Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Side 35
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988.
47
Einar Tönsberg, íyrirliði Fram:
„Þettavar
rosalegur
leikur"
Einar Tönsberg, fyrirliði Fram: Ég
vil byija á því að óska Valsmönnum
til hamingju með íslandsmeistaratit-
ilinn, 'þeir eru búnir að spila vel í
vetur en í þessum leik höfðu þeir
heppnina með sér. Ég held að óhætt
sé að segja að ekkert lið i 4. flokki
hafi tekið eins miklum framförum
og við. Ég held að við höfum sýnt það
í þessum leik að við erum orðnir jafn-
góðir og Valur. En við töpuðum
þessum leik vegna þess að taugarnar
brugðust þegar staðan var 15-12 fyrir
okkur. En þessum leik gleymi ég
aldrei, þetta var rosalegur leikur og
það er alveg sárgrætilegt að tapa
honum niður, því að við spiluðum
okkar besta leik í vetur. Annað liðið
verður alltaf að vinna og í þetta sinn
var það Valur en við vinnum þá
næst.“
Þetta sagði Einar Tönsberg, fyrir-
liði Fram, eftir úrslitaleikinn við Val
og var frekar niðurdreginn sem er
vel skiljanlegt.
Handknattleikur unglinga
• Einar Tönsberg, fyrirliði Fram i 4. flokki karla.
Dagur Sigurðsson fyrirliðiVals:
Meiri-
háttar
leikur
Dagur Sigurðsson fyrirliði Vals:
„Þetta var meiriháttar leikur, þegar
1,30 mín. voru eftir vorum við þrem-
ur mörkum undir en við náðum aö
jafna, þetta var ótrúlegt. Ég hélt fyrir
úrslitin að Framarar væru ekki
svona sterkir, en þegar ég sá þá á
móti KR var ég orðinn mjög hræddur
um að við myndum tapa okkar fyrsta
leik í vetur. Framararnir eru með
frábært liö og það er varla réttlátt
að annað liðið þurfi að tapa svona
leik. Þetta var rosalegur leikur.
Kannski gerði sælgætisbindindið út-
slagið en okkur var bannað að borða
sælgæti í eina viku fyrir úrslitin.
Ég vil nota tækifærið til að þakka
þjálfaranum okkar fyrir veturinn og
eigum við honum þetta mest að
þakka.
Þetta sagði Dagur Sigurðsson, fyr-
irliði 4. flokks Vals, eftir leikinn og
var aö vonum ánægður með íslands-
meistaratitilinn.
• Dagur Sigurðsson, fyrirliði íslandsmeistara Vals.
4. flokkur kvenna
Selfoss Islandsmeistari annað árið í röð
Á Selfossi fór fram keppni í úr-
slitum í 4. flokki kvenna og var
hart barist í flestum leikjanna.
Selfyssingar sigruöu örugglega í
sínum riðli en þeir voru í riðli með
Gróttu, ÍBV, HK og KA. ÍBV varð
í öðru sæti, HK í því þriðja, Grótta
í fjórða sæti en KA í fimmta sæti.
í hinum riðlinum var um meiri
keppni að ræða og réðust úrslit í
riðlinum ekki fyrr en í siðustu
leikjunum. ÍBK varð þó hlutskarp-
ast en á hæla þeim kom lið UBK.
Fram varö í þriðja sæti, UMFG í
fjórða sæti en Haukar í fimmta
sæti.
Það voru því lið Selfoss og ÍBK
sem mættust í úrslitaleik ,um ís-
landsmeistaratitilinn og er þetta
annað áriö í röð sem Selfoss spilar
til úrslita í þessum aldursflokki.
Leikurinn byrjaði frekar rólega
og tókst hvorugu liðinu að skora
mark í fyrri hálfleik, enda mar-
kvarslan mjög góð hjá báðum
liðunum. Um miðjan seinni hálf-
leik hafði ÍBK yfir, 2-1, en með
mikilli hörku og dugnaði tókst liði
Selfoss að jafna leikinn og komast
yfir, 3-2, og urðu það lokatölur
leiksins.
Eins og áður sagði er þetta í ann-
að sinn á jafnmörgum árum sem
Selfossstúlkurnar verða íslands-
meistarar og eru þær vel að þessum
titli komnar. Liðið er vel leikandi
og hefur á að skipa mjög sterkri
vörn og markvörslu.
Þrátt fyrir að ÍBK hafi þurft að
gera sér annað sætið að góðu má
liðið vel við una og stúlkurnar geta
verið stoltar af þeirri miklu baráttu
sem þær sýndu í úrslitunum.
UBK sigraði ÍBV í úrslitaleik um
þriðja sætið, 12-9, og Fram varð í
fimmta sæti eftir sigur á HK, 13-5.
UMFG sigraöi Gróttu í leik um sjö-
unda sætið, 10-5, en Haukar urðu
í níunda sæti eftir sigur á KA, 12-8.
Mynd af íslandsmeisturunum
birtist um næstu helgi.
Aðalfundir
Samvinnutrygginga gt og líftryggingafélagsins And-
vöku verða haldnir í Samvinnutryggingahúsinu,
Ármúla 2, föstudaginn 29. apríl nk.
og hefjastkl. 17.00.
Dagskrá verður samkvæmt samþykktum félaganna.
Stjórnir félaganna
PEUGEOT TURBO
INJECTION 1985
Rafmagn í rúöum, sóllúga, centrallæsingar, bílatölva,
álfelgur, vökvastýri, Pirelli dekk, tvílitur; silver og
steingrár, útvarp/segulband.
TIL SÖLU HJÁ BÍLABANKANUM
Hamarshöfða, sími 673232.
F ermingarskeytasala
KFUM og KFUK
við Maríubakka
- sími 76266
Opið 10-18
DULUX EL
frá
OSRAM
- 80% orkusparnaður
- 6 föld ending
-E 27 Fatning
7 w = 40 W
11 W = 60 W
15 W = 75 W
20 W = 100 W
Fæst í öllum helstu raftækjaverslunum og kaupfélögum
landsins.
Heildsölubirgðir.
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0.HF.
43 Sundaborg 13-104 Reykjavík - Sími 688 588