Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988.
Viðskipti__________________________________________________________________________dv
Þórður Friðjónsson, forsljóri Þjóðhagsstofnunar:
Gott og hæft fólk hefur komið
í stað þeirra sem hafa hætt
„Það er vissulega rétt að þetta er
mikið prýðisfólk sem hefur hætt hér
á síðustu árum, fólk sem hefur haft
mikla reynslu. En það er, eins og
alltaf, að það kemur maður í manns
stað. Hér hefur gott og hæft fólk tek-
ið til starfa,“ segir Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, en
eins og DV greindi frá í gær hafa
óvenjumargir hæfir hagfræðingar
hætt hjá stofnuninni á síðustu árum.
Þessir eru nýir á Þjóðhags-
stofnun
Þeir sem hafa komið inn á Þjóð-
hagsstofnun á síðustu misserum eru
þessir: Ásgeir Daníelsson doktor í
þjóðhagfræði, Friðrik Már Baldurs-
son doktor í tölfræði, Yngvi Harðar-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 19 20 Ib.Ab
Sparireikningar
3jamán uppsogn 19 23 Ab.Sb
6 mán uppsógn 20 25 Ab
12 mán. uppsögn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareikningar 9 23 Ab
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsógn 3,5 4 Ab.Úb, Lb.Vb. Bb.Sp
Innlán með sérkjörum 19 28 Lb.Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 5,75 7 Vb.Sb
Sterlingspund 7,75 8.25 Ub
Vestur-þýsk mork 2 3 Ab
Danskar krónur 7.75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 29,5 32 Sp
Viðskiptavixlar(forv ) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31 35 Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi AHir
Hlaupareiknmgar(yfirdr) 32.5 36
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 9.5-9.75 Allir nema
Úb
Utlántilframleiðslu
ísl. krónur 30.5 34 Bb
SDR 7.75 8.25 Lb.Bb, Sb
Bandarikjadalir 8.75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11 11.5 Úb.Bb, Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5 5.75 Ub
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 45.6 3.8 á mán. ;
MEÐALVEXTIR
överðtr. feb. 88 35,6
Verðtr. feb. 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala mars 1968 stig
Byggingavísitala mars 343stig
Byggingavísitala mars 107.3stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbré( 1,4969
Einingabréf 1 2.670
Einingabréf 2 1.555
Einingabréf 3 1.688
Fjólþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2.753
Lífeyrisbréf 1 342
Markbréf 1,432
Sjóðsbréf 1 1.253
Sjóðsbréf 2 1,365
Tekjubréf 1.360
Rekstrarbréf 1.06086
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 128kr.
Eimskip 420 kr
Flugleiðir 284 kr
Hampiðjan 144 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 189 kr.
Verslunarbankinn 140 kr
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb=í
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóö-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
son MA í hagfræði, Stefán Þór
Jansen tölvunarfræðingur, Vilborg
Júlíusdóttir viðskiptafræðingur,
Benedikt Valsson hagfræðingur, Jó-
hann Rúnar Guðmundsson hagfræð-
ingur og Bjöm Rúnar Guðmundsson.
Ráðunautur tveggja ríkis-
stjórna
Þórður Friðjónsson hóf störf sem
forstjóri Þjóðhagsstofnunar í bytjun
síðasta árs. Hann er menntaður hag-
fræðingur og starfaði sem efnahags-
ráðunautur ríkisstjóma Steingríms
Hermannssonar og Gunnars Thor-
oddsen.
Að sögn Þórðar hafa verkefni
stofnunarinnar frekar aukist en hitt
á síðustu árum. „Dæmi um verkefni,
sem lögð hefur verið mikil áhersla
á, er endurmat og uppbygging nýs
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar: „Hér hefur byrjað
margt gott og hæft fólk á undanförn-
um misserum."
þjóðhagslíkans, nýs líkans af efna-
hagslífmu."
Alls eru 23 starfsmenn á Þjóðhags-
stofnun. Það em jafnmargir starfs-
menn og hafa verið á undanfomum
árum.
Er traustið hið sama og áður?
- TelurþúaðÞjóðhagsstofnunhafi
sama traust og áður í viðskiptalífinu
vegna mannabreytinganna?
„Ég tel það vera. Annars er ekki
mitt að meta það.“
Menn viijað reyna sig á nýjum
vettvangi
- Er einhver sérstök óánægja inn-
an stofnunarinnar ástæða þess að
svo margir þekktir hagfræðingar
hafa hætt á undanfómum árum?
