Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1988, Síða 60
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Mál á hendur lögmanni:
Tæp þrjú ár
í Sakadómi
-
Akæra áhendur Magnúsi Þórð-
arsyni lögmanni og HaUdóri Erni
Magnússyni vai’ gefin út 31. júlí
1985. Frá þeim tíma hefur máhð
verið hýst í Sakadómi Reykjavík-
ur. Þrátt fyrir þennan langa tíma
hefur htið sem ekkert verið gert
í málinu til þessa. Lögfræðingur-
inn Magnús Þórðarson er
ákaerður fyrir fjársvik og fleira.
Á síðasta ári greiddi ábyrgðar-
sjóður Lögmannafélags íslands
4,3 miiljónir króna vegna svika
Magnúsar. Er það í fyrsta sinn
sem ábyrgðarsjóður LMFÍ greiöir
fé vegna svika lögmanns.
í máh ákæruvaldsins á hendur
MagnúsiÞórðarsynierþesskraf-
. ist að hann verði sviptur mála-
færsluréttindum ævilangt.
Ármann Kristinsson sakadómari
hefur mál þetta tii meðferð-
ar.
-sme
Borgin vill
^ rrfa Bergshús
Borgaryfirvöld standa nú í við-
ræðum við eigendur húsaraðar-
innar frá homi Skólavörðustigs
og Bergstaðastrætis að verslun
Kornehusar vegna fyrirhugaðs
niðurrifs. Þessi hús eiga að víkja
fyrir öðrum stærri en að baki
þeirra á að reisa bílageymsluhús
á tveimur hæðum síðar á þessu
ári. Eitt þessara húsar-Bergshús,
gerði Þórbergur Þórðarson sögu-
frægt í skáidsögu sinni, Ofvitan-
um. Komelíus Jónsson hefur
þegar ákveðiö að rifa sitt hús og
byggja nýtt. Samningaviðræður
standa yfir við aðra eigendur.
Ekið verður inn á neðri hæð
_ m bílageymslunnar frá Ingólfs-
stræti en inn á þá efri frá Berg-
staðastræti. Borgaryfirvöld
hyggjast einnig reisa bíla-
geymsluhús við hliö Hafnarhúss-
ins á lóð þar sem aðkeyrsla aö
Akraborginni er nú. Það hús
verður fimm hæðir og er fyrir-
hugað að hefia framkvæmdir á
þessu ári.
-gse
Bílstjórarnir
aðstoða
*%MM
SenDIBiLJRSTÖÐIJl
LOKI
Þetta kann ég að meta
- samningarnir á Loka-stigi!
Það verður erfítt að
ná meiru fram án átaka
segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur
„Við munum að sjálfsögðu byrja á
því að óska eftir frekari viðræðum
við vinnuveitendur um breytingar á
samningunum en ég geri mér fulla
grein fyrir því að það verður mjög
erfitt að ná meiru fram án átaka,“
sagði Magnús L. Sveinsson, formað-
ur Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, í samtali við DV í gær.
Magnús sagði að það hefði verið
starfsfólk stórmarkaðanna í Reykja-
vík sem fjölmennti á fundinn í
fyrrakvöld og felldi samningana. Það
sem þessu folki gremst mest er eink-
um tvennt. Það er annars vegar lág
laun, en megnið af þessu fólki er á
berum töxtum, sem eru þetta 30 til
40 þúsund krónur á mánuði, og svo
tilhögun vinnutímans.
„Ég skil vel að fólk uni því ekki að
horfa á þá miklu þenslu sem er hjá
stórmörkuðunum en fá svo ævinlega
þau svör að ekki sé hægt að borga
því hærra kaup. Á sama tíma gerist
það að fólkið er látið vinna til klukk-
an 19.00 virka daga, til 21.00 á fóstu-
dögum og frá 10.00 til 16.00 á
laugardögum. Þá er ekkert því til
fyrirstöðu að greiða því laun með
80% álagi eins og aukavinnan er. Og
hvaða heimihslíf halda menn að sé
hjá fólki sem þarf að vinna eftir þess-
um vinnutíma?" sagði Magnús L.
Sveinsson.
Hann sagði að það hefði verið mat
samningamanna Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur þegar þeir undir-
rituðu sammngana á dögunum að
lengra yrði ekki komist án átaka og
því hefði þótt sjálfsagt aö bera það
sem náðist undir fólkið. Nú hefði það
fellt sinn dóm.
Ekki hafa verið haldnir fundir um
samningana hjá öðrum verslunar-
mannafélögum sem undirrituðu
samningana á dögunum. Samkvæmt
heimildum DV munu þau ætla að
fresta því að halda fundi og sjá hveiju
fram vindur hjá Verslunarmannafé-
lagi Reykjavíkur.
