Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Side 25
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988.
25
Kvikmyndir
f
Arið 1855 réðst William
nokkur Walk-
er ásamt mönnum
sínuminní
Nicaragua sem hann
hertók og
stjórnaði sem forseti í
tvöár.
Það má með sanni segja að Nic-
aragua hafi verið mikið í fréttum á
undanfömum árum. Hörð stefna
Bandaríkjastjórnar gegnþarlendum
vinstrisinnuðum stjórnvöldum,
ásamt þeim úrræðum sem Reagan-
stjórnin greip til til þess að styrkja
hina gagnbyltingarsinnuðu kontra-
skæruliöa, hefur verið tíðrætt frétta-
. efni. Það er flestum í fersku minni
hvernig Oliver North skýrði banda-
rísku rannsóknanefndinni um
vopnasölu til íran, hvernig ætlunin
var að.nota hagnaðinn fyrir kontra-
skæruliða.
En þaö eru færri sem vita að um
1855 réðst Bandaríkjamaðurinn Will-
iam Walker inn í Nicaragua ásamt
fámennum einkaher sem gekk undir
nafninu „Hinir ódauðlegu“. Tók
hann öll völd og skipaði sjálfan sig
forseta landsins. Nýlega var gefln út
bók, sem fjallaði um þennan Walker,
skrifuð af Rudy Wulitzer og einnig
var nýlega frumsýnd samnefnd kvik-
mynd sem Alex Cox leikstýrði.
TMjun
Hvort sem það er tilviljun eða
ekki, þá var gefin út á sama tíma
önnur bók sem bar heitið „Out of
Control" ogfjallaði um afskipti
Bandaríkjamanna af innanríkismál-
um Nicaraguamanna frá 1980. Þegar
þessar bækur eru skoðaðar kemur
skemmtilega í ljós hve Oliver North
er líkur William Walker. Báöir eru
þeir miklir hugsjónamenn en á sama
tíma dómgreindarlitlir á störf sín og
litlir mannþekkjarar sem kemur
þeim oft illa. Báðir trúa þeir því að
það sé heilög skylda þeirra að vernda
hagsmuni Bandaríkjanna þar áður
en erlend öfl ná þar að skjóta rótum.
Að vísu voru það Bretar sem Walker
óttaöist meðan Oliver North var að
berjast gegn Rússum og Kúbubúum.
Því má segja með sanni að þessi
mynd Alex Cox sé tímabært innlegg
í umræðurnar um stöðu og hlutverk
Bandaríkjamanna í Nicaragua.
Ruglaðtímatal
Til að undirstrika samlíkinguna
milli Ohvers North og Williams Wal-
ker, gerir Cox ekki alltaf greinarmun
á nútíð og þátíð. Hann lætur liðs-
menn Walkers, sem voru af ýmsu
sauðahúsi, drekka Coca Cola, við
sjáum eintak af Newsweek og People
tímaritunum hér og þar og í einu
atriði myndarinnar, þegar búið er að
króa þá af, kemur, eins og bjargvætt-
ur af himnum ofan, þyrilvængja frá
sjóhernum þeim til bjargar.
„Þegar ég og Cox skrifuðum ramm-
ann utan um kvikmyndahandritiö,"
var nýlega haft eftir handritahöfund-
inum Rudy Wurlitzer, „tókum við
þessa mikilvægu ákvörðun að leika
okkur með tímaröðina til að geta
skoðað og litið á söguna eins og hring
sem heföi ekkert upphaf og engan
endi. Með þessu móti gátum við
hliðrað til raunverulekanum. Þessi
tímaskekkja gaf okkur tækifæri til
að krydda myndina með kímni og
Hvílst milli atriða.
háði. Við tókum þá stefnu frá upp-
hafi að myndin yrði að vera
skemmtileg án þess þó að ganga það
langt að það hefði áhrif á alvörugef-
inn og magnþrunginn efnisþráðinn
þegar Walker stendur andspænis
geöveilu og ýmiss konar viöbjóði."
HvervarWalker?
En hver var þessi William Wal-
ker? Þótt bandarískir aðilar hafi áður
opinberlega ráðist inn í Nicaragua
eins og 1894,1896,1899 og 1909 þá ER
Walker líklega litríkastur þeirra
allra og því lifað lengst í minni inn-
fæddra. Margir hafa velt fyrir sér af
hverju Walker tók sér fyrir hendur
þessa innrás og er talið að lát sambýl-
iskonu hans hefi verið kveikjan.
Walker bjó með heyrnarlausri konu,
að nafni Ellen Martin, sem leikin er
af Marlee Matlin. Hún lést í kóleru-
faraldri áriö 1849 sem gekk yfir New
Orleans á þeim tíma. Svo virðist sem
lát hennar hafl gert að engu frama
Walkers sem ritstjóra og ímynd hans
sem lögfræðings með hugsjón að
leiðarljósi. hann hefur líklega talið
að engu væri að tapa ef hann færi til
Kvikmyndir
Baldur Hjaltason
Suður-Ameríku og það væri í sam-
ræmi við hagsmuni Bandaríkjanna
að ráða yfir vesturhluta heimskúl-
unnar.
