Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
Fréttir
Skákeinvígin í Kanada:
Tiyggir Jóhann sér sæti í
átta manna úrslitum í dag?
- eða verður það gamli refurinn Viktor Kortsnoj sem enn einu sinni heldur sig við toppinn?
Sigurdór Sigurdórsson, DV, Kanada:
í dag verður 8. skákin í einvígi
þeirra Jóhanns Hjartarsonar og
Viktors Kortsnojs tefld. Vinni annar
hvor fer sá hinn sami áfram í átta
manna keppnina sem talið er að
haldin verði í Puerto Rico en það
hefur þó ekki fengist staðfest. Verði
jafntefli þurfa þeir Jóhann og
Kortsnoj að tefla hraðskákir á morg-
un, laugardag, og verður þá teflt þar
til annar hvor hefur sigur í einni
skák.
Ef til þessa kemur tefla þeir fyrst
klukkustundar skák, ef það dugar
ekki þá 30 mínútna skák og ef það
dugar heldur ekki til aö knýja fram
úrslit, þá tefla þeir 15 mínútna skák-
ir þar til yfir lýkur.
Menn eru að sjálfsögðu á milli von-
ar og ótta með skákina í dag. Jóhann
stýrir svörtu mönnunum og svo
brugðið sé yfir á gamanmál þá var
það tekið fram í einu dagblaðanna
hér í Saint John að það þætti betra
að hafa hvítt í skák þar sem hvítur
léki fyrsta leikinn. Meiri er nú ekki
skákkunnátta almennings hér. Þaö
var líka tekið fram að fyrir að vinna
skák fengist eitt stig en menn skiptu
stiginu á milli sína ef skákin endaði
með jafntefli. En þetta var útúrdúr.
Hins vegar spyija menn, hverjir
eru möguleikar Jóhanns? Á það má
benda að hann hefur þegar unnið
Kortsnoj með svörtu mönnunum og
þeir hafa unnið þessar tvær skákir
hvor, með skiptum litum. Þannig aö
afar erfitt er að spá nokkru. Það eyk-
ur bjartsýni manna sem halda með
Jóhanni að hann virtist fullkomlega
hafa náö sér á strik i 7. skákinni og
hafði frumkvæðið allan tímann þótt
það nægði ekki til sigurs. Það sem
margir voru hræddir við var að
sjálfstraustið myndi hverfa viö mót-
lætið í 5. og 6. skákunum en svo
virðist aUs ekki vera.
Það er því bara að vona það besta
í dag en þá fæst úr því skorið hvort
Jóhann Hjartarson er einn af 9 eða
16 bestu skákmönnum heims.
Hinn ósiðlegi nafli Einars Arnar Benediktssonar.
Sykurmolamynd-
band fer fýiir
brjóstið á Bretum
Myndband með lagi Sykurmol-
anna, Cold Sweat, hefur ekki fengist
sýnt í breska sjónvarpinu vegna þess
að það telst fullkynferðislegt. í nýj-
asta hefti vikublaðsins Melody
Maker er skýrt frá því að mynd-
bandið hafi ekki fengist sýnt í
sjónvarpsþættinum „The Chart
Show“. Að sögn blaðsins mun stjóm-
endum þáttarins hafa orðið um og ó
er þeir sáu bandiö enda hafi hegðan
Bjarkar og Einars Amar sært sið-
ferðiskennd sfjórnendanna og komið
út á þeim köldum svita.
Flestir íslendingar ættu að kannast
við myndband þetta þar sem það
hefur sést margoft í ríkissjónvarpinu
og það án nokkurra athugasemda.
Atriðin sem þóttu kynferðisleg em
að sögn Melody Maker þijú. Hið
fyrsta er þegar sést í beran maga
Einars Arnar og er hann skreyttur
djásnum. Annað atriðið mun vera
þar sem Einar kemur skríðandi til
Bjarkar og tekur um handlegg henn-
ar. Þriðja atriöið er svo krossfesting
Einars Arnar.
Myndbandið endar svo á því að
Björk sker Einar á háls. Þetta atriöi
slapp í gegnum nálaraugað athuga-
semdalaust að ööm leyti en því að
inn í atriðið höfðu veriö klippt skot
sem sýndu beikon.
Stjórnendur „The Chart Show“
munu hafa farið þess á leil við Sykur-
molana aö þessum atriðum yrði
breytt, og neituðu þau þvi í fyrstu,
en féllust loks á að setja í staöinn
apalæti. Þannig fékkst myndbandið
að lokum sýnt.
Melody Maker er annars fullur af
fréttum um íslendinga. Auk Sykur-
molanna en auk fréttar af mynd-
bandinu er dómur um Cold Sweat
plötuna, em einnig fréttir af hálfguð-
um í Kópavogi, Svarthvítum draumi,
en sú hljómsveit hefur gert það gott
í neðanjarðarrokkheiminum, þð ekki
fáist útvarpsstöövar til að spila efni
hennar. Þá er bara aö sjá hvemig
breiðskífa þeirra gerir sig meðal
Breta, en hún fær lofsamleg ummæli
í dómi, m.a. fyrir það áræði aö syngja
á íslensku. -PLP
Fálki fangaður
Höhnfriður S. Friöjónsdóttir, DV, Húsavík:
Blvígur fálki var fangaður á Húsa-
vík í gær. Fálkinn hafði áður komið
nokkmm sinnum í dúfnakofa í bæn-
um til að seðja hungur sitt. Eigandi
dúfnanna lagði gildra fyrir fálkann
og náði honum í gær.
Fálkinn var merktur og eftir sam-
tal við Ævar Petersen fuglafræðing
var ákveðið að fara með fálkann tíl
Eyjafjarðar í dag og sleppa honum
lausum þar. Fálkinn gistí lögreglu-
stööina á Húsavík í nótt.
