Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 30
- 30 ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988. Jarðarfarir Hildur Geirfinnsdóttir, sem lést 4. apríl, hefur verið jörðuð í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Lilja Vikar Finnbogadóttir frá Galta- læk, Starmýri 8, Reykjavík, verður >• jarðsungin frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 20. apríl kl. 13.30. Alfreð Elíasson, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mið- vikudaginn 20. apríl kl. 15. Ágústina Sigurðardóttir, Stangar- holti 12, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. apríl kl. 10.30. Sóley Jónsdóttir, Tonderbindervej 4, Kaupmannahöfn, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 20,'apríl kl. 15. Þórarinn Sigurðsson, Kópavogs- braut 5, verður jarðsunginn frá ”■* Kópávogskirkju, miðvikudaginn 20. apríl ki. 13.30. Helgi Bjarnason, Selbrekku 10, er látinn. Utförin fer fram frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 13.30. Tilkyimingar Félag eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, þriðju- dag. Kl. 14:00 félagsvist, kl. 17 söngæfing. Ungmennafélag Biskups- tungna áttrætt Afinælishátíð verður í Aratungu á sum- ardaginn fyrsta, 21. apríl nk. Þar verður rifiað upp ýmislegt frá félagsstarfinu á fyrri árum og eitthvað fleira gert gestum til fróðleiks og skemmtunar. Um kvöldið, kl. 20 verður dansleikur fyrir sveitunga yngri en 12 ára í Aratungu og þar verður boðiö upp á veitingar við þeirra hæfi. Borgarbókasafn Reykjavíkur Um þessar mundir á Borgarbókasafn Reykjavíkur 65 ára afmæli. í tilefni af- mælisins hefur verið ákveðiö að bæta nýjum þætti við þjónustu safnsins og hefja útlán á geisladiskum í Borgarbóka- safni í Gerðubergi, hefjast þau á afmælis- daginn 19. apríl. Ennfremur verður sektarlaus vika í öllum útlánadefidum safnsins í tfiefni afmælisins dagana 19.-26. apríl. Árshátíð Grikklandsvina Grikkiandsvinafélagið Hellas efnir til aðalfundar og árshátíðar síðasta vetrar- dag, miðvikudaginn 20. apríl. Aðalfund- urinn verður haidinn í Geirsbúð við hliðina á Naustinu og hefst kl. Í9.30: Strax að aðalfundi loknum eða kl. 20.30 hefst síðan árshátíðin í sjálfu Naustinu. Þar verður snæddur grískur matur og hiýtt á söngva á grísku og íslensku. Ræðumað- ur kvöldsins verður Thor Vilhjálmsson rithöfundur sem verður nýsnúinn heim úr langri utanlandsreisu. Mánudaginn 25. apríl verður efnt til fyrstu grisku kvik- myndaviku á íslandi í Regnboganum við Hverfisgötu. Soroptimistasamtökin styrkja hús Rauða krossins Sunnudaginn 20 mars sl. héldu Soroptim- istasamtökin tjölskylduskemmtun í Broadway til styrktar starfsemi RK- hússins að Tjarnargötu 35 en það er neyð- arathvarf fyrir börn og unglinga. Mánudaginn 29. mars síðastliðinn af- hentu Soroptimistaklúbbarnir síðan ágóðann af skemmtuninni, kr. 251.000, formanni stjómar RK-hússins. Heilsulínan hf. flutt. Fyrir nokkru keypti' Heilsulínan hf„ Laugavegi 28, fyrirtækið Hárræktina sf„ Hverfisgötu 50. Heilsulínan var sérversl- un með lifrænar snyrtivörur og vítamín. Hárræktin starfrækti hárrækt. Eftír kaupin var starfsemin sameinuð undir nafni Heilsulínunnar. Nú hefur heilsu- línan flutt alla starfsemi í myndarlegt húsnæði að Laugavegi 92, porti Stjörnubíós. Antikmunir fluttir á Hverfis- götu Verslunin Antikmunir er flutt að Grettis- götu 16 1 stórt og rúmgott húsnæði. Á boðstólum eru antik sófasett, borðstofu- húsgögn, bókahillur, skrifborð, speglar, málverk, klukkur, silfur, ljósakrónur, postulín og margt flei^a. Eigandi verslun- arinnar er Magnea Bergmann. Verslunin er opin frá kl. 12 til 18, fóstudaga til kl. 19. Síminn er 24544. Raðsamkomur í Krossinum Á sumardaginn fyrsta kl. 20:30 hefjast raðsamkomur í Krossinum , Auðbrekku 2, Kópavogi. Samkomumar verða á fóstu- dags- og laugardagkvöld á sama tíma, og á sunnudaginn kl. 16:30. Ýmsir einsöngv- arar koma fram og hljómsveitin Júda mun leika á laugardagskvöld. Samkomur þessar verða í beinni útsendingu á út- varpsstöðinni Alfa FM 102,9. Stórstúka íslands efnir til skáldsagnakeppni í tilefni af 90 ára afmæli æskunnar, verðlaun verða kr. 200.000 að viðbættum venjulegum rit- launum. handritum skal skila á skrif- stofu stórstúku íslands, Eiríksgötu 5 101 Reykjavík, merktum dulnefni, fyrir 1. júni næstkomandi. Áskilinn er réttur tfi að taka hvaða handriti sem er eða hafna öllum, ef dómnenfnd telur ekkert hand- rit verðlaunahæft. Uppskeruhátíð Framara Uppskeruhátíð handknattleiksdeildar Fram verður haldin í félagsheimfii Fram fimmtudaginn 21. apríl nk. kl.15.00, verð- launaafhendingar, kaffiveitingar. Tímarit Gangleri er kominn út, fyrra hefti 62. árgangs. Það flytur greina um andleg og heimspekfieg mál. Alis eru 13 greinar í heftinu auk smáefnis. Happdrætti Ferðahappdrætti handknatt- leiksdeildar Vals Dregið hefur verið í ferðahappdrætti handknattleiksdeildar Vals. Vinningar féllu þannig. 1. Ferð til Mílanó nr. 784, 2. Ferð til Zúrich nr. 395,3. ferð til Amst- erdam nr. 70, 4. ferð til Amsterdam nr. 240,5. ferð til Hamborgar nr. 32. Vinninga má vitja í Valsheimilinu. Tónleikar Síðan skein sól Stórtónleikar verða í LæKjartungli á sumardaginn fyrsta með hljómsveitinni Síðan skein sól. Meðlimir sveitarinnar eru: Helgi Bjömsson, söngur, Eyjólfur Jóhannsson, gítar, Jakob Magnússon, bassi og Ingólfur Sigurðsson, tommur. Þeir spila melódískt rokk og munu á tón- leikum þessum flytja lög sem verða á væntanlegri hljómskifu sem tekin verður upp í maí. Fleira verður um hljómsveitir í Lækjartungh á fyrsta degi sumars því Katla kalda (áður Mosi frændi) kemur einnig fram. Áætlað er að tónleikamir standi frá kl. 10:00-1:00. KvHanyndir ___________________ Regnboginn: Bless, krakkar Leikstjóri: Louis Malle. Helstu leikendur: Francine Racette, Philippe Morier-Genoud, Peter Fitz, Francois Berleand, Gaspard Manesse, Raphael Fejto, Benoit Henriet. Það er veisla í Regnboganum þessa dagana. Eftir að kvikmynda- framboðið í Reykjavík hefur í vetur einkennst af amerískum sölu- myndum hefur Regnboginn tekið Au revoir les enfants sig á og sýnir nú hvern gimsteininn á fætur öðrum. Aðalrétturinn í veislunni er mynd Louis Malle, Au revoir les enfants, en þessi mynd er fádæma góð og hefur sópaö til sín verðlaun- um hvar sem hún hefur verið sýnd. Hún fékk t.d. gullljónið í Feneyjum í fyrra og sópaði nýlega til sín fjölda César-verðlauna. Hún var einnig tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að í.stríðinu kynnist Juhen, sem er nemandi í katólskum drengjáskóla, nýjum nemanda, Je- an Bonnet. Eitthvað í fari Jean pirrar Julien og eftir því sem á líð- ur kemst hann á snoðir um að Jean er gyðingur sem er í felum. Þeir verða óaðskiljanlegir félag- ar, allt þar til einhver klagar í Gestapo, Jean er fluttur til Aus- witch ásamt tveimur drengjum öðrum sem einnig voru í felum í skólanum. Saga þessi er sögð, af einstakri næmni og alúð. Fyrir vikið verður raunveruleiki stríðsins enn meira yfirþyrmandi og þrátt fyrir að eng- inn sé drepinn og hvergi sjáist blóð í allri myndinni er hún mögnuð stríðsmynd. Það að sjá stríðið end- urspeglast í hinu smáa samfélagi í drengjaskóla er mun áhrifameira en blóðsúthellingar og endalausar bardagasenur. Regnboginn á lof skilið fyrir að sýna það áræði að taka til sýninga myndir frá öðrum málsvæðum en því enska og er vonandi að dæmiö gangi upp og áframhald verði á veislunni. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.