnum örmum og tók ákaft
undir „Sieg Heil“-kveðju Hitlers við
sameiningarathöfnina.
Austurríkismenn, sem á tímum
austurríska-ungverska keisaradæm-
isins fyrir fyrra stríð höfðu verið allt
að sextíu milljónir, urðu við stríðs-
samningana 1918 skyndilega aðeins
sex milljónir og glötuðu auk þess
töluverðum auðhndum sem lágu ut-
an nýju landamæranna.
Minnimáttarkennd
Þeir sem höfðu vanist því að vera
þegnar eins stærsta ríkis Evrópu
fylltust nú minnimáttarkennd. Þótti
þeim sem þeir hefðu verið hafðir að
leiksoppi og þráðu það heitast að
verða aftur hluti af stórveldi. Það var
því engm furða að þó nokkru fyrir
innrásina fóru fram atkvæðagreiösl-
ur í nokkrum sýslum landsins þar
sem sameining við Þýskaland var
samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta.
Deilur
En það hafa risið miklar deilur
milli þingflokkanna fjögurra um
hvernig skuli minnast þessara at-
burða þann 12. mars næstkomandi.
Á slíkum dögum er venjan að ríkis-
ráðið og stórþingið haldi sameigin-
legan fund þar sem meðal annars
forsetinn heldur ræðu. íhaldsmenn
voru á því að þessi háttur skyldi
hafður á en mættu þá kröftugum
mótmælum græningja, sósíalista og
jafnaðarmanna.
Græningjar gátu ekki hugsað sér
að sitja undir ræðu Kurts Waldheim
forseta á þessum degi þar sem hann
er grunaður um stríðsglæpi. Hótuðu
þingmenn þeirra ásamt nokkrum
þingmönnum sósíalista og jafnaðar-
manna að ganga út undir ræðu
Waldheims ef af yrði.
Virtist hér vera um óleysanlegt
vandamál að ræða því hvort sem
Waldheim yrði neitað um ræðustúf-
inn eða að hluti þingheims gengi út
undir ávarpi hans væri um regin-
hneyksli að ræða.
Tvær athafnir
Nú fyrir helgina komust þingflokk-
arnir að samkomulagi eftir langar
samningaviðræður. Niðurstaðan er
sú að sameinað þing kemur ekki
saman heldur verða haldnar tvær
aðskildar athafnir. í þinghúsinu
verður afhjúpuð minningartafla um
þingmenn sem létu lífið í ofsóknum
nasista. Waldheim mun hins vegar
halda ræðu í Hofburg, fyrrum að-
setri keisarans, við athöfn sem þar
fer fram.
Þó að samkomulag hafi náðst i
þessari deilu verða Austurríkismenn
að horfast í augu við það að hluti
þingheims stendur ekki að baki lýð-
ræðislega kjömum forseta sínum.
Raddir þær er krefjast afsagnar
Waldheims verða sífellt háværari en
margir hafa orðið til að benda á
hættuna sem því væri samfara. Farið
gæti svo að Austurríkismenn misstu
trúna á lýðræðinu, trúna sem tekið
hefur áratugi að byggja upp eftir hina
misheppnuðu tilraun til stofnunar
lýðveldis milh striöa. Og allra síst
má gera nokkuð til þess að atburð-
imir frá 1938 endurtaki sig.
Stolnir bílar
útflutningsvara
Brynhildur Ólafedóttir, DV, Spáni:
Lúxuskerrur, svo sem Mercedes
Benz og Porche, eru ekki aðeins
uppáhaldsbílar sendiherra og stjóm-
málamanna heldur em þetta einnig
þeir bílar sem bílaþjófar hafa mestar
mætur á. Nokkur alþjóðleg glæpa-
samtök hafa það fyrir aðalstarfa að
stela glæsivögnum, aðallega frá V-
Þýskalandi, og selja til annarra
landa.
