Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988.
Spumingin
Finnst þér skattbyrðin hafa
þyngst með staðgreiðslu-
kerfi skatta?
Þóra Baldursdóttir: Mér finnst skatt-
byröin vera svipuð og verið hefur.
Karl Aspelund: Ég hef ekki hugmynd
um það því ég var námsmaður í
gamla kerfinu.
Stefán Sturla: Ég hef ekki saman-
burö en núverandi skattakerfi er
tvimælalaust betra.
Hildur Pétursdóttir: Já, hún er
þyngri, að minnsta kosti þriöjungi
hærri hjá minni fjölskyldu.
Sigmar nauaorsson: ja, pao er eng-
inn vafi á því, augljóst mál.
Snorri Magnússon: Nei, það finnst
mér ekki.
Lesendur
„Fastnúmerakerfi bifreiða mun spara þjóðarbúinu um 100 milljónir króna árlega", segir m.a. í bréfinu.
Bílnúmer þingmanna:
Víki fyrir þjóðartiagsmunum
Magnús J. Tulinius skrifar:
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp
til laga, lagt fram af dómsmálaráð-
herra, Jóni Sigurðssyni, en frumvarp
þetta var ein af þeim greinum er
felldar voru við atkvæðagreiðslu
nýrra umferðarlaga á síðasta þingi.
Þá féll umrædd grein á jöfnu í efri
deild og olli úrslitum atkvæði þing-
manns norðan heiða er átti gott
bílnúmer, að hans hyggju, og þótti
afar vænt um.
Nú er það svo aö nokkrir þingmenn
eiga lág og sæt bílnúmer og er þeim
að sjálfsögðu mjög annt um að halda
þeim-og svo er einnig um nokkra
einstaklinga í þjóðfélaginu. En nái
hið nýja fastnúmerakerfi fram að
ganga mun það spara þjóðarbúinu
a.m.k. um 100 milljónir króna árlega,
og munar um minna.
Að sjálfsögöu mun stofnkostnaður
viö nýja kerfið verða nokkur en mun
í tímans rás leiða til meiri sparnaðar
og hagræðingar. Einnig mun það
spara bifreiðaeigendum það mikla
umstang er ætíð fylgir umskráning-
um, að ekki sé talað um þann mikla
fjölda vinnustunda er fara til spillis
sem samfara er öllu því stússi.
Meðal þeirrar hagkvæmni er af
nýja kerfmu leiöir er að sama núm-
erið - fylgir bifreiðinni frá fyrstu
skráningu þar til bifreiðin er afskráð
ónýt, og í öðru lagi gildir númerið
fyrir landið allt og með því losna
menn við hinar sífelldu umskráning-
ar milli umdæma er kosta sitt
samkvæmt núverandi kerfi.
En hvað varðar þingmennina okk-
ar, blessaða, hefði ég haldið að er
þeir leggja atkvæði sitt á vogarskál-
amar, væru þeir fyrst og fremst að
fara meö umboð kjósenda og bæta
þjóðarhag, EN EKKIAÐ HUGSA UM
EIGIN HAGSMUNI.
Er fiárlög eru lögð fram er mikið
bitist um framlög til hinna ýmsu
verkefna, allt frá 500 þús. króna upp
í 2-3 milljónir. Þá hlýtur að muna
um 100 milljónir, samkvæmt hinu
nýja kerfi, fyrir síblankari ríkiskass-
ann. Kassinn er jú þjóðarbúið, ekki
satt?
Vona ég að hið háa Alþingi komi
máh þessu farsællega í höfn, öllum
til hagsbóta, og vona jafnframt að
þingmenn og aðrir er nú „njóta“
lágra númera beri harm sinn í hljóði.
Hringið’í síma
27022
milli kl. 13 og 1S,
eða skrifið.
Bamavagninn
hvarf um páskana
Leitin að týndu örkinni:
Rugl og
hiyllingur
Einar Guðmundsson skrifar:
Sýnd var á Stöð 2 á páskadagskvöld
kvikmyndin Leitin að týndu örkinni.
Ég held að þessi mynd hljóti að slá
öll met hvað rugl og hrylling varðar.
Að virðuleg sjónvarpsstöð skuli
bjóða áhorfendum sínum upp á slíka
mynd um páskana er fyrir neöan
allar hellur.
Hvaða boðskap er höfundur og
leikstjóri slíkrar myndar að flytja
fólki? Fjölskylda mín, börn, tengda-
börn og barnaböm, um 10 manns,
var samankomin heima hjá okkur á
páskadag, eins og hún gerir alltaf á
hátíðisdögum. Viö horfðum öll sam-
an á myndina og það munaði
minnstu aö kvenfólkið fengi hjarta-
slag af hryllingnum sem sýndur var.
Ég fékk sjálfur mjög slæma martröð
um nóttina og konan mín hrópaði
lengi upp úr svefninum.
