Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Side 34
46
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988.
Handknattleikur unglinga
4. flokkur karla:
Stórgóð úrslitakeppni -
enn betri úrslitaleikur
Á Akureyri fóru fram úrslit í 4.
flokki karla um síðustu helgi. Liðun-
um var skipt í tvo riðla og var Valur
í A-riðli ásamt FH, Þór, Víkingi og
ÍA. í B-riðli var Fram ásamt KR, ÍR,
Tý og Stjörnunni. Valsmenn áttu tvö
stig, er þeir komu til keppni, en
Framarar eitt stig.
Valsmenn sigruðu alla andstæð-
inga sína í riðlinum nokkuð örugg-
lega en lentu þó í nokkrum erfiðleik-
um með Þórsara sem þeir sigruðu
12-11 eftir að hafa verið með örugga
forustu mestallan leikinn. Valsmenn
sigruðu Víkinga, 13-10, ÍA, 21-11, og
FH, 15-7.
FH varö í ööru sæti riöilsins, tap-
aði aðeins leiknum gegn Val. Viking-
ur varð í þriðja sæti, Þór í því íjórða
' og olli liðið nokkrum vonbrigðum á
heimavelli sínum enda lið sem getur
mun betur. ÍA varð í neðsta sæti rið-
ilsins með ekkert stig.
í B-riðli varð Týr í neðsta sæti,
hlaut aöeins eitt stig gegn ÍR, Stjarn-
an varð í fjórða sæti eftir jafntefli við
Fram og sigur á Tý. ÍR varð í þriðja
sæti riðilsins, gerði jafntefli við Fram
og Tý og sigraði Stjörnuna.
Meiri barátta var í B-riðli og áttust
þar við lið Fram og KR.
KR-ingar unnu fyrstu þrjá leiki
sína nokkuð örugglega. gegn Stjörn-
unni, ÍR og Tý, en Framarar byrjuðu
illa er þeir gerðu jafntefli í tveimur
fyrstu leikjum sínum gegn ÍR, 16-16,
og Stjörnunni, 19-19. Er þeir sigruöu
Tý, 17-11, var ljóst að síðasti leikur
riðilsins, milli Fram og KR, yrði úr-
slitaleikur um hvaöa lið myndi mæta
Val í úrslitum.
Frá fyrstu mínútu léíks Fram og
KR var ljóst að Framarar ætluöu sér
í þann leik og náðu þeir að yfirspila
KR strax í upphafi leiksins. Náði
Fram fljótlega sjö marka forustu.
8-1, og í hálfleik var staöan 10-3. í
seinni hálfleik léku KR-ingar maður
á mann en það dugði ekki til og urðu
lokatölur leiksins 22-10, Fram í vil.
Þaö var þvf ljóst að það stefndi í
■** hörkuúrslitaleik milli Reykjavíkur-
stórveldanna, Vals og Fram.
• Leikmenn Fram i 4. flokki karla sem stóðu sig svo vel í úrslitaleiknum gegn Val um síðustu helgi.
Stórkostlegur
úrslitaleikur tveggja
frábærra liða
Það er ekki oft sem menn skortir
lýsingarorð til að lýsa leik í yngri
flokkunum. Sú var þó raunin er Val-
ur og Fram léku til úrslita í 4. flokki
karla. Þessi lið sýndu Qölmörgum
áhorfendum að drengir á þessum
aldri geta spilað handbolta í háum
gæðaflokki. Ekki spillti heldur fyrir
að leikmenn héldu áhorfendum í
mikilli spennu mest allan leikinn og
er það til efs að jafnspennandi leikur
hafi verið leikinn í íþróttahöllinni á
Akureyri. En snúum okkur að gangi
leiksins. Úrslitaleikur Vals og Fram
verður lengi í minnum hafður. Þetta
• Dagur Sigurðsson tekur við verðlaunum að leik loknum.
||!!t|:
• íslandsmeistarar Vals í 4. flokki karla 1988, ásamt þjálfara sinum, Theódór Guðfinnssyni
var leikur tveggja jafnsterkra liða
sem spiluðu frábæran handbolta.
