Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Page 13
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988. 13 Viðtalið Dr. Úlfar Bragason forstöðumaður stofnunar Sigurðar Nordals sem hóf starfsemi sína um áramót: I íslenskan númer eitt Stofnun Siguröar Nordals hefur nú tekið til starfa og er forstöðumaöur stofnunarinnar dr. Úlfar Bragason en hann hóf störf um áramót. Til- gangurinn með menningarstofnun þessari er „að efla hvarvefna í heim- inum rannsóknir og kynningu á íslenskri menningu aö fomu og nýju og tengsl íslenskra og erlendra fræði- manna á því sviði“ eins og segir í reglugerð stofnunarinnar. Formlega var ákveðiö að koma stofnuninni á fót 14. september 1986 í tilefni aldaraifmælis Sigurðar Nor- dals. Keypt var húsnæði undir starfsemina vorið 1987 að Þingholts- stræti 29 og hóf forstöðumaðurstörf eins og áður segir nú um áramót. Hann er enn sem komið er eini starfsmaður stofnunarinnar. „Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið það verkefni að móta starf stofmmar Sigurðar Nordals en starfið verður að vera mjög öflugt svo að stofnunin beri nafn hans með rentu," segir dr. Úlfar Bragason. Stjóm stofnunarinnar skipa: Davíð Ólafsson, fyrrv. seðlabankastjóri, en hann er jafnframt formaður, dr. Jón- as Kristjánsson, forstöðumaður Árnastofnunar, og Svavar Sig- mundsson dósent. Dr. Úlfar Bragason er fæddur árið 1949. Hann tók BA próf í íslensku og sagnfræði frá Háskóla íslands 1973 og árið eftir kenndi hann íslensku við Menntaskólann á Akureyri. Hélt hann þá til Noregs þar sem hann stundaði nám í almennum bók- menntum og lauk hann meistara- prófi þaðan árið 1979. Þegar Úlfar kom aftur til íslands kenndi hann um skeið í ýmsum framhaldsskólum en hélt svo til Bandaríkjanna í frek- ara nám. Úlfar tók doktorspróf frá Berkeleyháskóla í Kalifomíu vorið 1986. Fjallaði doktorsritgerð hans um frásagnarlist í Sturlungasögu. Að doktorsprófi loknu kenndi hann við Chicagoháskóla í 1 'A ár, eða þangað til í lok desember á síðasta ári. „Ætlunin er að stofnunin sjái um að gera átak í því að sinna kennslu og rannsóknum á íslenskri menn- ingu erlendis en samfara minnkandi áhuga á „húmanískum" fræöum hef- ur áhugi á íslenskum fræðum minnkað. Við höfum ekkert gert til að sporna á móti þessari þróun en aftur á móti er ijöldinn allur af fræði- mönnum erlendis sem hefur gert margt fyrir okkur í þessum efnum óumbeöið. Fyrsta verkefni stofnunar Sigurðar Nordals verður því að sjá um að sterkari tengsl myndist milli íslands og þeirra stofnana erlendis þar sem íslensk fræði eru stunduð. í því skyni er ætlunin að bjóða hingað til lands á þessu ári erlendum fræði- mönnum og ræða viö þá stöðu íslenskra fræða í heimalöndum þeirra og hvernig mætti styrkja hana og efla. Einnig er hlutverk stofnunar- • innar aö þjóna íslenskum lektorum erlendis, þ.e.a.s. að gefa þeim upplýs- ingar um hvað er að gerast hér á landi í þessum málum. Hvað varðar áhugamál mín get ég sagt að áhugi minn snúist allur um íslenskuna og rannsóknir á henni. Ég hef mest lagt stund á íslensk fræði auk þess sem ég hef kennt íslenskar bókmenntir og sögu. Það má því segja að ég sé allur í þessu.“ -JBj ÞANNIG ERU HLUNNINDI METIN í SIAÐGREBSLU Fœði, húsnœði, orka, fafnaður, ferðalög. FERÐALÖG Dagpeningar til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum erlendis eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Noregurog Svíþjóð Annars staðar Almennirdagpeningar 165SDR 150SDR Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa 105SDR 95SDR Dagpeningar innanlands eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Gisting og fœði íeinn sólarhring 3.960kr. Gisting íeinn sólarhring 1.890kr. Fœði hvem heilan dag, minnst 10 klstferðalag 2.070kr. Fœði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag 1.035 kr. Sé gisting erlendis greidd samkv. reikningi þriðja aðila og ferðafé auk þess greitt fyrir kostnað að öðru leyti þá reiknast staðgreiðsla af greiðslu umfram 67 SDR á dag. Sama regla gildir hafi annarferðakostnaður en gisting verið greiddur samkv. reikningi en ferðafé greitt fyrir gistingu. Staðgreiðsla reiknast þá af greiddum dagpeningum umfram 83 SDR á dag. Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunarmörkin lækka um 437 kr. fyrir hvern dag umfram 30. FÆÐl Fæði sem launamanni (og fjölskyldu hans) er látíð í té endurgjaldslaust er staðgreiðsluskylt og skal metið þannig til tekna: Fulltfœði fullorðins 437kr.ádag. Fullt fœði bams yngra en 12 ára 350kr.ádag. Fœðiaðhluta 175kr.ádag. Greiði launamaður lægri fjárhæð fyrir fæði hjá launagreiðanda en mat ríkisskattstjóra segir til um skal telja mismuninn til staðgreiðsluskyldra tekna launamanns. Fæðispeninga í stað fulls fæðis eða að hluta ber að telja til tekna að fullu. ______________________________________FATNAÐUR______________________________________ Fatnaður sem ekki telst til einkennisfatnaðar eða nauðsynlegs hlífðarfatnaðar skal talinn tll tekna á kostnaðarverðl og eru þœr tekjur staðgreiðsluskyldar. Ávalltskalreikna staðgreiðslu afallrigreiðslu launagreiðanda til launamanns tilkaupa á fatnaði. HÚSNÆÐIOG ORKA Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði sem launagreiðandi lætur launamanni í té eru ^__________________staðgreiðsluskyld og skulu þannig metin til tekna:_______________ Fyrirársafnotreiknast2,7% affasteignamati húsnœðisins, þ.m.t. bílskúrs og lóðar. Sé endurgjald greltt að hluta skal reikna mismuninn til tekna upp að 2,7% af gildandi fastelgnarmati. Húsaleigustyrk ber að reikna að fullu til tekna. Ef búseta í húsnæði er kvöð sem fylgir starfi launamanns er heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu á næsta ári eftir staðgreiðsluár. Orkukostnaður launamanns, greiddur af launagreiðanda.skal reiknast að fullu til tekna á kostnaðarverði. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.