Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Side 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
Dægradvöl
Vinsælustu vetraríþróttir
landans
Veturinn er oft á tíöum langur
og strangur á íslandi og fer skamm-
degið fyrir bijóstið ,á mörgum
manninum. En þótt snjói er óþarfi
aö vera með sorg og sút því ýmis-
legt má gera sér til dægrastyttingar
á þessum vetrarmánuðum.
Vetraríþróttir .eiga töluverðum úar og þangað flykkist fólk hvort liðaár en þar er veglegur hóll sem DV fór á stúfana í síðustu viku
vinsældum að fagna hér á landi en
einkum þó skíðaíþróttin. Oft má sjá
börn og unglinga renna sér niður
hóla og hæðir víða um borgina með
miklum tilþrifum. Skíðasvæðið í
Bláfjöllum var opnað í byrjun jan-
sem er um helgar eða á virkum
dögum.
Fyrir þá sem einhverra hluta
vegna komast ekki í Bláfjöll er
hægt að skella sér á túnið við El-
vel er hægt að notast við. Einnig
er ráðgert að setja upp skíðalyftu í
Breiðholti, við enda Breiðholts-
brautar, á allra næstu dögum og
ætti því að skapast þar allsæmileg
aðstaða til skíðaiðkunar.
til að kynna sér tvær af vetrar-
íþróttum landans, skauta- og
skíðaíþróttina.
-StB
Mikil gróska í
skíðagöngu
- segir Óðinn Ámason hjá Skíðaráði Akureyrar
Fer á skauta eins oft og veður leyfir, segir Hlin Pálsdóttir.
DV-mynd KAE
Fer á skauta þrisvar á dag,
segir Hlín Pálsdóttir
Skíðafæri er nú gott í Hlíöarfjalli
viö Akureyri, en skíðasvæðið var
opnað þann 9. janúar síöastliðinn.
Mikill áhugi hefur ætíö verið á þess-
ari íþrótt í höfuðstað Norðurlands
enda er aöstaðan þar eins ög best
verður á kosið. Norðlendingar mega
eiga von á að öryggi aukist til muna
á næstunni en von er á nýjum snjó-
troðara í Hlíðarfjall eftir einn til tvo
mánuði.
Skíðagangan virðist hafa unnið
hug og hjörtu Akureyringa að sögn
Óðins Árnasonar hjá Skíðaráði Ak-
ureyrar. „Aðsókn í trimmbrautina í
Kjarnaskógi hefur aukist,“ sagði
Óðinn „og auk þess æfa 20 manns
göngu með keppni í huga. Alls æfa
liðlega tvö hundruð hjá Skíðaráðinu,
þau yngstu að vísu aðeins um helgar
en böm eldri en átta ára æfa þrisvar
í viku og oftar.“
Fyrsta skíðamótið á Akureyri var
haldið um síðustu helgi en það var
mót KA og Þórs í svigi og stórsvigi.
Landsmótið á skíðum verður haldið
þar nyrðra um miðjan apríl, eftir
páskana. Stærsta mótið sem norðan-
menn standa fyrir, Andrésar andar
mótið, verður svo haldið á sumar-
daginn fyrsta. Á þessu móti keppa
böm frá sex til tólf ára en að sögn
Óðins hafa keppendur verið allt niö-
ur í þriggja ára gamlir.
Skíðasvæðið í Hlíðafjalli er opið
sem hér segir: á þriðjudögum, mið-
vikudögum og fimmtudögum frá
klukkan 13 til 21, á mánudögum og
fostudögum frá klukkan 13 til 19 og
um helgar frá klukkan 10 til 17.
-StB
Eins og viö vitum öll eru vetrar-
iþróttir fyrir alla aldurshópa og
hvorki skíði né skautar þekkja kyn-
slóðabilið margumrædda. Veður
hefur verið einstaklega gott undan-
famar vikur og mánuði og loks þegar
skautaveðrið kom dreif Hlín Páls-
dóttir sig á skauta ásamt börnum
sínum, þeim Helgu Láru og Magnúsi.
