Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Page 36
•>*
LAUGARDAGUR 26. MARS 1988.
Vel heppnað alþjóðamót á Akureyri
Jóhann Hjartarson verðskuldaðiu- sigurvegari
Fyrsta alþjóðlega skákmótínu á
Akureyri og jafnframt sterkasta
skákmóti, sem haldið hefur verið á
íslandi utan höfuðborgarsvæðis-
ins, lauk sl. mánudag. Það var
Skákfélag Akureyrar sem stóð fyr-
ir mótinu í samráði við Skáksam-
band íslands, vitanlega með
stuðningi fjölmargra fyrirtækja og
veglegs framlags Akureyrarbæjar.
Keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi íslands fór fram á Akureyri
í september og gerðu keppendur
góðan róm að aðstæðum ölium og
viðurgjörningi. Þannig þróaðist
hugmyndin um að gera enn betur
og bjóöa tO alþjóðlegs móts í bæn-
um. Ákveðið var að mótið skyldi
heíjast strax að loknu Reykjavíkur-
skákmótinu þannig að gott tæki-
færi gæfist til að „hremma“ nokkra
valinkunna garpa áður en þeir
færu af landi brott. Sumir sögðu
að á þátttakendalistanum væri
saman kominn „rjóminn af Reykja-
víkurskákmótinu" en óvíst er að
allir séu því sammála, því að færri
komust að en vildu.
Mótið var af 10. styrkleikaflokki
Alþjóðaskáksambandsins. Sovésku
stórmeistaramir þrír frá Reykja-
víkurskákmótinu, Polugajevsky,
Gurevits og Dolmatov, voru mættir
til leiks; Adorjan hinn ungverski;
norski alþjóðameistarinn Tisdall;
heimamennirnir Jón Garðar Við-
arsson og Ólafur Kristjánsson;
Karl Þorsteins; að ógleymdri fjór-
menningaklíkunni Jó Jó Ma Hól.
Fjölmargt var áhorfenda í Alþýðu-
húsinu þar sem teflt var og margir
vildu berja þessa frægu meistara
augum. Þó var áhuginn aldrei
meiri en er það spurðist að von
væri á Halli norður.
Þátttakendalistinn lofaði vissu-
lega góðu en „hvers vegna buðuð
þið Adorjan á mótið?" spurðu þó
margir sem vissu nokkur deili á
manninum. Þó að Adorjan sé hinn
hugljúfastí í viðkynningu er hann
frægur skelfir mótshaldara um all-
an heim. Ástæðan er óþrjótandi
hæfileiki hans tíl að finna sér um-
kvörtunarefni. Hann byrjaði strax
er dregið var um töfluröð og hætti
ekki fyrr en maturinn var kominn
á borðið í lokahófinu. Þá var hann
búinn að stílla vekjaraklukku upp
á borðbrúninni svo hann ættí hæg-
ara með að sjá hve matnum seink-
aði um margar mínútur. Þess á
milli skiptí hann um hótelherbergi,
a.m.k. fjórum sinnum að því er
hermt var og lesendum Sandkorns
hér í DV ætti að vera kunnugt.
Frægt var einnig orðið hvernig
hann smurði andht sitt með tor-
kennilegum kamfórudropum milli
leikja og angaði eins og apótek.
Gárungamir fyrir norðan upp-
nefndu hann og kölluðu
„Smyslov".
En Adoijan er besta skinn og svo
vel af guði gerður að hann getur
ekki hugsað sér að vinna nokkra
skák. Þess vegna býður hann yfir-
leitt jafntefli a.m.k. einu sinni í
skák og vih af þeim sökum skapa
sér óvinsældir meðal áhorfenda. í
þetta sinn komst hann þó ekki oft
upp með friðsemdina því að mót-
herjamir vildu gjarnan að hann
sýndi þeim svart á hvítu að staðan
væri jafntefli. Með öðmm orðum:
Skemmtilega og fjörlega teflt á
fyrsta alþjóðaskákmótínu á Akur-
eyri.
Skák
Jón L. Árnason
Jóhann Hjartarson stórmeistari,
eða öllu heldur áskorandi, kom
beint frá Linares á Spáni þar sem
hann tók þátt í móti af 15. styrk-
leikaflokki. Jóhanni gekk þar ekki
sem skyldi og hafnaði í 10. sætí en
Timman varð efstur. Kannski var
ekki við öðru að búast en að Jó-
hann fengi dulítið bakslag í seglin
eftír frammistöðuna frækilegu í
Saint John. Hann var aftur kominn
í skákskap á Akureyri. Tefldi leik-
andi létt og stóð að lokum uppi sem
verðskuldaður sigurvegari. Samt
kom hann degi of seint á mótið og
tók með sér spænska kvefveiru
sem angraði hann lengi fram eftir
móti.