Valsmenn byrjuðu betur og kom-
ust í 3A) með tveimur mörkum
Gústafs ísaksen og Óskars Óskars-
sonar en Friðrik Nikulásson skoraði
fyrsta mark Framara og kom þeim á
bragðið með firna föstu skot neðst í
markhomið. Framarar náðu síðan
að jafna leikinn, 3-3. Jafnt var síðan
á öllum tölum til loka fyrri hálfleiks
en Valsmenn voru alltaf fyrri til að
skora. Staðan í hálfleik var svo 7-7.
Það var ljóst strax eftir fyrri hálfleik-
inn að Framarar báru enga virðingu
fyrir Valsmönnum sem ekki höfðu
tapað stigi í allan vetur. Mikið jafn-
ræði var með liðunum framan af
seinni hálfleik en síðan tóku Framar-
ar mikinn fjörkipp og sigu fram úr
og þegar rúm 1 mínúta var til leiks-
loka voru Framarar komnir með
þriggja marka forskot, 15-12, og unn-
inn leik. En Valsmenn voru ekki
búnir að segja sitt síðasta orð. Þeir
tóku það til bragðs að leika maður á
mann og af miklu harðfylgi tókst
þeim að jafna leikinn, 15-15, og skor-
uðu þeir jöfnunarmarkið stuttu fyrir
lok leiksins. Framarar náðu þó að
komast í sókn og fengu dæmt fríkast
er leiktíma lauk. Áttu þeir skot í inn-
anverða stöng Vaísmarksins en inn
fór boltinn ekki og sluppu Valsarar
þar með með skrekkinn og var fógn-
uður þeirra gífurlegur.
Framlengja þurfti því um 2x5 mín-
útur og aö þeim loknum var enn
jafnt, 20-20. Enn var framlengt og
skoruðu Valsmenn þá tvö mörk en
Framarar aðeins eitt. Þeir höfðu þó
tækifæri til að jafna leikinn úr víta-
kasti sem dæmt var á síðustu
sekúndu seinni framlengingarinnar.
Ekki tókst þeim að nýta sér það og
það voru þvi Valsmenn sem fögnuðu
Islandsmeistaratitlinum í 4. flokki
karla í ár eftir að Framarar höfðu
haldið þeim titli undanfarin tvö ár.
Valsmenn eru vel að titlinum
komnir, þeir töpuðu ekki leik í vetur
og var þetta eina skiptið sem jafnt
var hjá þeim að loknum venjulegum
leiktíma. Máttarstólpar Valshðsins
eru þeir Dagur Sigurðsson og Óskar
Óskarsson og eru þeir geysiefnilegar
skyttur, báðir tveir. Hornamaðurinn
Gústaf ísaksen er einnig góður en
aðrir leikmenn liðsins eru jafnari og
fylgja þeim félögum vel.
Framarar hófu keppni í 2. deild þar
sem þeir sigruðu fljótt en eftir það
hafa þeir verið að fikra sig upp sæta-
röðina í 1. deild. Hápunkti náðu þeir
síðan í úrslitunum og voru ótrúlega
nálægt því að halda titlinum í 4.
flokki í Safamýri, þriðja árið í röð.
Þrátt fyrir tap geta þeir vel við unað
og þeir þurftu ekki að skammast sín
er þeir gengu af leikvelli að leik lokn-
um. Ekki er hægt að gera upp á milli
leikmanna Framliðsins og í þessum
leik áttu þeir allir góðan leik.
Mörk Vals í þessum leik skoruðu
þeir Dagur Sigurðsson 11/5, Theódór
Valsson 3, Gústaf ísaksen 2, Ólafur
Stefánsson 2, Óskar Óskarsson 2/1,
Einar Birgisson 1 og Halldór Hall-
dórsson 1. í markinu var Þórarinn
Ólafsson sterkur.
Mörk Fram skoruðu þeir Friðrik
Nikulásson 8/4, Arnar Arnarsson 5/2,
Þormar Þorbergsson 3, Guðmundur
Benediktsson 3, Einar Páll Kjartans-
son og Einar Tönsberg, 1 mark hvor.
Markvörður Framara var Daníel
Stefánsson og gaf hann kollega sín-
um í marki Vals ekkert eftir.
Umsjón Akureyringa var til mikillar
fyrirmyndar.