Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
Nýir hluthafar hja Þykkvabæjarkartöflum hf.:
„Getum nú haldið rekstrinum áfram“
Rekstur Þykkvabæjarkartaflna hf.
hefur gengið þunglega að undan-
fómu og að sögn Jóns Magnússonar,
helsta hluthafa fyrirtækisins, var
nauðsynlegt að gera breytingar á
íjárhagsstöðu þess. „Viö erum nú að
ganga frá þvi að nýir hluthafar komi
inn í fyrirtækið og með þeim kemur
nógu mikið hlutafé til að halda
rekstrinum áfrarn," sagði Jón. Hann
kvaöst ekki geta geflð upp að svo
stöddu hveijir þetta væru sem nú
kæmu inn í fyrirtækið né hve háa
upphæð þar væri um að ræða.
Að undanfómu hafa átt sér stað
viðræður milh Jóns og forráða-
manna Ágætis hf. um að Ágæti
yfirtaki rekstur Þykkvabæjarkart-
aflna en að sögn Jóns var ekkert vit
í tillögum Ágætismanna. Þeir hefðu
viljað fá eignir fyrirtækisins á 25%
af verðgildi þeirra. Mikil samkeppni
hefur verið milli þessara fyrirtækja
og sagöi Jón að veröstríö þeirra í
milli hefði kostaö sig mikla peninga.
„Viö emm að berjast við mikið
vald þar sem Ágæti er en þaö er búiö
að fara einu sinni yfir um. Viö getum
ekki notað sömu aðferð og þeir hjá
Ágæti," sagöi Jón. Hann taldi að með
komu hinna nýju hluthafa væri fjár-
hag Þykkvabæjarkartaflna bjargað
en hann hefði veriö oröinn slæmm-.
-SMJ
Chagall, Hockney,
Grappelli og popptón-
leikar á Laugardalsvelli
Skipulagning Listahátíðar 1988 er
nú á lokastigi, en meðal helstu við-
burða á henni eru sýning á verkum
Marc Chagall, sýning á grafik eftir
David Hockney, tvö hundruð manna
kór og hljómsveit frá PóUandi sem
flytur „Pólska sálumessu” eftir
Krzysztof Penderecki undir stjórn
tónskáldsins sjálfs, einleikstónleikar
Vladimirs Ashkenazy, Guarneri
strengjakvartettinn, tríó Stéphane
Grappelli og frumflutningur á leik-
ritinu Marmari éftir Guðmund
Kamban.
Af öðrum Ustamönnum, sem fram
koma, má nefna fmnska stórsöngv-
arann Jorma Hynninen, tvær stór-
efnilegar söngkonur, Debra
Vanderlinde og Sarah Walker, lát-
bragðsleikarann Yves Lebreton og
listdansflokkinn Black Ballet Jazz
frá Los Angeles.
íslenskir tónlistarmenn láta heldur
ekki sitt eftir liggja, því mörg íslensk
tónverk verða bæði flutt og frum-
flutt.
Popparar fá síðan eina ótilgreinda
stórhljómsveit að utan sem treður
upp á Laugardalsvellinum.
A blaðamannafundi skýrði formað-
ur framkvæmdastjórnar, Jón Þórar-
insson tónskáld, frá fyrirhuguðum
skipulagsbreytingum á stjórn hátíð-
arinnar, en þær miöa að því að
tryggja órofa samhengi milli listahá-
tíöa og gera stjórninni kleift að
skipuleggja lengra fram í tímann og
bóka stórstjörnur.
Frá blaöamannafundi Listahátiðar, f.v. Sonja B. Jónsdóttir, Rut Magnússon, framkvæmdastjóri hátiöarinnar, Jón
Þórarinsson og Gunnar Egilson. DV-mynd GVA
Böðvar Bragason, lögréglustjóri í
Reykjavík, hefur látið íjarlægja af-
ruglara af lögreglustöðvunum í
Reykjavik. Ákvörðun um að láta
fjarlægja afruglarana var tekin eftir
að magnara var stolið á Hótel Sögu.