Jóhann hlaut 8 vinninga af 11
mögulegum og var eini keppandi
mótsins sem tapaði ekki skák -
meira að segja Ádorjan mátti lúta
í duftíð í einni skáka sinna. Pol-
ugajevsky hafnaði einn í öðru sætí
eftír sigur á Tisdall í lokaumferð-
inni og fékk þar nokkra uppreisn
æru eftir slælega frammistöðu á
Reykjavíkurskákmótínu. Polu tap-
aði aðeins fyrir Jóhanni eftir
spennandi skák sem Jóhann taldi
sína erfiðustu á mótínu.
Margeir tapaði sinni einu skák á
mótínu í síðustu umferð og líkleg-
ast þriðju skákinni sem hann tapar
í höfuðstaö Norðurlands. Ein-
hveiju sinni tapaði hann fyrir
Jóhanni í deildakeppninni og
Halldóri heitnum Jónssyni. Mar-
geir hefur haft á orði að sér falli
sérlega vel að tefla á Akureyri eins
og sigur hans á Skákþingi íslands
sl. haust gefur ljóslega til kynna.
Þrátt fyrir tapið náði Margeir
þriðja sætínu óskiptu, því að Karl
Þorsteins sá fyrir Gurevits í loka-
umferðinni. Karl fléttaði í miðtafl-
inu en missti við það skiptamun
fyrir peð en smám saman sneri
hann við blaðinu og vann um síðir,
löngu eftir að lokahófið var byijað.
Gurevits var nokkuð brugðið fyrst
eftír skákina en tók fljótt gleði sína
á ný og á endanum hrósaði hann
Karli í hástert fyrir taflmennskuna
í lok skákarinnar. Hann sagði að
það væri óvanalegt af svo ungum
manni að tefla endataflið af slíkri
nákvæmni. Þess má geta að Karl
hafði tveim peðum meira en á horð-
inu voru hrókar og mislitir biskup-
ar sem gerðu úrvinnsluna erfiða. í
stað þess að reyna að nudda skák-
ina af sovéska stórmeistaranum
spann Karl mátnet og tókst með
því að vinna þriðja peðið og tryggja
sér sigurinn.
Sá er þetta ritar byrjaði afleitlega,
með 2 vinninga úr 6 fyrstu skákun-
um. En endaspretturinn, 4 v. af 5
síðustu bjargaði því sem bjargað
varð. Ég áttí erfitt með að einbeita
mér í fyrstu umferöunum sem
flokka mætti undir „skáklega timb-
urmenn“ eftir Reykjavíkurmótíð.
Skákin við Karl í 2. umferð var ein-
hver sú vitíausasta sem ég hef teflt
og er þá mikið sagt. Fyrstu 15 leik-
ir skákarinnar voru af beggja hálfu
leiknir með hraða snigilsins en síð-
an var engu líkara en að snigilhnn
félh fram af hengiflugi og þarf eng-
an að undra útkomuna.
Helgi og Dolmatov voru langt frá
sínu besta en Tisdall kom skemmti-
lega á óvart. Hann átti nokkra von
í stórmeistaraáfanga, sem var 7 v„
á mótinu en það var kannski til of
mikils ætlast að hann ynni tvær
síðustu skákirnar - gegn Margeiri
og Polu. Heimamennimir Jón
Garðar og Ólafur Kristjánsson áttu
við ramman reip að draga enda
langstigalægstir allra keppenda.
Einhvern veginn er það svo að í
slíkri stöðu sjá aörir keppendur
nokkra von um vinning og leggja
sig því alla fram. Og þaö þarf sterk
bein til að þola svipuhöggin. Ólafur
fékk oft góðar stöður en var ber-
sýnilega æfingalaus og Jón G. var
sennilega orðinn leiður á því um
mitt mót að þurfa að leika hlutverk
fórnardýrsins.
Gylfi Þórhallsson, Páll Hlöðvers-
son, Sigurpáll Vilhjálmsson og
fngimar Friðfinnsson skipuðu
mótsstjóm, aðaldómari var Arnold
Eikrem frá Noregi og honum til
aðstoðar Albert Sigurðsson, Páll
Hlöðversson og fngimar Friðfinns-
son. Mótið var þessum mönnum
og öðrum sem að því stóðu til mik-
ils sóma. Vonandi verður framhald
á alþjóðlegum skákmótum á Akur-
eyri. Víst er að mótið vakti mikla
athygli og áhorfendur vora fjöl-
margir. Norðlensk æska virðist-
einnig vera að sækja í sig veðrið í
skáklífinu eins og úrslit í skák-
keppni framhaldsskóla bera með
Nafn Titill Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn.