-S.dór
Samningafundurínn á Akureyri:
Samningarnir undir-
ritaðir í gærkvöldi
- eftir um 40 klukkustunda maraþonfund
Gylfi Kristjansson, DV, Akureyri:
Seint í gærkvöldi voru undirritaðir
nýir kjarasamningar milli verka-
fólks og vinnuveitenda en samninga-
fundur hafði þá staðið óshtið í tæpar
42 klukkustundir
í gær gengu tilboð aðila á víxl en
svo virtist sem hvorugur aðilinn vildi
taka af skarið til að brjóta ísinn. Síð-
an gerðist það skyndilega rétt fyrir
kvöldmat að rofaði til og hlutirnir
fóru að gerast og þá fengust þær
upplýsingar að skrifað yrði undir
nýjan samning seint í gærkvöldi.
í ailan gærdag var staðan talin vera
afar „brothætt" og ekki mátti mikið
út af bera á lokasprettinum til þess
að upp úr slitnaði.
Erfitt var að nálgast frekari upplýs-
ingar enda húsið lokaö blaðamönn-
um og vörður við dymar til að varna
þeim inngöngu ef þeir reyndu slíkt.
Þó mun það vera ljóst að bein kaup-
hækkun við undirritun samningsins
er eitthvað hærri en samningar
vinnuveitenda við Iðju og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur gerðu ráð
fyrir. Um aðra launaliði eins og
starfsaldurshækkun og desember-
uppbót er ekki vitað en sennilegast
er tahð aö starfsaldursþrepin verði
miðuð við 3 mánuði, eitt ár, þrjú ár,
fimm ár og tólf ár.
SIS ekki rannsakað
Bogi NOson rannsóknarlögreglu-
stjóri hefur hafnað beiðni Jóns
Oddssonar lögmanns um rannsókn á
meintu undanskoti eigna Sambands-
ins frá skiptum þrotabús Kaupfélags
Svalbarðseyrar. Bogi segir það eðh-
legan farveg málsins að skiptaráð-
andi sinni fyrst kröfu Jóns um að
eignir þrotabúsins verði skrifaðar
upp að nýju. -gse
13 ára íslendingur:
Fann lík í ruslagámi
„Þetta skotgekk," sagði Edda. „Finnst þér hann ekki sléttur og fallegur,"
bætti hún við og brosti sinu fallega brosi. Edda Andrésdóttir, fréttamaður
Sjónvarps, eignaðist tæplega 17 marka dreng á fæðingardeild Landspítal-
ans í fyrradag. Ingvi Hrafn fréttastjóri brá við skjótt þegar hann frétti af
fæðingunni og sendi piltinum páskaegg númer sex. Foreldrarnir njóta góðs
af en faöir drengsins er Stefán Olafsson dósent.
Þrettán ára íslenskur drengur, sem
búsettur er í Kaupmannahöfn, varð
fyrir þeirri lífsreynslu síðasthðinn
sunnudag að finna hk í ruslagámi.
Drengurinn hafði verið sendur með
rusl í gám sem stóð við heimili hans.
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Hægnorðaustlæg
átt og bjartviðri
sunnan- og
vestanlands
Á sunnudag og mánudag verður
fremur hæg norðaustlæg átt. Dáht-
il él verða á Norður- og Austurlandi
en þurrt og víða léttskýjað um
sunnan- og vestanvert landið. Vægt
frost verður norðanlands en 3-6
stiga hiti sunnanlands. Víða verður
næturfrost til landsins.
Þegar honum varð litiö í gáminn sá
hann þar lík. Líkið hafði verið vafið
í teppi.
Þegar hann stóð við gáminn birtist
lögregla ásamt manni sem séð hafði
hkið á undan íslendingnum. Sá látni
reyndist vera Asíumaður, eigandi
spilavítis. Haldið er að hann hafi
verið myrtur í uppgjöri í undir-
heimum Kaupmannahafnar.
íslendingurinn varð aldrei skelfd-
ur vegna þessa. Þar sem hkið var
vafið í teppi sá drengurinn aldrei
neitt óhugnanlegt. -sme
Bókagerðarmenn:
Samþykktu
samninginn
Félag bókagerðarmanna sam-
þykkti í gær nýgerðan kjarasamning.
203 greiddu samningnum atkvæði,
57 voru á móti og 5 skiluðu auðu.
Fyrirhuguðu yfirvinnubanni hefur
verið aflýst en það átti að taka gildi
á miðnætti síðasthðnu. -sme