Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRlL 1988.'
33
T .ffagrtii
Porsche-bíllinn hans Jóns S. Halldórssonar á fleygiferð út í ísilagðan pollinn. Hraðinn var umtalsverður en billinn haggaðist ekki þó hann lenti á ísnum á ferð sem sjálfsagt var talsvert meiri en
lög gera ráð fyrir. DV-myndir KAE
Steínan tekin á íslandsmeistaratitilinn
- segir Jón S. Halldórsson rallökumaður
rallið skemmtilegt. Það er spennandi
og oft eru það smáatriðin sem ráða
úrslitum. Þá spilar heppni líka inn í
dæmið en að sjálfsögðu er það hæfni
ökumanns og aðstoðarmanns sem
úrslitum ræður endanlega."
Dýrt sport!
- Er þetta ekki dýrt spor i?
„Jú, þetta er feikilega dýrt fyrir-
tæki. Við reynum aö hafa aðeins upp
í kostnáðinn með auglýsingatekjum
en þær gera yfirleitt lítið meira en
að ganga upp í kostnað á dekkjum.
En ánægja okkar kemur upp á móti
kostnaðinum og yfirleitt nota rall-
ökumenn allar sínar frístundir til að
dytta að bílunum og æfa sig. Það eru
alltaf einhver smáatriöi sem bæta
má í bílunum eða ökulaginu og menn
eru sífellt að velta vöngum yfir
þeim.“
Jón er með umboð fyrir Porsche-
bíla á íslandi og hefur flutt töluvert
inn af þeim, sérstaklega þó notuöum
bílum. Hann ekur sjálfur Porsche-bíl
í rallmótum. Eru þeir bestir?
Afturhjólaskvettur
„Það er ómögulegt að segja.
Porsche hentar mér langbest. Þetta
eru afturhjóladrifnir bílar með vél-
ina aftur í og skvetta því bakhlutan-
um mikið. Það hentar mér. Ég held
til dæmis að Jón Ragnarsson, sem
er einhver þekktasti rallökumaður
landsins, myndi ekki taka undir að
Porsche væri besti rallbíllinn og ég
efast um að honum gengi vel að
keppa í honum. Ekki frekar en mér
gengi vel að keppa í Escortinum
hans. Þetta er svo einstaklingsbund-
ið.“
Þess má geta að Jón S. keppir nú
á 75 árgerðinni af Porsche. Bíllinn
er með 210 hestafla vél og eru fáir
aukahlutir í honum fram yfir það
sem gengur og gerist í götubílum af
þessari gerð, nema hvað hann er með
veltigrind. En býst Jón við því aö
verða íslandsmeistari í ár?
„Já, ég stefni að því af alefli. Þó
gæti til dæmis nafni minn Ragnars-
son oröið erfiður og jafnvel fleiri. En
nú er stefnan tekin á íslandsmeist-
aratitilinn," sagði Jón S. Halldórs-
son.
-ATA
Jón S. Halldórsson og kona hans, Louise Dahl, auk Guðbergs Guöbergsson-
ar, aöstoöarökumanns Jóns, og konu hans, Kristinar Birnu Garöarsdóttur.
Kristin og Louise hafa báðar áhuga á ralli og ætla aö keppa i sumar á
gamla Porsche-bilnum hans Jóns sem skemmdist i veltu i rallkeppni f haust.
Á fleygiferó i gegnum drullu og aur. ökuskilyrði eru ekki alltaf sem best á
sérleiöunum sem rallökumenn þurfa að aka og því er þeim nauðsynlegt
að æfa sig viö slæm skilyrði.
Umlíkt en ég er þó ekki beinlinis
hræddur viö þessar skepnur."
- Er rallið hættulegt?
„Nei. Það er ekki hættulegt ef menn
vita hvað þeir eru að gera. Við erum
svo vel búnir og varðir að ekkert á
aö geta hent okkur. Ég hef fariö
margar veltur en aldrei skaðast neitt.
Það eina sem getur verið hættulegt
er ef ökumennirnir lenda á tré, stór-
um steinum eða fara fram af hengi-
flugi. Aðalatriðið í ralh er að
ökumennirnir þekki sín takmörk og
fari ekki út fyrir þau.“
- En nú ert þú tahnn með þeim
kaldari og hefur stundum lent í
óhöppum.
„Já, ég finn sjaldan til hræðslu. En
ég þekki mín takmörk. Minn helsti
annmarki er að ég er ahtaf á síðustu
stundu með undirbúninginn. Það
kemur oft fyrir að ég fer illa sofinn
í keppni vegna þess að ég hef verið
að búa bflinn til keppni og þanrúg
hefur aht verið til reiðu nema ég. Ég
er að reyna að bæta þetta.
Annars er það svo margt sem gerir
Jón S. Halldórsson er þrítugur
Reykvíkingur. Hann hefur frá sautj-
án ára aldri komið nálægt flestum
íþróttum sem tengjast bifreiðum og
vélhjólum. Hann hefur keppt í móto-
crossi (vélhjól), íscrossi, sandspymu,
torfæraakstri, kvartmílu og ralli.
Jón hefur unnið til verðlauna í flest-
um þessara íþrótta en gekk þó verst
í jeppaakstrinum enda segist hann
hafa minnstan áhuga á jeppum.
„Það eina sem ég á eiginlega eftir
að prófa er svifdrekaflug og fallhlíf-
arstökk. Ég stefni að því að prófa
þetta í sumar,“ sagði Jón S. Hahdórs-
son er blaðamaður spurði hann
hvort tíl væri nokkur sú áhættu-
íþrótt sem hann hefði ekki reynt.
Aldrei verið hræddur!
- Ertu aldrei hræddur þegar þú ert
að keppa eða æfa?
„Nei, ég get eiginlega ekki sagt það.
Ég man ekki th þess aö hafa nokkum
tíma veriö hræddur. Mér er ekkert
vel við stórar pöddur, snáka og því-