Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Paul
Newman
hefur alla tíð langað tíi að starfa
aftur með vini sínum Robert Red-
ford í kvikmynd. Þeir þóttu
stórkostlegir saman í sígildu
myndinni „Sting“ og hafa menn
saknað þess að fá þá ekki saman
í kvikmynd síðan. Þeir eru nú að
velta fyrir sér að leika saman í
kvikmynd sem byggð er á söng-
leiknum „Phantom of the Opera“.
Báðir hafa þeir þótt með myndar-
legri leikurum á hvíta tjaldinu,
og því spennandi aö sjá hvor
þeirra muni leika drauginn af-
skræmda.
Rob
Lowe
leikarinn saétí sem sló í gegn í
myndinni „Youngblood" er sífellt
að breyta um útlit. Hann var lengi
fúlskeggjaður og með kringlótt
prófessorsgleraugu, en hefur nú
hætt við þá ímynd. Nýjasta útht
hans er stífgreitt brilljantín hár
og engin gleraugu að þessu sinni.
Líklegt er talið að brilljantín-
greiðslan hjá karlmönnum
komist í tísku aftur á þessu ári.
Rock
Hudson
sem lést úr alnæmi fyrir
nokkru var á samningi hjá Uni-
versal kvikmyndaverinu þegar
hann lést. Nú ætlar sama fyrir-
tæki að búa til sjónvarpsþætti
sem byggðir veröa á lifi hans, og
mun ekkert verða dregiö undan.
Rock lét skrá endurminningar
sínar á dánarbeði og upplýsti þar
meðal annars að hann væri
hommi.
Jj
Hjónin Dave Stewart og Siobhan Fahey sjást hér með afkvæmi sitt, soninn
Samúel, en til hægri við þau er Jerry Hall, eiginkona Micks Jagger.
Nýr og betri maður
Það þótti tíðindum sæta þegar einn
af villtari sveinum tónlistarheims-
ins, Dave Stewart úr Eurythmics
dúettnum, gekk í hjónaband. Hann
kvæntíst annarri þekktri popp-
stjömu sem var heldur ekki af
rólegra taginu. Siobhan Fahey heitir
hún og er liðsmaður úr Bananarama
stúlknahljómsveitinni.
Dave var þekktur fyrir sukksamt
lífemi og því vom menn þegar fyrir
hjónabandið famir að efast um að
þaö gengi. En þau eignuðust dreng
saman fyrir þremur mánuðum og
eftir það vill Dave hvergi annars
staðar vera en við bamagæslustörf.
Við fæðingu bamsins urðu Dave
og Siobhan strax áhyggjufull um að
Los Angeles-borg væri ekki heppileg
sem uppeldisstaður fyrir lítíð barn.
Þess vegna var drifið í búferlaflutn-
ingum til lítils bæjar um klukku-
stundar akstur frá borginni.
Annie Lennox, hinn helmingurinn
af Eurithmics dúettnum, bjó í París
áður en Dave og Siobhan eignuðust
krakkann. Hún hefur neyðst til að
flytja þaðan og til Los Angeles til
þess að þau geti haldið tónsmíðum
áfram því Dave Stewart vill ekki
lengm- feröast langar leiðir frá htla
stráknum sínum til þess að sinna
tónlistinni. Menn geta greinilega
breyst við aö verða feður.
Leikendur hvíslari og leikstjóri. Efri röö frá vinstri; Rögnvaldur Guðmunds-
son, Elfn Gunnarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson og
Sigurður Bjarki Guöbjartsson. Fremri röö frá vinstri; Þóra Hallsdóttir hvísl-
ari, Petrína Sigurðardóttir, Oktavía Stefánsdóttir leikstjóri, Soffía Hauksdóttir
og Jarþrúður Ólafsdóttir.
DV-myndir Sigurjón Sig.
Siguxjón J. Sigurðsson, DV, ísafirði;
Leikfélag Bolungarvíkur fram-
sýndi 8. apríl síðastiiðinn sakamála-
gamanleikinn Slettirekuna eftir Jack
Popplewell í leikstjóm Oktavíu Stef-
ánsdóttur. Þann sama dag var
afmælisdagur félagsins, en það er 20
ára um þessar mundir.
Fmmsýningin tókst með miklum
ágætum. FélagsheimihBolungarvík-
ur var þétt setið og var leikendum
og leikstjóra klappað mikið lof í lófa
í lok sýningarinnar. Allir leikend-
umir skfiuðu sínu hlutverki vel, en
þó bar mest á aðalleikaranum Jar-
þrúði Ólafsdóttur, enda hlutverkið
buröarás verksins.
Leikfélag Bolungarvíkur mun sýna
verkið víðar á Vestfiörðum á næst-
unni.
Gunnar Sigurðsson og Jarþrúður
Ólafsdóttir í lokakafla verksins.
Slettirekan sýnd
í Bolungarvík
Aö loklnni skófiustungunni flutti Davið Oddsson, borgarstjóri Reykjavfkur-
borgar, ávarp. DV-myndir GVA
Fyrsta skóflustung-
an að nýju ráðhúsi
við Tjömina
Fyrir skömmu var tekin fyrsta
skóflustungan að nýju ráðhúsi við
Tjömina að viðstöddu fiölmenni.
Davíð Oddsson, borgarstjóri Reykja-
víkurborgar, tók skóflustunguna, og
fluttí síðan ávarp við það tækifæri.
Einn íbúa Tjamargötu tók sig til og
settí hátalara út í glugga og spfiaði
jarðarfarartónlist eftír Chopin, en
eins og kunnugt er þá era ekki allir
aðilar sáttír við byggingu ráöhúss á
þessum stað.
Davíð báuð síðan borgarráðs-
mönnum til móttöku í, eins og
borgarstjóri sagöi, húsi sem borgin
hefur haft á leigu tfi langs tíma í
Pósthússtrætí. Ljósmyndari DV var
viðstaddur og tók nokkrar myndir.
Glösum lyft í tilefni þess að framkvæmdir við nýtt ráðhús viö Tjörnina eru
hafnar. í forgrunni eru Jón Tómasson borgarlögmaður og Davið Oddsson,
bakatil má þekkja meðal annars Hilmar Guðlaugsson, formann bygginga-
nefndar Reykjavíkurborgar og Magnús L. Sveinsson, forseta borgarstjórnar.