Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRlL 1988. Jarðarfarir Gestur Magnússon cand. mag. lést 31. mars síðastliðinn. Gestur var fæddur að Túngarði á Fellsströnd í Dalasýslu 20. desember 1923. For- eldrar hans voru hjónin Björg Magnúsdóttir og Magnús Jónasson. Vorið 1949 lauk Gestur cand. mag. prófi í íslenskum fræðum. Haustið 1951 gerðist hann kennari við Gagn- fræðaskóla verknáms í Reykjavík. Kennslustörf stundaði hann til árs- ins 1978 en þá hóf hann störf hjá Alþingi og vann þar einkum við út- gáfu Alþingistiðinda. Því starfi gegndi hann þar til 1. nóvember á liðnu ári. Gestur kvæntist ekki. Útfór hans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.00. * Haraldur Erlendsson verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 14. apríl kl. 15.00. Svanborg Þ. Ásmundsdóttir verður jarðsett frá Kópavogskirkju fimmtu- daginn 14. apríl kl. 13.30. Guðrún Helga Jónsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 13.30. Sveinjóna Vigfúsdóttir verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 14. apríl kl. 10.30. Andlát Jón Þór Jónson, lést af slysforum 9. apríl síðasthðinn. Lothar Sæborg, Lothusvejen 8, Oslo, lést 8. apríl síðasthðinn. Einar Sigmundsson, Borgarbraut 30, Borgamesi, lést 9. apríl siðastliðinn. Rósa Júlíusdóttir, Hólavegi 28, Sauð- árkróki, lést 8. apríl í Sjúkrahúsi Skagfirðinga. Guðrún S. Jónsdóttir, Köldukinn, lést í Héraðshæh Austur-Húnvetn- inga 10. apríl síðasthðinn. Sóley Jónsdóttir, Töndebindervej 4, Kaupmannahöfn, er látin. Fundir Mígrensamtökin Aðalfundur Mígrensamtakanna verður haldinn í Gerðubergi þriðjudaginn 12. apríl kl. 20:30, venjuleg aðalfundarstörf. Brynhildur Briem næringarfræðingur talar um mataræði. Allir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs heldur fund nk. fimmtudag, 14.4., kl. 20.30 í félagsheimilinu. Rætt verður um fyrir- hugaða vorgleði, einnig verður sýning á nýtísku skartgripum Tapaðfundið Dömuúr fannst fyrir utan Einholt 2 síðasthðinn fóstudag. Eigandi hafi samband í síma 20596. Tilkyimingar Geðhjálp Geðhjálp heldur fyrirlestur fimmtudag- inn 14. apríl. Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur flytur erindi um Sjálfsvit- und, sjálfstraust og sjálfsstyrk. Fyrirlest- urinn hefst kl. 20.30 á geðdeild Landspít- alans í kennslustofu á 3. hæð. Fyrirspumir, umræður og kaffi verða eftir fyrirlesturinn. Allir velkomnir. Félag eldri borgara Opið hús i Goðheimum, Sigtúni 3, þriðju- dag. Kl. 14 félagsvist, kl. 17 söngæfmg og kl. 19.30 bridge. Kvennadeild flugbjörgunar- sveitarinnar verður með félagsfund miðvikudaginn 13. apríl kl. 20.30, félagsvist. ITC deildin Irpa heldur fund í kvöld, þriðjudag 12. apríl, kl. 20.30 að Síðumúla 17. Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur félagsvist í safnaðarheimilinu Kirlgubæ fimmtudag kl. 20.30. Góð spila- verðlaun og kaffi. Uppskeruhátíð Framara Uppskeruhátið handknattleiksdeildar Fram verður haldin í félagsheimili Fram fimmtudaginn 21. apríl nk. ki.15.00, verð- launaafhendingar, kaffiveitingar. Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfund nk. fimmtudag kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Rætt verður um fyrir- hugaða vorgleði, einnig verður sýning á nýtiskuskartgripum. Sýningar Listasafn Islands í Listasafni íslands er kynnt vikulega mjmd mánaðarins. Fjallað er ítarlega um eitt verk í eigu safnsins, svo og höfund þess. Mynd aprílmánaðar, íslandslag eft- ir Svavar Guðnason, ohumálverk frá árinu 1944. Málverkið var keypt til safns- ins árið 1946. Leiðsögn sérfæðings alla fimmtudaga kl. 13.30-13.45 og er safnast saman í anddyri safnsins. Tónleikar Gunnar Kvaran leikur einleik Síðustu Háskólatónleikar vetrarins verða haldnir í Norræna húsinu mið- vikudaginn 13, aprii kl. 12.30-13.00. Þar flytur Gunnar Kvaran sellóleikari svítu nr. 5 í C-moll fyrir einleiksselló eftir J.S. Bach. Áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands Sinfóníuhljómsveit íslands flytur þrjú verk á næstu reglulegu tónleikum sínum nk. fimmtudag kl. 20.30. Þau eru Haust- spil eftir Leif Þórarinsson, Sinfónia nr. 7 eftir Beethoven og Don Quixote eftir Ric- hard Strauss. Stjómandi verður Banda- ríkjamaðurinn Gilbert Levine og einleikari ísraelinn Mischa Maisky. Fréttir Kjaradeila kennara: Líkur á að kennarasamtökin sameinist í Kjarabaráttunni - sem aftur gæti orðið til að kennarar sameinuðust í eitt félag Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, sagði í viðtali við DV á fóstudaginn að að- gerða væri að vænta frá kennurum eftir að þeir höíðu tapað verkfalls- boðunarmálinu fyrir félagsdómi. Hún vildi þá ekki skýra nánar við hvað hún ætti og hún vildi heldur ekki gera það í gær, sagði aðeins að það myndi koma í Ijós á næstunni. Samkvæmt heimildum DV mun Kennarasambandið hafa ákveðið að bíða úrslitá verkfallsboðunarmáls Hins íslenska kennarafélags fyrir fé- lagsdómi. Ef félagið tapar því máh er talið víst að Kennarasambandið og Hið íslenska kennarafélag muni bæði bíða til hausts með aðgerðir í kjaramálum sínum en gætu beitt öðrum aðgerðum það sem eftir lifði þessa skólaárs. Það hefur verið áhugamál margra félaga í þessum tveimur kennarafé- lögum að þau sameinuöust en til þessa hefur ekki orðið af því. Nú eru taldar auknar hkur á að svo verði og að grunnskólakennarar, verk- menntaskólakennarar og framhalds- skólakennarar sameinist í eitt öflugt félag. Sumir kennarar, sem DV hefur rætt við, segjast ekki sjá til hvaða aðgerða kennarar geti gripið á þessu skólaári. Aðeins sé um tvennt að ræða eins og staðan er nú, að vísa máhnu til sáttasemjara í von um kjarasamninga eða bíða hausts. En margir henda á að það væri ekki hth kjaraskerðing fyrir kennara að þurfa aö bíða með kjarabætur til hausts í þeirri verðbólgu sem nú er. Einn kennari, sem DV ræddi við, sagði að persónuleg afskipti Jóns Baldvins fjármálaráðherra af deil- unni á dögunum hefði hleypt ihu blóði á marga kennara og gert deh- una pólitíska. Hann sagði líka að ef ríkið væri thbúið th að bjóða kennur- um sömu kjarasamninga og samið var um á Akureyri á dögunum, það er að segja með upphafslaunahækk- un, myndi það hðka verulega fyrir um samninga nú þegar. Þessi sami aðhi fullyrti að ef samningar dræg- just fram á haust yrði harkan shk að „aht myndi loga,“ eins og hann komst að orði. -S.dór Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra: ÆUar að halda fund um skreiðarskýrsluna - Seðlabankinn ætiar að leita leiða til að innheimta nígerísku skuldimar Skreiðarskýrslan svonefnda, sem unnin var fyrir forsætisráðherra um skreiðarviðskiptin við Nígeríu síð- asthðin 7 th 8 ár, hefur valdið dehum. í ljós hefur komið að hún er alls ekki tæmandi um málið og skreiðarfram- leiðendur eru ekki hrifnir af þeirri leið sem bent er á í skýrslunni th lausnar 'vanda skreiðarframleið- enda. Þar að auki hefur Seðlabank- inn hafnað hugmyndinni að skuldahréfakaupurium. Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra sagði í samtali við DV að hann hefði hug á því að halda fund með skreiðamefndinni og yfirmönnum Seðlabankans th að ræða skýrsluna og leiðir th að innheimta skuldir Níg- eríumanna. Þorsteinn sagði að Seðlabankinn væri tilbúinn th að leita leiða þar um en þetta þyrfti að ræða frekar. Vitað er að margir skreiðarfram- leiðendur hafa þegar bjargað sér út úr þeim vanda sem skreiðarviðskipt- in bökuðu þeim en þeir eru hka nokkrir sem ekki hafa gert það og standa mjög hla. Þorsteinn sagði að það væri ahtaf spuming hvað ætti að ganga langt í björgunaraðgerðum af þessu tagi, menn hefðu vissulega tekið míkla áhættu rheð þessum skreiðarviðskiptum og það á mörg- um árum. En ef Seðlabankinn gæti fundið leið th að innheimta skuldim- ar eða þann hluta þeirra sem væri innheimtanlegur væri þaö mjög gott. í skýrslu skreiðamefndarinnar er talað um að skuldirnar séu rúmar 800 mhljónir króna og þar af sé helm- ingurinn glatað fé. Vitað er að skuldimar eru meiri en þetta og hafa jafnvel verið nefndar tölur upp á 1,4 mhljarða króna en það hefur þó eng- inn viljað staðfesta. -S.dór Kvikmyndir Frönsk kvikmyndavika ’88 Á veraldar vegi/Le grand chemin á öðm. Louis, en svo nefnist strák- ur, verður illhega fyrir barðinu á missætti þeirra hjóna, ekki hvað síst fyrir þá sök að þau nota hann óspart til að klekkja hvort á öðra. Hann kemst fljótlega að því hvaðan missætti þeirra er komið. Leikararnir Richard Bohringer, sem leikur Pelo, húsbóndann, og Anémone, sem leikur húsfreyjuna Marcehe, hlutu Césarverðlaunin fyrir leik sinn í þessari mynd og era þau vel að þeim komiri því leik- ur þeirra er með eiridæmum góður. Sérstaklega nýtur Anémone sín í þessu hlutverki, sviðsleikarinn gægist hins vegar fram öðra hvoru í leik Bohringer. Myndin sjálf er með eindæmum hugljúf og hrifust bíógestir í troð- fuhum A-sal Regnbogans mjög af myndinni. Áhorfendur ýmist hlógu eða grétu og minnist maður ekki annarra eins viðbragða í íslensku kvikmyndahúsi. Þetta er mynd sem á fuht erindi inn á almennar sýningar og vonandi fær Regn- boginn að sýna hana áfram því hún er gullmoh fyrir þá andleysu sem einkennt hefur kvikmyndafram- boð í Reykjavík í vetur. -PLP Leikstjóri: Jean-Loup Hubert Aðalhlutverk: Anémone, Richard Bo- hringer, Antoine Hubert, Vanessa Guedj Frönsk kvikmyndavika ’88 hófst með sýningu myndarinnar Á ver- aldar vegi. Myndin fjallar um níu ára gamlan Parísarstrák sem kom- ið er í fóstur um stundarsakir í litlu sveitaþorpi í Suður-Frakklandi. Þar á hann eftir að komast að raun um ýmsar staðreyndir lífsins og ekki allar era jafnþægilegar. Honum er komið í vist hjá hjón- um sem keppast við að troða hvert Antoine Hubert og Vanessa Guedj í hlutverkum sinum f A veraldar vegi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.