Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Síða 21
)
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988. , 21
\
Jack Lemmon heiðraður fyrir framlag til kvikmyndanna
M lei ra i er U 0 m anle ikari
John Uhler „Jack“ Lemmon III
fæddist fyrir 63 árum í Boston. Hann
er af ríku foreldri og útskrifaðist úr
Harvard árið 1947. Þetta gæti verið
upphafið að ósköp venjulegri ævi-
sögu og næst segöi frá ferli hans sem
bankamanns eða lögfræðings en svo
er ekki. Að loknu prófi fór Lemmon
til New York með 300 dah í vasanum,
staðráðinn í að gerast leikari.
Lemmon átti eríitt uppdráttar í
fyrstu - sá kafli er oft framarlega í
ævisögum leikara - en árið 1953 fékk
hann fyrsta hlutverkið á Broadway.
Ári síðar var hann kominn til
Hollywood og lék á móti Judy
Holliday í myndunum It Should Hap-
pen to You og Phifíft!. Enn leið ár
og næst lék hann Ensign Pulver,
aukahlutverk í myndinni Mister Ro-
berts og fékk fyrir óskarsverðlaun.
Sjö tilnefningar
Frá þeim tíma hefur hann sjö
sinnum verið útnefndur til óskars-
verðlauna og einu sinni hlotið þau
fyrir aðalhlutverk. Það var fyrir leik
í myndinni Save the Tiger, árið 1973.
Þekktustu myndimar, sem hann
hefur leikið í, eru Some Like It Hot,
The Apartment, Irma La Douce, The
Odd Couple, Save the Tiger, The
China Syndrome og Missing. Fyrir
þetta hefur hann, auk tveggja óskara,
tvívegis fengið verðlaun í Cannes,
átta sinnum á kvikmyndahátíðum
víða um heim. Nú í mánuðinum var
hann heiðraður sérstaklega fyrir
framlag sit til kvikmyndanna sem
reyndar hefur ekki alltaf verið í
stjörnuflokki. Nafn hans er hka tengt
nokkmm miður góðum myndum.
Alls em myndirnar nú orðnar 46.
En kvikmyndaleikur er ekki það
eina sem hann kann. Hann þykir
afburðasnjall ljósmyndari, ballskák
leikur hann af snilld, er veiðimaður
góður og tónskáld í frístundum.
Hann hlaut Emmyverðlaunin árið
1972 fyrir sjónvarpsþátt og leikstýrði
myndinni Kotch við góða dóma árið
1971.
Til þess var tekið að Lemmon er í
röð þeirra yngstu sem fengið hafa
viðurkenningu fyrir „framlag sitt til
kvikmyndanna" sem venjulega fell-
ur aöeins mönnum á eftirlaunaaldri
í skaut. „Ég varð svolítið hissa en ég
kvarta ekki,“ var haft eftir Lemmon
af þessu tilefni. „Svo furðulegt sem
þaö er þá fæ ég hvergi vinnu en vinn
samt til verðlauna.“
Einu sinni leikstjóri
Lemmon hefur aðeins leikstýrt
einni mynd og segist ekki áfjáður í
að gera meira að því. „Ég kann betur
við að leika,“ segir hann. „Og ég
gæti ekki hugsað mér að leikstýra
mynd sem ég leik í sjálfur. Þeir eru
til sem geta það en ég er ekki einn
af þeim. Ég ætlaði heldur aldrei að
leikstýra Kotch. Ég las handritið af
greiðasemi við félaga minn og fann
þá að ég hafði ýmsar hugmyndir um
hvemig hægt væri að gera myndina.
En ég er ekki maðurinn til að setja
á svið eltingaleiki og tæknibrellur."
Af leikstjórum hefur Lemmon mest
áht á Billy Wilder sem m.a. leik-
stýrði The Apartment. „Sumir leik-
stjórar eru harðstjórar," segir
Lemmon „en Wilder er ekki einn af
þeim. Hann kann að leita ráöa hjá
leikurum og öðrum. Mér þótti einnig
gott að vinna með Costa-Gavras við
gerð Missing. Ég treysti þeim manni
um leið og ég hitti hann fyrst. Góðir
leikstjórar hafa hæfileika foringja."
Lemmon hefur leikið með frægum
stjömum á borð við Judy Holhday
og Shirley MacLaine og lýsir þeim
sem ólíkum leikkonum. „Holliday
vildi æfa senurnar oft og gera marg-
ar tilraunir en MacLaine vildi helst
ljúka öhu af í tveim tökum," segir
Lemmon.
Lemmon var lengi þekktur sem
gamanleikari en hefur á síðari árum
einnig tekið að sér alvarleg hlutverk.
„Ég var alltaf ósáttur við að vera
aðeins tahnn gamanleikari," segir
Jack Lemmon - hefur leikið í 46 kvikmyndum.
ég að skjálfa og brast í grát. Það átti
sinn þátt í þessu að atriöin í mynd-
inni voru tekin upp í réttri röð og ég
fylgdi örvæntingu mannsins eftir
eins og hún magnaðist í myndinni.
