Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988:
Utlönd
Iranar heita frekari hefhd-
um fyvir aðgerðimar
Ólafur Amaison, DV, New York
Átökin milli bandaríska flotans og
írana á Persaílóa í gær voru þau
hörðustu sem orðið hafa milli ríkj-
anna tveggja. Átökin stóðu í hartnær
níu klukkustundir og þegar upp var
staðið voru tveir íranskir oÚubor-
pallar ónýtir, tvær íranskar freigátur
stórlaskaöar, einn íranskur fall-
byssubátur sokkinn og allt að
þremur írönskum hraðbátum, sem
notaðir eru til að skjóta eldflaugum
á skip og flugvélar, hafði verið sökkt.
Ekki var vitaö um manntjón hjá
írönum.
Atburðarásin var í grófum dráttum
þessi. Klukkan 20.30 í fyrrakvöld að
bandarískum tíma tók Reagan forseti
ákvörðun um að eyðileggja tvo olíu-
borpalla, Sirri og Sassan. Banda-
ríkjamenn segja að á olíuborpöllun-
um hafi verið radarstöðvar sem
notaðar hafi veriö til að aðstoða írani
viö árásir á skip.
Klukkan 21 gerði forsetinn leið-
togum beggja flokka í bandaríska
þinginu grein fyrir fyrirætlunum
sínum.
Milli klukkan 1 og 1.30 í fyrrinótt
hófust árásir Bandaríkjamanna á ol-
íuborpallana. Starfsmenn á pöllun-
um voru varaðir við og beðnir um
að forða sér. Annar pallurinn var
eyðilagður með skotárás en sjóliðar
komu fyrir sprengiefni á hinum og
var það síðan sprengt. Meðan á þess-
um aðgerðum stóð gerði íranskur
fallbyssubátur sig líklegan til að
leggia til atlögu við bandarísku skip-
in. Er hann sinnti ekki aðvörunum
var honum sökkt.
Eftir þessa fyrstu lotu gerðu íranir
árás á breskt olíuflutningaskip og
þurftu skipverjar að yfirgefa skipið.
Einnig gerðu íranir árás á olíu-
vinnslusvæði við Persaflóa sem þeir
telja að Bandaríkjamenn stjórni.
Klukkan 8.30 í gærmorgun gerðu
bandarískar herþotur og bandarísk
freigáta árás á íranska freigátu, eftir
að hún hafði skotið á þoturnar, og
stóriöskuðu freigátuna. Laust fyrir
klukkan 9.30 skaut önnur írönsk frei-
gáta á bandaríska freigátu og var því
svarað með sprengjuárás sem stór-
laskaöi freigátuna. Aö þessu búnu
linnti átökum ehda komið fram í
myrkur við Persaflóa.
I gærkvöldi leituðu Bandaríkja-
menn að herþyrlu sem þeir segja að
hafi verið á reglubundnu eftirlits-
flugi yfir Persaflóa er hún hvarf og
Iranar reyna aö slökkva eldinn á öórum olíuborpallanna sem Bandaríkjamenn gerðu árás á í fyrrinótt á Persaflóa.
Simamynd Reuter
Átökin hófust þegar Bandaríkjamenn gerðu árásir á borturna írana við
Sirri og Sassan og til átaka milli bandaríska flotans og írana kom meðal
annars á Hormuz-sundi.
ekkert bendir til þess að hún hafi
lent í bardaga. íranar segjast hins
vegar hafa skotið niður bandaríska
herþyrlu.
íranar hafa heitið því aö hefna
þessara hemaðaraðgerða Banda-
ríkjamanna og sendiherra íráns hjá
Sameinuðu þjóðunum lýsti því yfir í
gærmorgun að það væru engin tak-
mörk fyrir því hvemig sú hefnd gæti
orðið. I gær var talað um það hér
vestra að öryggi gíslanna í farþega-
þotunni frá Kúwait, sem nú hefur
verið á valdi flugræningja í tvær vik-
ur, gæti verið í töluverðri hættu.
Flugræningjamir eru sem kunnugt
er taldir mjög hliðhollir stjórn Kho-
meinis erkiklerks. Frekar eiga menn
hér þó von á að íranar muni fremja
hermdarverk gegn bandarískum rík-
isborgurum og fyrirtækjum. Banda-
rísk stjómvöld vömðu írana í gær
við því að hvers kyns hermdarverk-
um gegn Bandaríkjamönnum, hvar
sem er í heiminum, yrði svaraö af
hörku.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði í
gær að aðgerðir bandaríska flotans á
Persaflóa hefðu verið hlutfallslegt
svar við árásum írana á skip á al-
þjóðasiglingaleið. í gærkvöldi sagði
Frank Carlucci, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, að Banda-
ríkjamenn álitu þessum átökum þar
með lokið nema að íranar héldu
áfram ófriði.
Það kom mjög á óvart að íranar
skyldu svara árásum Bandaríkja-
manna á olíuborpallana af einís
mikilli hörku og raun bar vitni. Er
talið að þessi hörðu viðbrögð írana
hafi að vissu leyti komið bandaríska
flotanum í opna skjöldu. Bandaríkja-
menn hafa áöur gert árásir á írönsk
•mannvirki og hingað til hafa íranar
haldið að sér höndum á meðan á ár-
ásum hefur staðið. í þetta skipti
börðust þeir af vanbúnaði gegn vel
búnum flota Bandaríkjanna. Afleið-
ingin varð sú að tvær af sex eða sjö
freigátum írana eru óvígar og úr leik
um langan tíma. Mönnum hér vestra
gengur erfiðlega að skilja þá ákvörð-
un Irana að reyna að etja kappi við
bandaríska flotann nema þá að til-
gangurinn hafi verið sá að þjappa
írönsku þjóðinni saman í baráttunni
við bandaríska óvininn.
