Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Side 32
44
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Jackie Onassis
hefur sést oft í fylgd með rúss-
neska ballettdansaranum
Rudolf Nurejev að undanförnu
og voru ýmsar getgátur um
hugsanlegt ástarsamband
þeirra. En þau eiga ekki í neinu
ástarsambandi heldur er ástæð-
an sú að Jackie er að skrifa sína
fyrstu bók og á hún að fjalla
um rússneskan ballett. Nurejev
hittir Jackie eingöngu til þess
að gefa henni faglegar ráðlegg-
ingar. Jackie starfar annars sem
bókaútgefandi og á útgáfufyrir-
tæki.
Steven Spielberg
er alveg ótrúlega afkastamikill
leikstjóri og hefur framleitt
ógrynni mynda sem náð hafa
miklum vinsældum. Þeirra á
meðal eru E.T., Aftur til framtíð-
ar og Ránið á týndu örkinni.
Þrátt fyrir mikil afköst getur
Stebbi spilabergur alveg slapp-
að af og tekið sér myndarleg
frí. Um jólin tók hann sér hálfs-
mánaðarfrí, leigði eyju í Karab-
íska hafinu fyrir þrjár og hálfa
milljón króna fyrir sig og fjöl-
skyldu sína.
Sophia Loren
er síður en svo hætt að leika.
Hún lék nýlega í sjónvarps-
mynd fyrir bandaríska sjón-
varpsfyrirtækið NBC og heitir
myndin The Lucky Pilgrim. Á
meðan á myndatökum stóð
flaug hún sífellt á milli Ítalíu og
Bandaríkjanna því að henni
lykir svo gaman að koma heim
til Ítalíu síðan hún og eigin-
maður hennar voru sýknuð af
ákærum um skattasvindl.
DV-myndir ÆMK
Hafa Bakkus
ekki með á
skemmtunum
Ægir Már Karason, Keflavik;
„Þetta er 140. skemmtunin sem viö hjá Kátu fólki höldum á 39 ára ævi fé-
lagsins," sagöi Boði Björnsson formaður í Stapanum í Njarðvíkum um síðustu
helgi, en þar voru 70 pör saman komin til þess að skemmta sér án áfengis.
Félagsskapurinn Kátt fólk heldur fjórar skemmtanir árlega án þess að
Bakkus sé með í ráðum. Samtals eru í félaginu um 100 pör, einhleyir fá ekki
inngöngu nema hafa einhvern meö sér. Hljómsveitin Tíglar hélt uppi fjörinu
að þessu sinni.
Stjórn félagsins stillti sér upp fyrir Ijósmyndara. Frá vinstri eru Franz Péturs-
son meðstjórnandi, Boði Björnsson formaður, Egill Jónsson ritari, Ásvaldur
Andrésson gjaldkeri og Elvar Bjarnason varaformaður.
Borðin hreinlega tæmdust þegar danstónlistin dunaði i Stapanum enda hafði áfengið ekki áhrif á danstæknina.
Woody Allen
í málaferlum
Stórgrínistinn myndarlegi,
Woody Állen, hefúr staðið í mála-
ferlum að undanfórnu og þáu
málaferli vann hann eftir talsvert
streð.
Allen fór í mál við bandarískt
fatafyrirtæki sem heitir Ribaudo &
Schaefer sem notaði tvífaira Allens
til þess að auglýsa vöru sína á sér-
stakan hátt. Fyrirtækið framleiðir
fatnað sem kallaður er Mens
World.
Tvífarinn, Phil Boroff, var settur
í fót og undir myndina var settur
texti sem hljómaði eitthvað á þessa
leið: „Stórkostlegur líkami minn
og dýrslegt aðdráttaraíl koma mér
hálfa leið... og þess vegna nota ég
heilann og versla hjá Mens World.
Nú lít ég svo vel út að ég verð að
bægja kvenfólki frá mér, og að
hugsa til þess að þær hlógu einu
sinni að mér... áður en Mens
World geröi mig að kyntákni."
Woody Allen líkar alls ekki að
nafn hans og útlit sé misnotað á
þennan hátt og fór þess vegna í
mál sem hann vann. Fyrirtækið
verður að greiða umtalsverðar
skaðabætur og er að sjálfsögðu
bannað að auglýsa frekar á þennan
hátt.
/