Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1988, Síða 25
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988. 41 Fólk í fréttum Margrét Guðnadóttir Margrét Guðnadóttir prófessor hefur verið í fréttum DV af eyðni- vömum hér á landi og af eyðni- rannsóknum. Margrét Guðmunda er fædd 7. júlí 1929 í Landakoti á Vatnsleysuströnd og lauk læknis- fræðiprófi frá HÍ 1956. Hún var í sérfræðinámi í veirufræði á Til- raunastöð háskólans í meinafræði á Keldum 1956-1957 og við Central Public Health Laboratory, Colind- ale í London og New York 1957-1960. Margrét var sérfræðing- ur í veirufræði við Tilraunastöð HÍ í meinafræði á Keldum 1960-1969 og prófessor í sýklafræði viö'læknadeild HÍ frá júní 1969. Þá var hún forstöðumaður rann- sóknastofnunar í veirufræði við HÍ. Hún var varaborgarfulltrúi Al- þýðubandalagsins í Rvík 1970-1974 og sat í heilbrigöismálaráði Rvíkur 1970-1982. Börn Margrétar og Franz Donaldson, efnafræðings í Glasgow, eru Guðni Kjartan, f. 21. janúar 1961, klarínettuleikari, í námi í Englandi, og Eydís Lára.'f. 31. mars 1963, óbóleikari, í námi í Englandi. Bróöir Margrétar er Eyjólfur, f. 4. janúar 1931, b. í Bryðjuholti, kvæntur Helgu Magnúsdóttur. Hálfsystkini Margrétar samfeðra eru Eyrún, f. 28. febrúar 1912, Guð- munda, f. 23. febrúar 1913, gift Ingimar Karlssyni, málara í Rvík, Jón Guðni, f. 7. mars 1914, b. í Landakoti á Vatnsleysuströnd, síö- ar skrifstofumaður í Rvik, kvæntur Báru Jóhannsdóttur, Jóhanna Lilja, f. 4. júli 1916, gift Kjartani Stefánssyni, verkamanni í Rvik, sem lést 1955. Foreldrar Margrétar eru Guðni Einarsson, b. í Landakoti á Vatns- leysuströnd, og kona hans, Guðríð- ur Andrésdóttir. Guöni var sonur Einars, b. í Haga í Holtum, Pálsson- ar, b. á Borg á Landi, Jónssonar, b. á Önundarstöðum í Landeyjum, Diðrikssonar. Móöir Guðna var Guðrún, systir Guðbjargar, langömmu Guðlaugs TYyggva Karlssonar hagfræðings. Guðrún var dóttir Jóns, b. pg hreppstjóra á Skarði á Landi, Ámasonar, b. á Galtalæk á Landi, Finnbogasonar, bróður Árna, langafa Júlíusar Sól- nes alþingismanns, og langafa Sigurðar, afa Þórðar Friðjónsson- ar, forstjóra Þjóðhagstofnunar. Bróðir Árna var Jón, langafi Þóru, móður Þórs Jakobssonar veður- fræðings. Móðir Jóns var Margrét Jónsdóttir, b. á Ægissíðu, Jónsson- ar. Móöir Jóns var Guðrún, systir Guömundar, langafa Gróu, langömmu Þorsteins Gíslasonar fiskimálastjóra. Guðrún var dóttir Brands, b. á Felli í Mýrdal, Bjama- sonar, b. á Víkingslæk, Halldórs- sonar, ættfóður Víkingslækjarætt- arinnar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Kolbeinsdóttir, b. á Hlemmiskeiði, Eiríkssonar, b. og dbrm. á Reykjum á Skeiðum, Vig- fússonar, ættfóður Reykjaættar- innar, fóður Eiríks, langafa Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, föður Péturs biskups. Móðir Kol- beins var Guðrún Kolbeinsdóttir, prests og skálds í Miðdal, Þor- steinssonar. Móðir Guðrúnar Kolbeinsdóttur var Solveig Vigfús- dóttir, systir Ófeigs ríka á Fjalli, langafa Tryggva Ófeigssonar út- gerðarmanns, afa Tryggva Páls- sonar bankastjóra. Guöríður er dóttir Andrésar, b. í Hlöðversnési á Vatnsleysuströnd, Vigfússonar og konu hans, Þór- unnar Kjartansdóttur, sjómanns í Miðgarði á Vatnsleysuströnd, Herjólfssonar. Móðir Þórunnar var Hildur Sveinsdóttir, b. á Reyni- valla-Vesturkoti í Kjós, Erlingsson- ar, bróður Erhngs, langafa Þórmundar, fóður Jónatans pró- fessors. Erlingur var einnig langafi Ásmundar, föður Guðrúnar leik- konu. Afmæli Trausti EyjóHsson Trausti