Nær einróma stuðningur
Ólafur Amaison, DV, New York;
Ákvörðun Reagans Bandaríkjafor-
seta um að eyðileggja tvo íranska
olíuborpalla í hefndarskyni fyrir að
bandaríska freigátan Samuei B. Ro-
berts sigldi á íranskt tundurdufl í
síðustu viku hefur hlotið nær ein-
róma stuðning í Bandaríkjunum.
Leiðtogar bæði demókrata og repú-
blikana í bandaríska þinginu lýstu
því yfir í gær að þeir teldu forsetann
hafa gert rétt og nauðsvnlegt væri
að Bandaríkin geröu allt sem í þeirra
vaidi stæði til að stöðva hemaðarað-
gerðir írana á alþjóðasiglingaleiðinni
á Persaflóa.
Sam Nunn, demókrati frá Georgiu,
sem er foríhaður vamarmálanefndar
bandarísku öldungadeildarinnar,
lýsti því yfir að hann styddi ákvörð-
un forsetans af alhug. Þessi stuðn-
ingsyfirlýsing Nunns er talin
mikilvæg fyrir Reagan þar sem Nunn
er mjög virtur og talinn vera mesti
sérfræðingur bandaríska þingsins á
svið vamarmála. ‘
Richard Nixon, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, sagði í sjónvarpsviðtali
í gær að hann teldi Reagan hafa gert
hárrétt. Nixon sagðist hins vegar
telja að því ófriðarástandi, sem nú
ríkir viö Persaflóa, muni ekki linna
fyrr en Bandaríkin fái Sovétríkin til
u3 hætta að leika tveimur skjöldum
í þessum heimshluta. Nixon sagði
það nauðsynlegt fyrir frið á þessu
svæði að Sovétríkin hættu að styðja
írana og íraka sitt á hvaö og tækju
saman höndum við Bandaríkin um
aö beita írana þrýstingi til aö þeir
hlíti samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna.
Forsetaframbjóðendur demókrata
vom ekki sammála í afstöðu sinni
gagnvart aðgerðum bandariska flot-
ans. Albert Gore lýsti því yfir að
hann teldi Bandaríkin hafa fullan
rétt á að grípa til svona aðgerða tii
að vemda hagsmuni sína. Michael
Dukakis vildi enga skoðun hafa á
málinu og sagðist ekki hafa fengið
nægar upplýsingar til að mynda sér
afstöðu. Jesse Jackson var fullur efa-
semda um réttmæti aðgerða banda-
ríska flotans og á honum var helst
að heyra að honum þætti það mátu-
legt á Reagan að íranir skyldu hafa
svarað af hörku. Jackson sagði að
íranir heíðu sjálfsagt notað vopn sem
Reagan og Bush hefðu selt þeim á
ólöglegan hátt til að skjóta á banda-
rísk skip og flugvélar í gær.
Samkvæmt óformiegri skoðana-
könnun CNN-sjónvarpsstöðvarinn-
ar, sem gerð var í gærkvöldi, styðja
93 prósent Bandaríkjamanna aðgerð-
ir flotans. Þessi skoðanakönnun var
þó ákaflega óvísindaleg því hlustend-
ur hringdu inn afstöðu sína.
Jackson með gott veganesti
Ólafur Amarson, DV, New York;
í dag fara fram forkosningar í
New York-ríki. Flest bendir til að
Michael Dukakis fari með sigur af
hólmi hjá demókrötum en talið er
að mjótt geti orðið á mununum hjá
honum og Jesse Jackson.
Jackson hlaut gott veganesti fyrir
kosningarnar í dag er hann sigraði
með yfirburðum í forkosningum í
Delaware sem fram fóru í gær.
Hlaut Jackson 45 prósent atkvæða,
Dukakis 27 prósent og Albert Gore
2 prósent. Delaware er hins vegar
mjög fámennt ríki sem skiptir ekki
miklu máli í kosningabaráttunni.
Frambjóðendurnir lögðu í gær
lokahönd á undirbúninginn fyrir
kjördag og létu sig hafa það að
standa á götuhornum og heilsa veg-
farendum þó ekki væru veðurguð-
irnir þeim hliðhollir. Það helli-
rigndi.
Michael Dukakis hafði sér til að-
stoðar frænku sína, Olympiu
Dukakis, sem á dögunum hlaut
óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í
myndinni Moonstruck.
Albert Gore var heldur ekki einn
á ferð því að í fylgd með honum
var Ed Koch, hinn orðhvati borgar-
stjóri New York-borgar.
Jesse Jackson var sá eini þeirra að af neinni stórstjörnu í sínu
þremenninganna sem ekki gat stát- fylgdarliði.
Michael Dukakis hafði sér til aöstoöar frænku sína og óskarsverölauna-
hafa, Olympiu Dukakis, er hann biólaði til New York-búa i gær.
Simamynd Reuter