Magnaranum var s'toliö á meðan lög-
reglumenn á öryggisvakt voru að
horfa á sjónvarp. Magnarinn var rétt
við herbergi það er lögreglumennim-
ir voru í.
Samkvæmt upplýsingum Páls Ei-
ríkssonar aöstoðaryfirlögregluþjóns
er verið að athuga hvort leyft verði
að hafa afmglara á lögreglustöðvun-
um eða ekki. Hann sagðist eiga von
á ákvörðun lögreglustjóra innan
skamms.
Lögreglufélagiö hefur skrifað lög-
reglustjóra bréf þar sem farið er fram
á að athugað veröi hvort afruglar-
arnir verði leyfðir eða ekki. Meðal
annars verður athugað hvernig þess-
um málum er háttað á öðrum lög-
reglustöðvum og eins hvemig
sjónvarpsmálum er háttaö hjá lög-
reglu annars staðar á Norðurlönd-
um.
Þegar afruglaramir höfðu verið
fjarlægðir tóku einhverjir lögreglu-
menn sig til og fjarlægðu taflmenn
og klukkur sem voru í setustofu.
Páll Eiríksson vildi taka skýrt fram
að ekki væri um það að ræða að það
þætti verra að lögreglumenn hefðu
aðgang að Stöð 2 heldur hvort æski-
legt þætti að lengja dagskrána.
-sme
- einnig töfl og klukkur
Þessar breytingar felast meðal
annars í því aö tilvonandi fram-
kvæmdastjórar hátíðarinnar hefja ‘
störf sem aðstoðarframkvæmda-
stjórar tveimur árum fyrr en venju-
iega.
Að þessu sinni eru í framkvæmda-
stjórn, ásamt Jóni Þórarinssyni,
Valur Valsson bankastjóri, Karla
Kristjánsdóttir, deildarstjóri í Lista-
safni íslands, Arnór Benónýsson,
forseti Bandalags islenskra lista-
manna, og Gunnar Egilson, skrif-
stofustjóri Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Blaðafulltrúi hátíðarinnar
er Sonja B. Jónsdóttir.
-ai
Horft á Heilsubælið á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Afruglarinn hefur
verið fjarlægður, að minnsta kosti um stundarsakir. DV-mynd S
Lögreglan í Reykjavík:
Afruglararfjarlægðir
Fréttir
Vikudvöl á hóteli í Reykjavík:
Auralaus, á fölsku nafni
en ánægður með þjónustuna
Maður sem sagði rangt til nafns
gisti i eina viku á Holiday Inn hótel-
inu. Þegar hann bókaði sig á hóteliö
var hann ekki krafinn um skilríki.
Hann sagðist heita Ægir Ágústsson
og vera frá ísafirði. Þegar hann
hafði verið á hótelinu í eina viku
stakk hann af án þess að gera upp
skuld sína.
„Þegar ég tók herbergiö til leigu
greiddi ég einnar nætur gistingu.
Daginn eftir var ég beðinn aö
greiða meira inn á reikninginn. Þá
átti ég fimm þúsund krónur og
greiddi þær inn á reikningin. Þá
hafði ég látiö skrifa hjá mér mat
og vín. Þeir skrifuðu allan tímann.
Það var sama hvað ég pantaði, allt
var skrifað,” sagði maöurinn sem
gisti á hótelinu, vitandi það að
hann ætti ekki fyrir reikningunum.
Á fóstudagskvöldið fór maðurinn
á dansleik í Veitingahúsinu í
Glæsibæ. Leigubílstjóri sem ók
honum þangaö átti eftir að hafa
meira af manninum að segja. Þegar
upp var staðið hafði leigubílstjór-
inn lánað manninum um 15 þúsund
krónur og gengið í ábyrgö fyrir
hótelreikningnum.
