Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988. Érjálst.óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórí: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Vaxtastefnan Ekki fer víst framhjá neinum manni aö háir vextir eru eitt stærsta vandamál efnahagslífsins. Atvinnu- reksturinn kvartar undan hávaxtastefnunni, almenn- ingur kveinkar sér undan of háum vöxtum, markaöur- inn úir og grúir af mismunandi vaxtakjörum. Seölabankinn heldur að sér höndum en stjómmála- mennirnir hneykslast hver um annan þveran yfir ástandinu og reyna að kenna hver öðrum um. Sannleik- urinn er þó sá aö þeir em sjálfir sökudólgarnir og bera sameiginlega ábyrgð á vaxtaþróuninni. Sumir vegna þess að vextir og verðtrygging fóm gjörsamlega úr bönd- um í óðaverðbólgunni og aðrir vegna þess að vextir voru gefnir frjálsir samkvæmt póhtískri ákvörðun. Lengst af vom vextir neikvæðir og skuldir vom arð- samar meðan verðbólgan át upp lánin. Með tilkomu verðtryggingarinnar vom hagsmunir sparifjáreigenda betur tryggðir, en þegar kaupgjaldsvísitalan var tekin úr sambandi en ekki lánskjaravísitalan æddu vextir og verðtryggingar upp úr öllu valdi. Með tilkomu frjálsra vaxta á síðasta kjörtímabih veit enginn lengur hvað snýr upp og hvað snýr niður. Hitt er flótti frá veruleikanum þegar sumir stjórn- málamannanna kenna frelsinu um vaxtaokrið. Það er biheg undanfærsla að varpa sökinni á fijálshyggjuna, sérstaklega þegar gagnrýnin kemur frá þeim mönnum sem sjálfir réttu upp hendumar með vaxtafrelsinu. Auðvitað er það eðlilegast og heilbrigðast að markaður- inn sjálfur ákveði vaxtastigið, enda er það framboð og eftirspum eftir íjármagninu sem er besta stýringin þeg- ar til lengri tíma er htið. Öðmvísi er ekki hægt að þjóna sparifjáreigendum og lánþiggjendum. Opinber miðstýr- ing án tilhts til framboðs og eftirspumar er vísasti vegurinn til að féflétta eða hygla aðilum lánamarkaðar- ins, eftir því hvorum megin borðsins þeir era. Það þekkjum við af biturri reynslu fyrri ára. Meðan verðbólgan dafnar og hver króna rýrnar sem henni nemur er óhjákvæmhegt og augljóst að lánakjör taka mið af því ástandi. Meðan stjómvöld hafa ekki hemil á verðbólguþróuninni er þýðingarlaust og bama- legt að tala um lækkun vaxta og verðbóta. Lykihinn að hjaðnandi vöxtum er að draga úr verðbólgunni og skapa eðlilegt jafnvægi á lánamarkaðnum. Það má ekki gleyma þvi að háir vextir hafa innbyggð áhrif á verðbólgu og skapa þannig óijúfanlegan vítahring. í ljósi þessa má hins vegar um það deila hvaða viðmið- un skuh höfð við ákvörðun vaxtastigs og verðbóta. Verðbólgu má mæla með ýmsum hætti. í dag er það gert með lánskjaravísitölu sem tekur mið af breytingum á verði og þjónustu. Eggert Haukdal hefur lagt fram fmmvarp á alþingi, sem felur í sér að lánskjaravísitalan verði afnumin í núverandi mynd en fjárskuldbindingar verði þess í stað gengistryggðar og haldist þá í hendur við skráð gengi hverju sinni. Þannig verði vaxtapóhtík okkar samræmd því sem tíðkast annars staðar. Þessi leið hefur þann kost að draga úr þrýstingi um gengislækkanir og vaxtabyrði útflutningsatvinnuveg- anna stæði þá jafhfætis gengisbundnum tekjum. Hvort hún væri sanngjöm gagnvart hinum almenna sparifjár- eiganda er annað mál. Hér er á ferðinni virðingarverð tillaga en hún hefur þann annmarka eins og svo margt annað sem sagt er í talinu um háu vextina að nýjar eða aðrar aðferðir duga skammt meðan verðbólgan blómstrar. Mikil verðbólga kahar á háa vexti. Framhjá því komumst við aldrei. Ellert B. Schram við aðstæður í íslensku þjóöfélagi idag sé fráleitt að reikna „raunvexti" sem vexti ofan á lánskjaravísitölu. Vaxtaumræða - rökskekkja Flest fyrirtæki kvarta nú sáran undan háum vöxtum - miklum fjármagnskostnaði. Talsmenn bankanna, og jafnvel sjálfur við- skiptaráðherra, keppast hins vegar við að fullyrða og sýna fram á að raunvextir séu ekki hærri hér en í nágrannalöndunum. Þannig segir viðskiptaráðherra nýlega í langri grein í Morgim- blaðinu eftir nokkum rökstuðning: „Af þessu virðist ljóst, að alls ekki er rétt að halda því fram, að raunvextir hér á landi séu hærri en erlendis, þegar litið er yfir síð- asta ár.