Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 26. MARS
heimsfræg
Valgerður A. Jóharmsdóttir, DV, London;
Um miðjan apríl byrjar bandaríska
blökkusöngkonan Whitney Houston
þriggja mánaða hljómleikaferð um
Evrópu. í tilefni af því bauð hún evr-
ópskum blaðamönnum til hádegis-
verðarfundar á Dorchester hótelinu
í Lundúnum. Þar gafst blaðamanni
DV tækifæri til að spjalla við Whit-
ney um hana sjálfa og tónlist hennar.
„Halló, gaman að sjá ykkur,“ sagði
Whitney um leið og hún gekk í sal-
inn, þar sem blaðamenn og ljós-
myndarar höfðu beðið á þriðja tíma.
„Því frægari sem þú ert, þvi lengur
lætur þú bíða eftir þér,“ sagði fransk-
ur blaðamaður sem var farinn að
óttast að hann yrði of seinn í flugiö
heim. Samkvæmt þeirri speki verður
Whitney Houston aö teljast heims-
fræg. Þegar maður hittir hana augliti
til auglitis er þó ekki hægt að merkja
að frægðin hafl stigið henni til höf-
uðs.
Hef ekkert breyst
„Ég hef ekkert breyst," sagði
hún. „Auðvitað finnst mér ekki alltaf
gaman að vera heimsfræg. Stundum
langar mig bara til að vera venjuieg
manneskja og geta farið hvert sem
er án þess aö nokkur taki eftir mér.
Stundum segi ég við fóljdð mitt: í dag
er ég ekki Whitney. Ég vil hvorki
heyra tónlist með Whitney né um
hana talað. Oftast er ég þó sátt við
þetta allt. Annað væri líka heimsku-
legt. Ég er í þessari aðstöðu af því
að ég vildi það. Það neyddi mig eng-
inn til að fara að syngja. Ég er að
fást við það sem ég hef alltaf viljað
gera. Frá þvi að ég var krakki hefur
það alltaf verið draumur minn að
verða söngkona."
Þegar Whitney var spurð hvað
henni fyndist um blaðamannafundi
af þessu tagi, þá svaraði hún að
bragði: „Þegar ég er spurð gáfulegra
spuminga finnst mér gaman. Þegar
það eina sem ég heyri eru heimsku-
legar spumingar um mennina í lífi
mínu þá leiðist mér.“
Enginn nýgræðingur
Whitney Houston skaut snöggt
upp á stjömuhimininn. Fyrsta stóra
platan hennar, sem heitir Whitney
Houston og kom út í júni 1985, seld-
ist í 14 milijónum eintaka. Þess em
lífsglöð manneskja. Það endurspegl-
ast í tónlist minni," sagði Whitney.
Whitney semur hvorki lögin sín né
textana sjálf. Flest lögin hafa verið
send henni eða útgáfufyrirtækinu af
hinum og þessum höfundum sem
vildu fá hana til að syngja lögin sín.
„Viö hlustum á öll þessi lög og velj-
um úr það besta. Flestir þeirra sem
eiga lög á plötunum mínum voru
óþekktir áður og urðu frægir fyrir
að semja fyrir mig,“ sagði Whitney.
Hún sagðist gera ráö fyrir að semja
tónlist sjálf einhvemtíma í framtíð-
inni. „Framtíðin kemur, en eins og
er nýt ég þess að syngja lög annarra
höfunda, túlka þeirra tilfinningar og
gera að mínum,“ sagði hún.
Tónleikar
Whitney fór síðast í hljómleika-
ferð fyrir 18 mánuöum. Hún sagðist
hlakka mikið til ferðarinnar í vor.
Fyrstu tónleikamir verða í Rotter-
dam 19. apríl og þeir síðustu í
Múnchen í lok júní. í millitíöinni
mun Whitney m.a. koma fram í
Lundúnum, Kaupmannahöfn,
Stokkhólmi, Osló, Gautaborg og Par-
ís. íslenskir aðdáendur Whitney
Houston, sem hyggja á Evrópuferð í
sumar, ættu að slá tvær flugur í einu
höggi og skella sér á tónleika.
„Eg hlakka til þessarar feröar.
Tónleikamir verða að sumu leyti
svipaöir og síðast en skemmtilegri,
rafmagnaðri og meira lifandi. Ég
lærði mikiö á síðustu tónleikaferð
og naut hennar alveg sérstaklega.
Það er eitthvað alveg sérstakt viö að
ferðast stað úr stað og syngja fyrir
nýjan og nýjan áhorfendahóp hveiju
sinni og sjá hvemig fólk bregst við.