Jóhann er hress og
baráttuandinn I lagi
- sagði Friðrik Ólafsson, aðstoðarmaður hans, í gær
Sigurdór Sigurdórsson DV, Kanada:
„Þú getur alveg flutt fólki heima
þáer fréttír að Jóhann er hress og
enginn uppgjafartónn í honum, öðru
nær. Og ég fullyrði aö baráttuandinn
hefur ekkert dofnað," sagði Friðrik
Ólafsson, stórmeistari og aðstoðar-
maður Jóhanns, í samtali við DV
síðdegis í gær.
Þeir Jóhann, Friðrik og Margeir
Pétursson halda vel hópinn, fara í
Það vakti eftirtekt aö Petra, eigin-
kona Kortsnojs, lét ekki sjá sig í
skáksalnum þegar 7. einvígisskák
þeirra Jóhanns og Kortsnojs fór
fram. Hún hefur í fyrstu 6 skákunum
setíð og pijónaö með grænt band á
prjónunum.
gönguferðir og stunda sund á daginn,
þannig að Jóhann er vel á sig kominn
líkamlega og engin þreytumerki á
honum að sjá.
Það hefur vakiö eftirtekt fólks hér
í Saint John sem fylgist með keppn-
inni hve rólegur og yfirvegaður
Jóhann er. Auðvitað hlýtur hann að
vera spenntur meðan á skákunum
stendur en honum tekst aö leyna því
fullkomlega.
Á meöan er brosað að taugaveiklun
Aðstoöarmaður Kortsnojs,
Gumvich, sat aftur á móti alia skák-
ina og fylgdist meö og honum leiö
hreint ekki vel þegar staða Jóhanns
var hvað best.
Ekki vita menn hvers vegna Petra
mætti ekki en i gærmorgun, þegar
lítíö var um að vera á skákstaönum,
mætti hún ein og sér í fréttamanna-
Kortsnojs. Eins og oft hefur áður
verið frá greint keðjureykir hann
sígarettur. Hann gengur ekki um
gólf, heldur æðir um gólfið. Svo
stoppar hann stundum og eins og
hristir sig og menn sem þekkja hann
vel segja aö þama sé hann að magna
upp í sér fjandskapinn, en Kortsnoj
getí ekki teflt einvígi nema magna
upp fjandskap.
herberginu og fylgdist með þegar
stórmeistarinn og stærðfræðidoktor-
inn John Nenn skýröi fyrir viöstödd-
um alla möguleika hins nýja
tölvuskákkerfis sem hér er notað.
Hann er sagður manna fróðastur um
þetta kerfi.
Gligoric hefur svarað bréflega
- viðurfcennlr að kvartanír Jóhanns hafí verið réttar
Sgurdór Sigurdórsson DV, Kanada:
í gær barst Friörik Ólafssyni loks
bréf frá yfirdómara einvigjanna,
júgóslavneska stórmeistaranum
Gligoric, þar sem hann staðfestir
að kvartanir Friðriks Ólafssonar
fyrir hönd Jóhanns hafi veriö á
rökum reistar og aö hann hafi tek-
iö þær allar til greina.
Þaö var mjög erfitt fyrir Friðrik
aö fá þetta bréf frá Gligoric. Fyrst
bar hann viö önnum, síðan að hann
gæti ekki fengið neinn vélritara til
að vélrita fyrir sig bréfiö. Friðrik
hlustaöi ekki á þessar afsakanir og
heimtaði skriflegt svar sem svo
barst síðdegis í gær.
Ef tíl vfll skilja menn ekki al-
mennt hvers vegna Friörik Ólafs-
son er svona haröur á að fá allt
skriflegt í þessu máli. Ástæöan er
sú að fáir þekkja klæki Kortsnojs
betur en Friörik. Þegar Kortsnoj
tefldi einvígið viö Karpov um
heimsmeistaratítilinn á Ítalíu var
Friðrik yfirdómari eins og Gligoric
er nú. Þar fékk hann að kenna á
klækjum Kortsnojs og veit aö hann
viöurkennir ekkert nema að þaö
sé staðfest skrifiega.
Það er því enn einn sálfræöisig-
urinn að fá óknyttabrögö Kortsnojs
í einviginu viöurkennd skriflega
frá yfirdómara keppninnar. Til
þessarar staðfestingar verður hægt
aö vita ef með þarf í famhaldinu.
Petra sást ekki við sjöundu skákina
Talið er að átta manna einvígin
fari fram í Puerto Rico
Sigurdór Sigurdóraaon DV, Kanada:
Það er ekki vitaö með vissu hvar
átta manna áskorendaeinvígin fara
fram en í gær fullyrtu ýmsir skák-
fréttamenn hér aö þaö yrði í Puerto
Rico í M-Ameríku, landinu þar sem
Héðinn Steingrímsson vann heims-
meistaratítil 12 ára og yngri í sumar
er leiö. Er talaö um aö keppnin fari
þar fram í júlí í sumar. Það hefur
ekki tekist aö fá þetta staðfest.
Þeir sem þar munu keppa eöa hvar
sem átta manna einvígin verða hald-
in eru: Fyrrum heimsmeistari
Anatoly Karpov og síðan Speelmann
frá Englandi, Yusupov frá Sovétríkj-
unum, Short frá Englandi, Portísch
frá Ungveijalandi, Timman frá Hol-
landi og síðan annaðhvort Jóhann
eöa Kortsnoj og Spraggett frá Kanada
eöa Salov frá Sovétríkjunum en þeir
tefla nú framhaldseinvígi rétt eins
og Jóhann og Kortsnoj.