Hlín sagðist oft-fara með börnin á
skauta þegar veður leyfði, jafnvel
tvisvar til þrisvar á dag. En heldur
leist henni illa á aðstöðuna til skauta-
iðkunar á þessu vinsæla skauta-
svæöi höfuðborgarbúa. „Það er
skömm að þessu,” sagði Hlín Páls-
dóttir um snævi þaktan ísinn.
En hvorki Hlín né börnin á Tjöm-
inni létu snjóinn hindra sig mikiö í
að stunda þessa hollu og hressandi
íþrótt. -StB
Nægur snjor i Bla
fjöllum
Þann 9. janúar sl. var skíðasvæð-
ið í Bláfjöllum formlega opnað
almenningi. Að sögn Guðmundar
Kjerulfs, annars umsjónarmanns
Bláflalla, hefur aðsókn verið góð,
a.m.k. 3.000 manns nutu blíðviöris-
ins þar laugardaginn 17. janúar.
Aðsókn á virkum dögum hefur
einnig verið góð og ber þá mest á
hópum skólabama af Reykjavíkur-
svæðinu, svo óg nærhggjandi
byggðarlögum. Aðstaða fyrir gesti
svæðisins er nokkuð góð að sögn
Gufimundar, kjallari skíðaskálans
rúmar um eitt hundrað manns sem
geta þar neytt nestis síns í ró og
næði. Uppi er veitingasala þar sem
seld er skyndifæða, kafli og gos-
drykkir. Alls rúmar skálinn 250
manns við borð.
Allar lyftur nema barnalyftan
vom opnar þegar DV ræddi við
Guðmund og sagði hann að opnun
hennar yrði að bíða betri tíma.
Hraunið í nágrenni bamalyftunnar
væri of bert til að hægt væri að
koma þar við ruðningstækjum en
ef miða mætti við snjókomu síð-
ustu daga liti út fyrir að lyftan yrði
opnuð fljótlegá og að hægt yrði að
leggja göngubrautir.
Kennsla hefur enn ekki hafist en
hún fer fram við bamalyftuna. Þrír
kennarar starfa í Bláflöllum og er
kennt bæði í hópum og í einka-
tímum.
Allajafna er skíðasvæðið í Blá-
flöllum opið frá því nóvember fram
í maí en Guðmundur sagöi blaða-
manni DV að sökum snjóleysis
hefði svæðið ekki verið opnaö fyrr
en í byijun janúar í ár og að upp
úr hvítasunnunni virtist sem fólk
hefði að mestu lagt skíðunum.
Bláflöll eru opin í vetur sem hér
segir: á þriðjudögum, miövikudög-
um og fimmtudögum er opið frá
klukkan 10 árdegis til klukkan 22
en frá klukkan 10 til klukkan 18
alla aðra daga. Þetta er að sjálf-
sögðu háð veðri en það lítur ekki
út fyrir að snjóleysi ætli að hrjá
skíðamenn á næstu dögum.
StB
Þær láta ekki kuldann á sig fá, þær Inga Jóna, 11 ára, Jónína, 8 ára, Enika, 11 ára, og Laufey, 12 ára. DV-mynd KAE
„Ofsagaman á skautum“
- segja krakkamir á Tjöminni
Þegar blaðamaður og ljósmyndari
DV komu við á Tjöminni í Reykjavík
mátti sjá nokkra galvaska krakka á
skautum, öslandi snj' inn sem hlaöist
hefur upp síðustu daga. Þessir
krakkar buðu kuldanum birginn og
kærðu sig kollótta um bleytuna sem
óhjákvæmilega fylgir þegar jafn-
vægið er ekki sem skyldi.
Jón Trausti, 12 ára nemi í Kársnes-
skóla, sagði að það væri „ofsalega
gaman“ á skautum, raunar mun
skemmtilegra en í skólanum. Þær
tóku undir það með Jóni, þær Inga
Jóna og Jónína. Inga Jóna sagðist
alltaf fara á skauta þegar Tjömin
væri frosin og sagöi að sér fyndist
ofsalega gaman. Hún viðurkenndi þó
aö hún dytti stundum. En fall er far-
arheill segir máltækið og vonum viö
að þau fái öll mörg tækifæri til að
nota skautana sína það sem eftir er
vetrar.
StB