Eyjólfsson, kennari og húsvörður við Bændaskólann á Hvanneyri, er sextugur í dag. Hann fæddist í Vestmgnnaeyjum og ólst upp hjá móðursystkinum sínum að Rauðafelli og í Vestmannaeyjum hjá móður sinni. Trausti lauk bú- fræðinámi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1946. Hann hefur síðan unnið margvisleg störf. Trausti var bóndi í sautján ár, fyrst á nýbýlinu Kombrekku á Rangárvöllum og síðan í fimm ár á Breiðabakka í Vestmannaeyjum en þar stundaði hann jafnframt verslunarstörf um skeið. Hann keypti svo Volasel í Lóni 1958 og bjó þar í tíu ár en flutti síðan aftur til Vestmanna- eyja. Þar stunduðu þau hjónin hótelstjórn og matreiðslu við Hótel HB i þrjú ár þar til starfseminni var hætt. Trausti var svo jafnframt æskulýðsfulltrúi í Eyjum í tvö ár eða fram að gosi. Hann hefur nú verið félagsmálakennari og hús- vörður við Bændaskólann á Hvanneyri sl. fimmtán ár. Kona Trausta er Jakobína Jónas- dóttir frá Grænavatni í Mývatns- sveit en þau eiga átta börn og sextán barnabörn. Foreldrar Trausta voru ’Sigurlína Sigurðardóttir frá Rauðafelli og Eyjólfur Þorsteinsson, b. á Hrúta- felli undir Austur-Eyjafjöllum. Birgir Sigurjónsson Birgir Siguijónsson, yfirdeildar- stióri tæknideildar Pósts og síma, til heimilis að Lækjarhvammi 9, Hafnarfirði, er fimmtugur í dag. Birgir fæddist á Víðimelnum í Reykjavik og ólst upp í foreldra- húsum í vesturbænum. Hann lærði rafeindavirkjun hjá Pósti og síma en hóf síðan störf hjá tæknideild Pósts og síma þar sem hann hefur starfað síðan. Birgir hefur verið verkstjóri og fulitrúi hjá deildinni en 1978 varð hann yfirdeildarstjóri þar og gegnir því starfi enn. Kona Birgis er Ragnhildur Sig- ríður, f. 9.3. 1939, dóttir Eggerts Ólafssonar lýsismatsmanns, sem er látinn, og konu hans, Ragnhildar Gottskálksdóttur, en þau bjuggu lengi við Tjamargötuna í Reykja- vík. Birgir og Ragnhildur Sigríður eiga fjögur böm. Þau eru Hilda Gerd, háskólanemi og starfsmaður Pósts og síma, f. 1956, í sambýli með Georg H. Gunnarssyni, starfs- manni á Borgarspítalanum, en þau eiga eina dóttm-; Birgir Örn, múr- ari, búsettur í Gnúpveijahreppi, f. 1959, i sambýli með Kristjönu Gestsdóttur húsmóður og verslun- areiganda en þau eiga eina dóttur; Ragnhildur, kennari, búsett í Reykjavík, f. 1960, sambýlismaöur hennar er Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur og búfræðing- ur, eiga þau einn son; Eggert Siguijón, nemi í foreldrahúsum, f. 1972. Birgir á tvö systkini. Þau eru Hallvarður, bifreiðarstjóri hjá Landsvirkjun, f. 1946, kvæntur Lám Scheving húsmóður, þau búa í Reykjavík og eiga íjögur börn; Helga María, húsmóðir í Reykjavík og starfsmaöur hjá Byggðastofnun, gift Hreiðari Jónssyni, bifvéla- virkja hjá Vélamiðstöð Reykjavík- urborgar, þau eiga tvö böm. Foreldrar Birgis eru Siguijón Hallvarðsson, skrifstofustjóri lög- reglustjóraembættisins, f. 16.7. 1905, d. 1987, og kona hans, Gerd Hallvarösson, f. 13.8. 1913. Föður- systkini Birgis: Jónatan hæstarétt- ardómari, faðir Halldórs, forstjóra Landsvirkjunar, Bergljótar, konu Jóns Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra íslenska jámblendifélagsins, og Sigríðar, konu Þórðar Þ. Þor- bjarnarsonar borgarverkfræöings; Jón sýslumaöur, faðir Bjama Braga, aðstoðarbankastjóra Seðla- bankans; Einvarður, starfsmanna- stjóri Landsbankans og Seðlabank- ans, faðir Hallvarðs saksóknara og Jóhanns alþingismanns; Guðbjörg sem lengi starfaði hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar; og Ásdís sem er látin. Hálfsystkin