„Það held ég ekki. Annars veröur
þú að spyrja þá, sem hafa hætt hér,
hvers vegna þeir hafi hætt. En ég tel
að ástæðumar séu misjafnar eins og
gengur. Það er einu sinni gangur lífs-
ins að fólk langar til að breyta tíl og
skipta um störf. Og ég held að í þessu
tilviki hafi menn einfaldlega viljað
reyna fyrir sér á nýjum sviðum,"
segir Þórður Friðjónsson.
Einn þeirra hagfræðinga sem hafa
hætt hjá Þjóöhagsstofnun sagði við
DV í gær að ákveðinn kjarni manna,
eins og Jón Sigurðsson, Ólafur Dav-
íðsson, HaUgrímur Snorrason,
Sigurður B. Stefánsson, Bolli Bolla-
son og Gamalíel Sveinsson, hafi hafið
störf saman hjá stofnuninni á árun-
um í kringum 1970. Það sé aðalástæð-
an fyrir því aö þeir hverfi á önnur
miö í efnahagslífinu á svipuðum
tíma. -JGH
Timburvöruverslun Ama Jóns-
sonar&Co með sitt síðasta orð
Timburvömverslun Árna Jóns-
sonar & Co við Laugaveginn er
þessa dagana að segja sitt síðasta
orð eftir fiöruga timburdaga um
ævina. Verið er að jafna húsakynni
fyrirtækisins við jörðu, en nokkuð
er síðan það hætti starfsemi. Þetta
var eitt af fomfrægum fyrirtækjum
Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg keypti lóðina og
skipulagði. Samkvæmt því skipu-
lagi er gert ráð fyrir um 50 íbúðum
á lóðinni í framtíðinni, auk versl-
unarhúsnæðis. Margir sendu inn
tilboð til Reykjavíkurborgar um
lóðina.
Hæsta tilboöið kom frá Dögun
hf„ en fallið hefur verið frá viðræð-
um við það fyrirtæki þar sem það
gat ekki lagt fram nægilegar trygg-
ingar. Nú standa yfir viðræður við
byggingafyrirtækið Asparás sem
átti næsthæsta tilboðið um fram-
kvæmdir á lóðinni.
-JGH
Síðustu leifar hins fornfræga fyrirtækis Timburvöruverslunar Árna Jónssonar & Co. Verið er að rífa húsakynn-
in við Laugaveginn en á lóðinni eiga aö rísa yfir 50 íbúðir auk verslana. DV-mynd GVA
Harald Henrikssen flytur erindi
Harald Henrikssen, bankastjóri
Den Norske Industribank sem er
fiárfestingabanki, flytur erindi um
hlutverk og starfsemi bankans á árs-
fundi stjómar Iðnlánasjóðs sem
haldinn verður á Hótel Sögu í dag.
Fundurinn hefst klukkan hálffiögur.
Gerö veröur grein fyrir starfsemi og
stöðu sjóðsins, en á síðasta ári hafði
Iðnlánasjóður yfir 200 milljónir í
hagnað og sjóðurinn er oröinn annar
stærsti fiárfestingalánasjóðurinn á
íslandi.
-JGH
SÍS-húsið
á að vera
tilbuið
næsta vor
Stefnt er að því að SÍS-húsið á
Kirkjusandi verði tilbúið næsta vor,
að þá flytji SÍS aðalstöðvar sínar
þangað. Samkvæmt kaupsamningi
ríkisins á húsi SÍS við Sölvhólsgötu,
fær SÍS að vera í því húsi þar til
Kirkjusandur verður tilbúinn. En
SÍS mun greiða leigu fyrir afnotin frá
og með 9. október í haust.
-JGH
Þetta er Kirkjusandur. Þar vinnur SÍS baki brotnu við breytingar. Inn í þetta
hús skulu aðalstöðvar fyrirtækisins fara næsta vor. DV-mynd GVA
þrjú
tækin
Fyrirtækin Birtingur og Vaki
em nú aö ganga frá sölu á fyrstu
þremur seiðatalningartækj unum
fyrir fiskeldisstöðvar. Fyrirtækið
Birtingur hannaði tækið sem
býður upp á hraðvirkari og ná-
kvæmari talningu á seiöum en
áöur hefur verið möguleg. Fyrir-
tækin raunu leggja megináherslu
á sölu tækjanna erlendis. Nú er
verið að sefia þijú tæki til Þýska-
lands og verið er að ganga frá
samningum við uraboðsaðila þar-
lenda. Þá eru samningar við
norska umboösmenn á lokastigi.
-gse