“ Og síðar í greininni segir ráð- herrann: „Raunar virðist blasa við, að raunvextir hafa verið hér lægri, ef eitthvað er, þegar litiö er yfir lengra tímabil en ailra síðustu mánuði.“ Ástæða er tíf að fara nokkrum orðum um þessar fullyrðingar. Umhugsunarefni í öllum þeim talnaleikjum, sem upphefjast þegar rætt er um vexti, eru ýmis atriði sem ástæða er til að staldra við. 1) Bankasljórar og viðskiptaráð- herra þenda á að vextir verð- tryggðra lána hafi verið að meðaltali tæp 8% á árinu 1987. Gallinn er bara sá að þessi lán er mjög erfitt að fá. Mjög margir veröa þvi aö leita á „gráa mark- aöinn“ og greiöa vexti ofan á verðtryggingu sem nema oft 14-18%. Þegar vaxtastig er metið þarf að reikna með þeim vöxtum sem menn greiða af þeim lánum sem þeir geta fengið. 2) Hvað eru raunvextir í þessari umræðu? Vextir umfram verð- bólgu, vextir ofan á verðtrygg- ingu? Verðtryggingin er miöuð við lánskjaravísitölu. Margt bendir til aö lánskjaravísitala sé óheppilegur mæÚkvarði. Hún tekur eingöngu tillit til kostnað- arliða en ekki tekjuliða. Við sumar aðstæður, eins og tíf dæmis þær sem nú ríkja í ís- lensku þjóðfélagi, er lánskjara- vísitalan hættulegur mæli- kvarði. Mat raunvaxta, sem vegið er út frá lánsKjaravísitölu, er því vægast sagt hæpið. 3) Beri menn saman raunvexti hér á landi og raimvexti erlendis eru menn í raun að bera saman hluta samkeppnisaðstöðu. Vext- ir, sem íslensk fyrirtæki greiða, eru bomir saman við vexti sem KjaHariim Guðmundur G. Þórarinsson þingmaður fyrir Framsóknarflokkinn erlend fyrirtæki greiða, þ.e. samkeppnisaðilar. Þá gleyma menn því að hækkun raungengis íslensku krónunnar endurspeglast í vaxandi mun lánskjaravísitölunnar og vísi- tölu meðalgengis. (Sjá mynd). Að reikna raunvextí sem vaxta- stig ofan lánskjaravísitölu, sem reiknuð er út frá óraunhæfri ís- lenskri krónu, skekkir mynd- ina. Fjármagnskostnaður íslenskra fyrirtækja verður ævintýralega hár miðað við fjármagnskostnað samkeppnisaðila erlendis. Þetta sést mjög vel á meðfylgjandi mynd. Ef menn gefa sér eðlilegan styrk íslensku krónunnar sést að vaxtamunurinn er miklu meiri en reiknimeistaramir halda fram. 4) Einfaldasta sönnunin er sú að langtum léttara hefur verið und- anfarið aö greiða af erlendum lánum en innlendum verð- tryggðum lánum. Hvaða nafn menn gefa einstökum liðum skiptir ekki öllu máh. Niður- staðan verður sú sama: Fjár- magnskostnaður á íslandi sker sig úr. 5) Mikið er rætt um eðlilega og frjálsa samkeppni. Hún á að ríkja sem víðast. En hvers vegna þá ekki á lánsfjármarkaði? Framleiðandi franskra kart- aflna í Þykkvabænum getur ekki verðlagt vöru sína miöað við lokaðan íslenskan markað, segja menn. Hann á og verður að keppa við innfluttar, það verð sem erlendir framleiðendur bjóöa upp á. En hvers vegna bara hann? Hvers vegna ekki bankamir og aðrir fjármagns- eigendur? Hefðu erlendir bankar boöiö lán á íslenska peningamarkaðnum væri staðan öðmvísi Ef íslenskir lántakendur gætu þannig tekið lánin, þar sem þau em ódýmst, væri samkeppnis- aðstaða þeirra allt önnur. Mér segir svo hugur um að fáir tækju verðtryggðu lánin við þessar aðstæður. Ætli þá yrði ekki ljóst að vextir af innlendu lánunum væm hærri en af þeim erlendu, svo um munaði? 6) íslenski lánsfjármarkaðurinn er lokaður. Þess vegna greiða ís- lendingar mun hærra verð fyrir lánin en samkeppnisaðilar. Nokkur fjármögnunarfyrirtæki og kaupleigur hafa haft frjálsar hendur um erlendar lántökur og getað lánað það fé út á ís- lenskum markaði með dágóðri ávöxtun vegna þess að íslenski markaöurinn er lokaöur. 7) Erlendir bankar em eigendur að sumum fjármögnunarfyrir- tækjum hérlendis. Þeir veita erlendu fé inn í þessi fyrirtæki og ávaxta það á íslenska mark- aönum með dágóðum árangri, að sögn sumra útlendinga með ævintýralegum árangri. Eitt slíkt fyrirtæki er taliö hafa lánað út um 2000 miUjónir króna á síð- asta ári. Skyldi það vera vegna þess, eins og viðskiptaráðherr- ann segir: „Raunar virðist blasa við, að raunvextir hafa verið hér lægri, ef eitthvað er...“? Guðmundur G. Þórarinsson „Mikið er rætt um eðlilega og frjálsa samkeppni. Hún á að ríkja sem víðast. En hvers vegna þá ekki á lánsflármark- aði?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.