Ég var svo heppinn að konan mín,
Felicia Farr, sem er leikkona, sá að
hverju stefndi og að ég tók hlutverk-
ið of alvarlega. Hjónabandið var
enginn gleðileikur á þessum tíma.“
Af ungum handritshöfundum hef-
ur Lemmon mest álit á Oliver Stone
og segir að handritin sem hann hefur
gert séu nær alltaf fyrsta flokks.
Samt segist Lemmon sakna gömlu
jálkanna í kvikmyndagerðinni.
„Þetta voru skepnur en þeir kunnu
aö gera kvikmyndir," segir Lemmon.
„Þó eru nú gerðar myndir eins og
Missing sem ekki hefðu verið gerðar
í Hollywood á blómatíma hennar. En
núna eru færri myndir gerðar og
áhættan með hverri meiri. Kvik-
myndagerðarmenn standa heldur
ekki eins þétt saman og þeir gerðu.“
Lemmon segist ahtaf lesa dóma um
myndir sínar og segist oft læra af
þeim. „Ég veit ekkert betra en að
lesa eitthvað fallegt um sjálfan mig,“
segir Lemmon. „Eg veit heldur ekk-
ert verra en að lesa slæma dóma. Ég
tók það mjög næ'rri mér þegar einn
gagnrýnandinn skrifaði um Missing
að ég gæti ekki lengur hrifiö áhorf-
endur meö mér.
Hafnaði hlutverki
í The Hustler
Ég tek það líka nærri mér að
hafna hlutverki sem síðan slær í
gegn. Robert Rossen sýndi mér einu
sinni sögu um tvo menn sem gerðu
fátt annaö en að leika ballskák. Hann
vildi gera kvikmynd eftir henni og
fá mig í annað hlutverkið. Ég sagði
honum að sagan væri vonlaus en
mátti naga mig í handarbökin þegar
The Hustler var frumsýnd. Eina
ástæðan fyrir að ég gekk ekki út og
hengdi mig var að Paul Newman var
stórkostlegur í hlutverkinu.
Ég hef líka tekið að mér hlutverk
í myndum sem mér þóttu svo lélegar
að ég var farinn að óttast að ferli
mínum lyki með þeim. Að því er þó
ekki komið enn.“
Þýtt/-GK
I The Apartment árið 1960.
hann. „Það var ekki fyrr en meö
Days of Wine and Roses sem mér
tókst að sanna að ég gæti leikið fleira.
Ég var líka lengi að átta mig á að það
er betra að gera aðeins eina mynd á
ári ef hún er góð heldur en íjórar eða
fimm miðlungsmyndir.
Ég hef leikið í lélegum myndum og
ég hef líka leikið í myndum sem ekki
hafa orðið vinsælar en eru samt góð-
ar. The Prisoner of Second Avenue
var ekki vinsæl mynd en ég held að
hún sé með því besta sem ég hef gert.
Sjónvarpsmyndin The Entertainer
hlaut aðallega slæma dóma en ég er
vel sáttur við minn hlut í henni og
það á við um fleiri myndir sem ég
hef leikið í.“
Gamanhlutverkin erfiðari
Lemmon segir að þaö sé erfiðara
að leika gamanhlutverk en alvarleg
því gamanhlutverkin geri meiri kröf-
ur um að halda athygli áhorfend-
anna. Alvarlegu hlutverkin gangi þó
oft nær leikurunum. „Hlutverkið í
Save the Tiger lagöist mjög þungt á
mig,“ segir Lemmon. „Eg brotnaöi
smátt og smátt niður rétt eins og
persónan, sem ég lék, gerði. Þegar
ég ók heim að loknum vinnudegi fór
Vorð miðast við nuverandi gengi.
SÖLUSÝNING
Næstkomandi
laugardag og
sunnudag
frá kl. 13 - 19
Hjallabrekku 2
í húsi Brekkuvals
Kópavogi
mjglysingastof^TiagniKa^lafesona^
LOKSINSI LOKSINS! Eru komnar sundlaugar sem alllrættu
afi geta fenglö sér. Verðifi er ótrúlegt og gæðin fyrsta flokks.
Sundlaugarnar eru í 4 stærðum (sjó töflu fyrir ofan) og upp-
lagðar vlð fjölbýlishús, sumarbústaði og bara allsstaðar þar
sem fólk er samankomið. Ef margir taka sig saman er veröið
hlægilegt. Við skorum á ferðaþjónustu bænda að kynna sér
þessar laugar og bjóða gestum sinum upp á sundsprett I sumar.
KOMIÐ, SJÁIÐ
OG SANNFAÆRIST
Hjallabrekku 2 - Kópavogi
f húsi Brekkuvals - Sími 64-16-50
TAFLA YFIR STÆRÐ OG VERÐ Á SUNDLAUGUNUM
Radius botns Hæð Vatnsmagn i lítrum Eigin þyngd Verð
3,50 m 0,90 m 7.000-8.0001 45 kg 67.350 kr.
5,00 m 1,20 m 18.000-20.0001 65 kg 96.875 kr.
6,00 m 1,20 m 26.000-29.0001 80 kg 113. 850 kr.
7,00 m 1,20 m 36.000-40.000 1 100 kg 139.250 kr.