Nýlega kömst upp um eitt slíkt
„fyrirtæki“ sem hafði aðsetur sitt í
Barcelona á Spáni. Fyrirtæki þetta
hafði á sínum snæmm útsmogna
bílaþjófa sem óku beinustu leið til
Barcelona eftir að hafa stolið bílun-
um. Þar var skipt um númer og
skráningarskírteini.
En bílarnir höfðu ekki langa við-
dvöl á Spáni. Eftir að búið var að
gera þá klára vom þeir fluttir út og
seldir til arabalandanna, aðallega
Sýrlands, Líbanons og Kuwait.
Samkvæmt upplýsingum spænsku
lögreglunnar starfa þó nokkur slík
útflutningsfyrirtæki á austurströnd
Spánar og er lögreglan þegar á slóð
nokkurra.
Sum þessara fyrirtækja breyta
yfirbyggingum og vélamúmerum
bílanna og fyrir bragðið verður nær
ómögulegt að rekja uppruna þeirra.
Erlendir fréttaritarar
Vinna hafin við
Ermarsundsgöngin
Bjami Hinriksscjn, DV, Bordeaux:
Vinna er nú hafin við jarðgöngin
undir Ermarsund, á milli Englands
og Frakklands, og gengur hún vel. Á
síöasta ári tókst að tryggja nauðsyn-
legt fjármagn svo göngin verði
tilbúin eins og áætlað er, í maí 1993.
Englendingar hafa þegar hafið gröft-
inn og eru komnir fimmtíu metra í
áttina til Frakklands, þar sem einnig
verður byijað að grafa eftir nokkra
daga.
Næsta sumar munu alls fjögur fyr-
irtæki grafa Frakklandsmegin og er
búist við að hvert og eitt þeirra grafi
að jafnaði fimm hundruð metra á
mánuði. Ellefu hundmð og fimmtíu
Frakkar vinna þegar við gerð gang-
anna og verða orönir tvö þúsund og
níu hundruð í árslok.
Gífurlegt fjármagn er bundið í
þessu fyrirtæki og hingað til hefur
gengiö samkvæmt áætlun að afla
þessa fjármagns og dreifa því út til
verktaka. Framkvæmdimar em
mikil vítamínsprauta fyrir héruðin
næst gangaopunum báðum megin
við sundið.
Fóstureyðingar
deiluefni Breta
Valgerður jóharmsdóttir, DV, London:
Samþykkt hefur verið við aðra
umræðu í breska þinginu inndeilt
frumvarp um að þrengja núgild-
andi fóstureyðingalög Breta.
Mörg þúsund manns söfnuðust
saman framan við þinghúsið fyrir
helgi til þess að mótmæla fmm-
varpinu. Til nokkurra ryskinga
kom og voru tuttugu manns hand-
teknir. Frumvarpið hefur veriö eitt
aðalumræðu- og deiluefni Breta
undanfamar vikur.
Samkvæmt núgildandi fóstu-
reyðingalöggjöf, sem er um tuttugu
ára gömul, er fóstureyðing heimil
fram að tuttugustu og áttundu viku
meðgöngu. í frumvarpinu, sem nú
liggur frammi og flutt er af David
Alton, þingmanni Fijálslynda
flokksins, er hins vegar gert ráð
fyrir að ólöglegt sé að eyða fóstri
ef kona hefur gengið lengur með
en átján vikur.
Jafnstórar fylkingar
Þvert ofan í flestar spár var frum-
varp Altons samþykkt með nokkuð
sannfærandi meirihluta. Þar með
er þó ekki björninn unninn fyrir
Alton. Nú verður fmmvarpið tekið
til nánari umfjöllunar í nefnd. Síð-
an fer það til þriðju umræðu í neðri
deild og loks fyrir lávarðadeildina
áður en það verður að lögum, ef
það þá verður samþykkt á öllum
stigum.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
dagblaðið The Independent lét gera
fyrir helgi, skiptist breska þjóðin í
tvær jafnstórar fylkingar í afstöð-
unni til þessa máls. Fjörutíu og
þrjú prósent telja núverandi lög um
fóstureyðingar ekki nógu -ströng.