Ef við ræðum almennt um íslensk-
ar kvikmyndir í dag virðist íslenska
ríkissjónvarpiö vera afar seinheppið
með þær kvikmyndir sem það hefur
látið gera síðustu árin. Einu höfund-
arnir, sem virðast geta skrifað
óbrengluð kvikmyndahandrit, eru
Halldór Laxness og Indriði G. Þor-
steinsson.
Cathy og Larry Miners skrifa:
Fjölskylda okkar hefur búiö. í
Reykjavík frá því f janúar síðasthðn-
um þar sem eiginmaðurinn kennir
hagfræði við Háskóla íslands á veg-
um Fulbright-stofnunarinnar. Við
höfum þegar eignast margar góðar
minningar hér og allt þar til fyrir
stuttu hefur dvöl okkar verið dásam-
leg lífsreynsla fyrir okkur og þrjú
ung böm okkar.
En nú hefur nokkuð gerst sem
hryggir okkur meir en orð fá lýst.
Þegar við vöknuðum á páskadags-
morgun komumst við að því að
einhvem tíma um nóttina hafði
barnavagn verið tekinn ófrjálsri
hendi við heimfii okkar að Grettis-
götu 63. Hvarf bamavagnsins er því
verra þar sem hann er ekki okkar
eign. Vinir okkar hér í Reykjavík
höfðu lánað okkur vagninn. Vagninn
hefur mikiö tilfinningalegt gildi fyrir
vini okkar, þar sem þeir hafa notað
hann undir öll börn sín.
Við ákváðum því að skrifa í Dag-
blaðið-Vísi í þeirri von að einhver
gæti sagt okkur hvar barnavagninn
væri nú. Ekkert mundi gleðja vini
okkar meira en að heyra að bama-
vagninn þeirra væri fundinn.
Cathy og Larry Miners
Grettisgötu 63
Sími 27375
Ónýtt kjöt:
Virðingaiverð
viðbrögð
María Lára Atladóttir hringdi:
_Á miðvikudaginn fyrir páska
keyptum við kjöt í Hagkaupum í
Kringlunni. Þétta átti að vera nauta-
kjöt og ætluðum við að gera okkur
góða máltíð úr því. Kjötið reyndist
hins vegar vont og raunar ónýtt og
lagt til hhðar og ekki notað til mats-
eldar.
Nú var hringt í verslunina Hag-
kaup og forráðamönnum skýrt frá
hvemig ástatt væri um vöru þeirra.
Þeir bmgðust viö á þann hátt sem
best verður á kosið, sögðust senda
mann til að ná í kjötið. Við það var
staðið og vel það því þeir sendu okk-
ur nýtt og gott úrvalskjöt með öllu
tilheyrandi.
Þetta kaUa ég virðingarverð við-
brögð og óvenjuleg. Ég vildi bara láta
þessa getið því nógu oft er kvartað
yfir því sem iUa fer og hins látið óget-
ið sem vel er gert. - Ég þakka
Hagkaupi fyrir frábær viðbrögð við
leiðinlegri kvörtun, sem við gátum
þó ekki komist hjá að bera fram.
Þetta verður líka til þess aö fram-
vegis sneiðir maður ekki hjá þessari
annars ágætu verslun. Öllum geta
orðið á mistök en að bregðast við á
réttan hátt er ekki öllum gefið. Það
kunna þeir Hagkaupsmenn.
Hugleiðing um húsnæðisbætur
Sigríður 8krifar: sem keyptu íbúð á þessum tilteknu möguleika á tvennum launum. upphæð á hverja íbúð, sem hlýtur
Eg get ekki stillt mig um að stinga ámm fa 42.484 kr. hvort eða saman- Mér finnst vera hægt að leggja að vera rökréttast, hvers vegna þá
niður penna og skrifa um hús- lagt kr. 84.968. þann skilning í þetta, að 100% hús- ekki að miöa við fiölskyldustærö?
næöisbætur þær sem greiða á út Þetta finnst mér óskiljanlegt og næðisbætur séu 84.968 kr„ en til Efiir þessum reglum fær t.d. ein-
síöar á þessu ári. Það sem kemur get engin rök fundiö þessu til að fá þær, þurfa tveir aðilar að stætt foreldri meö tvö böm, helm-
mér undarlega fýrir sjónir er aö stuönings.Mínreynslaersúaöþað standa aö íbúðarkaupunum en ef ingi lægri húsnæöisbætur en
einstaklingur sem keypi íbúð á ár- er erfiðara fýrir einstakling aö fiár- einn aðili stendur aö kaupunum bamlaus hjón. - Þið lesendur góöir
unum 1984 fil 1987 mun fá í magna íbúöarkaup, hann hefur fáer hann ekki nema 50%. getiö svo lagt ykkar mat á réttlætið
húsnæðisbætur 42.484 kr., en þjón bara sín laun en hjón hafa alltaf Ef ekki var hægt að ákveöa fasta f þessum reglum.