Siguijóns em svo Hulda Guðmundsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, og Kristján Guð- mundsson leigubílstjóri. Móður- systkini Birgis em Leifur Mtiller, heildsali í Reykjavík, og Tony Mtiller Guðjónsson, húsmóðir í Hafnarfirði. Móðurforeldrar Birgis vom L.H. Mtiller, kaupmaður í Reykjavík, og kona hans, Marie Bertelsen. Þau vom bæði norsk. Föðurforeldrar Birgis voru Hallvarður, b. í Skut- ulsey á Mýrum, Einvarðsson og kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Hallvarður var sonur Einvarðs, b. í Skutulsey og Hítarnesi, Einars- sonar og konu hans, Halldóm Stefánsdóttur. Foreldrar Einvarðs voru Einar Sigurðsson, b. í Mið- húsum í Álftaneshreppi, og Vigdís Sigurðardóttir en foreldrar Halld- óm voru Stefán Hallbjömsson, b. í Skutulsey, og Þómý Snorradóttir. Foreldrar Sigríðar vom Jón, b. á Skiphyl, Jónsson og Guðbjörg Þor- kelsdóttir. Foreldrar Jóns vom Jón Jónsson, b. í Haukatungu, og kona hans, Guðríður Benediktsdóttir, en foreldrar Guðbjargar vom Þorkell Jónsson, b. í Einarsnesi í Borgar- hreppi, og kona hans, Guöríður Þorvaldsdóttir. Andlát Guðrún Gísladóttir, Þórufelli 8, Reykjavík, lést 17. febrúar. Ágúst Núpdal Benjamínsson lést í Landspítalanum þann 17. febrúar. Ólafur A. Þorsteinsson lést á heimili sínu, Túngötu 19, Kefla- vík, aöfaranótt 18. febrúar. Árni Kristinsson prentari lést á heimih sínu 17. febrúar. Eriendur Sigurðsson Erlendur Sigurðsson bóndi, Nesi í Aðaldælahreppi, er fimmtugur í dag. Erlendur fæddist að Urriöaá á Mýrum í Álftaneshreppi og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann fór til Reykjavíkur um tvítugt og var á togumm um skeið en síðan í far- mennsku í nokkur ár. Hann flutti noröur í land 1971 en þau hjónin hafa stundað búskap í Nesi og ver- ið þar með kúabú en em nú eingöngu með minkabú. Kona Erlends er Arndís, dóttir Steingríms, b. í Nesi, Baldvinsson- ar, og Sigríðar Pétursdóttur en þau em bæði látin. Erlendur á tvær systur. Þær em: Guðrún, b. á Urriðaá, og Jóna, hús- freyja í Borgarnesi, gift Kjartani Magnússyni bifreiðarstjóra. Foreldrar Erlends eru Sigurður, b. á Urriðaá, sonur Guðjóns og Guðrúnar á Leirulæk, og kona hans, Hólmfríður, dóttir Guð- mundar, b. í Álftatungukoti í Álftaneshreppi, Þórðarsonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur. Til hamingju með daginn 80 ára________________________ Sigurjóna Sveinbjörnsdóttir, Grundarstig 1, Reykjavík, er átt- ræð í dag. 75 ára___________________ Dagný Wessman, Laugamesvegi 90, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 60 ára_________________1 Sigurður Ólafsson bifvélavirki, Oddabraut 20, Þorlákshöfn, er sex- tugur í dag. 50 ára_______________________ Svanhildur Þorbjörnsdóttir, Slétta- hrauni 32, Hafnarfirði, er fimmtug í dag. Sigurður Gunnar Eiríksson, Hjalla- vegi 1, Njarðvík, er fimmtugur í dag. Elsa Svandís Valentínusdóttir, Silf- urgötu 26, Stykkishólmi, er fimm- tug í dag. 40 ára Magnús Jónsson verslunarmaður, Skriöuseli 3, Reykjavík, er fertugur í dag. Jensina S. Guðmundsdóttir, Góu- holti 2, ísafirði, er fertug í dag. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Grund- argerði 6G, Akureyri, er fertug í dag. Þórunn Þórhállsdóttir, Álftarima 1, Selfossi, er fertug í dag. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hveturafmælisbörn og að- standendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frænd- garð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrirafmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.