Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Side 5
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
5
dv Fréttir
Nýju umferöarlögin:
Lögregl-
an kemur
á árekstr-
arstað
í nýju umferðarlögunum, sem taka
gildi 1. mars, er gert ráð fyrir að þeir
sem lenda í árekstrum geri sjálfir
upp sakirnar verði ekki slys á fólki.
Því ákvæði verður ekki framfylgt
fyrst um sinn. Lögreglan mun eftir
sem áður koma á árekstrarstað.
Hjalti Zophaníasson hjá dóms-
málaráðuneytinu sagði að óvíst væri
hvenær nýju umferðarlögunum yrði
framfylgt að þessu leyti. Hann sagði
að nú væru tveir menn á vegum
ráðuneytisins á kynningarferð í Dan-
mörku og Noregi. í þeim löndum
gildir sú regla að fólk annast sjálft
skýrslugerð og frágang mála í
árekstrum. Þó ekki ef slys verða á
fólki.
Hjalti sagðist hafa orðið var við ugg
í fólki vegna þessarar nýþreytni.
Fólk er hrætt við rétt sinn gagnvart
tryggingafélögunum. Eins hafa
heyrst raddir um að sá sem veikari
sé eigi á hættu aðjnissa rétt sinn.
Hér á landi mun vera minna um
kaskótryggingar en í þeim löndum
sem fyrirmyndin er sótt til.
Með nýju umferðarlögunum verða
tekin upp sektarákvæði varðandi
ljósa- og bílbeltanotkun. Hjalti Zoph-
aníásson sagði að hjá ríkissaksókn-
ara væri verið að vinna að ákvörðun
um hve háar sektir skyldu vera við
þessum brotum. Von er á ákvörðun
innan fárra daga.
í nýju lögunum verður gert skylt
að aka með ökuljós allan sólarhring-
inn, allt árið um kring.
-sme
Steingrímur
í Hæstarétti
í morgun hófst í Hæstarétti réttar-
hald yfir Steingrími Njálssyni. Dómi
Sakadóms Reykjavíkur í máli Stein-
gríms var áfrýjað til Hæstaréttar. í
Sakadómi Reykjavíkur var Stein-
grímur dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi.
Hæstiréttur hefur áður fengið þetta
sama mál til meðferðar, en þá var
því vísað frá Hæstarétti.
Steingrímur Njálsson situr nú í
gæsluvarðhaldi og hefur honum ver-
ið gert að sæta gæsluvarðhaldi þar
til hæstaréttardómur fellur í máli
hans, þó ekki lengur en til 26. þessa
mánaðar. -sme
Dagvistar-
gjöldin
hækka enn
á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyxi:
Dagvistargjöld hækkuðu um 15% á
Akureyri um síðustu mánaöamót og
bæjarstjórn hefur nú samþykkt að
gjöldin hækki aftur 1. mars, þá um
10%.
Þessar hækkanir má rekja beint til
samninga fóstra við Akureyrarbæ,
launakostnaður bæjarins jókst veru-
lega vegna þeirra samninga. Fóstrur
á Akureyri eru nú sagðar þær launa-
hæstu á landinu en samt er mikill
skortur á fóstrum í bænum.
NISSAN- SUBARU
BÍLASÝNING
Reykjavík og Akureyri
laugardag og sunnudag kl. 2-5
SUBARU STATION 4 WD.
SUBARU JUSTY 4 WD.
NISSAN PATROL 4 WD.
NISSAN MICRA
1 I áhllpr"w/1 WliffWi MHM .........................3 •
.. ......................
NISSAN SUNNY SEDAN
NISSAN SUNNY WAGON 4 WD.
IMISSAIM
NISSAN PATHFINDER 4 WD.
NISSAN PRAIRIE 4 WD.
A Akureyri: Nýja sýningarsalnum hjá Sigurði
_________ Valdimarssyni, Óseyri 5A._____________
3JA ÁRA ÁBYRGÐ Verið velkomin - Alltaf heittá könnunni
INGVAR HELGASOIM HF.
Symngarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.