Fjörutíu og tvö prósent telja hins
vegar að lögin séu í lagi eða of
ströng.
Fleiri til skottulækna
Stuðningsmenn frumvarpsinS
benda á að í flestum nágrannaríkj-
um Bretlands séu tímamörkin tólf
vikur. Þeir segja einnig að þar sem
læknavísindum hafi fleygt svo
fram síðustu tuttugu ár sé nú
mögulegt að halda lifi í bami sem
fæðist eftir aðeins tuttugu og fjög-
urra vikna meðgöngu. Því sé
siðferðislega óveijandi að leyfa
fóstureyðingu þegar kona hefur
gengið með vel á sjöunda mánuð
Andstæðingar frumvarpsins
benda hins vegar á að langflestar
fóstureyðingar, eða meira en níutíu
prósent, eigi sér stað innan átján
vikna. Þegar fóstureyðing fari fram
seinna sé annaðhvort um aö ræða
að fóstrið sé greinilega vanskapað
eða í Ilut eigi dauðhræddar ungl-
ingsstúlkur sem ekki hafi þorað að
segja neinum að þær væru bams-
hafandi. Þrenging á fóstureyðinga-
löggjöfinni muni einungis þýða að
fleiri konur þurfi að leita til skottu-
lækna til að láta eyða fóstri ólög-
lega.
Seinagangur í kerfinu
Margir læknar hafa lýst yfir and-
stöðu sinni • við frumvarpið og
benda á að mörg próf, sem gerð eru
til að ganga úr skugga um heil-
brigði fósturs, sé einfaldlega ekki
hægt að framkvæma fyrr en í
fyrsta lagi á tuttugustu viku með-
göngu. Andstæðingar Altons segja
einnig að nær sé fyrir hann að beita
sér fyrir umbótum innan heil-
brigðiskerfisins. Allt of oft sé
seinagangi innan kerfisins um að
kenna en ekki konunum sjálfum
ef fóstureyðing er framkvæmd
seint.
Ógerlegt er að segja á þessu stigi
hver afdrif frumvarps Altons verða
að lokum. Margir, þar á meðal for-
sætisráðherrann Margaret Thatch-
er, hallast að málamiðlun þar sem
miðað sé við tuttugu og fjórar vik-
ur. Hvað sem verður er ljóst að
Bretum á eftir að hitna í hamsi enn
um sinn út af þessu máli. .
Spánverjar
sameina banka
Brynhfldur Ólafedómr, DV, Spáxu:
Tveir stærstu bankamir á Spáni,
Banco de Bilbao og Bizgaya, hafa
samið sín á milli um sameiningu.
Samruninn, sem taka á fjögur ár,
mun gera hinn nýja banka að
stærsta banka Spánar.
Bankamir tveir, sem báðir hafa
aðalaðsetur sitt í Baskalandi, era
að svipaðri stærð og með svipuð
umsvif. Það er því ékki um að ræða
að annar yfirtaki hinn heldur er
þetta samrani á jöfnum grundvelli
og mun hinn nýi banki bera nöfn
hinna tveggja.
Fyrstu fjögur árin munu bank-
arnir aðeins starfa að nokkru leyti
saman en eftir það verður samein-
ingin algjör.
Banco de BObao hefur með þess-
um samningi lokið langri leit sinni
að maka en áður höfðu samninga-
umleitanir við fjóra aðra banka
farið út um þúfur.
Ríkisstjóm Spánar svo og heima-
stjórn Baskahéraðs hafa lýst yfir
ánægju sinni með samrunann og
vonir standa til að fleiri bankar
sameinist. Sem stendur eru um átta
stórir bankar starfandi á Spáni en
talið er að fleiri bankar eigi eftir
að sameinast á næstu áram.