„Maöurinn virkaði mjög traust-
vekjandi. Ég ók honum fyrst á
fóstudaginn, hann var þá að fara á
Borgarspítalann. Hann sagði mér
að hann hefði orðið fyrir vinnu-
slysi og ætti sennilega erfitt meö
að stunda vinnu það sem eftir væri.
Þegar hann fór á balíið baö hann
mig að sækja sig hálftíma áður en
dansleiknum lyki. Ég gerði það.
Hann kom út á tilsettum tíma.
Hann sagðist hafa lent í slagsmál-
um og verið rændur veski sínu. Ég
trúði manninum og í góðri trú lán-
aði ég honum peninga. Þaö ágerðist
svo með hveijum deginum.
Hann sagðist vera í viöskiptum
við Alþýðubankann og þar sem
hann sagði að ávísanaheftið heföi
veriö í veskinu var skiljanlegt að
hann væri auralaus. Á mánudag-
inn fór hann í bankann. Þegar
hann kom út sagöi hann að verið
væri aö athuga hvað hægt væri aö
gera vegna týnda ávísanaheftisins.
Hann fór meira að segja til Rann-
sóknarlögreglu, sagðist þurfa aö
mæta þar til að gefa skýrslu vegna
veskisþjófnaöarins. Ég ók honmn á
alla þá staði sem hann þurfti að
fara til,“ sagði leigubílstjórinn.
Leigubílstjórinn fór fleiri feröir í
bankann til aö athuga með gang
mála. Alltaf tókst þeim sökótta að
flækja málin sér i hag. Leigubíl-
stjórinn og maðurmn lýsa sam-
skiptum sinum með mjög líkum
hætti.
„1 upphafi ætlaði ég ekki aö vera
lengi á hótelinu. Þegar ég sá hvað
þetta gekk vel ákvað ég að leika
þetta þar til ég neyddist til að
hætta. Ég var á örvandi lyfjum og
drakk áfengi. Þá verður maður svo
kærulaus. Mér þykir þetta leiöin-
legt með leigubflstjórann. Ég mun
greiða honum aftur það sem ég
skulda honum. Ég vil taka fram að
þjónustan og maturinn á Hohday
Inn voru starfsfólkinu þar til sóma.
Framkoma allra var einstök.**
Söguna um slagsmálin og veskis-
þjófhaðiim sagði maðurinn einnig
á hótelinu. „Það vorkenndu mér
allir. Saklaus sveitamaður rændur
í Reykjavík. Ég varð hálfhissa á
sjálfum mér þegar ég sagði að þetta
væri eflaust skipulögð glæpastarf-
semi. Sjálfur hef ég veriö á Litla-
Hrauni í tíu ár samanlagt."
Leigubflstjórinn hefur kært
manninn tál Rannsóknarlögreglu.
Holiday Inn hyggst kæra manninn
fyrir aö gefa upp rangt nafti.
-sme
Aldursforsetinn mátaði fjóra
Regína Thorarensen, DV, Ströndum;
Það er eins norður í Árneshreppi
á Ströndum og annars staðar hér á
landi - allir hafa mikinn áhuga á
skákinni. Þess má geta að átta karl-
menn hafa teflt hér yfir vetrarmán-
uðina undanfarin ár og komið
saman í bamaskólanum á Finn-
bogastöðum um helgar þegar
veðrátta hefur leyft og annir ekki
hindrað það þvi víða er fámennt
hér á bæjum.
Nýlega komu þessir átta menn
saman og tefldu á fjórum boröum.
Aldursforsetinn, Axel Thorarens-
en, Gjögri, 81 árs, sigraöi glæsilega.
Vann fjórar skákir af sjö.
Þá má geta þess að á undanfórn-
um áram hafa þessir menn boðið
tveimur mönnum frá Reykjavík
hingað í páskavikunni til að tefla
og hefur það verið hin besta
skemmtun.