Sterkur persónuleiki
„Ellen Martin var mjög viljasterk
og stjórnsöm kona,“ er lýsing Matlin
á konu þeirri sem hún leikur í mynd-
inni. „Hún var mjög ákveðin og
óþolinmóð. Walker var mjög ást-
fanginn af henni og gekk þaö svo
langt að hann var jafnvel hræddur
við hana, svo hún hafði gífurleg áhrif
á hann. Hún var kannski ekki falleg,
en hafði yfir sér einstakt yfirbragð -
dökkt hár, grönn vexti og bar höfuð-
ið hátt. Ef hún hefði ekki dáið held
ég að Walker og hún hefðu gifst og
eignast börn og því hefði hann hætt
við för sína til Nicaragua. En hún
hefði ekki breytt persónuleika sínum
fyrirWalker."
WALKER er talinn vera undir
Hér er Walker mættur á staðinn.
áhrifum af spaghettivestrum. Ástæð-
an er mikill áhugi Alex Cox á þessum
flokki mynda. Meðan hann dvaldist
í Nicaragua var hann alltaf meö ein-
tak af The Wild Bunch. Raunar má
segja að kvikmyndalega séð eigi
WALKER ættir sínar að rekja til
gömlu meistaranna á borð við Leone,
Peckinpah, Kurosawa og Bunuel sem
voru í miklu dálæti hjá Cox.
Spaghettivestrar
Alex Cox er ekki heldur óvanur
að leikstýra spaghettivestrum. Hann
gerði fyrr á árinu, í Almeria á Spáni,
STRAÍGHT TO HELL, sem fjallar um
þrjá byssubófa sem sofa yfir sig og
geta því ekki lokið við samning sem
þeir höfðu gert um leigumorð. Þeir
ákveða því að ræna banka sem tekst
ekki eins vel og þeir áætluðu og neyð-
ast því til að flýja til fjalla.
„Eg hélt að Fox hefði fengið nóg
af vestrum eftir STRAIGHT TO
HELL“, hefur verið haft eftir einum
leikaranum, „en svo virðist ekki hafa
verið." Myndin er yfirfull af morð-
um, sprengingum og skothríð, ásamt
því að Cox notar það óspart að sýna
sum atriðin hægt. Raunar hljómar
þessi líking eins og verið sé að lýsa
Sam Peckinpah.
Þekktnöfn
Nokkrar eldri myndir Alex Cox
hafa verið sýndar hér eins og REPO
MAN. Hann geröi einnig myndina
um SID AND NANCY sém íjallar um
líf Sid, sem lék með pönkhljómsveit-
inni The Sex Pistols, og vinkonu
hans, Nancy. Þau lentu í alvarlegu
eiturlyfjavandamáli sem endaði með
harmleik sem m.a. er lýst í mynd-
inni.
Cox virðist þykja gaman að hafa
hljómlistarmenn með í myndum sín-
um. Elvis Costello kom fram í
hlutverki þjóns í STRAIGHT TO
HELL og einnig fékk fyrrverandi
höfuðpaur The Clash, Joe Strummer,
þar hlutverk. Hann leikur einnig
einn af hinum „ódauðlegu" í Walker.
Handritahöfundur að WALKER er
heldur ekki með öllu óþekktur. Rudy
Wurlitzer er þekktur fyrir kvik-
myndahandritin að PAT GARRET
AND BILLY THE KID, TWO LANE
BLACKTOP, síðustu útgáfuna af
COMING HOME svo og DUNE. Hann
hefur einnig reynt fyrir sér sem kvik-
myndaleikstjóri en hann leikstýrði
Candy Mountain með Robert Frank.
Þeir Cox hafa fengiö mjög mismun-
andi dóma fyrir WALKER og sýnist
sitt hverjum. Þykir mörgum sem
þeir hafi fjallað of léttúðlega um efn-
ið.
Erfiðaraðstæður
Eins og við mátti búast er mynd-
in tekin í Nicaragua. Skortur á allri
aðstöðu gerði bæði tæknimönnum
og leikurum lífið leitt meðan á kvik-
myndatöku stóð. Eftir sex vikur voru
flestir búnir að fá heimþrá. Hitinn
og rvkið var farið að taka sinn toll.
Hins vegar virtust allir innfæddir
reiðubúnir til að hjálpa til eða eins
og annar framleiðenda WALKER
orðaði það: ;,Við höfum skapað há-
vaða, ásamt því að ryka og óhreinka
hluti. Við lýstum upp umhverfið á
nóttunni til kvikmyndatöku þegar
venjulegt fólk vill bara sofa. Einnig
vorum við alltaf í megnustu vand-
ræðum með niðurfóllin. Samt sem
áður hjálpaði okkur fólk úr öllum
þjóðfélagsstigum. Nicaraguabúar
samþykkja ef til vill ekki Sandinist-
ana en þeir eru þó allir vissir um að
þeirviljaekkiannanWalker." b.H.
Helstu heimildir: Film Comment, Variety,
Economist.