1. Jóhann Hjartarson SM 2590 1 '/2 '/2 '/2 '/2 1 '/2 '/2 1 1 1 8
2. L. Polugajevsky (Sovétrikin) SM 2575 0 '/2 /2 ‘/2 /2 1 1 '/2 1 1 1 7'/2
3. Margeir Pétursson SM 2540 '/2 '/2 0 1 '/2 /2 '/2 ‘/2 1 1 1 7
4. Jón L. Árnason SM 2540 '/2 '/2 1 0 '/2 '/2 1 '/2 0 1 1 6'/2 ■
5. M. Gurevits (Sovétríkin) SM 2625 '/2 '/2 0 1 1 0 1 '/2 0 1 1 6/2
6. A. Adorjan (Ungverjaland) SM 2540 '/2 /2 '/2 '/2 0 1 '/2 '/2 '/2 '/2 1 6
7. J. Tisdall (Hbregur) AM 2425 0 0 '/2 '/2 1 0 '/2 1 '/2 1 1 6
8. Helgi Ólafsson SM 2510 /2 0 '/2 0 0 '/2 '/2 '/2 1 1 1 5/2
9. S. Dolmatov (Sovétrikin) SM 2565 '/2 '/2 '/2 ‘/2 . '/2 '/2 0 14 ‘/2 '/2 1 5/2
10. Karl Þorsteins AM 2440 0 0 0 1 1 '/2 /2 0 Zi 1 w 5
11. Jón G. Viðarsson 2305 0 0 0 0 0 '/2 0 0 '/2 0 /2 1/2
12. Ólafur Kristjánsson 2225 0 0 0 0 0 0 0 0 0 /2 /2 1
Ragnar og Aðalsteinn efstir hjá BR
Nú stendur yfir aðaltvimennings- er staöan eftir 14 umferðir: Aðalsteinn Jörgensen 287 Þorlákur Jónsson 214 Éins og glöggir lesendur munu siá en
keppni Bridgefélags Reykjavíkur og
er staðan eftír 14 umferðir:
1. Ragnar Magnússon
Aðalsteinn Jörgensen
2. Jacqúi McGreal -
Ragnar Magnússon og Aðalsfeinn Jörgensen eru hæstir í barómeterkeppni Bridgefélags Reykjavíkur. Hér spila
þelr gegn félögum sínum í Flugleiðasveitinni, Val Sigurðssyni og Jóni Baldurssyni.
Þorlákur Jónsson
3. Eiríkur Hjaltason -
Ólafur Týr Guðjónsson
4. Valur Sigurðsson -
Hrólfur Hjaltason
5. Sigurður Sverrisson -
Bjöm Halldórsson
6. Matthías Þorvaldsson -
Ragnar Hermannsson
7. Björn Eysteinsson -
Helgi Jóhannsson
8.Símon Símonarson -
Stefán Guðjohnsen
9. Sigurður Sigurjónsson -
Júlíus Snorrason
10. Björgvin Þorsteinsson -
Guðmundur Eiríksson
ser
Björn Eysteinsson krækti
góða skor í eftirfarandi spih úr 9.
umferðinni.
A/N-S
♦
♦
+
A64
K1076
K753
K7
♦
♦
+
DG7532
G4
G2
G62
98
Á98
10984
ÁD43
♦
¥
♦
+
K10
D532
ÁD6
10985
Eins og glöggir lesendur munu sjá eru
fjögur hjörtu á borðinu - vandinn er bara
að komast í þau.
En við skulum fylgjast með Birni og
makker hans, Helga Jóhannssyni. Þeir
sátu s-n: og sagnir gengu á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 3 S pass
pass ?
Bjöm er í vanda staddur því makker
treysti sér ekki til þess að segja neitt en
það er hins vegar ljóst að hann getur
varla verið langt frá opnurí.
Eftir nokkra umhugsun skellti Bjöm
sér í þrjú grönd. Vestri leist ekki á að
spila út frá sínum auma spaðalit og valdi
hjartagosa. Austur drap strax á ásinn og
spilaði spaðaníu til baka. Björn drap á
kónginn og íhugaði möguleikana. Ef tíg-
ullinn skiptist 3-3 þá vom níu slagir
upplagðir ef ekki væri hugsanlegt að fá
niunda slaginn á lauf. Háspil annað hjá
vestri væri nóg eða öll háspilin hjá austri.
Hann spilaði þvi iitlu laufi og lét sjöuna
úr blindum. Austur drap á drottninguna
og spilaði meiri spaða. Bjöm drap slaginn
á ásinn, tók hjartaslagina og spilaði laufi.
Austur eygði nú þá von að setja spilið
niður ef makker ætti tiguldrottningu.
Allavega héldi hann spilinu í sléttu með
því að gefa laufkónginn og það gerði
hann. Þar með var Bjöm kominn með
níunda slaginn og góða skor því fáir náðu
fjórum hjörtum.
Töfluröð sveita í úrslitum íslandsmóts-
ins:
1. Grettir Frímannsson.
2. Verðbréfamarkaður Iðnaðarbankans.
3. Fataland.