Sums staðar skildist ef til vill ekki
hvað ég var að segja en fólkið skynj-
aði það. Það er stórkostlegt að finna
það,“ sagði Whitney Houston.
Whitney því ekki framandi þegar
hún fór sjálf að syngja inn á plötur.
Whitney sagði fjölskyldu sína alltaf
hafa staðið við bakið á sér og stutt
sig á alla lund.
„Mamma sagði aö hún hefði aldrei
hleypt mér út í þetta nema af því að
hún vissi að ég var góð. Hún sagði
mér að fara og gera mitt besta og ég
gerði það,“ sagði Whitney.
Hamingjusamlega
einhleyp
Whitney Houston er 24 ára, fædd
9. ágúst 1963, og því í Jjónsmerkinu.
Hún segist vera frekar heimakær
manneskja og eyðir mestu af tíma
sínum í að hlusta á plötur eða tala
við kisumar sínar. Öllum spuming-
um um kærasta og ástarsambönd
vísar hún hlæjandi á bug og segist
vera „hamingjusamlega einhleyp".
Whitney segist líka eyða eins miklum
tima og hún geti með foreldrum sín-
um og bræðrum sínum tveim. Hún
gerir mikið af því að synda og spila
tennis og er mikill körfuboltaað-
dáandi. Eldri bróðir hennar, Gary,
er fyrrverandi atvinnumaður í
körfubolta.
Uppáhaldssöngkonur Whitney eru
móðir hennar, Barbara Streisand,
Ella Fitzgerald og Anita Baker. Tón-
list Whitney hefur stundum verið
gagnrýnd fyrir að vera of poppuð og
áhrifa soultónlistarinnar, þar sem
rætur henna liggja, gæti ekki nógu
mikið. En hún segist sjálf líta á sig
sem soulsöngkonu. „Soul er miklu
fremur spurning um tilfinningu en
ákveðna tegund tónlistar. Ég er soul-
söngkona. Tónlist mín er vissulega
léttari, en t.d. Anitu Baker eöa Billy
Holiday, en ég hef heldur ekki reynt
það sama og þær. Ég er aðeins 24 ára
og átti hamingjusama bernsku og er
er iiis-
glöð og það
kemurtram í
tónlist
minni,“ segir
Whitney Ho-
uston.
ekki áður dæmi í poppsögunni að
sólósöngkonu hafi tekist svo vel upp
með frumraun sína. Lögin Saving
All My Love for You og Greatest
Love of AU, sem allir íslenskir popp-
unnendur þekkja, sátu í efsta sæti á
vinsældalistum um allan heim og
Whitney sópaði að sér tónlistarverð-
launum.
í fyrra sannaði Whitney síðan að
velgengni hennar var ekkert stund-
arfyrirbæri. Árið 1987 kom út önnur
sólóplatan hennar. Hún heitir ein-
faldlega Whitney. Sú plata hefur selst
í yfir 10 milljónum eintaka og færði
Whitney Grammy-verðlaunin eftir-
sóttu fyrir besta sdbúm ársins. Lagið
I Want to Dance with Somebody þaut
upp vinsældalistana, bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum.
„Ég var ánægð með útkomuna á
þessari plötu. Við reyndum að
blanda saman rólegum lögum og
fjörugum til að höfða til sem flestra
og ég held að það hafi tekist vel. í
samanburði við fyrri plotuna finnst
mér einnig röddin þroskaðri nú. Ég
og samstarfsmenn mínir.náðum líka
betur saman á seinni plötunni af því
að við vorum farin að þekkja hvort
annað betur,“ sagði Whitney.
Þótt vinsældir Whitney og frægð
séu tiltölulega nýtilkomin þá fer því
fjarri að hún sé einhver nýgræðingur
á tónlistarsviðinu. Hún hefur fengist
við að syngja frá því hún var krakki,
enda tónlist stór þáttur í uppeldi
hennar. Móðir hennar, Cisse Hous-
ton, er vel þekkt soulsöngkona og
frænkur hennar, sem eru Bee Bee
og Diana Warwick, voru hennar fyr-
irmyndir. Ellefu ára gömul byrjaði
hún að syngja í kirkjukór og fimmtán
ára var hún farin aö syngja bakradd-
ir i næturklúbb þar sem móðir
hennar söng. Fljótlega fór móðir
hennar einnig að taka hana með sér
í plötuupptökur. Stúdíóvinna var
Whitney Ho-
uston með
Grammy-
verðlaunin
fyrirsöng
sinn á siðusu
plötu.
Ekkialltaf
DV á hádegisverðarfundi
með Whitney Houston: